Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Side 19
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
19
SSgSMjgglI
■
28" ÍKJftR Aðeinfkr.
Aíkvrtðkr. 1
103.900.-
25" SkiflR flðeintkr.
89.900.*
Afkvrtð kr. ‘í “
94.600.-
d) munXlán
Greiöslukjör sem allir ráöa viö:
Vlsa-rabgreiöslur: Engín útborgun, sklpt I allt aö 18 mánu&l.
Euro- raögrelöslur: Engin útborgun, skipt I allt a& 11 mánu&i.
Munalán: 25% útborgun, rest allt a& 30 mánu&lr.
PHILIPS er einn stærsti
framleiðandi myndlampa
í heiminum í dag
og brautryðjandi
tæknilegra framfara á sviði
rafeindatækninnar.
Myndgæði PHILIPS
sjónvarpa eru óumdeild.
Góðar myndir verða betri með PHILIPS.
Þú nýtur þess betur að horfa. Stór skjár og skörp mynd.
Black Matrix FSQ flatur skjár, skapar bestu skerpu sem
hægt er að fá. Fullkomið og sérstaklega hraðvirkt íslenskt
textavarp. Með skarttengi getur þú tengt videóvélina
eða myndbandið beint við tækið og útkoman er 100%mynd
og hljóð. Sjónvarpstækið er með sérstökum útgangi fyrir
Surround magnara. „Spatial sound“ hljóðgjafi, barnalæsing
ofl. 60 stöðvar í minni og sjálfvirkur stöðvaleitari sem skannar
inn bestu skilyrði. Þægileg fjarstýring sem stýrir
öllum aðgerðum.
Kauptu ekki köttinn í sekknum - þú getur treyst PHILIPS.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 00 . FAX 69 15 55
Komdu við hjá okkur
í Sætúni 8, sjón er sögu ríkari.
James Olsen Færeyingur syngur á íslensku:
Lærði málið af
bamatímanum
„Ég er búinn að vera hér á landi í
rúm þrjú ár. Byrjaði í tóniistarnámi
hjá FÍH og hef verið þar meira og
minna en það er enginn slíkur skóli
í Færeyjum," segir James Olsen tón-
listarmaður sem hefur vakið athygh
fyrir að syngja á íslensku að undan-
fornu, m.a. lagið Vér göngum svo
léttir í lundu. James er frá Færeyjum
og segist vera ánægður með að vera
fluttur til íslands. Hann er 23ja ára
gamah og hefur hug á að setjast hér
að.
Margir hafa velt fyrir sér hvemig
standi á því að þeldökkur maður,
hingað sé kominn frá Færeyjum,
syngi lög á íslensku. James hefur
skýringu á því. Hann spilaði á
trommur með færeysku hljómsveit-
inni Viking band sem hefur haft mik-
il tengsl við ísland. Viking band hef-
ur sungið mörg íslensk lög á fær-
eysku og lög þeirra hafa verið feiki-
vinsæl jafnt hér á landi sem í Færeyj-
um.
James er ættleiddur frá Stuttgart í
Þýskalandi og var aðeins tveggja
vikna er hann fluttist með fósturfor-
eldrum sínum til Færeyja. Hann á
tvö systkin sem einnig voru ættleidd
frá Þýskalandi þótt ekkert þeirra eigi
sömu foreldrana. James kláraöi
gagnfræðaskólann en fór síðan út á
vinnumarkaðinn. „Ég er búinn að
prófa ýmislegt t.d. að vinna í fiski.
Ætli ég sé ekki óákveðin persóna.
Ég veit aldrei hvað mig langar að
gera. Hins vegar hef ég alla tíð haft
áhuga á tónlist."
Þegar James er spurður hvort ekki
séu fáir þeldökkir menn í Færeyjum
svarar hann því neitandi. „Að þessu
hafa margir spurt mig,“ svarar hann.
„í Þórshöfn búa fimmtán þúsund
manns og þar af eru um tuttugu
dökkir. Hins vegar er ég sá eini
þeirra sem er í tónlist."
*
Mezzoforte-menn
hvöttu hann
James segist hafa farið á námskeið
hjá hljómsveitinni Mezzoforte í Fær-
eyjum árið 1989. Ég hafði hugsað mér
að fara til Danmerkur í tónlistarnám
en þeir hvöttu mig til að koma frekar
til Islands. Ég skildi ekki orð í máhnu
þegar ég kom hingað. Færeyska og
íslenska eru mjög ólík mál þótt sum-
ir vilji halda annað," segir James og
nefnir nokkur dæmi því til sönnun-
ar. „Ég horfði á barnatímann á hverj-
um degi og lærði málið ágætlega á
þremur mánuðum. Maður verður
bara að byija eins og barn,“ segir
söngvarinn og bætir við að nú séu
fimm þúsund Færeyingar á íslandi
og aUtaf fjölgi þeim. Hann segist ekki
sakna Færeyja. „Ástandið er líka
hræðilegt þar.“
James söng þrjú lög á plötu Björns
Thoroddsens og hafa þau lög heyrst
nokkuð á öldum ljósvakans. Svo er
hann að gefa út plötu ásamt Rut Reg-
inalds sem kemur út síðar í þessum
mánuði. „Það er eiginlega gospel-
tónlist. Skálholt gefur plötuna út en
Magnús Kjartansson vann hana með
okkur."
Ætla að syngja
í kirkjunum
James er trommuieikari og hefur
komið fram með Bimi á Kringlu-
kránni undanfarið. Síðan ætla þau
Rut að gera víðreist um kirkjur
landsins og syngja lög af plötu sinni.
„Við ætlum að sýna að maður þarf
ekki að vera í sértrúarhópi til að
syngja skemmtilega tónlist."
Hann segir að sig langi til að verða
tónlistarkennari í framtíöinni. „Ég
er mjög hrifinn af bömum,“ segir
hann.
Hárgreiðsla James vekur nokkra
athygli og hann upplýsir að þetta sé
verk Torfa Geimundssonar hár-
greiðslumeistara. „Ég var með mjög
stutt hár og var orðinn leiður á því.
Torfi fléttaði mitt hár saman við ann-
að sem er ekta. Mig langaði í nýtt
útlit og er mjög ánægður með þetta.
Það tók Torfa fimm klukkutíma að
flétta þetta saman,“ segir James Ols-
en. -ELA
James Olsen söngvari er frá Færeyjum en syngur á íslensku enda búsett-
urhérálandi. DV-mynd ÞÖK
PHILIPS
Hágæða ejónvarp