Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Page 16
16
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994
Menning_____________________________________
íslensk myndsýn stofnuð:
Stór alþjóðleg Ijósmynda-
hátíð á næsta ári
I síðustu viku var gengið frá stofn-
un verkefnis með aðild margra aðila,
meðal annars ríkisstjómar íslands
og Reykjavíkurborgar, sem hefur
hlotið nafnið íslensk myndsýn og er
hlutverk þessa víðtæka samvinnu-
verkefnis aö kynna ímynd íslands
út á við sem land einstakrar og
óspUltrar náttúru. Það em Skyggna
Myndverk hf. og Aflvaki Reykjavík-
ur sem hafa unnið að undirbúningi
þessa verkefnis. Til að ná settu marki
mun stofnunin standa fyrir alþjóð-
legri Ijósmyndahátíö annað hvert ár,
í fyrsta sinn 1995. Einnig verður sér-
stök dagskrá í ár í tengslum við 50
ára afmæli lýðveldisins.
Liður í undirbúningi ljósmyndahá-
tíðarinnar sem áætluö er á næsta ári
er að átta heimsfrægum ljósmyndur-
um, þar af tveimur fréttaljósmynd-
urum, verður boðið til íslands í sum-
ar og þeim veitt fyrsta flokks aðstaða
til að ljósmynda landiö í tvær til þijár
vikur. Þetta er gert í þeim tilgangi
að fá afnotarétt af völdum myndum,
sem þá verða teknar, við kynningu
og markaðssetningu á ljósmyndahá-
tíðinni 1995.
Ljósmyndahátíðin sjálf er ætluð
áhugaljósmyndurum hvaöanæva úr
heiminum og er ætlunin að þeir komi
saman í þeim tilgangi að taka mynd-
ir af íslenskri náttúru og fræðast um
áhugamál sitt. Boðið verður upp á
skipulagðar ferðir um landið þar sem
þátttakendum verður leiðbeint bæði
efnislega og tæknilega af þekktum
ljósmyndurum, auk þess sem haldn-
ar verða ljósmyndasýningar og fyrir-
lestrar. Undirbúningur og fram-
kvæmd veröur með þeim hætti að
höfðað verður til erlendra áhugaljós-
myndara með kynningum í erlend-
um fagtímaritum og með farandsýn-
ingu.
Ljósmyndahátíðin er mjög viða-
mikil og felst eins og áður segir í
mörgum námskeiðum og lýkur meö
ljósmyndasýningum í Reykjavík,
bæði innlendum og erlendum, þar
sem áhersla er lögð á umhverflsmál
og náttúruljósmyndun. Þá verður í
samstarfi við erlenda styrktaraðila
stofnað til verðlauna fyrir framúr-
skarandi ljósmyndaverkefni sem
höfðar til náttúruverndar og verður
lögð áhersla á að verðlaun þessi
hljóti virðingarsess á meðal áhuga-
manna á þessu sviði.
Hugmyndin að ljósmyndahátíðinni
er mótuð eftir erlendri fyrirmynd.
Margar borgir í Evrópu og Banda-
ríkjunum hafa haldið slíkar hátíðir
og fjöldi áhugaljósmyndara hefur
notfært sér þau tækifæri sem þar
gefast til að fá leiðsögn þekktra ljós-
myndara, hlýða á fyrirlestra og sjá
fjöldann allan af góðum ljósmynda-
sýningum. Sumar þessar hátíðir eru
í dag viðburðir í alþjóðlegri ljós-
myndun og fá þær jafnan mikla
umfjöllun um heim allan og er það
von aðstandenda hátíðarinnar á ís-
landi að hún eigi eftir að skapa sér
alþjóðlegan sess.
-HK
Blóðbrullaup, frægasta leikrit Federico Garcia Lorca, sýnt á Smíðaverkstæðinu:
Byggt á örlagaríkum atburðum
sem áttu sér stað í Andalúsíu
Steinunn Olína Þorsteinsdóttir og
Baltasar Kormákur eru fremst á
rnyndinni i hlutverkum sinum.
DV-mynd BG
í Blóðbrullaupi dansa leikararnir flamencodans við undirleik Péturs Jónassonar gítarleikara. Höfðu leikararnir
fengið sérstaka tilsögn hjá spænsku dansmeyjunni Gabrielu Gutarra sem kom hingað i október.
Blóðbrullaup, eða Bodas de sangre
eins og það heitir á frummáhnu, er
frægasta leikrit Federico Garcia
Lorca og er það fyrsta leikritið í þrí-
leik Lorca um Andalúsíu en hin tvö
eru Yerma og Hús Bemhörðu Alba.
í þessu mikla verki spinnur Lorca
mikinn örlagavef út frá fyrirferðar-
lítxUi blaðafregn af hörmulegum at-
burðum sem áttu sér staö nokkrum
árum áður í htlu þorpi í Andalúsíu.
Curro nokkur Montes fannst myrtur
úti í skógi nóttina eftir aö hann flúði
með fyrrverandi unnustu sinni,
Franciscu Canades, þegar gefa átti
hana öðrum manni. Eftir þennan
harmleik yrti brúðguminn tilvon-
andi aldrei á brúði sína og hún bjó
ein og fordæmd í þorpinu Níjar fram
á elliár. Francisca Canades lést í
hárri ehi 1987 og var þess sérstaklega
getið í líkræðunni að tími væri kom-
inn til að fyrirgefa konunni sem var
fyrirmynd hinnar ungu brúðar í leik-
riti Lorca.
Blóðbruhaup var frumsýnt í
Madrid fyrir sextíu árum og hlaut
mikið lof og miklar vinsældir þrátt
fyrir óvenjulegt form. ÖU þijú leik-
ritin 1 þríleik Lorca hafa verið sýnd
í Þjóðleikhúsinu. Blóðbruhaup var
jafnframt fyrsta leikritið efhr Lorca
sem sýnt var á íslensku leiksviði, var
það árið 1959 í Þjóðleikhúsinu.
Það er Þórunn Siguröardóttir sem
leikstýrir verkinu sem sýnt verður á
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins og
er frumsýning annað kvöld. í helstu
hlutverkum eru Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir, Baltasar Kormákur,
Ingvar E. Sigurðsson, Bríet Héðins-
dóttir, Edda Amljótsdóttir, Ragn-
heiður Steindórsdóttir og Rúrik Har-
aldsson.
-HK
Verð metsölubóka skorið niður í nýjum bókaklúbbi
Vaka-HelgafeU gekkst fyrir könn-
un meðal landsmanna þar sem spurt
var hvemig bækur þeir vUdu lesa.
Niðurstaðan varð sú að yfirgnæfandi
meirihluti þeirra vhdi helst nýjar
metsölubækur erlendra höfunda
sem ekki hefðu áður komið út á ís-
lensku, innbundnar en ódýrar.
Þegar þessi vUji lá fyrir var hafist
handa hjá Vöku-Helgafelh að leita
leiöa til að koma tíl móts við óskim-
ar. Það varð niðurstaðan að stofna
bókaklúbbinn Nýjar metsölubækur
þar sem eingöngu yrði boðið upp á
bækur af þessu tagi. Með hagstæðum
samningum, nýjum leiðum og að-
haldi hefur forlagið nú samið um ís-
lenskan útgáfurétt bóka eftir marga
helstu metsöluhöfunda heims og
hafa þegar komið út fyrstu þijár
bækumar; Á valdi vitna eftir WiU-
iam J. Coughlin, Austan við sól eftir
Barböm Bickmore og Dóttir foringj-
ans eftir Nelson DeMUle.
Meðal annarra höfunda sem gefnar
verða út bækur eftir í þessum nýja
bókaklúbbi era John Grisham, Jean
M. Auel, Robert James Walker, Mary
Higgins Clark, Ken FoUet, Belva
Plain, WUbur Smith og Patricia
Wright, aUt frægir metsöluhöfundar.
" -HK
Edda Jónsdóttir.
Edda hlaut
verðlaunfyrir
vatnslitamyndir
Á síðasta ári fór á miUi Norður-
landa farandsýningin Norrænar
vatnsUtamyndir og lauk hún
göngu sinni í Kaupmannahöfn. í
tengslum viö sýninguna var
ákveðið að veita ein verðlaun og
eru þau kennd við breska fyrir-
tækið Winson & Newton sem
framleiðir oUu- og vatnsUti Nú
hefur verið tilkynnt aö þessi
verðlaun muni faUa í hlut Eddu
Jónsdóttur og hlýtur hún 10.000
kr. sænskar. Mun verölaunaaf-
hendingin fara fram í listasafn-
inu í Malmö í febrúarbyijun. í
greinargerð dómnefndar segir
meðal annars að vatnsUtamyndir
Eddu séu kraftmiklar en samt
viðkvæmar og gefa dæmi um
hvemig þróa má vatnsUtatækn-
ina. Hinar stóra myndir hennar
geta bæði verið þéttar og dimmar
en um leið er yfir þeim sérkenni-
leg og flöktandi birta...
Vínartónleikarnir
vinsælir
Vinsælustu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands era án efa
hinir árlegu Vínartónleikar. í
þetta skiptið vora auglýstir
tvennir tónleikar. Fljótt kom í
ljós að það nægði ekki enda er
nú uppselt á tónleikana. Hefur
verið bætt viö einum tónleikum
á laugardaginn. Þaö er góðkunn-
ingi okkar íslendinga, Peter
Guth, sem stjómar hljómsveit-
inni á tónleikunum og Sigrún
Hjálmtýsdóttir syngur einsöng. Á
síðasta áratug hefur Peter Guth
verið vinsælastur aUra þeirra
sem stjóma Vínartónleikum og
er hann jafnan með fiðluna í ann-
arri hendi. Á efnisskránni eru
verk eftir Ziehrer, Siecnynski,
Lehár og Johann Strauss yngri.
Úthlutunarað
væntaúrKvik-
myndasjóði
Eins og sagt var frá hér í blað-
inu í síðustu viku urðu tafir á
úthlutun styrkja úr Kvikmynda-
sjóði, meðal annars vegna þess
að ekki hafði verið ráðinn nýr
formaður stjómar Kvikmynda-
sjóðs. Nú hefur verið skipuö ný
stjórn og er formaöur hennar
Vilhjálmur Egilsson alþingis-
maður. Það er þvl ekkert að van-
búnaði fyrir úthlutunaraefnd að
ganga frá sínum málum en í ár
verða liklega um það bfl 50 millj-
ónir til úthlutunar í styrki en 132
umsóknir liggja fyrir og er sýnt
aö margir verða útundan.
Gnægta-
brunnurinn
Á Sólon ísiandus fer fram dag-
skrá í kvöld og annað kvöld und-
ir nafhinu Gnægtabrunnurinn.
Eru verkin á þessari dagskrár á
einhvem hátt hugsuð í tengslum
við sjónvarpsdagskrá. Meðal
þátttakenda era nokkrir nemar á
lokaári í fjöltæknideild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands en
hér á landi er stödd Steina Vas-
ulka sem er sjálfsagt eini íslend-
ingurinn sem hefur þaö að aðal-
starfi aö vinna viö skjálist. Býr
hún og starfar í Nýju-Mexíkó.
Kennir hún i nokkrar vikur
slýálist við fjöltæknideildina.
Dagskráin á Sólon Islandus hefst
kl. 20.30 bæði kvöldin.