Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994 15 011 þjóðin krefst nú vaxtalækkana Sú var tíöin aö blöö og jafnvel útvarp endurómuðu í kór sönginn um „spariféö, sem brann á eldi verðbólgunnar". Svo komu lævís Ólafslög (1979), sem sneru dæminu við. Lögin fólu í sér allsheijar verð- tryggingu fjárskuldbindinga sem hafði reyndar áöur verið reynd á. takmörkuðum sviöum. Skv. lögun- um átti að bæta við vextina verð- bótaþætti, er mældist með svo- nefndri lánskjaravísitölu. Verð- bótaþættinum var að meginhluta aukið við skuldina en raunvextir greiddir út. Ef lán var t.d. til 20 ára, bættust 19 hlutar verðbóta- þáttar við höfuðstól skuldar en einn hluti var greiddur á gjalddaga með raunvöxtunum, sem réðust á „markaðnum" eða af „handafli" bankakerfisins. Kjallariim Eggert Haukdal alþingismaður Vaxtatafla ARSAVOXTUN 98PPPP|K;M'íX - tt ,S : ir. s p : >' i1 * * k O I m « ð .' ö T. t» Ó k 8 t 1 1 A c n<> óhteytð. vcfðtí (nn:stf«öa j. s> innst yiit 500 þu$«n<* 6.00% Vefótí. innct ytif 60ö þúaunO 3.60% Sparileið 3- hreytó innistæða É. 50% óhfeytc.verótr infiistœða Spariieið 4- verðtf. mnistíeca 0.f>0% öpariiwiö 5— vorðtí. »niu*t»C« 6 60% ö roan v**rotfyggðif reikn 2.0 0% O'iótsr.vefótfycgðír relkn. .1 /s% 1- § <> x oi ð n ö e n g i s b u n d n i f r e > k n, !i) gengishtnd>nc »» v SDR 6 00% n) öengist>tnö:ng m v. ECU U.í.0% „Sligandi vaxtabyrði, vanskil og gjaldþrot af hennar völdum er orsök kreppunnar i dag,“ segir Eggert m.a. í greininni. „Þaö eru að sjálfsögðu staðlausir stafir og raunar fráleit hugmynd að verð- trygging fjárskuldbindinga hafi „lækn- að“ verðbólguna. Má telja með ólíkind- um að fyrri viðskiptaráðherra og seðla- bankastjóri skuli hafa leyft sér að segja slíkt.“ Orsök kreppunnar Ólafslög komu ekki að fullu til framkvæmda fyrr en í ársbyijun 1982. Þegar árið eftir (1983) varð verðbótaþáttur vaxta skv. láns- kjaravísitölu 73,4% og raunvextir 3,53%, en nafnvextir því samtals 76,93%. Nafnvextir næstu árin námu frá liðlega 20% upp í rúmlega 40%, og hélst svo út áratuginn. Þessi vaxta- og verðlagsskrúfa leiddi til hrikalegrar skuldasöfnun- ar hjá atvinnuvegum, heimilum og ríkinu sjálfu. Er svo komið núna að hækkun lánskjaravísitölu um 1% veldur skuldahækkun hjá sjáv- arútvegi um einn milljarð króna (þúsund milljónir) og hjá íbúðaeig- endum um sem næst tvöfalda þá fjárhæð. Sligandi vaxtabyrði, vanskil og gjaldþrot af hennar völdum er or- sök kreppunnar í dag. Vaxtabyrðin kemur þyngst niður á útflutningi sem ræðm- ekki verði vöru sinnar. Veröið ákvarðast á heimsmarkaði. Vaxtabyrðin bitnar og ipjög hart á launþegum, þegar skuldir vaxa skv. vísitölu, en kaupgjaldið ekki. Slíkt kerfi fær í reynd með engu móti staðist. Það hefir reynt mjög á þohnmæöi ASÍ og BSRB. Það eru að sjálfsögðu staðlausir stafir og raunar fráleit hugmynd, að verðtrygging fjárskuldbindinga hafi „læknað" verðbólguna. Má telja með ólíkindum að fyrri við- skiptaráöherra og seðlabankastjóri skuh hafa leyft sér að segja slíkt. Jafnvel svonefnd vaxtanefnd á sl. ári gerði þessa firru að sinni. Verð- tryggingin ohi vaxta- og verðlags- skrúfu 9. áratugarins sem óx að því marki aö valda hruni. Þjóðarsátt kom í veg fyrir þjóðargjaldþrot 1990. Ahar efnahagsaðgerðir miða að því að koma í veg fyrir kreppu, ekki að valda henni. Verðtrygging samningsatriði? Örfáir hagfræðingar vöruðu við þessari þróun. Má minna á skrif dr. Magna Guömundssonar og Gunnars Tómassonar. Þeir bentu á leiðir tíl að tryggja verðghdi lang- tíma spari-innlána, án þess að koll- keyra kerfið. En á þá var ekki hlustaö og þeir hafa ekki hlotið verðskuldað þakklæti. Engin von er th þess að við ís- lendingar getum orðið gjaldgengir á erlendum samkeppnismörkuð- um, nema með sama vaxtakerfi og svipuðum vaxtaprósentum og ghda í viðskiptalöndum okkar. Ég hefi um árabh flutt frumvarp á Alþingi um afnám lánskjaravísitölu og verðtryggingar. Það hefir ekki náö fram að ganga en flutnings- og stuðningsmönnum hefur stöðugt fjölgað. Þess er að vænta að Al- þingi, sem kemur saman síðar í þessum mánuði, láti th skarar skríða. Sú hugmynd hefir skotið upp kollinum að gera verðtryggingu að samningsatriði milh lánveitenda og lántakenda. Hinir fyrmefndu munu ráða ferðinni og því yröi engin breyting samfara slíkri th- högun. Það spor sem ríkisstjómin tók síðasthðið haust í vaxtalækkun ber vissulega að þakka ef haldið verður áfram á sömu braut. Eggert Haukdal Allir með strætó Strætisvagnar em helsta sam- göngutæki fjölmargra íbúa borgar- innar en margir eiga erfitt með að vera án þeirrar þjónustu sem vagn- arnir veita. Boöað verkfah starfs- manna SVR hefur verið sent fyrir félagsdóm þar sem ákveða á hvort verkfahsboðunin er lögleg eða ekki. Þessi deha, sem nú rís hæst hjá starfsmönnum SVR, er tilkom- in vegna einkavæðingar borgar- innar á SVR. Starfsmenn telja á sér brotið þar sem þeir segja að þeim hafi verið lofað að halda áunnum réttindum sínum. Að missa réttindi Þegar Strætisvagnar Reykjavík- ur vora einkavæddir urðu starfs- menn fyrirtækisins að hverfa úr Starfsmannafélagi Reykjavíkur- borgar og ganga í hin ýmsu félög eftir því hvert starfssvið þeirra er innan fyrirtækisins. í flestum th- fehum komu starfsmennirnir verr út við skiptin og er þar kominn grunnurinn að dehunni. En hvers vegna gátu starfsmennimir ekki thheyrt sínu gamla félagi þótt Strætisvagnar Reykjavíkur fengju hf. fyrir aftan nafnið sitt, fyrirtæk- ið er enn í eigu borgarinnar. Einkavæðing einkavæðing- arinnar vegna Þetta er ekki einfalt mál í fram- KjáUarinn huga vel aha þætti einkavæðingar á fyrirtækjum sínum áður en th framkvæmdar kemur. Það er gott og ght að einkavæða fyrirtæki ef von er th þess að það gangi betur þannig. En þegar keyrt er áfram með slíkum ofsa og látum er ekki að undra að iha fari. Með einka- væðingu SVR ber að hafa nokkra þætti í huga: 1. Að þjónustan við íbúana og þá sem nota vagnana minnki ekki. 2. Að óhófleg hækkun fargjalda við íbúa borgarinnar. Þegar Sveinn Andri Sveinsson tók við stjóm SVR hagræddi hann rekstrinum með því að minnka þjónustuna. Vagn- arnir voru látnir ganga á 20 mín- útna fresti í staðinn fyrir korters. Þetta þótti snjahræði og^parnaöur sýnhegur. En með því að draga úr þjónustunni verða þeir æ fleiri sem hætta að nota vagnana. Það er mikhl sparnaður fyrir íbú- ana að sem flestir noti strætó. Það þýðir að færri noti einkabha sem Þorleifur Hinrik Fjeldsted sölumaður og sækist ettir 7. sæti i prófkjöri sjálfstæðis- manna í Reykjavík kvæmd og hvers vegna þá að gera það enn flóknara? Reykjavíkur- borg státar oft af því að vera stærsti vinnuveitandinn á höfuðborgar- svæðinu en getur hún státaö af því að vera sá besti? Þar sem þetta vandamál er sprottið upp af einka- væðingu SVR er mér spum hvort umsjónarmenn einkavæðingar- innar hafi veriö starfi sínu vaxnir. Reykjavíkurborg verður að at- „Það er gott og gilt að einkavæða fyrir- tæki ef von er tU þess að það gangi betur þannig. En þegar keyrt er áfram með slíkum ofsa og látum er ekki að undra að illa fari.“ geri það ekki að verkum að strætó verði óvænni kostur fyrir íbúana. 3. Að starfsmenn hði ekki fyrir breytingarnar. Þessum punktum og fleiri verða stjórnendur borgarinnar aö huga að við breytingu á SVR. Áframhaldandi þjónusta Strætisvagnar Reykjavíkur eiga að vera samgöngu- og þjónustutæki leiðir af sér minni umferð og meng- un. Við verðum að hugsa flesta hluti með framtíðasjónarmið í huga. Strætisvagnar Reykjavíkur em samgöngutæki fjölmargra íbúa borgarinnar. Ég er ekki thbúinn að bíða í hálftíma eftir strætó, þá er ég heldur farinn á bílasölur að kaupa mér bh, því miður. Þorleifur Hinrik Fjeldsted „1 l. gr. laga um : stjórn fiskveiöa stendur orð- rétt að nytja- stofnar á ís- landsmiðum séu sameisn þjóðarinnar. Elías Björnsson, Markmið lag- formaður Sjó- anna er að mannafélagsins stuðla að Jötuns. verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja trausta.atvinnu; og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði ein- stakra aðha yfir veiðiheimildum. Ef lagt er út frá 1. gr. laganna þá stenst þaö ekki að þeir aðilar sem fá úthlutað aflalieimildum geti braskað með heimildimar að vild því samkvæmt lögunum er fiskurinn í sjónum sameign ís- lensku þjóðarinnar. Kvótabrask- ið leiðir af sér óheilbrigða víð- skiptahætti, td. þátttöku sjó- manna í kvótakaupum eins og dæmin sanna. Útgerðarmaður leigir frá sér aflaheimild, leigir heimildina síðan aftur og krefst þess að sjómennimir hjá honum taki þátt í leigunni - ella verði skipinu lagt. Kvótabraskið leiðir af sér byggöaröskun. Þegar kvóti er seldur á milli byggðarlaga hef- ur það í fór með sér verulega röskun í því byggöarlagi sem kvótinn er seldur ffá, t.d. at- vinnuleysi. Kvótabraskið leiðir th þess að veiðhieimildir færast á færri og færri hendur, Ef fram fer sem hqrfir verða innan við tiu aöilar á íslandi með allar veiðiheimhd- imar á sinni hendi. Hinn almenm útgerðarmaður verður þá leigu- liði hjá „sægreifunutn". Það er nokkuö sem ég vil ekki hugsa th.“ Andvígur „Forsenda þess að hægt sé aö nota aflamarks- kerfi th að stjórna fisk- veiðutn er sú aö heimilt sé að framsefja _ . u.„ kvóta milli ^nn H,0hrtur sldpa varan- ^T’uú 9' legaeðatima- fr«*in8urUU- bundið innan ársins. Þetta ffam- sal getur byggst á einhliða flutn- ingi kvóta mhli skipa, jöfnum skiptum tegunda eða sem bein greiðsla fyrir kvóta sé uin við-. skipti óskyldra aðha að ræöa. Ástæður fyrir framsali geta veriö margar. Útgerð sem á fleiri en eitt skip getur flutt aflaheim- ildir milli skipa og lagt öðru ef kvóti minnkar. Veiði skip um- fram kvóta er hægt aö ljúka árinu með því aö flytja kvóta af öðru skipi, sem á eftir veiðiheimildir, og losna þannig við sektir. Aldrei er hægt að stjórna veiðum svo aö i veiðarfærið komi nákvæmlega það magn og þær tegundir sem skipið má veiða. Mhlifærslur eða viðskipti með kvóta koma í veg fyrir að afla verði lient sé veitt umfram heimild. Útgerð sem á t.d. bæði ffystitogara og ísfisk- skip getur ákveðiö að flytja teg- und, sem hagkvæmt er að frysta úti á sjó, yfir á frystiskipið. Aflaheimhdir sem fluttar eru milli skipa hjá sömu útgerð eru ekki verðlagðar sérstaklega. Hjá óskyldum aðhum er hins vegar oft um greiðslu að ræða fyrir not á kvóta þótt hitt sé líka algengt að um jöfn skipti eða lán á kvóta geti verið að ræða. Verði framsal kvóta bannað er fyrirsjáanlegtað aflamarkskerfið verður ónothæft semstjómtæki.“ -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.