Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
Elsa Haraldsdóttir hárgreiðslumeistari:
Afhendi launin sjálf
Elsa Haraldsdóttir hárgreiðslumeistari. DV-mynd þök
„Þriðjudagamir eru einu dagamir
í vikunni sem ég vinn ekki á hár-
greiðslustofunum, sem em þijár
talsins. Þeim dögum eyði ég að
stærstum hluta á skrifstofunni á 13.
hæð í Húsi verslunarinnar, þar sem
ég er með heildsölu og rekstur stof-
anna.
Síðasthðinn þriðjudagur var þar
engin undantekning. Hann var raun-
ar launadagur og hafði ég áætlað að
koma á skrifstofuna kiukkan 9.30 um
morguninn. Af því varð þó ekki í
þetta skiptið.
Nú er þess að geta að ég er með tvö
gæludýr, kisu og hund. Þaö er stór-
kostlegt að sjá dýrin vakna á morgn-
ana. Þau vakna mjög rólega og gefa
sér góðan tíma í teygjur og annan
undirbúning fyrir komandi dag, sem
við önnum kafnar konur teljum okk-
ur ekki hafa tíma til. Þau þurfa bæði
sína umönnun og nú er orðið svo að
tíminn, sem ég hafði aflögu á morgn-
ana til að undirbúa sjálfa mig fyrir
daginn, hefur færst yfir á kvöldin,
þar sem morgnarnir fara að mestu í
að sinna dýmnum mínum.
En þennan morguninn ákvað ég að
venda minu kvæöi í kross og dembdi
mér í klippingu. Hér áður fyrr lét ég
stundum klippa mig erlendis en í dag
fer ég bara til minna starfsmanna.
Launin afhent
Ég hef það alltaf fyrir reglu að fara
á allar stofumar og afhenda launin
sjálf. Slíkt fyrirkomulag er miklu
persónulegra og skapar mikilvæg
tengsl milii mín og starfsfólksins.
Skrifstofustörfin mín felast í því að
hafa heildaryfirlit yfir allt sem við-
kemur rekstrinum en þó ekki í smá-
atriðum. Aðra daga vikunnar vinn
ég á stofunum.
Þegar launauppgjöri við starfsfólk-
ið var lokið fór ég aftur upp á skrif-
stofu og var þar til klukkan fimm.
Að því búnu fór ég í mitt vikulega
nudd. í sannleika sagt er þetta þriðju-
dagsnudd eini munaðurinn sem ég
veiti mér. Þar var ég búin klukkan
hálfsjö.
Vikulega hef ég æfmgu fyrir starfs-
fólkið og em þá afmörkuð viðfangs-
efni tekin fyrir. Starfsfólkið mætir
þá með módel, sem það hefur vahð
sjálft, og svo er farið í vinnuna frá
grunni, ráðgjöf, khppingu og blástur.
Þetta tiltekna kvöld vorum við að
vinna með sítt hár. Venjulega er þessi
æfing á mánudagskvöldum en þessa
vikuna þurfti að flytja hana yfir á
þriðjudagskvöld.
Sá sem vinnur við hárgreiðslu
hannar í rauninni hnu á hvern ein-
stakling sem hann hefur í höndun-
um. Þetta hstafag, hárgreiðslan, er
svo einstaklega persónuleg þjónusta.
Maður þarf að skynja manneskjuna,
perónuieikann og þá ímynd sem hún
vih vera út á við. Þetta þarf svo að
flétta saman við þá strauma og hnur
sem eru uppi hverju sinni.
Gertupp
Þegar æfingin var búin, um tíuleyt-
ið, þá átti ég eftir að fara á stofumar
og gera upp. Ég hafði ekkert borðað
allan daginn, nema morgunmat, og
svengdin var farin að segja alvarlega
til sín. Ég fór því inn á veitingastað-
inn Shanghai, tók með mér heim rétt
dagsins og snæddi hann með syni
mínum. Ég náði ehefu-fréttunum í
sjónvarpinu og var komin í rúmið
klukkan hálfeitt.
Finnur þú fmun breytingai? 230
Við verðum að hætta að hittast svona, Jónatan!
QflSé.
szzo
SllO
Nafn:
COMNMSIN
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum hðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Audio Sonic
ferðaútvarpstæki frá verslun-
inni Hljómbæ, Hverfisgötu
105.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Mömmudrengur, Þmmu-
hjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn
þrá. Bækurnar em gefnar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 230
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð tuttugustu og áttundu get-
raun reyndust vera:
1. Birta Ósk Svansdóttir,
Kambaseh 22,109 Reykjavík.
2. Indíana Wendel,
Vestursíöu 28, 603 Akureyri.
Vinningamir verða sendir
heim.
Heimilisfang: