Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994 7 pv__________________________Fréttir Efnistaka úr Stapafelli og Súlum: Fimm verktakar víki fyrir Aðalverktökum - bæjarstjóm Njarðvíkur óttast að verð á framkvæmdum hækki PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA Upplýsingaskrifstofa Björgólfs Guðmundssonar Vatnagörðum 28 S 88 30 44*88 30 45 Opið 13-22. Allir velkomnir! Samningi við íimm verktaka af Suðumesjum hefur verið sagt upp um malarnám úr Stapafelli og Súlum á vamarsvæðinu á Keflavíkurflug- velli og stendur til að Aðalverktakar taki einir að sér að taka efni og selja af svæðinu. Bæjarstjóm Njarðvíkur hefur sent utanríkisráöuneytinu mótmælivegna þessa. Kristján Páls- son bæjarstjóri segist óttast að þetta muni leiða til hærra verðs á efni í jarðvegsframkvæmdir á Suðumesj- um. „Þetta mál er í heildarendurskoð- un. Við viljum hafa þessa samninga lausa,“ sagði Sigurður Ásmundsson hjá utanríkisráðuneytinu í samtali . við DV í gær. „Verktakamir hafa fengið leyfi hjá okkur til að taka efni þama, síðan hafa þeir gefið upp hve mikið efni þeir hafa tekið og hafa greitt fyrir miðað við rúmmetrafjölda. Þetta þykir ekki hafa gefið nógu góða raun í því formi sem það hefur verið. Eftir- lit hefur ekki verið nógu virkt og umgengni hefur verið frekar slæm.“ Sigurður sagði að stefnt væri að því að allir sem vilji muni geta feng- ið efni á svæöinu. Aöspurður um hvort Aðalverktakar tæKju starf- semina alveg yfir og sæju í framtíð- inni um að selja efni frá svæðinu, sagði Sigurður: „Það gæti farið svo, þetta er náttúr- lega langstærsti aðilinn þama á svæðinu. Kristján Pálsson, bæjarstjóri í Njarðvík, kveðst óttast það fyrir- komulag að Aðalverktakar sjái einir um malamámiö því verktakamir fimm hafi til þessa sjálfir séð um efn- istöku og þannig átt kost á því að bjóða lægra verö við ýmis verk á Suðumesjum. Stálsmiðjan: Fullar sættir við Dagsbrún Fullar sættir náðust milli forystu- manna Stálsmiðjunnar í Reykjavík, Dagsbrúnar og Félags jámiðnaðar- manna á fundi sem haldinn var um helgina. Ákveðið var að brottrekinn starfsmaður, Gylfi Páll Hersir, yrði ráðinn að nýju og fallið var frá launa- lækkun starfsmanna. Gylfa Páli var sagt upp í kjölfar málaferla fyrir fé- lagsdómi vegna aðgerða sem Dags- brún greip til á síðasta ári til að koma í veg fyrir skert kjör starfsmanna. Með samkomulaginu freista aðilar málsins þess í sameiningu að tryggja áframhaldandi rekstur skipasmíða- iðnaðar í Reykjavík. Ýmiss konar hagræðing er á dagskrá í Stálsmiðj- unni sem gripið verður til að höfðu samráði við alla starfsmenn. -kaa Borgarráð: Gatnaljós sett upp á fjórum stöðum Borgarráð hefur samþykkt tillögu umferðamefndar Reykjavíkur um að setja upp umferðar- og gangbrautar- ljós á fjórum stöðum í borgjnni á þessu ári. Fyrirhugað er að setja upp umferðarljós á gatnamótum Hring- brautar og Bræðraborgarstígs, Lang- holtsvegar og Skeiðarvogs og á gatnamótum Snorrabrautar, Flóka- götu og Egilsgötu. Þá verða sett upp gangbrautarljós vestan gatnamóta HringbrautarogBirkimels. -GHS „Okkur sýnist að öllum verktökun- um sé sagt upp, óháö því hvort þeir hafi staðið við öll atriði í samningi sem þeir gerðu við varnarmálaskrif- stofuna eða ekki,“ sagöi Kristján. „Okkur finnst það megi ekki láta þá verktaka, sem hafa staöið sína plikt, ekki þurfa að líða fyrir þá sem hafa svikist undan merkjum," sagði Kristján. Bæjarstjórinn í Keflavík sagðist í gær jafnvel eiga von á því að Kefla- víkurbær myndi einnig hafa afskipti afþessu. -Ott meiriháttar Þetta er videovelin sem allir ern að lala um, og skal enp umlra rétlveröer 79.900 krómip, útsöluverð aðeins BRAUTARHOLTI OG KRIIXIGLUIMIMI SÍMI 625200 Panasonic IMV—CS1 Aðdpánapstillin Hleðslupafhlaða Tekup venjulegar Gleiðhopnslinsa Stpaumbpeytip Axlapól VHS-C

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.