Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 25
25 LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993 aldur sinn án þess að blikna, var svei mér þá þijóskari en hann sjálf- ur. Hún var að festast í huga hans. Þessi ferð með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar átti eftir að verða af- drifarík fyrir hann. Daginn eftir var búist af stað. Hljómsveitarmennimir létu glósur faUa hver um annan, um bæinn, um allar sætu stelpumar sem vora á ballinu og þessa svarteygu hans Hauks. Bjarni Bö var búinn að kveikja sér í enn nýrri sígarettu sem lafði að venju úr munnvikinu og reykti sig næstum sjálf. Askan féli á jakka- kragann sem oft varð grár í svörtu. •$> erumflu BOKA Bókahúsið riU, Skeifunni Jfö_______(við hlið Málarans og Vogue)_ V* Ritfangaverslun og ÖÐRUVÍSI bókabúð glæsilegu húsnæði - Littu inn -- - NÆG BÍLASTÆÐI HUSIO SKEIFUNNI 8 - simi 68-67-80 Frjálstmannlíf Löngu síðar útskýrði Ransý fyrir Hauki að það hefði ekki verið auð- velt fyrir tengdamóður hans, yngstu dóttur Vilmundar Péturssonar, þess merka manns, að koma heim til Siglufjarðar árið 1932 með óskilgetið bam. Það var nefnilega dálítið annaö að vera vinnukonudóttir eða dóttir skipstjóra. Koma Hauks Morthens til Siglu- fjarðar með hljómsveit Bjama Bö var töluvert mál fyrir Ransý. Haukur Morthens var sæll þessa morgunstund með fylgdarstúlku sinni. Hún var greind, ágætlega máli farin og fyndin þegar hún nennti. Hann skynjaöi betur en hún hélt hvemig henni leið og það yljaði hon- um og gladdi. Um kvöldið var aftur dansleikur og Haukur bauð Ransý að koma. Eins og fyrra kvöldið varð hún dansfélagi hans milh þess sem hann stóð á svið- Stoltur faðir með strákana sína. Omar til hægri, Heimir til vinstri og Hauk- ur situr með nafna sinn sem horfir spurnaraugum til Ijósmyndarans og heimsins. Myndin er tekin árið 1962. Haukur og hljómsveit skemmtu um tíma á einum vinsælasta skemmtistaðn- um í Kaupmannahöfn, Vin og Ölgaad. Frá vinstri: Sæbjörn Jónsson, sem lék á trompet, Gunnar Ringsted, sem lék á gítar, Carl Möller, sem lék á píanó, Einar Bragi Bragason, sem lék á flautu og saxófón, Guðmundur Steingrimsson trommuleikari og Haukur Morthens. Tíndi blóm handa síldarstúlkunni Haukur Morthens fékk því áorkað að rútan stoppaði fyrir utan Sunnu- braggann. Þar stökk Haukur út, hljóp niður í brekkuna fyrir sunnan, tíndi þar regnfang og sóleyjar, vafði saman í blómvönd og gekk að dyram braggans. Athugasemdir féllu út um glugga rútunnar, hláturinn var samt kurteis og ekki illviljaður. Haukur var jú alltaf og alls staðar riddarinn hugumstóri. Hann var eini karlmaðurinn á Siglufirði, þennan dag að minnsta kosti, sem falaði htrík blóm af bala að færa ungri snót. Ransý svaraði bankinu. Hún varð aldeihs forviða þegar svarthærði söngriddarinn bauð brosandi góðan dag og rétti henni blómvöndinn, með þökk fyrir indæl kynni, dansana, kafQboUa um nótt og ekki síst morg- ungönguna ljúfu. Ragga á Grandanum kunni ekki á svona lagað. Hún var af mörgum tal- in óvenju kjaftfor stelpa en nú stóð hún orðlaus í gættinni og var varla vöknuð. Augu hennar leituðu út á götuna. Auðvitað! LangferðabUl, fuUur af brosandi andUtum í gluggunum, einhver orð féUu út úr bUnum. Þessir hljómUst- armenn voru áreiðanlega að gera grín að þeim tveimur og blómunum! Helvítin á þeim, barasta! Hún kunni ekki nema eitt ráð. Hrifsaði blómvöndinn, hnussaði eitt- hvað, skeUti hurð, stransaði inn og var öskuvond og naut þess. Hvað var eiginlega að henni? Hún leitaði að einhverju tU að setja blómin í. Af hveiju lét hjartað í henni svona? Haukur MorÚiens hvarf á brott með hljómsveit Bjarna Bö. Eftir lágu sögur sem hvíslað var aUt frá Reitum og niður á Granda, sögur um þau undur að Ragga á Grandanum hefði verið aðalstjaman hjá þessum fræga söngvara að sunnan! Það var glott, hlegið, dæst og öfund- ast, auðvitað, á meðan síldin hvarf niður í tunnurnar, hreistrið límdist við svuntur, sólin hló ofar gráum mökknum sem tUheyrði síldarsumri á Siglufirði. í Sunnubragganum þomuðu blóm sem voru afhent svarthærðri rós dag nokkurn í upphafi ævintýrs sem lauk ekki fyrr en 45 áram síðar. Ævintýrsins um Hauk og Ransý. (Ath. Millifyrirsagnir eru blaðsins) bjóða sUdarstúlku arminn. Haukur gat ekki annað en brosað, kurteislega þó. Hann gat auðveldlega lesið hugsanir hennar: „Með svona glerfínu fífli fer ég ekki að rölta um göturnar hér! Ég yrði hlegin norður á Grímseyjarsund." Stelpurnar í bragganum vora van- ar að klæðast samkvæmt sUdartísk- unni; gaUabuxum, Jesúskóm eða töffium, í peysu eða goUu. Móðir Ransýjar lagði mikla áherslu á að dóttirin væri vel tU fara þegar riddari með yfirskegg eins og kvikmyndastjama og yndislega rödd var kominn að sækja hana. „Þú verð- ur að Uta út eins og almennUeg manneskja, og hana nú. Úr þessum druslum!" Haukur hafði mjakað sér inn í braggann og boðið móður leiösögu- stúlkunnar góðan dag svo faUega að hún varð enn sama bráðna smjör- skakan og nóttina á undan. Móðirin stóð í braggadyrunum og horfði á eftir unga fólkinu. Ja, héma barasta, hún var með hjartslátt! En hvað lífið endurtekur sig alltaf. Forvitni Siglfirðinga vakin Ransý ákvað að fara með Hauki beint út á Strönd þar sem enginn sá þau. Að fara út á Strönd þýddi að ganga út úr bænum, „út á heims- enda“, eins og sagt var. „Viltu mæta mér kær út á Ströndinni í kvöld, þegar kvöldhúmið ríkir í byggð...“ Þannig var sungið á Siglufirði og seinna söng Haukur þetta lag oft og minntist þá morgunstundar í síldar- bænum með peningalyktina í nösum og hlátur sólar á bak við móskuna. Ransý tókst ekki að fela þessa morgungöngu sína og söngvarans að sunnan. Ef tU vUl var það meðfædd þijóskan og stoltið sem réð leiðinni, nema Ransý fór með Hauk um allan bæ og gluggatjöldin bifuðust í blakt- andi forvitni og aUir sem sáu urðu höggdofa. Þama fór 16 ára stelpan, hún Ragga á Grandanum, og hver var með henni nema söngvarinn að sunnan og það var hábj artur dagur. Jesús minn barasta, þvílíkt! Eitthvað kitlaði þetta stelpuna en miklu mest var hún að storka öUum þeim sem foldu sig bak við glugga- tjöldin í bænum. inu og söng en iðandi manngrúinn steig í takt við tónUstina og tók stundum undir með honum. Þegar fólkið hreifst með varð Haukur inni- lega glaður. Þau augnablik vora hon- um dýrmæt og unaðslegri en að raula við prentvéUna. Þetta vUdi hann gera, aUtaf, aUtaf! Eftir balUð gengu þau saman heim að bragganum. Ransý var á verði gagnvart karl- mönnum yfirleitt. Hún var lausa- leiksbam og ætlaði ekki að endur- taka líf móður sinnar. Ransý hafði ahst upp í sUdarbröggum þar sem mannlíf var fijálsara, örara og glannalegra en í íjögurra hæða blokk í Reykjavík. Hún hafði oft þurft að hlusta á það sem gerðist um nótt fyr- ir innan tuskutjöldin sem ekki geyma í þögn rúmhljóð næturvöku, stunur, hvísl og grófan hlátur fólks sem naut augnabliksins og stóð á sama um ung eyra. Þetta fólk var kannski varla búið að skola af sér hreistrið! Kynlíf var eins íjarri Ransý og hafsbotninn á sUdarmiðunum. Þau kvöddust við dymar og hvor- ugt vissi að örlögin höfðu nú ákveðið þeim lífsveg að ganga saman. Ástfanginn söngvari Haukur Morthens gekk frá bragg- anum í gegnum bæinn. Hann var undarlega upprifinn. Þessi svart- hærða síldarstelpa, þijósk eins og farfugl í mótvindi, sem laug tíl um

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.