Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
5
Fréttir
Tveir dæmdir í fangelsi 1 Héraðsdómi Reykjavíkur:
Hótuðu mæðrum með börn sín
með afsagaðri haglabyssu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt tvo menn í 4 mánaða fangelsi
fyrir að hafa farið á þrjá staði í
Reykjavík og vakið ótta fólks um hf
sitt með því að hóta þar fólki, m.a.
mæðrum með börn sín, með afsag-
aðri haglabyssu. Mennirnir eru 33
og 23 ára gamhr. Tveir mánuðir af
refsingu yngri mannsins eru skil-
orðsbundnir.
Mennirnir héldu fyrst að húsi í
Fífurima í Grafarvogi þar sem þrír
menn voru við vinnu. Yngri maður-
Fiskarnir í Ráðhússtjörninni, sem
voru augnayndi borgarbúa í sumar,
hafa verið fluttir til annarra heim-
kynna nú þegar búast má við frosti.
Sumir þeirra voru orðnir talsvert
vænir eftir fóðrunina í sumar. Hér
hefur Kristinn Guðjónsson náð ein-
um slíkum í háf. DV-mynd S
Helgarskákmót
á Egilsstöðum
í dag heldur áfram 42. helgarskák-
mótið á Egilsstöðum sem hófst í gær-
kvöldi. Yflr tuttugu meistarar frá
Reykjavík taka þátt. Meðal þeirra
má nefna stórmeistarana Jóhann
Hjartarson, Helga Ólafsson, Jón L.
Arnason og Hannes Hlífar Stefáns-
son. Auk þeirra koma alþjóðlegu
meistararnir Karl Þorsteins, Þröstur
Þórhallsson og Sævar Bjarnason.
Öllum er heimil þátttaka í skák-
mótinu sem lýkur síðdegis á sunnu-
daginn. Teflt er um vegleg verðlaun
og er 1. vinningur 60 þúsund krónur,
2. vinningur 30 þúsund krónur, 3.
vinningur 15 þúsund krónur og 4.
vinningur 10 þúsund krónur. Einnig
verða veitt unghngaverðlaun,
kvennaverðlaun, öldungaverðlaun
og fleiri.
STÓRT ÚRVAL
FATASKÁPA
Nr. 815-S. 150x222x57 cm. Kr. 47.565 stgr.
Þýsku Bypack fataskáparnir fást í
yfir 40 gerðum. Litir: hvítt, eik, fura
og svart. Með renni-, felli- og rimla-
hurðum. Með eða án spegla. Góð
hönnun í smáatriðum. Fataskápar
fyrir lítil og stór herbergi. Eitt
stærsta úrval landsins. Sendum lit-
myndabækling og verðlista.
Nýborg c§3
Ármúla 23, s. 812470.
inn var undir áhrifum áfengis og var
vopnaður afsagaðri haglabyssu og
hafði skotfærabelti um sig miðjan.
Hann beindi henni að einum vinnu-
mannanna og hlóð hana skoti þegar
hann og félagi hans spurðu hvar
verkstjórinn væri sem skuldaði þeim
vinnulaun. Sá reyndist ekki vera á
staðnum.
Eftir þetta héldu mennimir að
heimili verkstjórans í Árbæjar-
hverfi. Eiginkona hans var þar
heima með börnum þeirra. Annar
aökomumannanna sýndi konunni
haglabyssuna og skotbeltið og gaf
henni í skyn að þeir myndu beita
vopninu á eiginmann hennar ef hann
greiddi þeim ekki vinnulaunin. Eig-
inmaðurinn var ekki heima og héldu
mennirnir þá á brott.
Þeir héldu síðan að fjölbýlishúsi í
Breiðholti og hittu þar fyrir konu
sem var ein heima með tveimur ung-
um börnum sínum. Annar mann-
anna sýndi konunni byssuna en hinn
greindi konunni frá því að ef þeir
fyndu kunningja hennar sem ekki
var á staðnum „yrði hann ekki á lífi“.
Báðir mennirnir viðurkenndu brot
sín. Sá sem hlaut óskilorsöbundna
refsingu hefur áöur hlotið 5 refsi-
dóma, m.a. fyrir auðgunarbrot. Hann
hefur níu sinnum gengist undir dóm-
sátt, m.a. fyrir brot á lögum um flkni-
efni. Allan Vagn Magnússon héraðs-
dómarikvaðuppdóminn. -Ótt
Reykjavík Akureyri ísafirði Akranesi
í Mjódd og Lynhálsi 10 Furuvöllum 1 Mjallargötu 1 Stillholt 16
670050 675600 96-12780 94-4644 93-11799
opnum a /YRranesi
Al
i í clag’!
í tilefni af opnun METRÓ
verslana á Akureyri, Isafirði ogf á
Aleranesi, Ljóðum við 15% afslátt
af öllum vörum í öllum METRÓ
verslunum næstu daga.
i»i% METRÓ
15fo
iðstöð heimih
anna
m