Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
47
Umdeildar tilraunir skoskra vísindamanna við að frjóvga egg úr eyddum fóstrum:
Bömin eiga mæður
sem aldrei fæddust
- lög víða um lönd banna slíkar tilraunir en samt verður tæknin trúlega notuð
Fyrir ári sagöi skoski læknirinn
Roger Gosden aö rétt væri aö nýta
„vefi úr eyddum fóstrum til lækn-
inga“. Orð hans vöktu nokkra at-
hygli en ekki hneykslun því fáum var
ljóst hvað hann átti við.
Nú í upphafi árs hefur læknirinn
loks greint frá hugmyndum sínum í
smáatriðum. Hann hefur undanfarið
gert tilraunir með frjóvgun eggja úr
eyddum kvenfóstrum og boðar nýja
möguleika fyrir óbyijur til að eignast
böm.
Frankenstein
kominn á stjá
Fyrir vikið hefur Gosden verið líkt
við Frankenstein, mglaða, vísinda-
manninn sem langaði að vekja dauða
menn til lífsins á rannsóknarstofu
sinni. Frankenstein er þó aðeins til
í bókum og kvikmyndum en Gosden
er virtur vísindamaður í sinni grein
og margir hafa orðið til að taka svari
hans. Verjendur tilraunanna segja
að ekkert sé athugavert við að nota
þessa tækni fremur en aðra við að
hjálpa óbyrjum að eignast böm.
Þeir em þó fleiri sem segja að ein-
hvers staðar verði aö setja mörk þeg-
ar gerðar em tilraunir með líf
manna. Gagnrýnendumir segja að
það stríði sannarlega gegn siðgæðis-
vitund almennings ef vekja á til lífs-
ins böm mæðra sem aldrei vora til.
Gosden og samstarfsmenn hans
segja að tæknin sem þeir boða verði
fullþróuð eftir þrjú ár. Upp frá því
verði ekkert því til fyrirstöðu að kon-
ur, sem ekki mynda egg sjáfar, geti
eignast böm án þess að fá egg að gjöf
frá öðram konum.
Það sem menn hryllir við er að
Óþroskuð egg eru tekin
úr fóstri sem eytt var
seint á meðgöngu.
Eggin eru alin þar til
þau ná þroska. Þá
eru þau frjóvguð og
höfð í tilraunaglasi í
tvo sólarhringa til að
sanrireyna að frjóvg-
un hafi heppnast.
Tveimur eða þremur
eggjum er komið fyrir í
legi væntanlegrar„móð-
ur". _____
„Móðirin" fær hormónalyf til að und
irbúa leg hennar fyrir þungun.
Roger Gosden, læknir í Edinborg,
boðar frjóvgun eggja úr eyddum
kvenfóstrum eftir þrjú ár.
Stuart Horner, formaður siðanefnd-
ar breskra lækna, sér ekkert athuga-
vert við tilraunir Gosdens.
barn sem getið er við ftjóvgun á eggi
úr fóstri á í raun enga móður. Þessi
börn geti aldrei fengið svar við því
hver var hin rétta móðir því hún
fæddist aldrei. Henni var eytt úr
kviði ömmunnar.
Gosden segir að þetta skipti engu
máh því fyrst fólk geti sætt sig við
aö fóstrum sé eytt þá hljóti menn
einnig að sætta sig við að fóstrin séu
notuð til að hjálpa ófijóum konum,
sem ekki geti eignast börn með öðr-
um hætti.
Stuðningur
siðanefndar
I Bretlandi er tahð líklegt að frjóvg-
un eggja úr fóstrum hjóti náð fyrir
augum manna í siðanefnd lækna.
Formaðurinn, Stuart Horner, hefur
þegar lýst því yfir að hann sjái ekk-
ert athugavert við að nota aðferð
Gosdens reynist hún nothæf.
Víða um lönd era þó lög og siða-
reglur sem banna tilraunir af þessu
tagi. í Bretlandi eru engin shk lög
og því má búast við að fyrstu bömin,
sem eiga sér fóstur fyrir mæður,__
fæðist áður en öldin er úti.
Þegar hafa nokkrar breskar konur
lýst áhuga sínum á að eignast böm
með þessum hætti og segjast bíða
eftir „töfraegginu".
Kirkjunnar menn í Bretlandi eru
ekki eins ákafir og segja að maðurinn
seihst með hveiju árinu lengra inn á
svið þar sem guð einn á að ráða.
Kaþólskir læknar hafa einnig lýst
yfir andstöðu sinni við tílraunir
Gosdens og segja að verið sér að van-
virða líf sem hafi verið slökkt í móð-
urkviði.
-GK
Enn eitt deilumálið varðandi tilraunir til að fjölga mannkyninu eftir nýjum leiðum:
Vilja verða mæður á sextugsaldri
I Sarajevo i Bosníu líður ekki svo dagur aö börn láti ekki lífið vegna styrjaldarinnar i landinu og öllum virð-
ist standa á sama. Á sama tima eru færustu læknar á Vesturlöndum að gera tilraunir með fjölgun mann-
kyns þvert gegn lögmálum náttúrunnar. símamynd Reuter
Það er ekki aðeins að ófædd fóst-
ur eigi að geta af sér börn heldur
færist nú stööugt í vöxt að konur
komnar yfir bameignaraldur nýti
sér nýjustu tækni við gervifijóvg-
anir th að eignast börn.
Síðustu vikur hafa borist fréttir
af fjölda kvenna á sextugsaldri sem
ýmist hafa eignast böm eða era
þungaðar. í Bretlandi er þess að
skammt að bíða að 13 konur á sex-
tugsaldri verði léttari.
Þegar hefur ein 58 ára gömul
bresk kona fætt bam eftir að hafa
leitað aðstoðar á ítahu. Mál hennar
hefur hleypt af stað allri umræð-
unni um bameignir kvenna eftir
tíðahvörf.
Þessi árátta er ekki síður umdeild
en frjóvganir á eggjum eyddra
fóstra. Þessi möguleiki er þó gam-
ah og hefur verið notaður alloft á
síðustu árum. Þannig hafa ömmur
gengið með börn dætra sinna og
lánast vel. Ásókn fullorðinna
kvenna í að eignast eigin böm fer
þó stöðugt vaxandi og t.d. á ítahu
hafa læknar góðar tekjur af að
hjálpa þessum konum.
Aldraðar mæð-
ur unglinga
Flestir hafa áhyggjur af uppeldi
bama fuhorðinna kvenna því þær
verða ef til vih að ala upp unglinga
þegar þær era sjálfar komnar á
áttræðisaldur. Þetta þykir mönn-
um óeðlhegt og hafa velferð bam-
anna í huga.
Á ítalíu hefur Severino Antinori
læknir getíð sér frægðarorð fyrir
aö aðstoöa konur við aö verða
þungaðar á efri áram. Um er að
ræða hefðbundna glasafrjóvgun
eftir að konan hefur fengið egg að
gjöf frá konu á bameignaraldri.
Með fylgir hormónameðferð sem
þó er ekki talin hættuleg hehsu
kvennanna.
Enn sem fyrr hafa menn áhyggj-
ur af því að veriö sé að leika á nátt-
úrana. Engin sextug kona getur átt
bam við eðhlegar aðstæður. Menn
efast því um siðfræðina sem að
baki býr þótt enginn treysti sér til
aö segja að fullorðnar konur eigi
ekki að eignast börn.
Enginn skortur
á bömum
Mörgum þykir hka undarlegt að
miklum fjármunum skuh eytt í aö
hjálpa konum á Vesturlþndum við
að eignast böm á sama tíma og
þúsundir bama látist á degi hveij-
um í öðrum heimshlutum vegna
vannæringar og sjúkdóma.
Þessi grein læknavísindanna fá-
ist því einkum við að sinna þarf-
lausum óskum kvenna i ríkum
löndum við að eignast börn á sama
tíma og ótölulegur fjöldi bama fæð-
ist í öðrum heimshlutum án þess
að eiga sér nokkra lífsvon.
Jafnvel í Evrópu séu böm dag-
lega fórnarlönb stríðsátaka í Bosn-
íu. Enginn hugsi um þessi böm
meðan færustu vísindamenn eru
að búa til böm þvert gegn lögmál-
um náttúrannar.
-GK