Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 20. JANUAR 1994
Fréttir
Sjálfstæðisflokkiiriim á Seltjámamesi:
Litlausir kandídatar
og dauf leg barátta
- fyrirfram borðleggjandi hverjir hljóta efstu sætin
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á
Seltjarnamesi fer fram á laugar-
daginn og má búast við að sjálf-
stæöismenn fylki liði í Sjálfstæðis-
húsið við Austurströnd. Prófkjörs-
baráttan á Nesinu hefur farið ró-
lega fram og þótt lítt spennandi það
Fréttaljós
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
sem af er enda fyrirfram vitað
hverjir hljóta efstu sætin. Próf-
kjörsbaráttan hefur farið fram
gegnum síma þar sem óformlegt
samkomulag hefur tekist með
frambjóðendum um að halda aug-
lýsinga- og kynningarkostnaði í
lágmarki. Frést hefiu: að Hildur
Jónsdóttir ferðamálafulltrúi hyggi
á útgáfu einblöðungs til að dreifa
um bæinn og er því hugsanlegt að
það hleypi lífi í baráttuna síðustu
dagana fyrir prófkjörið.
Búist er við að Sigurgeir Sigurðs-
son bæjarstjóri haldi efsta sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins eins og
undanfama áratugi og að Ema
Nielsen verði endurkjörin í annað
sæti. Ásgeir S. Ásgeirsson kaup-
maður gefur ekki kost á sér til end-
urkjörs en hann er búinn að vera
í bæjarstjóm í tólf ár og er þriðja
sætið því laust. Bæjarfulltrúarnir
Petrea I. Jónsdóttir og Guðmundur
Jón Helgason sækjast eftir kjöri í
2.-4. sæti og Jón Hákon Magnússon
framkvæmdastjóri, fulltrúi
óánægjuaflanna innan Sjálfstæðis-
flokksins, er talinn öruggur í þriðja
Sigurgeir Sigurðsson hefur leitt
flokkinn á Seltjarnarnesi í 30 ár.
sætið. Fullvíst þykir að Jón Hákon
vilji nýjan mann með sér inn í
bæjarstjóm og þykja þar helst
koma til greina Jens Pétur Hjalte-
sted rekstrarhagfræðingur og Hild-
ur Jónsdóttir ferðamálafulltrúi.
Þreyttir á einræðinu
Bæjarfulltrúamir Ema og Petrea
komu nýjar inn í bæjarstjóm fyrir
fjórum ámm og em taldar eiga
langt pólitískt líf fyrir höndum tak-
ist þeim að tryggja sér fylgi í próf-
Jón Hákon Magnússon fram-
kvæmdastjóri, fulltrúi óánægju-
aflanna innan flokksins.
kjöri á laugardag. Guðmundur Jón
kom hins vegar inn í bæjarstjóm á
miðju kjörtímabih og þykir því
ótryggur í sessi þó hann hafi staðið
sig vel. Sú hætta er vissulega fyrir
hendi að nýjum manni takist að
bola Guðmundi Jóni neðar á list-
ann.
Á Seltjamamesi er útbreidd sú
skoðun að prófkjörsbarátta sjálf-
stæðismanna hafi verið með af-
brigðum daufleg þó að geysileg
átök hafi átt sér stað innan Sjálf-
stæðisflokksins í fyrra. Margir
sjálfstæöismenn í bænum eru
þreyttir á einræðisstjóm Sigur-
geirs Sigurðssonar enda hefur
hann leitt flokkinn í 30 ár. Þá þykir
frambjóðendahópurinn jafn og Ut-
laus þó að Jón Hákon skeri sig
nokkuð úr hópnum og málefna-
breiddin lítil: umhverfismál, skóla-
og öldrunarmál.
Hafnar samkomulagi
Nokkra undrun hefur vakið að
Jón Hákon Magnússon fer ekki út
í beinan slag við Sigurgeir Sigurðs-
son bæjarstjóra með því að stefna
að kjöri í fyrsta sæti Ustans. Skýr-
ingin á þessu kann að vera sú að
þegar deilurnar stóðu sem hæst
innan Sjálfstæðisfiokksins var tal-
að um klofning innan flokksins og
hugsanlegt sérframboð. Ekkert
varð af sérframboði enda leystist
skipulagsdeilan á farsælan hátt að
því er virðist. Meö því að stefna að
þriðja sætinu vill Jón Hákon þann-
ig sýna fram á samstöðuna innan
flokksins. Þá hefur sú kenning
komið fram að Sigurgeir og Jón
Hákon hafi náð sáttum og sam-
komulagi um að bæjarstjórinn segi
af sér á miðju kjörtímabiU og eftír-
láti Jóni Hákoni bæjarstjórastól-
inn.
Þessu hafnar Sigurgeir Sigurðs-
son bæjarstjóri algjörlega og hefur
staðfest í samtaU við DV að hann
ætii að vera í bæjarstjórn út næsta
kjörtímabil ef heUsa og aðrar að-
stæður leyfa þó að sú skoðun sé
útbreidd á Seltjamarnesi að Sigur-
geir hafi gefið í skyn að hann muni
hætta á miðju kjörtímabiU. Aldurs-
ins vegna getur hann hæglega setið
út næsta kjörtímabU eða lengur.
Akureyri:
Lifandi kettl-
ingumfleygtí
ruslagáminn
Gyifi Knstjánsson, DV, Akureyri:
Einhver óþokki á Akureyri hef-
ur fundið þá leið auðveldasta tU
að losna við tvo kettiinga úr um-
sjá sinni að kasta þeim í ruslagám
sera staðsettur er ofarlega í bæn-
um, skammt frá Lundi. Annar
kettUngurinn var dauður og hinn
var svæfður eada iUa farinn af
vistinni í gámnum.
„Það kom maður þama að
gánmum í dag mcð jólatré sem
hann var að losa sig við og mað-
urinn heyrði kattarmjálm í
gámnum," segir Svanberg Þórð-
arson, meindýraeyðh- á Akur-
eyri, Maðurinn hafði samband
við Svanberg og hans menn sem
fóru á vettvang og fundu þeir í
gámnum tvo kettlinga, ekki eldri
en svo að þeir eru rétt farnir að
sjá. Annar kettíinganna hafði
greinilega króknaö úr kulda og
hinn var orðinn illa farinn og
varð að svæfa hann.
Svanberg segir að gámurinn
sem um ræðir sé opinn að ofan
en svo hár að útilokað sé að kettl-
ingamir hafi komist í gárainn á
annan hátt en af manna völdum.
„Þetta staöfestir það sem við höf-
um hait grun um að menn losa
sig bara við dýrin á þennan hátt
eða fara bara með þau niður að
sjó og sleppa þeim þar,“ segir
Svanberg.
Brenndist á feiti
á McDonald’s
33 ára starfsmaður veitinga-
staðarins McÐonald’s liggur á
Landspítalanum með 1. og2. stígs
brunasár eftir að hafa fengið feiti
úr djúpsteikingarpotti yfir sig
aðfaranótt þriðjudagsins. Verið
var að skipta um olíu í pottinum
• þegar slysið varð.
Að sögn starfsmannastjóra
Mcdonald’s virðast rétt viðbrögö
hafa komið í veg fyrir að bruna-
sár starfsmannsins yrðu verri en
raunbarvitni. -Ótt
í dag mælir Dagfari
Togarar á útsöluprís
íslendingar deyja ekki ráðalausir.
Nú em þeir að kaupa gamla ryðkl-
áfa frá Kanada, tíu stykki takk, og
borga tíu milljónir per skip!
Það hefur verið haft á orði að ís-
lendingar geri út alltof mörg skip
á takmarkaðan afla. Það eigi að
fækka skiprnn og hagræða í útgerð-
inni til að hver fiskur sem á land
er dreginn sé með sem minnstum
kostnaði. Útgerðarmenn gera ekki
mikið með svona tal. Þeir bæta við
flotann.
Þá hefur ekki síður verið í um-
ræðunni alvarlegt ástand á fiskim-
iðunum og minnkandi fiskstofnar
og fiskveiðikvótar og menn vora
jafnvel að tala um að verkfallið um
daginn hefði verið ágætt vegna þess
að þá veiddu menn ekki á meðan.
Það blasir nefnilega við að kvótinn
verði búinn á miðju ári og skipin
liggi við bryggju og landfestar. Öll
þessi dýra og stóra skip með ný-
móðins græjum og gufuböðum í
káetum verði verkefnalaus.
Útgerðarmenn hafa ekki áhyggj-
ur af slíkum minni háttar vanda-
málum. Nú er um að gera að
stækka flotann til að fleiri skip nái
þeim fáu uggum sem enn synda um
í hafinu og hvað er þá skynsam-
legra heldur en að kaupa hræbil-
lega togara? Ef togari fæst fyrir tíu
milljónir stykkið þá er um að gera
að kaupa og kaupa strax. Þetta
kostar ekki meira en sem nemur
fjögurra herbergja blokkaríbúð og
hvað er það á milli vina?
Útgerðarmenn standa fastir á því
að þorskurinn sé þeirra, jafnvel
þótt ekkert sé eftír af honum á
miðunum. Undir þeim kringum-
stæðum er endumýjun togaraflot-
ans aðkallandi verkefni.
Kenningin er sem sagt sú að gott
sé aö eiga togara þótt enginn sé
fiskurinn enda eru togaramir
orðnir ódýrari heldur en veiðin og
fiskurinn og svo er aldrei að vita
nema menn fái styrki út á kvóta-
lausa togara.
Þá má heldur ekki gleyma því að
nýir togarar í landinu geta bætt úr
atvinnuleysinu. Það þarf að
munstra mannskap til að sigia tog-
urunum um höfin blá og svo er
hægt að heija á Norðmenn og
senda þessa togara á Svalbarða eða
í Smuguna og hvað gerir það til
þótt norska strandgæslan skjóti
nokkra togara í kaf þegar hver tog-
ari kostar ekki nema tíu milljónir?
Farið hefur fé betra sagði banka-
sljórinn og blikkaði ekki einu sinni
auga. Tíu milljónir fyrir togara era
ekki einu sinni jafnvirði árslauna
hjá bankastjóranum og býttar engu
þótt svona útgerð fari á hausinn
eða týni skipi.
íslenskir útgerðarmenn hafa
fjárfest í dýram skipum síðasta
áratuginn. Svo dýrum að það hefur
ekki tekist að fiska upp í afborgan-
ir af skuldunum og kostnaðinn af
úthaldinu og þessi skip hafa ekki
fengið kvóta sem dugar og þá hafa
menn þurft að kaupa nýja kvóta
og láta sjómennina borga kvóta-
kaupin og allt endaði þetta í illind-
um og verkfóllum eins og enn er í
fersku minni þjóðarinnar.
Úr þessu verður nú bætt þegar
endumýjun flotans mun eiga sér
stað í kanadískum útsölutogurum
og þannig ætla hagsýnir útgerðar-
menn að bregðast við vandanum og
þá gerir það ekkert til þótt togaram-
ir sigh kvótalausir og sjómenn fái
fullan hlut, því aflinn verður enginn
og þar af leiðandi verður tapið ekk-
ert og allir græða á útgerðinni.
Það er mikil framsýni og stórhug-
ur sem einkennir þessi nýjustu tog-
arakaup. Sjávarútvegurinn lætur
ekki deigan síga þótt illa ári. Og
ræðst ekki á garðinn þar sem hann
er lægstur. Eftir þvi sem fiskunum
fækkar ætla þeir að fjölga skipun-
um. Greinilegt er að í stað þess að
draga saman og spara í útgerðinni
ætla útgerðarmenn þessara nýju
skipa að senda eitt skip á hvern
fisk sem eftír er í sjónum. Þetta er
nokkurs konar maður á mann að-
ferð sem tíðkast í handbolta þegar
gripið er til örvæntingarfullra til-
rauna til að jafna leikinn. Enda
hafa íslendingar náð góðum ár-
angri í handbolta!
Utgerðin er aö reyna að jafna
leikinn í viðureigninni við þorsk-
ana sem hafa týnt tölunni og eru
sennilega álíka margir og skipin
sem gera út á þorskveiðar. Því fleiri
togarar því meiri möguleikar á að
ná síðasta þorskinum.
Allt lofar þetta góðu og leysir
eflaust deilurnar um kvótakerfið,
því þegar síðasti þorskurinn hefur
verið veiddur er enginn kvóti eftir
til að rífast um!
Dagfari