Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Page 7
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
Happdrætti Háskóla
íslands er svona vinsælt
af því það greiðir mest út
til viðskiptavina sinna!
Á síðasta ári fengu viðskiptavinir HHÍ
útborgaðar um 800 milljónir króna af 1150
milljóna króna veltu. En það er 70%
yinningshlutfall.
Á sama tíma greiddi íslensk getspá aðeins um
400 milljónir af 1050 milljóna veltu í
lottóvinninga, enda vinningshlutfallið 40% og
íslenskar getraunir 1x2 samtals um 140
milljónir af um 350 milljóna veltu, með sama
vinningshlutfall.
Hin flokkahappdrættin, SÍBS og DAS greiddu
hvort um sig um 100 milljónir til vinningshafa.
Þar er vinningshlutfallið um 50%.
En HHÍ er ekki bara með hæsta vmningshlutfallið, heldur eru
vinningslíkurnar einnig mestar. Annar hver miði getur unnið.
Og nú gerir HHÍ enn betur við sína viðskiptavini á
afmælisári. 54 milljóna króna vinningur verður borgaður út í
mars. Eingöngu verður dregið úr seldum miðum og því gengur
þessi hæsti vinningur örugglega út.
Spilar þú ekki í besta happdrœttinu?
Undanfarin 60 ár hafa tugþúsundir ungmenna hlotið menntun í Háskóla íslands,
þjóðinni til heilla. Þökk sé þér og Happdrætti Háskólans.
Við drögum 18. janúar!
V/SA
_>T/i
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til virmings
ARGUS / SÍA