Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994
Fréttir
Umboðsmaður Alþingis liðsinnir bónda 1 Rauðasandshreppi:
Landgræðslunni gert
að skila gróðurlendi
- Haildór Blöndal hunsaði fyrri úrskurð landbúnaðarráðuneytisins
„Deilan hefur staöið um nytjar af
landi sem ég á. Ég hef borið á landið
og slegið það og þaöan hef ég fengið
allt að helminginn af heyfengnum.
Án þessa væri ekki hægt að búa á
jörðinni. Ég veit ekki hvert næsta
skrefið verður en reikna með að
þessu sé lokið enda komst umboðs-
maður að þeirri niðurstöðu að það
eigi að skila mér landinu," segir Þór-
ir Stefánsson, bóndi á Hvalskeri í
Rauðasandshreppi í Vestur-Barða-
strandarsýslu.
Umboðsmaður Alþingis hefur
komist að þeirri niðurstöðu að Þórir
hafi rétt til að nýta þann hluta jarðar
sinnar sem samkvæmt samkomulagi
við Landgræðsluna frá 1947 er innan
landgræðslugirðingar. Deilur hafa
staðið milli Þóris og Sveins Runólfs-
sonar landgræöslustjóra um máliö
frá árinu 1977.
í tíð síðustu ríkisstjómar komst
landbúnaðarráðherra að þeirri nið-
urstöðu að uppsetning landgræðslu-
girðingar hafi upphaflega verið
framkvæmd að ósk Landgræöslunn-
ar en ekki að beiðni landeiganda.
Samkomulag aðila um uppgræðslu á
landareigninni hafi ekki verið bind-
andi fyrir ábúendur.
Svavar Gestsson, þá staðgengill
Steingríms J. Sigfússonar í landbún-
aðaráðuneytinu, felldi úrskurðinn.
Samkvæmt honum var gert ráð fyrir
að ráðuneytið hefði milligöngu um
að landsvæðinu yrði skilað.
Ekki tókst að hrinda úrskurði land-
búnaðarráðuneytisins í framkvæmd
fyrir ríkisstjómaskiptin 1991 og að
ósk landgræðslustjóra hætti Halldór
Blöndal landbúnaðarráðherra við að
skila landinu. Málinu var þá skotið
til umboðsmanns Alþingis sem nú
hefur komist aö þeirri niðurstöðu að
úrskurður fyrrverandi landbúnaðar-
ráðherra skuli gilda.
-kaa
Asta Bima flugfreyja, Fanndis Fjóla og móðir hennar, Sigrún Sigmarsdóttir, á Vestmannaeyjaflugvelli í gær. Fann-
dfs Fjóla var hrædd við aö fara aftur um borð í vélina eins og sjá má. DV-mynd Ómar
Bjargaði lifi lítillar stúlku:
Hef aldrei f yrr lent í slíku
- segirÁstaBimaHauksdóttirflugfreyja
Óraar Garðaissan, DV, Vestmaimaeyjum:
Lítill vafi er á að Ásta Bima Hauks-
dóttir, flugfreyja hjá Flugleiðum,
bjargaði lífi þriggja ára stúlku þegar
flugvél félagsins var í aðflugi að Vest-
mannaeyjaflugvelli í fyrradag, eins
og skýrt var frá í DV í gær. Tildrögin
vom þau að brjóstsykur stóð fastur
í koki stúlkunnar og hafði móðir
hennar reynt árangurslaust að ná
honum upp þegar flugfreyjan sá
hvað verða vildi.
„Ég var á móti því að Fanndís Fjóla
fengi brjóstsykursmolann en þaö er
erfitt að segja nei við þriggja ára
bam þegar allir aðrir fá mola,“ sagði
Sigrún Sigmarsdóttir móðir hennar
í samtali við DV.
„Allt í einu hrökk molinn ofan í
hana og stóð í henni. Ég reif hana
úr beltinu, lagði hana á hné mér og
bankaði á bakiö á henni. Það bar
engan árangur og þá stóð ég upp og
reyndi að þrýsta molanum upp með
því að taka þéttingsfast um magann
á henni. Þegar það bar heldur ekki
árangur leist mér ekkert oröiö á blik-
una. Ég kallaði til hinna farþeganna
en enginn sinnti því. Það var ekki
fyrr en ungur strákur stóð upp. Hann
reif Fanndísi Fjólu úr fanginu á mér
en það hafði ekkert að segja. Ég var
orðin verulega hrædd enda var stelp-
an orðin máttlaus í höndunum á
okkur. í því kom flugfreyjan og
spurði hvort stæði í henni. Ég játaði
því og án þess að hika óð hún með
finguma ofan í kok á stelpunni. Ég
held aö ég hafi sjaldan orðið eins feg-
in og þegar flugfreyjan sagðist hafa
náð molanum,“ sagði Sigrún.
Fanndís Fjóla var fljót að jafna sig
en fyrst á eftir ældi hún lítils háttar
blóði. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Sigrún lendir í svipuðu um borö 1
flugvélum Flugleiða.
„Fyrir rúmlega ári hrökk bijóst-
sykur ofan í son minn en það var
ekki eins alvarlegt og nú. Þá skrifaði
ég félaginu og mótmælti því að far-
þegum væri boðið upp á brjóstsykur
um borð í flugvélunum. í svarbréfi
frá Flugleiðum var ég beðin afsökun-
ar með ósk um að næsta flugferð
yrði ánægjulegri," sagði Sigrún og
þetta átti eftir að gerast í annað skipti
þannig að atvikið á þriðjudaginn er
það þriðja sem Sigrún lendir í með
böm sín um borð í vélum.
í gærkvöldi var Ásta Bima flug-
freyja í vél til Eyja og þá notaði
Fanndís Fjóla tækifærið og færði
henni blóm sem þakklætisvott fyrir
björgunina. Ásta Bima gerði lítið úr
atvikinu. Sagðist hún reyndar aldrei
fyrr hafa lent í slíku. „En í þjálfun
flugfreyja er okkur kennt að bregö-
ast svona viö og hún kom að notum
í þessu tilfelli," sagöi Ásta Bima.
Stuttarfréttir
Veiðistjórinorður
Umhverfisráðherra hefur
ákveðið að flytja embætti veiði-
stjóra norður á Akureyri og sam-
eina það Náttúrufræðistofnun-
inni. Fíögur störf fylgja embætt-
inu.
Fleiri bókanir
Góðar horfur em í ferðaþjón-
ustu þetta árið. Um þessar mund-
ir em 15-20% fleiri bókanir með
Flugleiðum til íslands í sumar en
á sama tíma í fyrra.
Kærulausir íslendingar
Hlutfallslega fleíri börn slasast
hér á landi en í nágrannaríkjun-
um. Á síöasta ári vom skráð 22
þúsund slys á bömum. Þetta kom
fram á Stöö 2 en þar er í gangi
átakiö Vöm fyrir böm.
Heimsmeistaramót
Heimsmeistaramót í dorgveiði
gegnum ís fer kannski fram á ís-
landi árið 1996. Samkvæmt frétt
Ríkissjónvarpsins kemur Ólafs-
fjarðarvatn líklega til greina sem
mótsstaður.
Bráðabirgðalög
i-j____-i
loraæma
Miðstjóm BHMR fordæmir
setningu bráðabirgðalaga ríkis-
stjórnar íslands vegna kjaradeilu
sjómanna og útgerðarmanna og
telur þau vega að grundvallar-
réttindum launamanna í lýðræð-
isríki.
Vextúr ríkisvixla lækka
Útboö fór fram í gær á ríkisvíxl-
um. Vextir þeirra lækkuðu enn
en þó ekki mikiö. Vextir 3 mánaða
víxla lækkuðu úr 5,29 í 5,23%.
Tilboöum var tekiö í samtals 1,7
milljaröa króna
Atlantaleigiraröbum
Flugfélagið Atlanta í Mos-
fellsbæ hefur gert nýjan samning
viö Saudi Arabian Airlines og
leigir aröbum fiórar breiöþotur
næsta sumar. Morgunblaöið
greinir frá þessu.
Rafhlöður
ánþungmáfama
Rafhlöður sem ekki innihalrfa
kvikasilfur og kadmium seljast
meira núna hér á landi þrátt fýr-
ir að þungmálmar sóu aö mestu
horfnir úr rafhlööum. Morgun-
blaðið skýrir frá þessu.
•hjb
Meintmis-
notkuná
starfsaðstöðu
á ríkisfjölmiðli
Útvarpsráð hefur til umfiöllun-
ar erindi frá rekstraraðilum veit-
ingahússins Kaffi listar vegna
meintra hagsmunatengsla dag-
skrárgerðarraanna i uraflöllun
rásar 2 um brottrekstur og kjör
fyrrum starfemanns veitinga-
hússins. Framkvæmdastjóri Rík-
isútvarpsins, Elva Björk Gunn-
arsdóttir, segir málið sem stend-
ur vera í skoöun hjá sér.
Umræddur starfsmaður er
mágur Lisu Pálsdóttur, dagskrár-
gerðarmanns RÚV, en samstarfe-
kona hennar, Anna Kristine
Magnúsdóttir, sá um að fialla um
málið í síðustu viku. Eigendur
Kaffi iistar halda því fram að Lísa
hafi haft milligöngu um ráðningu
mágs síns og með því m.a. hafi
veriö um misnotkun á starfsaö-
stöðu á ríkisfiölmiðli að ræða 1
tengslum við umfiöllun rásar 2.
-Ótt
Húsbruninn:
Likiegtaðraf-
magnséorsök
eldsins
Þótt rannsóknarlögreglan vinni
enn að rannsókn brunans í gær
þegar Skólavörðustígur 33 brann
þykir líklegast að eldur hafi
kvíknað út frá rafmagni. Húsið,
sem er mikið skemmt, ef ekki
ónýtt, var í endurbyggingu og
haföi hluti af raflögnum þess ver-
ið endumýjaður.
Húsið er í eigu Péturs Einars-
sonar, fyrrverandi flugmála-
stjóra. Ekki haföi náðst í Pétur í
gær til að láta hann vita af brun-
anum en hann er staddur erlend-
is. Harrn hefur undanfarin tvö ár
unnið að sérverkefhum fyrir
samgönguráðuneytiö. Meöal
verkefna hans var endurskoðun
laga um loftferðir og loftíara og
endurskoöun laga um sfiórn flug-
mála. Þessi vinna var langt kom-
in og hluti hennar á lokastigi.
Halldór Kristjánsson hjá sam-
gönguráöuneytinu sagði í gær
ekki Ijóst hvort gögn Péturs um
þessi mál heföu eyðilagst í brun-
anum en ef svo væri væri um
stórtjónaðræða. -pp
húsnæðifyrir
Ráðningar-
stofuna
Borgarráð hefur samþykkt að
kaupa 700 fermetra skrifstofu-
húsnæði undir skrifstofur Ráðn-
ingarstofu Reykjavíkurborgar í
nýbyggingu Kiwanishreyfingar-
innar við ISngjateig n í Reykja-
vík. Skrifstofuhúsnæðiö kostar
46 milljónir króna og verður af-
hent tilbúið undir tréverk með
fullfrágenginni sameign og lóð 15.
mars. Gert er ráð fyrirað heildar-
kostnaðurinn verði um 70 milfi-
ónir króna.
Um þessar mundir er unnið að
endurskipulagningu á starfsemi
Ráðningai’stofu Reykjavíkur-
borgar. Eggert Jónsson borgar-
hagfræðingur segir aö fyrirhugað
sé að breyta nafni Ráöningarstof-
unnar í Vinnumiðlun Reykjavík-
ur. Þannig veröi lögð meiri
áhersia á vinnumiölun auk þess
sem náms- og vinnuráðgjöf verði
aukin. Fyrirhugað er aö Vinnu-
miðlunin sjái í framtíðinni um
ráðningu skólafólks til sumar-
starfa og aö Vinnuskólinn fái inni
ínýjahúsnæðinu. -GHS