Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 56
F R É X 1 - A. S K O X I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 3.000 krónur.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing:
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994.
Jónasi Bjarnasyni varð vel ágengt þar sem hann sat við að dorga í gegn-
um gat á ísnum á Reynisvatni í gær. Tveggja til sex punda bleikja og regn-
bogasilungar voru afraksturinn en þarna er kvótinn hvorki mældur í tonnum
né ígildum heldur má maður veiða 5 fiska fyrir 2 þúsund krónur. Veiöi-
tíminn er frá sólarupprás til sólseturs. Þaö fara engar sögur af því hvort
Jónas hafi verið farinn að skjálfa í frostinu í gær þegar hann hélt glaður
^ög reifur heim á leiö með fenginn. -Ótt/DV-mynd GVA
Sjómannaverkfallið:
Beðið eftir Þorsteini
„Útgerðarmenn höfnuðu því að
koma að samningaborðinu og ræða
sérkjaramálin. Forsendur voru því
ekki fyrir þvi að taka upp þríhliða
viðræður um kvótamálið," segir
Óskar Vigfússon, formaður Sjó-
mannasambands íslands.
Fulltrúar sjómanna funduðu í
gærmorgun með Ólafi Davíðssyni,
ráðuneytisstjóra í forsætisráðu-
neytinu, og gerðu honum grein fyr-
ir hugmyndum sínum um hvemig
koma megi í veg fyrir þátttöku sjó-
manna í kvótakaupum. Ólafur
hafnaöi fiskverðshugmyndum sjó-
manna en bauð upp á umræður um
aðrar leiðir.
í kjölfarið fundaði Ólafur með
útgerðarmönnum þar sem þeir
höfnuðu því að ræða sérkjara-
samninga við sjómenn. Vegna þess-
arar afstöðu útgerðarmanna sá rík-
issáttasemjari ekki ástæðu til frek-
ari fundarhalda. Samkvæmt heim-
ildum DV er þess hins vegar beðið
að Þorstein Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra komi að máhnu, en hann
var væntanlegur til landsins í gær-
kvöldi.
-kaa
Breytti ávísun-
um U|^ |^|*
Í140þúsund
„Það kom hingaö maður meö „Það kom einhver sölumaður var stíluð á hærri upphæð en 1400
jólarósir 1 desember og seldi þær á hingaö að selja jólarósir og viö krónur. Ekki er vitaö til þess að
700 krónur stykkíð. Viö keyptum keyptum tvær af honum. Þær hafa þeirri upphæð hafí verið breytt.
tvær og greiddum fyrír með 1400 ekki enst mjög vel og eru báðar aö Starfsstúlka eins fyrirtækjanna
króna ávísun. Mér skilst að sömu fölna hér frammi. Maður hefði bar kennsl á sölumanninn á einum
sögu sé að segja af lögfræöistofu í haldið að maður fengi meira fyrir staðnum. Umræddur maður er
húsinu. Bæði hér og hjá lögfræð- 140 þúsund krónur. Ég held að þritugur og hefur komiö við sögu
ingunum var ávísununum breytt sölumaðurinn hafi bara gert það í fikniefnamálum, meðal annars í
úr 1400 krónum í 140 þúsund. Þetta gott þennan dag því hann breytti stóru máli sem kom upp erlendis á
sáum við þegar við fengum yfirht ávisunum hjá fleiri en okkur og seinasta ári.
sent frá bankanum okkar,“ sagði seldi jafnframt fleiri en okkurSíödegis í gær haföi ein kæra
starfsmaður á skrifstofu BHMR í sagði lögmaður á lögfræðistofunni borist til RLR vegna málsins og
samtali við DV. í samtali við DV. vitað er að til stendur aö kæra hitt
Hann segir manninn hafa gefið Auk þessara tveggja fyrirtækja í málið. Hins vegar hafa ekki borist
kvittunfyrirsölunniogþarséund- húsinu veit DV til þess að þriðja fréttir af því hvort fleiri en tvær
irskrift. Hins vegar sé allt annar fyrirtæki keypti jólarósir af mann- ávísanirvoruíalsaðar. -pp
aðih sem framseiji ávísanirnar sem inum. Þar var hins vegar greitt með
vorufalsaðaroginnleystaríbanka. ávísun frá þriðja aðila. Sú ávísun
Ákæra gefin út á hendur Reykvíkingi:
63 ára ákærður fyrir að nauðga pilti
Sextíu og þriggja ára Reykvíkingur
hefur verið ákærður fyrir að hafa
notfært sér ölvunarástand 15 ára
phts og haft við hann kynferðismök.
Um þrír mánuðir eru liðnir frá því
að atburðurinn átti sér stað en piltur-
inn kærði verknaðinn th lögreglu
fljótlega á eftir.
Það sem manninum er gefið aö sök
er að hafa veitt piltinum áfengi en
þegar hann var orðinn ölvaður er
hann sakaður um að hafa notfært sér
ástand phtsins en hann mun ekki
hafa getað spomað við verknaðinum
sökum ölvunar. Maðurinn hafði í
frammi ýmsa kynferðislega thburði
viö phtinn.
Umræddur karlmaður hefur tvisv-
ar verið dæmdur fyrir kynferðisbrot,
í fyrra skiptið í Noregi árið 1968 en
þá var hann einnig dæmdur fyrir
„stórþjófnaö". Hann var þá dæmdur
í eins árs fangelsi en var síðan vísað
úr landi. 25 sinnum hefur maðurinn
verið dæmdur eða gengist undir
dómsáttir fyrir ýmis brot, þjófnaði,
skírlífisbrot, ölvunarakstur og fjölda
brota á áfengislögum. Síðasta refs-
ingin, sem maðurinn hlaut, var árið
1981. Frá þeim tíma hafa engin afbrot
verið skráð á hann samkvæmt opin-
berum gögnum.
Framangreint mál er komið í
dómsmeðferð í Héraðsdómi Reykja-
víkur og er dóms að vænta á næst-
unni. -Ótt
Loðnan er komin á miðin
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
„Það virðist vera loðna hérna á
stóru svæði. Það hefur verið stans-
laust loðna undir skipinu núna í 4
klukkustundir," sagði Valdimar Að-
alsteinsson, skipstjóri á grænlenska
loðnubátnum Ammastat, sem hélt á
miðin í gærkvöldi. „En hún stendur
heldur djúpt eða á 60-120 föðmum
og er nokkuð dreifö. Ég hef enn ekk-
ert kastað þar sem það er of hvasst
og haugasjór."
Eitt norskt loönuskip er komið á
miðin sem eru 60-70 mílur austur af
Héraðsflóa. Það hefur kastað þrisvar
sinnum og náð 80 tonnum af stórri
og góðri loðnu, sagði Valdimar og
kvaðst halda að fleiri norsk loðnu-
skip væru í startholunum
LOKI
Þetta er miklu hagkvaemara
en debetkort!
Veðrið á sunnudag
ogmánudag:
Frostið
minnkar
Á sunnudag og mánudag verð-
ur nokkuð stíf norðaustanátt á
landinu og yfirleitt hvasst á Vest-
fjöröum, éljagangur einkum um
norðan- og austanvert landið en
þurrt og víöa bjart veður á Suð-
vestur- og Vesturlandi. Smám
saman dregur úr frosti.
Veðrið í dag er á bls. 61
s. 814757
HRINGRÁS
ENDURVINNSLA
Endurvinnsla og
umhverfisvernd
í 44 ár.
TVÖFALDUR1. vinningur
V
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i