Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993 Skák DV Heimsmeistarakeppni landsliða í Luzem: Frábær frammistaða - Karl fleytti íslensku sveitinni í 5. sæti íslendingar brugðust skjótt við þegar kallið kom frá Luzem í Sviss: Skáksveit Egypta - fulltrúar Afríku á HM landsliða - forfallaðist á síð- ustu stundu. Væri mögulegt að ís- lendingar gætu hlaupið í skarðið? Sjö og hálfri stundu síðar voru ís- lensku skákmennirnir komnir um borð í flugvél. Er þeir gengu í skák- sal í Luzern var þeim fagnað með dynjandi lófataki. Þátttaka sveitar- innar vakti mikla athygh. Viðtöl við Margeir Pétursson fyrirhða birtust í blöðum og svissneska sjónvarpinu og forráðamenn mótsins sáu ástæðu til þess að þakka íslendingum sér- staklega fyrir komuna við mótssht. Ekki gekk átakalaust að manna sveitina með svo skömmum fyrir- vara. Helgi Ólafsson og Hannes Hlíf- ar voru skráðir til leiks á alþjóða- móti taflfélagsins HeUis en Skáksam- band íslands fékk þá lausa með því að senda tvo Þjóðverja í staðinn - annar þeirra, Stangl, gerði sér raun- ar Htið fyrir og varð einn efstur. Greinarhöfundur var sestur að tafli suður á Krít en notaði tækifærið á heimleið að hafa stans í Luzem og tefla eina skák. Sumum fannst það fyndið, eins og t.d. armenska stór- meistaranum Vaganjan, sem fékk óstöðvandi hláturskast í hvert sinn sem hann sá mig. Þá var Karl Þor- steins, sem starfar í Búnaðarbanka íslands, í viðskiptaerindum í Ham- borg og framlengdi dvöUna um nokkra daga með góðfúslegu leyfi. Koma hans reyndist eins og sending af himnum ofan. Hann tefldi fimm síöustu skákirnar, fékk fjóra vinn- inga og hreppti þar með giúlverðlaun fyrir bestan árangur á sínu borði! Frammistaða Karls átti mestan þátt í frábærum árangri íslenska Uðsins, sem hafnaði í 5. sæti með 18,5 v. Jóhann Hjartarson fékk 2,5 v. af 7 á 1. borði; Margeir Pétursson fékk 4 v. af 7 á 2. borði; Helgi Ólafs- son 4 v. af 8 á 3. borði; Hannes Hlífar Stefánsson fékk 3,5 v. af 8, Karl 4 af 5 pg Jón L. hálfan vinning. í síðustu umferð tefldu íslendingar við sveit Bandaríkjamanna, sem var í þeirri aðstöðu að með jafntefli á öUum borðum myndu þeir tryggja sér sigurinn. Því kom ekki á óvart að þeir skyldu leita eftir friðarsamn- ingum eftir u.þ.b. 90 mínútna tafl- mennsku. Kamsky gaf tóninn á fyrsta borði gegn Helga og hinir fóru að dæmi hans. Þessi úrsUt voru ís- lendingum hagstæð: ÚtUt fyrir 5. - 6. sæti og Karl tryggði sér borðaverð- laun. Ekki spfllti ánægju sveitar- manna þegar síðasta skák mótsins snerist við um miðja nótt: Rússinn Dreev „plataði" Lettann Rauzis í jafntefUslegri stöðu og vann. Þar með urðu íslendingar einir í 5. sæti. Lokastaðan: 1. Bandaríkin 22,5 v. 2. Úkraína 21 v. 17. f4 Rb6 18. Bg2 exd5 19. Df2 Hc8 20. Rxb5? Vafasamt peðsrán, sem kostar dýr- mætan tíma. Nú fær svartur sóknar- möguleika eftir b-línunni. 20. - Ra4! 21. Dc2 Da6 22. Ra3 c3! 23. Bxd5? Trúlega tapleikurinn en eftir 23. bxc3 Da5! er svarta sóknin einnig 23. - Rxb2 24. Df5 Ef 24. Bxb7 Dxa3 25. Bxc8 Rc4 + (25. - Hb6 vinnur einnig) 26. Kbl Hb6+ 27. Kal DU2+ 28. Dxb2 cxb2 + 29. Kbl Ra3 mát! Sveit Bandarikjamanna hampar gullverðlaunum á HM landsliða í Luzern. Frá vinstri: Joel Benjamin, Boris Gulko, Larry Christiansen, John Donaldsson liðsstjóri, Georgi Kajdanov, Gata Kamsky og Alexei Yermolinsky. DV-mynd: Fotostudio Wyss + Steimann, Luzern Umsjón þessari stöðu hér, gegn Lputjan, Armeníu: Svart: Margeir Pétursson Jón L. Arnason 3. Rússland 20,5 v. 4. Armenía 19 v. 5. ísland 18,5 v. 6. -7. Lettland og Kína 18 v. 8. Úsbékistan 16 v. 9. Sviss 13,5 v. 10. Kúba 13 v. Auðvitað kom á óvart aö rússneska sveitin skyldi verða að sætta sig viö 3. sæti. Taflmennska þeirra var gloppótt. Dolmatov, Dreev og Bareev stóðu sig vel en Kramnik, Khalifman og Vizmanavín voru langt frá sínu besta. ísland vann sætan sigur á Rússum í 3. umferð, 2,5 -1,5 - Hann- es vann Vizmanavin en öðrum skák- um lauk með jafntefli. En Rússar sigruöu þó á mótinu, reyndar undir merkjum Bandaríkja- manna. Sveitin var skipuð Rússun- um Kamsky, Gulko, YermoUnsky og Kajdanov, auk Joel Benjamins og Larrys Christiansen, sem á danska ömmu. Bronsverðlaunahafamir, Úkraínumenn, stiUtu upp Invant- sjúk, sem náöi bestum árangri á 1. borði, Malanjúk, Romanishín, Tukmakov, Eingom og Frolov. Lettinn Alexei Sírov fékk fegurðar- verðlaun fyrir skák sína við Gata Kamsky og Margeir fékk sérstaka viðurkenningu fyrir „leik mótsins" í Hvítt: Sindbað Lputjan (Armenía) Margeir, með svart, lék nú 24. - Hh3!!sem hvítur fær ekki ráðiö við. Aðalhótunin er 25. - De3+ 26. Khl Hxh2 + ! 27. Kxh2 Rg4+ 28. Khl Dh6+ 29. Kgl Dh2 mát. Ef 24. Kf2 Dh4+ 25. g3 Hxh2+ og vinnur létt. Skákin tefldist: 25. Da7 Rf3+ 26. Kf2 Rxd2 og hvítur gafst upp. Hvítt: Gata Kamsky (Bandaríkin) Svart: Alexei Sírov (Lettland) Slavnesk vörn. 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3 e6 5. Bg5 dxc4 6. e4 b5 7. e5 h6 8. Bh4 g5 9. Rxg5 hxg5 10. Bxg5 Rbd7 11. exf6 Bb7 12. g3 c513. d5 Bh6 14. Bxh6 Hxh6 15. Dd2 Dxf6 16. 0-0-0 Kf8!? Að sögn Sírovs stakk Júsupov upp á þessum leik eftir skák þeirra í Linar- es í febrúar, þar sem Sírov lék 16. - Bxd5. „Ég leit aðeins á þetta og komst að því að staðan væri í lagi á svart,“ sagði Sírov. 24. - Hf6! Ætlunin er að svara 25. Bxb7 með 25. - Rd3 +! og áfram 26. Dxd3 Dxa3 + 27. Kc2 Db2 mát, eða 26. Kbl Db6+ og næst feUur drottningin. 25. Dh7 Dxa3 26. Dh8+ Ke7 27. Hhel+ Kd7! 28. Dh3+ Hvítur kemur ekki höggi að kóng- inum. Ef t.d. 28. Be6 (tvískák) Kc6! og kóngurinn er kominn í var. 28. - Kd6! 29. Bxb7+ Rxdl+ 30. Kxdl Dxa2 31. Dg2 Dbl + - Og Kamsky féU á tíma í þessari vonlausu stöðu. Meistaramót Hellis Meistaramót taflfélags HelUs verð- ur haldið mánudagana 8. og 15. nóv- ember og hefst taflið kl. 20.00 báöa daga í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Tefldar verða atskákir, 7 umferðir. Núverandi meistari fé- lagsins er Andri Ás Grétarsson. Bridge Bridgeheilræðakeppni BOLS: Láttu andstæðingana upplýsa málið Umsókn um framlög úr framkvæmdasjóði fatlaðra 1994 Stjórn Framkvæmdasjóðs fatlaðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr sjóðnum árið 1994. Um hlutverk sjóðsins vísast til 40. gr. laga nr. 59/1992 um mál- efni fatlaðra. Umsóknum skal skila til hlutaðeigandi Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra sem veitir nánari upplýsingar. Svæðisskrifstofa Reykjavíkur, Nóatúni 17, Reykjavík Svæðisskrifstofa Reykjaness, Digranesvegi 5, Kópavogi Svæðisskrifstofa Vesturlands, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi Svæðisskrifstofa Vestfjarða, Mjallargötu 1, ísafirði Svæðisskrifstofa Norðurlands vestra, Ártorgi 1, Sauðárkróki Svæðisskrifstofa Norðurlands eystra, Stórholti 1, Akureyri Svæðisskrifstofa Austurlands, Tjarnarbraut 39e, Egilsstöðum Svæðisskrifstofa Suðurlands, Eyrarvegi 37, Selfossi Umsóknum skal skila til svæðisskrifstofa fyrir 1. desember 1993 Félagsmálaráöuneytið 3. nóvember 1993 Bridgeheilræði vikunnar kemur að þessu sinni frá þjóð sem var handan jámtjaldsins en eftir hmn kommún- ismans kom í ljós að margar af þess- um þjóðum hafa á að skipa ágætum bridgespilurum. Það er Eistlending- urinn Aavo Heinlo sem vfll bíða átekta meðan andstæðingamir skiptast á upplýsingum, taka síðan mið af þeim og skjótast inn í sagnim- ar öUum að óvöram. En ég gef Heinlo orðið: „Stundum hefur þú of veik spil tU þess að koma inn í sagnirnar strax eða aðrar veigamiklar ástæður koma í veg fyrir það. Samt sem áður villtu vita hvort þú eigir samlegu við makker í einhverjum Ut. Oft gefa andstæðingamir mUúlvægar upp- lýsingar með sagnröðum sínum þannig að þú getir tekið lokaákvörð- un út frá þeim. A/AUir ♦ DGIO V Á2 ♦ D5 ♦ D98765 ♦ Á754 V 52 ♦ K10872 + 52 N V A S ♦ 93 V DG103 ♦ G3 + ÁKG103 * K862 ¥ K9763 ♦ Á964 + - Austur lhjarta1 21auf 31auf pass *Canapé Suöur pass pass 4 spaðar Vestur lgrand 2 grönd** dobl Norður pass pass pass ' laufstuðningur Umsjón Stefán Guðjohnsen Sem suður átti ég ágæta skiptingu og góða hápunkta en með lengd í opnunarUt austurs ákvað ég aö passa í upphafi. Ég passaði síðan aftur meðan a-v skiptust á upplýsingum. Vestur átti minna en fjóra spaða og austur áreiðanlega einn eða tvo þannig að við vorum með a.m.k, 4-4 samlegu í spaða. Vestur hlaut samt að eiga fyrirstöðu í spaða því að hann bauð upp á tvö grönd en hvað óttuð- ust þeir samt? Auðvitað voru þeir hræddir við tíguUitinn. Með þetta góða samlegu í tveimur Utum var ólíklegt að við ættum nema þijá tap- slagi - einn í hverjum Ut - nema laufi. Austri brá hroöalega þegar ég stökk í fjóra spaða og það lá viö að hann stæði upp þegar hann doblaði. Ég trompaði síðan laufútspUiö, fór inn á spaðaás, trompaði seinna lauf- ið, tók spaðakóng og spUaði tígUnum. Vestur trompaði þriðja tígulinn í bræði sinni og gaf mér yfirslag með því að spUa hjarta. Þaö vora fáar tölur í n-s, aðaUega fyrir vörn gegn þremur gröndum. Þannig að 990 voru í töluverðum sérflokki. Bridgeheilræði mitt er því: Ef þú velur að passa en viUt finná samlegu við makker hiustaðu þá á sagnir andstæðinganna og hoppaðu síðan inn í sagnimar öUum að óvörum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.