Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
Fréttir
Dótturfyrirtæki Mjólkursamsölunnar:
Brauðgerðin spáir í
eignir Sveins bakara
- með vilyrði stærstu kröfuhafa 1 þrotabú S veins
Samkvæmt heimildum DV hefur
Brauðgerö Mjólkursamsölunnar í
Reykjavik, eða Samsölubakarí hf.,
áhuga á eignum þrotabúsins, þ.e.
nokkra af útsölustöðum Sveins bak-
ara og höfuöstöðvamar í Mjódd.
Þetta var borið undir skiptastjóra
þrotabúsins, Andra Árnason lög-
mann, og staðfesti hann í samtali við
DV að forráðamenn Brauðgerðar-
innar heíðu lagt fram hugmyndir að
tilboði.
Skömmu áður en Sveinn varð
gjaldþrota tóku tvö hlutafélög í eigu
vina og vandamanna hans yfir rekst-
urinn fyrir 100 milljónir en að sögn
Andra hefur stærsti kröfuhatinn,
Iðnlánasjóður, sem er jafnframt
stærsti veðhafi, ekki samþykkt þessa
yfirtöku. Andri sagði að tilboð
Brauðgerðarinnar væri svipað en
heimildir DV herma að það sé lægra
en 100 milljónir.
Jafnframt hefur DV heimildir fyrir
því að áhugi Brauðgerðar MS sé með
vilyrði stærstu kröfuhafa Sveins
bakara en tveir þeir stærstu eru Iðn-
lánasjóður og íslandsbanki. Iðnlána-
sjóður er með veð í fasteignum
Sveins bakara í Mjódd, vélum, tækj-
um og nokkrum útsölustaðanna. Um
þetta ságði Andri að á meðan veðhaf-
ar væru ekki búnir að samþykkja
kaupsamning hlutafélaganna á eign-
um Sveins gætu aðrir aðilar gert til-
boð í eignimar.
Tryggvi Agnarsson, lögmaður
Sveins, er hins vegar á allt annarri
skoðun. Hann telur kaupsamninginn
frágenginn og fær ekki séð aö Brauð-
gerðin nái að slá hann út með tilboði
sínu. „Búið er að ganga frá samningi
með afsölum og öllu. Ef gera á tilboð
þarf skiptastjóri að óska eftir riftun
samningsins, það er ekki hægt að
selja sömu eignimar tvisvar. Það er
ekkert sem bendir til annars en að
núverandi rekstraraðilar séu færir
um aö reka fyrirtækið áfram,“ sagði
Tryggvi.
Skiptafundur í þrotabúi Sveins
bakara fer fram 17. janúar nk. en
frestur til að lýsa kröfum í búið rann
út 4. janúar sl. Samkvæmt bráöa-
birgðauppgjöri vom heildarkröfur í
búið í kringum 190 milljónir króna
og var stórum hluta þeirra lýst.
Jóhann Magnússson hjá Stuðh hf.
hefur verið rekstrarráðgjafi Brauð-
gerðarinnar. í samtah við DV stað-
festi hann áhuga fyrirtækisins á
eignum þrotabús Sveins hakara en
sagði máhð á viðkvæmu stigi og vhdi
ekkitjásigfrekarumþað. -bjb
Sigurður Sigurðarson og Karl Skírnisson, á tilraunastöð Háskólans á Keldum, halda hér á kjömmum og gónum
(kópshausum). Kjammarnir og gónurnar eru rannsóknargögn í drápi fjölda kópa í Skjaldabjarnarvík á seinasta ári.
DV-mynd Brynjar Gauti
Kópadrápið í Skjaldabjamarvík:
Gónurnar rannsakaðar
Um helgina verða gónur (kóps-
hausar) og kópskjálkar rannsakaðir
í tílraunarstöðinni á Keldum. Gón-
umar og kjálkarnir eru sönnunar-
gögn í rannsókn sem fer fram vegna
dráps á um 40 útselskópum í Skjalda-
bjamarvík á Ströndum í október síð-
asthðnum.
Það er sýslumaðurinn á Hólmavík
sem fer fram á rannsóknina og voru
í því skyni sendar til Reykjavíkur
fjórar gónur og um 40 kjálkar, sem
lögreglan á ísafirði lagði hald á. Lög-
reglan lagði hald á kjálkana eftir
tveir menn, sem voru yfirheyrðir
vegna drápanna, neituðu að hafa átt
hlut að þeim.
Karl Skímisson dýrafræðingur og
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á
Keldum, munu um helgina bera sam-
an kjálkana og gónurnar í þeim th-
gangi að skera úr um hvort kjálkam-
ir séu úr hausunum sem fundust í
Skjaldabjamarvík. Á grundvelh
þeirra samaburðarathugana verður
tekin ákvörðun um hvort nauösyn-
legt er að gera vefjarannsókn eða
DNA-rannsókn á pörunum. Sú rann-
sókn, sem er flókin og tímafrek, mun
gefa óvéfengjanlega niðurstöðu.
-PP
Fékk sprengju-
brotísig
31 árs maður hggur á Landspítala
eftir að tívolíhomba sprakk í skot-
hólk með þeim afieiðingum að hólk-
urinn tættist. Við það þeyttust brot
úr hólkinum í manninn sem vann
við flugeldasýningu í Keflavík.
Maðurinn hlaut mikið svöðusár og
opið beinbrot á fæti og gekkst hann
undir aðgerð í fyrrinótt. Auk þess
fékk hann sprengjubrot í auga en í
gær töldu læknar hann ekki þurfa
að gangast undir aðgerð vegna þess.
Þá hlaut maðurinn einnig líths hátt-
ar höfuðáverka.
Eins og fyrr sagði hggur maðurinn
á Landspítalanum en hann var á
gjörgæsludehdþartilímorgun. -pp
Blökkumaður í kjöri
Amal Qase skilaði inn framboði
vegna prófkjörs sjálfstæðismanna
fyrir borgarstjórnarkosningarnar í
vor rétt fyrir klukkan 17 í gær þegar
framboðsfresturinn rann út. Amal
er fyrsti blökkumaöurinn sem gefur
kost á sér í kosningum á íslandi.
Með henni á myndinni er sonur
hennar, Skúli Skúlason.
DV-mynd BG
Stuttarfréttir dv
Sicpúnsáttvið
Ingibjörgu
Sigrún Magnúsdóttir, borgar-
fulltnii I'Yamsóknarflokksins,
lýsti því yfir á Bylgjunni aö hún
gæti vel sætt sig við Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur sem borgar-
stjóraefni sameiginlegs framboðs
minnihlutaflokkanna í Reykjavík
í borgarstjómarkosningunum í
vor.
Sprenginguppiýst
Tveir menn um tvítugt viður-
keimdu við yfirheyrslu í gær að
hafa sprengt upp tvhyft timbur-
hús á Akranesi i fyrrakvöld með
dínamiti sem ekki var Ijóst í gær-
kvöld hvernig þeir komust yfir.
Lítiðkeyptaf
hlutabréfum
Eftir lífleg viðskipti með lhuta-
bréf í árslok 1993, eða fyrir 308
mihjónir, fóru fjárfestar rólega
af stað í ársbyrjun 1994. Aöeins
voru keypt hlutabréf fyrir rúmar
2 mihjónir króna þessa fyrstu
vikuársins.
Hannes Hafstein, sendiherra
íslands í Brussel og aðalsamn-
hagamaður i EES-viðræðunum,
segir íslensk stjórnvöld hafa ótví-
ræöan rétt til að ieggja vörugjald
á innfluttar vörur. Þetta kom
frarn á Bylgjunni.
Trillukarlar mótmæla
Aðalfundur Nökkva, félags
smábátaeigenda í Neskaupstað,
mótmælir harðlega framkomn-
um tihögum um veiðifyrirkomu-
lag krókabáta og skorar á stjóm-
völd að hætta nú þegar „enda-
lausri atlögu að smábátasjó-
mönnum".
Samkvæmt könnun Sambands
islenskra tryggingafélaga eru að-
eins um 54% heimha i landinu
með vátryggingar sem taka th
húseignarinnar sjálfrar, s.s. hús-
eigenda- og fasteignatryggingar.
Til samanburðar er svipað hlut-
fall á Norðurlöndum um 90%.
Dreifingarfyrirtækin Ágæti og
Graenmeti, sem bæöi eru í eigu
grænmetisframleiðenda, voru
sameinuð í eitt fyrirtæki um ára-
mótin. Markmiðið er að samein-
að fyrirtæki geti betur mætt er-
lendri samkeppni vegna samn-
inga eins og GATT og EES.
Haraldurætíarímál
Haraldur Haraldsson í Andra
sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar
sem hatm segist ra.a. ætla að leita
réttar síns fyrir dómstólum th að
óghda „þá stjómarathöfn sem
fram fór í skjóh myrkurs aö
kvöldi 29. desember sL“ eins og
hann orðar það og á við sölu rik-
isins á SR-mjöli.
-bjb
Borgarstjómarkosningamar:
Katrín gefur ekki kost á sér
Katrín Fjeldsted borgarfuhtrúi
hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér
th endurkjörs í borgarstjóm vegna
óánægju með þær undirtektir sem
thlögur hennar hafa fengið í borgar-
stjómarflokknum, hvemig staöið
var að borgarstjóraskiptunum fyrir
tveimur árum og það sem hún kahar
„ „rússneska kosningu" ákveðinna
manna í ákveöin sæti“. Katrín úti-
lokar ekki framboð th Alþingis.
Þegar framboðsfrestur Sjálfstæðis-
flokksins vegna borgarstjómarkosn-
inganna í vor rann út í gær höfðu
24 skhað inn framboði. Þeir em:
Anna K. Jónsdóttir lyfjafræðingur,
Amal Qase nemi, Hhmar Guðlaugs-
son múrari, Þórhallur Jósepsson,
aðstoðarmaður samgönguráðherra,
Ámi Sigfússon framkvæmdastjóri,
Einar G. Guðjónsson verslunarmað-
ur, Sveinn Andri Sveinsson lögmað-
ur, Sigríður Sigurðardóttir fóstra,
Júlíus Hafstein framkvæmdastjóri,
Guðrún Zoéga verkfræðingur, Sigur-
jón Á. Fjeldsted skólasfjóri, Axel Ei-
ríksson úrsmíðameistari, Haraldur
Blöndal hrl., Páh Gíslason læknir,
Þorleifur Hinrik Fjeldsted sölumað-
ur, Ólafur F. Magnússon læknir,
Björgólfur Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri, Vhhjálmur Þ. Vh-
hjálmsson lögfræðingur, Markús
Örn Antonsson borgarstjóri, Helga
Jóhannsdóttir húsmóðir, Þorbergur
Aðalsteinsson landshðsþjálfari,
Gunnar Jóhann Birgisson lögmaður,
Katrín Gunnarsdóttir og Jóna Gróa
Sigurðardóttirhúsfreyja. -GHS
Katrín Fjeldsted læknir lýsir því yfir i gær að hún gefi ekki kost á sér til
endurkjörs í borgarstjórn. DV-mynd BG