Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1993, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1993, Blaðsíða 20
32 FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993 Iþróttir JordantókviðStoke Joe Jordan var í gær ráðinn framkvæmdastjóri 1. deildar iiðs- ins Stoke City sem Þorvaldur Örlygsson leikur með. Miðvallarleikmaöurinn Gary Parker hjá Aston Villa er mjög óhress með aö komast ekki i að- alliðið. Parker vill fara frá félag- inu. Cruzíheitastólinn Emilio Cruz tók í gær við sem þjálfari hjá Atletico Madrid i spönsku knattspyrnunni. Þjálfar- ar hjá Atletico hafa einn stysta starfsferili að baki í bransanum. MeiðslintakavöMin Geoff Thomas, fyrirliði Wolves í ensku knattspyrnunni verður ekki meira með Jiðinu í vetur vegna meiðsla á hné. Þaðsama hjá Dozzell? Jason Dozzell, Tottemham, vonast til þess að hafa sloppið við alvarleg meiðsli á hné í leik gegn Arsenal á dögunum. Hann kann þó að verða lengi frá keppni. Parmageririnnkaup Forystuliðiö í ítölsku knatt- spyrnunni, Parma, keypti í gær Roberto Sensini frá Udinese. Sensini kemur i stað Belgíu- mannsins Georges Gríins sem er úr leik vegna meiðsla. Bobaníuppskurð Zvonimir Boban, miðvallarleik- maður AC Milan, gekkst í gær undir uppskurð vegna meiðsla á hné. Boban verður frá í 2 mánuði en hann meiddist í síðasta deild- arleik Milan gegn Inter. Ribbeckekkivaltur Fritz Scherer, forseti Bayem Mtinchen, sá í gær ástæðu tii að lýsa yíir þvi að þjálfari liðsins, Erich Ribbeck, væri ekki valtur í sessL Bayem hefur gengið illa undanfarið en þjálfarinn getur verið rólegur ef marka má orð forsetans. Annað með Sonetti Málum er öðruvísi fariö hjá þjálfara botnliðs Lecce á Ítalíu, en Nedo Sonetti var í gær rekinn frá félaginu. Sonetti tók við liðinu fyrir keppnistímabilið. Hoddleekkiaðhætta Glenn Hoddle kvað í gær niður orðróm þess efnis að hann væri aö hætta sem stjóri hjá Chelsea. Lið hans hefur tapað síðustu fimm leikjum sínum í deildinni en Hoddle verður áfram við stjórnvölinn hjá félaginu. Björn Borg hættur Sænska tennisstjarnan Bjöm Borg tilkynnti 1 gær að hann væri endanlega hættur að leika tennis á meðal þeirra bestu í heiminum, Borg byrjaði að spila 1991 eftir átta ára hlé. Enn ein stjarnan farin í kjölfar fiárhagslegra erfið- leika vegna mútumálsíns fræga hefur Marseille orðið aö sjá á bak nokkrum af sínum bestu leik- mönnum. Einn þeirra var seldur í gær en þá var gengið írá sölu Paulo Futre frá Marseilie til Reggiana á ítalíu. Ekström til Sviss? Svíanum Johnny Ekström hef- ur ekkert gengíð að skora fyrir Reggiana eftir aö hann kom til liðsins sl. sumar frá ÍFK Gauta- borg. Viðræður standa nú yfir á milli Reggiana og svissneska iiðs- ins Lugano og er mjög líklegt að Ekström fari til Sviss. -SK Markaskor og markvarsla í handboltanum: Valdimar skorar grimmast og Bergsveinn ver mest Þegar sex umferðum er lokið í Nissan deildinni í handknattleik er Valdi- mar Grímsson, KA, sá leikmaður sem flest mörkin hefur skorað. Valdi- mar hefur skorað 53 mörk í 6 leikjum sem þýðir að hann skorar að jafnaði 8,8 mörk í leik. Tiu markahæstu leik- menn í deildinni eru þessir, fyrst mörk og vítaköst og síðan meðatal í leik: Valdimar Grímsson, KA ..53/16 8,8 Dagur Sigurðsson, Val ..46/21 7,6 Birgir Sigurðsson, Víkingi.. ..43/3 7,1 Gunnar Gunnars, Víkingi... ..42/19 7,0 Jason Ólafsson, UMFA ..41/11 6,8 Hilmar Þórlindsson, KR ..40/11 6,6 Jóhann Samúelsson, Þór.... ..36/2 6,0 Guðjón Árnason, FH ..38/6 6,3 Páll Ólafsson, Haukum ..33/11 5,5 Ólafur Stefánsson, Val ....33/0 5,5 Bergsveinn með flest skot varin Bergsveinn Bergsveinsson, mark- vörður úr FH, hefur variö flest skot í deildinni og hann státar einnig af því ásamt Magnúsi Sigmundssyni úr Valdimar Grímsson. ÍR að hafa varið flest vítaköst. Þessir markverðir hafa varið best, vítaköst fyrir aftan: Bergsveinn Bergsveinss., FH....90/4 Sigmar Þ. Óskarsson, KA........87/1 Hallgrímur Jónasson, Selfossi.... 86/2 Magnús Sigmundsson, ÍR.........67/4 Ingvar Ragnarsson, Stjörnunni.. 67/2 Guðmundur Hrafnkelsson, Val... 62/3 Hlynur Jóhannesson, ÍBV........51/1 Bergsveinn Bergsveinsson. Hermann Karlsson, Þór.........42/1 Bjarni Frostason, Haukum......41/2 Markverðir Selfyssinga hafa varið mest Markverðir Selfyssinga, þeir Hall- grímur Jónasson og Gísli Felix Bjarnason, hafa varið flest skot markvarða í deildinni eða 105 tals- ins. Markverðir Vals hafa þó þurft að hirða boltann sjaldnast úr neti sínu þeir því hafa fengið fæstu mörk- in á sig eða 131. Haukar koma næstir með 138 og Afturelding 141. Mar- kvarsla liðanna í deildinni í fyrstu sex umferðunum er þessi: Selfoss.....................105 Stjarnan.....................91 FH.......................... 90 KA.......................... 88 ÍR.......................... 81 Haukar...................... 79 Valur............:.......... 76 ÍBV......................... 75 KR.......................... 72 Víkingur.................... 71 Afturelding..................54 Þór......................... 50 Hlé er nú á deildarkeppninni vegna landsleikja íslendinga og Búlgara í vikunni og í næstu viku verður leik- ið í 16-liða úrslitum bikarkeppninn- ar. Næstu leikir í Nissan deildinni verða 19. nóvember. Þá leika: KA- KR, ÍBV-Afturelding og Selfoss- Haukar. 21. nóvember leika síðan: FH-Þór, ÍR-Víkingur og Valur- Stjarnan. -GH Giggserekki tilsölufyrir tvo milljarða Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester United, sagðist í gær hafa neitað í tvígang gylliboði í Ryan Giggs frá ítalska liðinu AC Milan. Milan bauð rétt rúman milljarð ís- lenskra króna í Giggs eftir að Man. Utd varð enskur meistari og boðið var ítrekað rétt fyrir upphaf yfir- standandi keppnistimabils. Og millj- arðinn ætlaði Milan að greiða á borð- ið. Ferguson sagði í gær: „Ég neitaði báðum þessum tilboðum og ég myndi ekki selja Giggs fyrir tvöfalda þá upphæð sem Milan hefur boðið.“ Ferguson hefur varið Giggs fyrir ágangi fiölmiðla og sagt að fiölmiðlar séu í ákafri leit að öðrum Paul Gasco- igne til að skrifa um. Ryan Giggs verðugur tvítugur í lok nóvember en hann er án efa efnilegasti knatt- spymumaður Bretlandseyja í dag. -SK HSÍ semur við Stoð hf. Handknattleikssamband íslands og Stoð hf. hafa undirritað samstarfsamn- ing þess efnis að Stoð hf. útvegar HSÍ Rehband hitahlifar, stuðningsumbúð- ir og hlífar utan um spelkur fyrir öll landslið HSÍ næstu þrjú árin. Hlífar þessar eru mikið notaðar af handknattleiksmönnum. Þær verja leikmenn höggum og halda liðamótum heitum og hafa þannig fyrirbyggjandi áhrif. Á myndinni undirrita Sveinn Finnbogason, eigandi Stoðar hf., og Ólafur Schram, formaður HSÍ, samstarfssamninginn. -GH DV kynnir WBA-liðin í körf uknattleik 15 Orlando Nafn: Orlando Magic. Stofnað: 1989. Atlantshafsriðill, austurdeild. Meistarar: Aldrei. Árangur í fyrra: 41—41, ekki í úrslit. Þjálfari: Brian Hill. í fyrra munaði aðeins 6 stigum að Orlando-liðinu tækist aö komast í úrslitakeppnina í fyrsta sinn. Óheppnin var með liðinu á loka- sprettinum í deildinni, eða hvað? í háskólavalinu datt liðið nefnilega í lukkupottinn annað árið í röð. Liðið mætir mikið breytt til leiks í ár. Hill hefur tekið við þjálfuninni af Matt Guokas, Brian Williams var seldur til Denver í skiptum fyrir Todd Lichti og Anthony Cook. Þá er Mike Iuzzolino kominn frá Dall- as og Larry Krystkowiak frá Utah. Úr háskólavalinu fékk liðið An- fernee Hardaway, bakvörð frá Memphis State. Hardaway er mjög fiölhæfur leikmaður og sagður næsti Magic Johnson deildarinnar. Það verður talsverð pressa á Shaquille O’Necd í vetur. Hann var nýliði ársins í fyrra þegar liðið vann 41 leik í stað 21 árið áður. í ár Shaq að koma liðinu í úrslita- keppnina og gott betur. Hann þarf að bæta vítanýtingu sína og fækka þeim boltum sem hann tapar. Hardaway verður aðalleikstjóm- andi liðsins en skotbakvörður verður Dennis Scott. Létti fram- herjinn er Nick Anderson en skarð hins framherjans, sem Brian Will- iams skildi eftir sig, munu þeir Terry Cadlidge, Jeff Tumer og Anthony Cook slást um að fylla. Scott Skiles verður sjötti maður. Liðinu er spáð öðru sæti í riðlin- um. Tilkoma Hardaways breytir mjög miklu en ekki má gleyma því að liðið er ungt og þjálfarinn er að stíga sín fyrstu skref sem aðalþjálf- ari í NBA-deildinni. Nick Anderson skoraði grimmt í fyrra og gerir það eflaust áfram. Cari hreppti sigur Carl J. Eiriksson sigraði í landsmóti sem haldið var í fyrra- kvöld. Keppt var í riffilskotfimi og enskri keppni og skoraði Carl 587 stig. í öðru sæti var Auðunn Snorrason með 579 stig og Gylfi Ægisson lenti í þriðja sæti með 567 stig. A-klúbburinn A-klúbburinn, stuðningshópur landsliðsins í handknattleik, ætl- ar að koma saman fyrir lands- leikina gegn Búlgaríu i Evrópu- keppninni í dag og á morgun. Félagar og aðrir þeir sem vifia ganga í klúbbinn hittast klukkan 18 á Jensen píanóbar í Ármúla 6 (við hliðina á Hótel íslandi). Hollenskirdómarar Dómaraparið á leiki íslands og Búlgaríu kemur frá Hollandi. þeir heita Peter Bmssel og Anton van Dongen og hafa nokkuð góða reynslu í dómarastörfum á al- þjóðavettvangi. Fyrri leikurinn telst heimaleikur Búlgara og sá síðari heimaleikur íslands. Danskur eftirlitsdómari Vilhelm Jensen frá Danmörku verður eftirlitsdómari á leikjun- um tveimur gegn Búlgörum. Jensen var dómari um árabil og kom oft í því hlutverki til Is- lands. Hann hefur lagt ílautuna til hliðar og sinnir oft eftirlits- störfum í alþjóölegum hand- knattleik. Stigtil Stuttgart Stuttgart og Karlsruhe gerðu jafntefli í þýsku úrvalsdeildinni í knattspymu í gærkvöldi á heima- velli Karlsrahe. Hvorugu liðinu tókst að skora í leiknum. -JKS/-SK í kvöld Evrópukeppnin í handbolta: Ísland-Búlgaría.............kl. 20.00 Visadeildin í körfuknattleik: Skallagrímur-Njarðvik ...kl. 20.00 Keflavík-Tindastóll.,.kl. 20.00 KR-Akranes..................kl. 20.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.