Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993 59‘ Afmæli Gunnar M. Kristmundsson Gunnar Marel Kristmundsson full- trúi, Engjavegi 36, Selfossi, varö sex- tugurígær. Starfsferill Gunnar fæddist á Kaldbak í Hrunamannahreppi og ólst þar upp. Hann lauk skólanámi aö Flúðum og stundaöi síðan landbúnaðarstörf á ýmsum stööum í Ámessýslu uns hann settist aö á Selfossi 1958. Þar stundaði hann verslunarstörf hjá Kaupfélagi Árnesinga í tuttugu og átta ár, lengst af sem verslunar- stjóri í kjötbúö og seinna í vöru- markaði. Gunnar var framkvæmda- stjóri Verkalýösfélagsins Þórs á Sel- fossi í tvö ár en starfaði síðan hjá Samvinnutryggingum og loks Vá- tryggingafélagi íslands eftir að það varstofnað. Gunnar hefur tekið virkan þátt í félagsmálum. Hann var lengi for- maður Verslunarmannafélags Ár- nessýslu, sat í stjórn Landssam- bands íslenskra verslunarmanna, var formaður Alþýðusambands Suðurlands um skeið og á nú sæti i stjóm KÁ. Hann var kosinn í fyrstu bæjarstjóm á Selfossi og er nú í Félagsmálaráði Selfossbæjar. Fjölskylda Gunnar kvæntist 15.6.1957 Sig- rúnu Kristjánsdóttur saumakonu. Hún er dóttir Kristjáns Þórðar Sveinssonar og Guðmundu Þóru Stefánsdóttur, búenda í Geirakoti í Flóa. Börn Gunnars og Sigrúnar era Elín, f. 12.1.1957, kennari í Keflavík, en maður hennar er Björn Víkingur Skúlason kennari og eiga þau tvö börn; Guðmunda, f. 24.12.1959, bankastarfsmaöur á Selfossi, en maður hennar er Hinrik Óskarsson bílsmiður og eiga þau tvö böm; Erla, f. 2.5.1962, kennari í Reykjavík, gift Stefáni Stefánssyni, veggfóðrara og dúklagningameistara, og eiga þau tvö börn; Kristján Geir, f. 5.9.1971, í sambúð með Bjarnþóru írisi Ei- ríksdóttur og eiga þau eitt barn. Sonur Sigrúnar er Stefán Sigurjóns- son, f. 29.1.1954, skósmiður, tónlist- arkennari og stjórnandi Lúðrasveit- ar Vestmannaeyja, kvæntur Svan- björgu Gísladóttur bankastarfs- manni og eiga þau fjögur börn. Systkini Gunnars: Jónina Guð- rún, f. 27.8.1926, d. 9.12.1967, hús- móðir að Jaðri, var gift Guðbergi Guðnasyni og eru börn þeirra tvö; Sigurður, f. 17.6.1928, b. aö Kotlaug- um, kvæntur Valgerði Jónsdóttur og eiga þau tvö böm; Guðbrandur, f. 15.9.1930, verslunarmaður á Sel- fossi en áður b. að Bjargi, kvæntur Sigrúnu Guðmundsdóttur og eiga þau tvö böm; Guðmundur, f. 15.9. 1930, b. í Skipholti, kvæntur Krist- rúnu Jónsdóttur og eiga þau fjögur Gunnar Marel Kristmundsson. börn; Kristinn, f. 8.9.1937, skóla- meistari á Laugarvatni, en kona hans er Rannveig Pálsdóttir og eiga þaufjögur börn. Foreldrar Gunnars voru Krist- mundurGuðbrandsson,f.l.5.1897, d. 23.12.1954, b. á Kaldbak, og Elín Hallsdóttir, f. 12.3.1895, d. 20.6.1942, húsfreyja að Kaldbak. Salvör Sumarliðadóttir Salvör Sumarliðadóttir húsmóðir, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði, er sjö- tugídag. Starfsferill Salvör fæddist í Stykkishólmi og ólst þar upp til fermingaraldurs en flutti þá með foreldrum sínum til Keflavíkur. Er hún gifti sig hófu þau hjónin búskap í Hafnarfirði þar sem þauhafabúiðsíðan. Fjölskylda Salvör giftist 16.11.1946 Ólafi Sig- urgeirssyni, f. 3.7.1925, sjómanni í Hafnarfirði. Hann er sonur Sigur- geirs Ólafssonar, sjómanns í Hafn- arflrði, og konu hans, Amfríðar Kristínar Pétursdóttur húsmóður. Börn Salvarar og Ólafs eru Ingi- björg Guðmunda, f. 31.3.1945, saumakona í Danmörku, en sonur hennar er Ólafur Elíasson, listmál- ari í Kaupmannahöfn; Bára, f. 20.8. 1946, fóstra í Reykjavík, en dætur hennar era Helen og Susanna Ros- enlind, báðar búsettar í Sviþjóð; Arnfríður Kristín, f. 3.6.1950, sjúkrahði á Selfossi, maður hennar er Steingrímur Viktorsson kjötiðn- aðarmaður og eru börn þeirra Vikt- or framreiðslumaður og Margeir nemi; Sigurgeir, f. 7.5.1961, sím- smíðameistari í Hafnarfirði, kona hans er Oddný Hrafnsdóttir og er sonur þeirra ðlafur en dóttir Oddnýjar og fósturdóttir Sigurgeirs er Kristjana Helga; Hilmar Már, f. 25.12.1964, rafeindatæknir í Hafnar- firði, kona hans er Eygló Siguijóns- dóttir og eru börn þeirra Siguijón og Hafdís; Guðbjörn, f. 1.4.1967, sím- smíðameistari í Hafnarfirði, kona hans er Áslaug Eyfjörð og dóttir þeirra Arna Salvör en sonur Ás- laugar og fóstursonur Guðbjörns er Andri Freyr, auk þess sem Guð- bjöm á son, Þórð Geir með Rakel Þóru Finnbogadóttur. Foreldrar Salvarar voru Sumar- Salvör Sumarliðadóttir. hði Einarsson, f. á Ási í Stykkis- hólmi 25.7.1889, síðast verkamaður í Hafnarfirði, og kona hans, Guðrún R. Sigurðardóttir, f. að Lækjarbug í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi 12.7. 1880. Sigurður Hjálmarsson Sigurður Hjálmarsson veiðieftirhts- maður, Stekkjarkinn 7, Hafnarfirði, varð fimmtugur í gær. Starfsferill Siguröur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk skipstjóra- prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1964 en hafði þá stundað sjómennsku frá fimmtán ára aldri, einkum á toguram. Hann var síðan skipstjóri, m.a. á Snorra Sturlusyni, og hefur verið veiðieftirlitsmaður frá 1990. Sigurður flutti til Hafnarfjarðar 1969 og hefur búið þar síðan. Fjölskylda Sigurður kvæntist 12.10.1964 Rannveigu Sigurðardóttur, f. 12.8. 1945, hárgreiösludömu og verslun- armanni. Hún er dóttir Sigurðar Gíslasonar verslunarmanns og Jónu Salvarar Eyjólfsdóttur hús- móður. Börn Sigurðar og Rannveigar eru Ásgerður, f. 19.2.1964, tónhstar- kennari í Bahtmore í Bandaríkjun- um, gift Manuel Barrueco gítarleik- ara; Sigurður Andri, f. 10.7.1970, bifvélavirki, en kona hans er Fríða Margrét Friðriksdóttir og er sonur þeirra Daníel Þór, f. 22.10.1990; Haf- þór Örn, f. 28.11.1973, bifvélavirki, og er dóttir hans Ásdís Lilja, f. 4.2. 1993; Jóna Svava, f. 14.12.1975, nemi. Hálfbróðir Sigurðar, sammæðra, er Sigurður Markússon, f. 16.9.1929, stjórnarformaður SÍS, kvæntur Ing- iríði Ámadóttur og eiga þau fjögur böm. Alsystkini Sigurðar: Garðar, f. 15.8.1932, d. 8.6.1963, var kvæntur Eddu Jónsdóttur og eignuðust þau tvö böm; Margrét, f. 29.11.1944, húsmóðir, gift Má Jónssyni pípu- lagningarmanni og eiga þau eina dóttur; Guðmunda, f. 18.3.1947, hús- Sigurður Hjálmarsson. móöir, gift Birgi Jónsssyni og eiga þaueinadóttur. Foreldrar Sigurðar: Hjálmar Sig- urðsson, f. 4.5.1914, bílaviðgerðar- maður í Reykjavik, og Ásta Guö- brandsdóttir, f. 28.11.1903, d. 30.10. 1974, húsmóðir. Guðlaugur Guttormsson Guðlaugur Guttormsson bóndi, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, verður áttatíu og fimm ára á morg- un. Starfsferill Guðlaugur er fæddur aö Hafrafelh í Fehahreppi í N-Múlasýslu og ólst þar upp. Hann var tvo vetur á Laug- arvatnsskóla, 1931-32. Guðlaugur fékkst aðaUega við bú- skap en hann var þijú ár á Korpúlfs- stöðum. Hann flutti til Vestmanna- eyja 1936 og var ráðsmaður að Lyng- feUsbúinu en seinna keypti Guð- laugur það og rak til 1978. Þá var það orðið að lögbýh með 12 kýr og 2000 hænsn. Um tíma hafði hann bæðisvínogminka. Guðlaugur var meðlimur í Búnað- arfélagi Vestmannaeyja. Fjölskylda Guðlaugur giftist 1938 Guðbjörgu Jónsdóttur, f. 1906, húsmóður. For- eldrar hennar: Jón og Sigríður Jóns- dóttir frá Syðstu-Mörk undir Eyja- fjöUum. Kjörsonur Guðlaugsog Guðbjarg- ar var Oddur Guðlaugsson, f. 1944, d. 1977. Hann var sonur Svölu Kristjánsdóttur, dóttur Guðbjargar. Systkini Guðlaugs: Einar, Sigfús og Bergljót. Hálfsystkini Guðlaugs, samfeðra: Sigurður, Stefán ogEUn. Hálfbróöir Guðlaugs, sammæðra: Guðfinnur Jónsson. Foreldrar Guðlaugs: Guttormur Guðlaugur Guttormsson. Einarsson verkamaður og Oddbjörg Sigfúsdóttir, húsmóðir frá Hreiðars- stöðumíFehum. Guðlaugur tekur á móti gestum í Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Til hamingju med afmælið 7. nóvember Ólafur B. Ólafsson, Hátúni !0a. Reykjavík.: Hj örtur Valdlmarsson húsasmíðameistari, Garöaflöt 33, Garöabæ. Hann er staddur að Jökulási á Arnar- stapa. 50 ára Heigi <J. Sveinsson, Gnitanesi 2, Reykjavík. Ásgeir Magnússon, Bústaðavegi 97, Reykjavík. Eyþör Jónsson, Hátuni lOa, Reykjavík. Úifar Sveinsson, Syðrí-Ingveldarstöðum, Skarðshreppi. Hallgrímur G. Friðfinnsson, Aðalgötu 52, Ólafsílrði. Valdís Sigurðardóttir, Kirkjuvegi 11, Keflavík. Jón Agúst Guð- björnsson raftirkjameist- Gyðufetli 6, Reykjavík. Eiginkona hans er Anna Björg- úllsdóttir. Sigurður P. Sigurjónsson, Marargötu 1, Reykjavík. Pálína Pálsdóttir, Túngötu 15, Súgandafirði. ; ; V Aata Jósepsdóttir, Pálshúá, Garðabæ. ; Ástrós ICyja Kristinsdóttir, Hátúni 22, Keflavik. Hún tekur á móti gestura á afmælisdag- inn frá kl. 17-20 í Iðnsveínafélagshús- inu í Tjarnargötu. Haraidur Kjartansson, ; ; ; Sléttuvegi 7, Reykjavík. Eiríkur Ásgeirsson, Vestuibend 72, Revkjavík. ' Friðmar M. Friðmarsson, Kringlunni 87, Reykjavik. Jón Haukur Hákonarson, Urriöakvísl 17, Reykjavik. Jón Rafn Högnason, Skálagerðí 3, Akureyri. Ólöf Matthíasdóttir, Melanesi, Rauðasandshreppi. Hálfdáu Sveinbjörn Ingólfsson, Fremra-Ósi, Bolungarvik. Rúnar Daðason, Marargrund 4, Garöabæ. Elenóra Björk Sveinsdóttir, Flúðaseli 72, Reykjavík. Brynjar Ragnarsaon, Hjallavegi 5d, Njarðvik. Hafdis Hailgrimsdóttir, Básahrauuí 24, Þorlákshöfn. Axel Steindórsson, Framnesvegi 31, Reykjavík. Leó Viöar Leósson, Smárahtið if, Akureyri. Sofiia Kristjánsdóttir, Alftamýri 57, Reykjavík. Helga Margrét Guðmundsdóttir, Miðgarði 5, Keflavík. ótína María Jónsdóttir, Dælengi 8, Selfossi. Sigurbjörg Stefánsdóttir, Smáragötu 14, Vestmannnevjum. Bl ////////A N E ov LÖNDUÓS r////////////////// lýr umboðsmaöur irla Aðalsteinsdóttir Urðarbraut 20 sími 24581 ■ SANDGERÐI Nýr umboðsmaður Áslaug Bára Loftsdóttir Tjarnargötu 9 Sími 37742

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.