Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Page 30
42 LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993 Iþróttir Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari toppliðs Hauka í handboltanum, í viðtali við DV: „Leikgleðin er stór þáttur í velgengni Haukaliðsins" Þegar sex umferðum er lokið í 1. deildarkeppni karla í handknattleik tróna Haukar úr Hafnarfirði á toppi deildarinnar. Liðið hefur unnið 5 leiki og gert eitt jafntefli og þykir hafa leikið fimagóðan handknatt- leik. Margir hafa talað um að gengi Haukanna hafi komið á óvart í vetur en miöað við frammistöðu hðsins í upphafi íslandsmóts hafa Haukamir alla burði til að ná langt í vetur. Haukar hafa lengið staðið í skugga „stóra bróður", eins og FH-ingar hafa oft verið nefndir, en fróðir menn telja nú að Haukarnir hafi í dag ekki lak- ara hði á að skipa, heldur þvert á móti, betra. Ekki skal dæmt um það hér en Haukar og FH hafa þegar mæst í fyrri umferð íslandsmótsins og þar fögnuðu Haukar 8 marka sigri. Jóhann Ingi Gunnarsson, einn reyndasti og besti þjálfari landsins, tók við Haukaliðinu í fyrra og hann er greinilega að gera góða hluti með hðið. En hefur gengi hðsins það sem af er komið honum á óvart? „Já, ég held að það væri hálfgert mikilmennskubrjálæði að segja að þaö hafi ekki komið mér á óvart. Við höfum að vísu reynt að vinna mjög markvisst og th að ná árangri þurfa ákveðnar forsendur að vera fyrir hendi. Að mínu mati er það öflug ’ umgjörð þar sem em menn í kring- um þetta sem af einlægni em félags- menn og skilja auk þess hvað hand- bolti gengur út á. Þá er ég með mjög góðan aðstoðarmann, Gauta Grét- arsson, og það hefur alltaf verið vinnuregla mín að hafa góðan mann með mér. Liðið hefur verið að spila þessa leiki sem ein hehd og ég hef verið með þær áherslur að tefla fram fleiri leikmönnum og nota aldrei færri en 12 í leik og mörkin hafa verið að dreifast á 8-10 menn. Ég tók við hðinu í fyrra og það má segja að ég hafi ætlað mér þijú ár til að koma Haukum 1 fremstu röð. í fyrra náðum við 4. sæti í deildar- keppninni sem mér persónulega '»finnst ennþá vera raunvemleg keppni um hvaða lið er best á heilu keppnistímabih. Ég líki þessu nú oft við alvöruskák og atskák vegna þess að úrslitakeppnin er oft mikið happ- drætti. Lið ekki til á nokkrum mánuðum Það má segja að þaö hafi verið tölu- verð samfella í þjálfuninni í tvö ár og það er kannski farið að skila sér betur það sem maður lagði inn í fyrra. Lið verður ekki th bara á nokkrum mánuðum. Það er einhver thviljun og maður er þá með feikhega sterka einstakhnga sem strax ná ár- angi. Maður er þá með landsliðs- menn í hverri stöðu en því er nú ekki fyrir að fara hjá okkur enda er enginn núverandi landshðsmaður í liðinu. Ég vona svo sannarlega að einhver minna manna nái að banka á dyr landshðsins á næstum misser- um og ég held að það sé alveg kominn tími fyrir landshðsþjálfararxn að skoða það, nema menn telji þetta th- vhjun. - Finnur þú fyrir því að það sé komin pressa á ykkur? „Já við fundum það strax eftir þriðju umferð. Það er bara nýtt verk- efni til að takast á við og næsti hlut- ur til að vinna á. Ég hef lagt ríka áherslu á leikgleðina og ekki bara í leikjum heldur líka á æfingum þar sem ég vh að menn komi brosandi og fari brosandi heim. Það er þó fuh alvara á bak við hlutina. - Var æft meira fyrir þetta tímabil en áður? „Nei, en með öðrum áherslum. Þjálfunin er nú vísindalegri. Við tök- um blóðsýni og fylgjumst vel með líkamlegu ástandi manna. Leik- mönnunum finnst sjálfum, eins og th að mynda Páh Ólafssyni, að þeir hafi aldrei farið í gegnum léttari und- irbúning en samt sjaldan verið betur á sig komnir. Stjarnan með sterk- asta mannskapinn - Hvernig finnst þér handboltinn hafa verið? „Mér finnst hann hafa verið í lagi. Þaö hafa farið fram margir góðir leikir og baráttuleikir en inn á milli lélegir leikir eins og gengur og ger- ist. Þetta er ekkert lakara en hefur verið. Það er mikið eftir af mótinu og ég held að staða hðanna í dag eigi eftir að breytast. FH-ingarnir eiga eftir að eflast. Valsmenn eru með gífurlega sterkt hð og eiga eftir að verða betri og að mínu mati er Stjaman með sterkasta mannskap- inn á pappírnum. Þeir eru enn lang- líklegastir th árangurs í vetur. Það er spuming hvort Selfyssingar eiga ekki eftir að koma upp, svona af gömlum vana. Þeir hafa alltaf bætt sig þegar hður á. Þá held ég að KA- liðið eigi eftir að smella saman og Afturelding verður án efa spútniklið dehdarinnar eins og ÍR í fyrra. Það sýnir sig að það er ekkert unnið í þessu, th að mynda náði KR jafntefli við Sfiömuna og ÍBV við okkur. Um alþjóðlega handboltann er það að segja að honum hefur fariö aftur og þess vegna á landsliðið okkar miklu hetri möguleika en áður. Ég var th mynda að segja við þýska blaðamenn að leikur Essen-liðsins nú væri miklu lélegri nú handbolta- lega séð en þegar ég var í Þýska- landi. Með riðlun austurblokkarinn- ar fór fullt af sterkum hðum út og að vera bera saman árangur lands- hðsins í dag og fyrir einhveijum árum þegar A-Þjóðveijar, Júgóslavar og Rússar voru öh með hörkulið er óraunhæft. Ekki óraunhæft að ná verðlaunasæti á HM - Hvað með landsliðið í Evrópu- keppninni og sérðu fyrir þér að liðið geti unnið til verðlauna HM ’95? „Miðað við það aö leikurinn gegn Króötum vannst og leikirnir gegn Hvít-Rússum eru báðir hér heima ættum við að geta klárað það dæmi að komast í úrshtin í Evrópukeppn- inni. Hvað varðar keppnina 1995 held ég að markmið landshðsþjálfarans hljóti að vera það að beijast um verð- launasæti. Samanber árangur 21 árs hðsins, sem ekki var langt frá því að ná í guh, er þetta ekki óraunhæft þar sem við verðum á heimavelh. Það þarf hins vegar sterk bein th að standa undir þeim væntingum og það er spuming hvort menn þola þá pressu og þær kröfur sem til manna eru gerðar. - Hverja telur þú möguleika íslensku liðanna á Evrópumótunum um helg- ina? „Þeir virðast í fyrstu sýn ekki vera miklir og það er dapurt th þess að vita að Uð þurfi að selja leiki sína vegna áhugaleysis almennings og fjárhagsvandræða. Þetta dregur úr kjarki manna th að standa sig vel í þessu. Það þarf að breyta þessu og hafa þetta eins og knattspymunni þannig að lið fái peninga frá alþjóða- sambandinu og hafi þá th einhvers að vinna. Nú er bara spuming hvort það borgar sig að vera í efstu sætum þannig að maður lendi í Evrópu- keppni eða bara hreinlega að taka ekki þátt í henni. Ég ætla aö vona að það verði ekki reyndin. Það er hluti í reynslu og uppbyggingu landshðs að menn leiki Evrópuleiki. í versta falli faha öh hðin út en í besta falli 1-2 áfram. Valsmenn eiga að mínu mati besta möguleika en auðvitað vona ég að þau fari öll áfram,“ sagði Jóhann. -GH Iþróttamaður vikunnar Plús vikunnar fær Sigurður Jónsson knattspyrnumaður. Hann mun leika áfram hér á landi en nokkur erlend félög höfðu sýnt honum áhuga. Sig- urður gerði þriggja ára samn- ing við ÍA svo hann getur haldið áfram aö ylja knatt- spymuáhugamönnum hér heima með snilli sinni. Mínusinn fá stjómarmenn í þeim knattspymudehdum sem hafa verið í viðræðum við leikmenn frá öðrum félögum á samningstímanum. Hefja má viðræður við leikmenn mánuði áður en samningur er úti en vitað er að þessar reglur hafa verið brotnar. Heðmn Gilsson Héðinn Gilsson. íþróttamaður vikunnar að þessu sinni er Héðinn Ghsson, landsliðs- maður í handknattleik og leikmaö- ur meö þýska úrvalsdeildarliöinu Turo Dösseldorf. Héðinn hefur átt hvern stórleikinn á fetur öðrum í þýsku deildinni sem er með þeim allra bestu í heiminum í dag. Síð- astliðinn sunnudag skoraði hann 10 mörk er hð hans lagði Schutt- erwald að velh og var hann eftir leikinn útnefndur besti leikmaöur vallarins og var vahnn í hð vikunn- ar. Á fimmtudagskvöld skoraði Héöinn 7 mörk gegn Kiel í toppslag deildarinnar sem dugðu þó skammt en Héðinn var besti Diisseldorfleikmaðurinn i leikn- um. Hann hefur nú skoraö 53 mörk í 8 lcikjum og er fiórði markahæsti leikmaður dehdarinnar. Héðinn er 25 ára gamah og hefur átt fast sæti i íslenska landshðinu undanfarin 7 ár. Hann hélt utan th Þýskalands fyrir fjórum árum og hefur síðan leikið með Diisseldorf en fram að þvi lék hann með FH. Fyrsta landsleik sinn lék Héðinn 13. júni 1986 gegn Rússum á Friðarleik- unum í Moskvu. íslendingar töpuðu þar stórt, 30-17, og skoraði Héðinn þrjú af mörkum íslands. í dag hefur Héðinn leikið 132 landsleiki og skor- að í þeim leikjum 287 mörk. „Erimiklu betra formi en áður“ „Þaö er er ekki vafi á þvi að ég er að leika mitt besta tímabil frá því ég kom hingað út til Þýskalands fyrir fjórum árum. Þessu þakka ég nýjum þjálfara sem tók við liðinu fyrir þetta keppnistímabil, Ég er í miklu betra formi en áður og nú erum við famir að æfa eins og á að gera. Dehdin er mjög sterk og það sem gerir hana svona sterka er hin mikla breidd hðsins. Ég er með samning við DÚsseldorf út þetta tímabil en framhaldið er síð- an ófjóst," sagði Héðinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.