Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993 Útlönd Danir bæði undrandi og reiðir vegna fólskuverks unglinga undir lögaldri: Krakkar rændu og myrtu 82 ára konu - skipulögðu aðförina vel en segjast aðeins hafa ætlað að taka veskið af konunni Þrír krakkar á unglingsaldri hafa játað við yfirheyrslur hjá dönsku lög- reglunni að hafa myrt Birgitte Tol- strup Pedersen, 82 ára gamla konu, búsetta á Fredriksbergi í Kaup- mannahöfn. Morðið var framið á miðvikudag- inn og tókst lögreglunni að hafa uppi á ódæðisunglingunum, sem að sögn lögreglunnar eru á aldrinum 14 til 16 ára, eftir nokkra leit. Þeir játuðu á sig verknaðinn í gær og sitja nú tveir í gæsluvarðhaldi en sá yngsti er í vörslu félagsmálayfirvalda. Viö yfirheyrslur hjá lögrelgunni hafa morðingjarnir lýst atvikum þannig að þeir hafi ákveðið að sitja fyrir gömlu konunni þegar hún kæmi heim til sín úr ferð í banka. Áttu þeir von á að hún væri þá með nokkra fjármuni á sér. Ætlunin var að ræna konuna en mál þróuðust svo að þeir gengu í skrokk á henni. Lést konan á leið í sjúkrahús eftir að hafa fengið þung höfuðhögg en morðingjarnir hurfu af vettvangi með andvirði 150 þúsund íslenskra króna. Ránsfengnum skiptu ungmennin jafnt á milh sín og keyptu að eigin sögn leikfóng fyr- ir peningana. Morðingjarnir segjast ekki hafa haft þessa konu í huga þegar þeir lögðu á ráðin um ránið. Þeir biðu við bankann eftir fórnalambi sem líklega hefði á sér mikla peninga. Einn morðingjanna er danskur en hinir eru börn innflytjenda. Vitni voru að tilræðinu og tókst lögregl- unni að hafa uppi á sökudólgunum eftir lýsingu sjónarvotta. Morðið á gömlu konunni hefur vakið bæði undrun og reiði í Dan- mörku. Alvarlegir glæpir unglinga verða æ tíðari í Danmörku. Mörg dæmi eru um árásir unglinga á gam- alt fólk þótt fyrr hafi ódæöi af því tagi ekki kostað mannslíf. Iðjuleysi unglinga ásamt eiturlyfjaneyslu er kennt um hvernig komið er. Þyngsta kona Brasilíu: Borin út í gegnum húsvegg Hún Jóselína da Siiva er farin í megrun. Eftir áralanga baráttu viö offituna ákvað hún að fara á heilsu- hæli þar sem hennar bíður tveggja ára strangur megrunarkúr. Jóselína er þyngsta kona Brasilíu og einhver þyngsta mannvera sem uppi hefur verið. Við brottforina af heimili sínu í Sao Paulo vó hún 900 pund eða um 400 kíló. Langt er síðan Jóselína stóð síðast í fæturna og varð að kalla á slökkvi- liðið til að koma henni úr húsi. Allar venjulegar dyr eru of þröngar fyrir þessa miklu konu og varð því aö leita annarra ráða við að koma henni að heiman. Aðfarir slökkviliðsmanna voru mikilfenglegar í samræmi við verk- efnið. Byrjuðu þeir á að rífa úr glugga og síðan hluta úr útvegg á heimili Jóselínu. Var hún svo borin á svamp- dýnu út um skarðið. Læknar telja að Jóselína muni á megrunartímanum grennast svo mikið að hún geti staðið upp af sjálfsdáðum og lifað eðlilegu lífr. Fit- an var þó orðin svo óskapleg að læknar spáðu henni ekki öllu fleiri lífdögum nema hún færi í megrun. Óráðlegt er talið fyrir svo feitt fólk sem Jóselinu að fara of geyst í megr- unina. Því skal kúrinn standa í full tvö ár. Ekki er vitað til að hún sé haldin sjúkdómi heldur er offitan rakintilgóðrarmartarlystar. Reuter Dollarinn á uppleið Gengi erlendra gjaldmiðla gagn- vart íslensku krónunni hefur verið frekar stöðugt að undanfómu og eng- ar stórvægilegar sveiflur, nema hvað gengi Bandaríkjadollars virðist hækka á ný. Svipaða sögu er að segja um pundið. Gengi svissneska og franska frank- ans hefur ekki verið lægra síðan um miðjan ágúst sl. og þýska markið einnig. Gengi dönsku og sænsku krónanna hefur haldist nokkuð stöð- ugt gagnvart íslensku krónunni síö- ustu tvo til þijá mánuði. Spánskur peseti, ítölsk líra og japanskt jen hafa sömuleiðir tekið litlum breytingum. -bjb Slökkviliðsmenn í Sao Paulo i Brasilíu uröu aö brjóta niður vegg til að koma Jóselínu da Silva út af heimili sínu. Hún var nú i vikunni flutt á heilsuhæli þar sem hennar bíöur tveggja ára megrunarkúr. Jóselina er 900 pund að þyngd, eða um 400 kíló, og telst vera feitasta kona Brasilíu og þótt víðar væri leitað. Simamynd Reuter Stuttar fréttir dv Við liggur að bærinn Vares í Bosníu sé í rúst eftir að múslímar fóru þar um rænandi og ruplandi. Morðingja leitað Lögreglan í Ástralíu hefur fundið lík sjö ungmenna i af- skekktu skóg- lendi. Grunur : leikuráaðeinn og sami morð- ingi hafi verið að verki i öli skiptin. Hann er enn ófundinn. Kjamavopn í reiðiieysi Miklð óstand er á kjamavopn- um Úkraínumanna svo liggur við stórslysi að sögn Rússa. Hlutlaust sjónvarp Rússneski sjónvarpsstjórinn hefur heitið hlutlausum frétta- flutningi af komandi þingkosn- ingum. Skítkast milli frambjóð- enda magnast nú dag frá degi. Byssumenn klagaðir Hjálparliðar i Sómalíu segja að brýnt sé að afvopna byssumenn i landinu vegna árása þeirra. Byssumenn söðla um Tveir helstu skæruliðaforingj- amir í Búrúndi hafa heitið for- sætisráðherranum stuðningi. Tveir látniriMalibu Tveir menn létust í Malibu 1 gær af völdum brunasára. Slökkvilið Los Angeles segist hafa undirtökin í baráttunni við skógareldana. Heitingaráítalíu ítalska lög- reglan er í við- bragðsstöðu vegna hótana umsprengjutil- ræði. Vaxandi óánægja er nú með Sealfaro forseta vegna gruns um aöild armálum. SkammhlaupíAþenu Algert öngþveiti varð í Aþenu 1 gær þegar allt rafmagn fór af. Þyrlurisi til Noregs Stærsta þyrluþjónusta í Evrópu ætlar aö hefja rekstur í Noregi. Höfuðstöðvar verða i Stavanger. Fjárlagafrumvarpið fer ekki óbreytt í gegnum norska þingiö vegna andstöðu kristilegra. Alþjóðalög brotin Norskir lögmenn telja aö stuðn- ingur norskra aöila viö serbneskt fyrirtæki varði við alþjóöalög. FtugráníKína Farþegaþotu var rænt i Kína í gær og henni snúið til Taívan. Ræninginn gafst upp þar. Sihanouk prinsreiður Norodom Si- hanouk, prins í Kambódiu, seg- ir að ómetan- legar þjóðminj- ar í Angkor séu verr farnar en áður var talið. Prinsinn sagði að meira hefði skemmst síðustu ár en áður á þúsund árum. Kráarmorðíngi tekinn Lögreglan á Norður-írlandi hef- ur haft hendur i hári manns sem grunaður er um morðin á kránni ÍGreysteel. ReuterogNTB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.