Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 32
•44 LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993 Sannkallað reiðibál logaði í Los Angeles eftir að kviðdómur sýknaði fjóra hvíta lögreglumenn af ákæru um að hafa barið blökkumanninn Rodney King að tilefnislausu. Þúsundum saman þustu blökkumenn út á götur og létu reiði sína bitna á öllu sem fyrir varð. Margar verslanir brunnu til grunna en fólk reyndi að nýta sér ástandið eins og maðurinn sem hér hleypur frá eldinum með innkaupakerru fulla af bleium. Verðlaunamynd þessa tók Kirk McKoy fyrir Los Angeles Times. World Press Photo '93 fréttaljósmyndasýningin hafin í Kringlunni: Borgin logar af mannavöldum - ein verðlaunamyndin er af kynþáttaóeirðunum miklu í Los Angeles Þetta byrjaði allt á því að blökku- maðurinn Rodney King ætlaði fuUur heim á bílnum sínum. Fjórir hvítir lögreglumenn stöðvuðu hann og mál þróuöust svo að þeir gengu í skrokk á King og misþyrmdu honum illilega. Myndir voru teknar af aðfórum lögreglunnar og urðu þær helsta sönnunargagnið í réttarhöldum gegn lögreglumönnunum flórum. Þrátt fyrir augljósar sannanir voru þeir sýknaðir og þá varð íjandinn laus í Los Angeles - borg englanna. sólarhring og að þessu sinni voru það ekki náttúruöflin sem léku lausum hala. Reiði manna vegna misréttis kynþáttanna varð til þess að Los Angeles leit út eins og eftir stórstyij- öld daginn eftir að dómsorð féll í máh lögreglumannanna. Einn fjölmargra ljósmyndara á vettvangi átakanna var Kirk McKoy frá Los Angeles Times. Hann fangaði þarna ódauðleg augnabilk á filmu og hlýtur þriðju verðlaun World Press Photo fyrir fréttamyndir. augnabliki er segir allt sem segja þarf um reiðibálið sem nánast lagði Los Angeles í rúst. McKoy á margar myndir frá at- burðunum í Los Angeles á World Press Photo ljósmyndasýningunni sem hófst í Kringlunni í gær. Mynda- röð hans frá atburðunum vakti verð- Eldar óréttlætis Þegar eftir að sýknudómurinn lá fyrir brutust út verstu kynþáttaó- 1 eirðir í sögu Bandaríkjanna. Blökku- menn í Los Angeles þustu út á götur og réðust á alla hvíta menn sem þeir sáu, brutu rúður og kveiktu í húsum og bílum. Þegar átökunum lauk lágu 58 menn í valnum og eignatjón nam milijörð- um Bandaríkjadala. Borgin hafði log- að í bókstaflegum skilningi í heilan Bleiunum komið undan Eftirminnilegasta mynd McKoy frá atburðunum í Los Angeles er af manni með innkaupakörfu fulla af bleium. Mikið var um gripdeildir í borginni meðan óöldin geisaði þar. Kaupmenn urðu illa fyrir barðinu á óaldarseggjunum og ófrómir menn notfærðu sér ástandið. Þetta er mynd sem lifir. Enn einu sinni tókst fréttaljósmyndara að undirstrika ógnina með mynd af einu Reiði bfökkumanna í Los Angeles var mikil eftir að fjórir lögreglumenn voru sýknaðir þrátt fyrir augljósar sannanir fyrir að þeir hefðu barið blökku- mann til óbóta að tilefnislausu. Myndina tók Kirk McKoy. skuldaða athygli og nú gefst Islend- ingum kostur á að rifja upp söguna að baki eldunum sem geisuðu í Los Angeles á síðasta ári. World Press Photo Sýningin í Kringlunni stendur fram til 16. nóvember. Opiö er á verslunartíma og er öllum heimill ókeypis aðgangur. Alls eru 200 myndir á sýningunni úr 17 flokkum verðlaunamynda. Dómnefndir völdu verðlauna- myndirnar úr um 2000 myndum frá 84 löndum. Þarna getur að hta allar eftirminnilegustu fréttaljósmyndir liðins árs. Listasafn ASÍ heldur sýninguna sem fyrr en nú í samvinnu við DV, Hans Petersen og Kringluna. Hús- næði ASÍ við Grensásveg hefur dug- að til þessa en nú er sýningin orðin svo umfangsmikil að ekkert minna enKringlandugar. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.