Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Page 14
14 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994 Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRjALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Vina væðingin Þótt mál blandist á ýmsa vegu, er stóra línan í verka- skiptingu stjórnarflokkanna, aö Sjálfstæðisflokkurinn sérhæfir sig í aö gefa vinum ráöherra sinna eignir skatt- borgaranna og Alþýöuflokkurinn í aö gefa vinum ráð- herra sinna stöður og stóla á vegum skattborgaranna. Þetta byggist aö mestu leyti á, aö algengast er, að vin- imir hægra megin telja sig þurfa á meiri eignum aö halda, og aö vinimir vinstra megin telja sig þurfa á betri launakjörum að halda. Þannig em þetta tvær hliðar á sameiginlegu hugsjónamáli stjómarflokkanna tvegga. Alþýöuflokkurinn endaði áriö meö því, aö hinn lands- frægi biölaunamaður í embætti heilbrigðisráðherra skip- aði mág sinn sem formann stjómamefndar Ríkisspítal- anna, aöeins einum degi áður en viö tóku ný stjómskip- unarlög, sem banna ráöherrum spillingu af slíku tagi. Sjálfstæðisflokkurinn endaði áriö með því, aö sjávarút- vegsráðherra gaf lykilmönnum úr flokkseigendafélaginu marga tugi milljóna meö því aö neita aö láta reyna á, hvort hæstbjóðandi í ríkisfyrirtækið SR-mjöl heföi burði við að standa á tveim vikum við staögreiöslutilboö sitt. Áriö 1993 var skrautlegt ár í sögu Alþýðuflokksins. Efnilegum og atvinnulausum krötum var raöað í stööur, sem íslandi var úthlutaö hjá Fríverzlunarsamtökunum og Evrópská efnahagssvæðinu, hvort tveggja í skjóli ut- anríkisráðherra, sem er nánast siðblindur meö öllu. Alþýðuflokksmaður, sem hafði verið iöinn 1 flokknum, var tekinn fram yfir marga reynda menn og skipaður veöurstofustjóri. Mislukkaður iðnaðaráðherra flokksins var gerður að Seðlabankastjóra, enda er sá banki aðal- lega notaður til að skekkja og skæla gengi krónunnar. Umhverflsráðherra Alþýðuflokksins fékk að verða sendiherra í Noregi og gamall kratabæjarstjóri úr Kefla- vík varð skrifstofustjóri Flugmálastjómar á Keflavíkur- vefli. Aðstoðarmaður nýs iðnaðarráðherra var skyndi- lega orðinn ráðuneytisstjóri yfir öllu ráðuneytinu. Þekktur þingmaður og ráðherraefni Alþýðuflokksins var gerður að forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins eftir langan skrípaleik, þar sem allir málsaðilar þóttust koma af fjöllum. I það starf var nóg framboð af hæfum mönn- um, þar á meðal sérfræðingum í trygginga- og fjármálum. A lokasprettinum skipaði utanríkisráðherra flokks- bróður sinn sem yfirdeildarstjóra tollsins á Keflavikur- velli. Það var síðasta afreksverk ráðherra Alþýðuflokks- ins, unz nýskipaður heilbrigðisráðherra þurfti að útvega mági sínum vel borgað verkefni í heilbrigðisgeiranum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur rekið sína spillingu undir hatti hugsjónar einkavæðingar. í rauninni er þar alls ekki um neina markaðsvæðingu að ræða, heldur er þreyttri ríkiseinokun breytt í einkavinaeinokun, án þess að skattgreiðendur eða neytendur njóti þess í nokkru. Einkafyririrtækið Bifreiðaskoðun íslands hefur verið skólabókardæmi um þetta. Hún leiddi til meiri kostnaðar fyrir almenning heldur en hafði áður verið hjá ríkinu. Um áramótin var hnykkt á einokun hennar með reglum, sem gera öðrum ókleift að keppa við einkavinina. Útboð SR-mjöls undir árslok var dæmi um, hversu langt er seilzt til að þjónusta hina þóknanlegu. Við fram- kvæmd útboðs var ekki farið eftir hefðbundnum reglum, sem eiga að tryggja jafna stöðu tilboðsaðila. Og á endan- um var hæsta tilboði hafnað, þótt staðgreiðsla væri boðin. Stj ómarflokkamir hafa hvor með sínum hætti sýnt fram á, að markmið þeirra í pólitík er að afla herfangs, sumpart með stólum og stöðum, sumpart með eignatöku. Jónas Kristjánsson NATÓ á kross- götum gagn- vart austrinu Fundur æðstu manna ríkja Atl- antshafsbandalagsins í Brussel á mánudag og þriðjudag verður fyr- irsjáanlega sá afdrifaríkasti sem haldinn hefur verið á þeim vett- vangi um langan aldur. Þar verður mótuð í grundvallaratriðum af- staða hemaðarbandalags vest- rænna ríkja til stöðunnar sem er í mótun í Mið- og Austur-Evrópu eft- ir hrun sovétveldisins. Fyrrum Varsjárbandalagsríki, Pólland, Ungverjaland, Tékkland og Slóvakía, knýja fast á að NATÓ opni þeim dyr til fullrar aðildar að bandalaginu. Til að fullnægja ósk- um stjórna þessara ríkja þyrfti fundurinn í Brussel að gefa til kynna hverja skilmála þau þurfa að uppfylla svo af aðild geti orðið og hvenær hennar má vænta. Nú hefur fyrsta fyrrum sovétlýð- veldiö bæst í þennan hóp. Algirdas Brasaukas, forseti Litháens, hefur lýst yfir að stjóm þess sækist eftir aðild að NATÓ. í heimsókn til Varsjár í sumar sagði Borís Jeltsín Rússlandsfor- seti að það væri mál Pólverja hvort þeir gengju í Atlantshafsbandalag- iö. Nú kveður við annan tón í Moskvu. Talsmaöur Jeltsíns hefur látiö hafa eftir sér að útþensla NATÓ í austur myndi mælast illa fyrir í Rússlandi meðal almennings og þó sér í lagi innan hersins. Þegar Jeltsín var í Brussel rétt fyrir þingkosningarnar í Rúss- landi, tjáði Manfred Wörner, fram- kvæmdastjóri NATÓ, honum að bandalagið gæti ekki veitt Rúss- landsstjóm neitunarvald um það hvort bandalagið færði út kvíarn- ar. En megintillagan sem Bill Clin- ton Bandaríkjaforseti hefur ákveð- ið að fylgja fram á fundinum í Brussel er einmitt skilin á þann veg í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu að shkt neitunarvald sé viðurkennt. Bandaríska tillagan hefur fengið heitið Félagsskapur í þágu friðar. Þar er gert ráð fyrir að fyrrum Varsjárbandalagsríki og NATÓ semji um sameiginlega herþjálfun, æfingar og áætlanagerð, án þess að um nokkrar gagnkvæmar ör- yggisskuldbindingar sé að ræða. Samstarfið á að standa opið fyirum sovétlýðveldum, sér í lagi Rúss- landi og Úkraínu. Ekki er fariö dult með það í Was- hington, aö þessi tillaga sé til þess sniöin að auka í engu á erfiðleika Jeltsíns í viðureign hans við þjóð- ernissinnuð öfl heima fyrir. Tals- menn þessarar stefnumótunar halda því fram að alvarlegasta skyssa sem stjórnir Vesturlanda gætu gert eins og nú standa sakir væri að ýta undir þann skilning meðal Rússa að verið sé að ein- angra þá og girða af. Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson En það er einmitt uppgangur Vladímírs Zhírínovskís og þjóð- rembuflokks hans í nýafstöðnum þingkosningum í Rússlandi, sem veldur aukinni ásókn fyrrum Var- sjárbandalagsríkja og einstakra fyrrum sovétlýðvelda í að ná örygg- istengslum vestur á bóginn. Zhír- ínovskí hefur um árabil haft náiö samband við þýska þjóöernis- sinnann Gerhard Frey í Munchen, sótt þing flokks hans og átt viðtöl við málgagn hans, National-Zeit- ung. A ílokksþingi flokks Frey, Þýska þjóðarsambandsins, fyrir tveim mánuðum lagði Zhírínovskí til myndun þýsk-rússnesks bandalags í líkingu við griðasáttmála Hitlers og Stalíns frá 1939. í viðtölum viö þýsk blöð hefur rússneski út- þenslusinninn stungið upp á því að Þýskaland og Rússland skipti enn einu sinni á milh sín löndum sem á milh þeirra hggja, sér í lagi Póllandi og Eystrasaltsríkjunum. Svona bohaleggingar eru teknar mun alvarlegar í Varsjá og Vilnius en í Washington. Menn grunar að óvissutímabil geti verið framundan í þýskum stjórnmálum. Stjórn Helmuts Kohls á undir högg að sækja og þjóðernissinnuð öfl sækja í sig veðrið í efnahagsþrengingum sem fylgt hafa i kjölfar sameiningar Þýskalands. Þar að auki hefur reynslan í Bosníu fært mönnum heim sann- inn um aö í Bandaríkjasfjóm ríkir rótgróin tregða að skipta sér af átökum í Evrópu sem ekki eru talin skipta máh fyrir beina bandaríska hagsmuni. Ekkert nema afdráttar- lausar öryggisskuldbindingar fuh- nægja rikjum sem telja sig búa við óvissu í skugga nágranna sem gætu tekið upp á ýmsu. Utanríkisráðherra Póllands, Andrzej Olechowski, hefur látið svo ummælt að stjórn sín hafni bandarísku uppástungunni frá Brussel „komumst við að þeirri niðurstöðu að þarna sé á ferðinni nýtt JaIta-samkomulag.“ Magnús Torfi Ólafsson Vladimír Zhirinovskí veifar kjörbréfi til þings á þrettándanum og kveðst næst verða kjörinn forseti Rússlands. Símamynd Reuter Skoðanir annarra Fleiri morð en umferðarslys „Nú htur út fyrir að árið 1993 veröi það ár sem morð urðu fleiri en dauðsfóh í umferðarslysum. Morðunum fjölgar en slysunum- fækkar. En þetta ætti ekki að koma mönnum á óvart. Við gerum mikl- ar kröfur til ökumanna og í umferðinni verða menn að fara að lögum. Hins vegar er vopnaburður al- mennings aö mestu utan viö öh lög, rétt eins og vopn- unum fylgi engin hætta.“ Úr forystugrein USA Today, 6. jan. Réttur barnanna gleymist „Tækni við gervifijógvun þróast ört um þessar mundir. Dag hvern berast fréttir af nýjungum sem fyrir skömmu hefðu aðeins þótt mögulegar í vísinda- skáldskap. Um leið færist líf í umræður um rétt- mæti tilrauna með manninn. SvokaUaðar „ömmumæður" hafa verið í umræð- unni síðustu daga. Einn af nýju möguleikunum er aö fullorðnar konur geta eignast börn ef þær fá egg frá konu á bameigaraldri. Tæknin er stórkostleg en menn vilja gleyma rétti barnanna. Réttur þeirra er aðalatriðið en hvorki tæknin né áhugi kvennanna á að eignast börn.“ Úr forystugrein Politiken, 6. jan. Stækkun NATO „Það nýja í umræðunni um hvort breyta skuh eðh NATO er vaxandi ótti við að Rússar snúist til fylgis við öfgafuha og árásargjama þjóðemishyggju. Ottinn stafar af erfiðleikum Jeltsíns forseta í emb- ætti, auknum áhrifum hersins og sókn þjóðemis- öfgamannsins Vladimirs Zhírínovskí. Fyrrum lepp- ríki Sovétríkjanna sækja af þessum ástæðum fast að fá inngöngu í NATO til að njóta þar vemdar Vest- urlanda." Úr forýsturgrein IHT, 6. jan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.