Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
Fréttir
Feitipottur gleymdist á eldavélarhellu:
Milljónatjón er
Skútinn brann
- íannaðsinnárúmuári
Ómar Garðarsson, DV, Vestmeyjum;
Milljónatjón var vajö i Vest-
mannaeyjum í gær þégar eldur
kom upp í veitingastaðnum Skút-
anum. Talið er víst að eldurinn
hafi kviknað út frá feitipotti sem
gleymdist á eldavélarhellu
skamma stund. Eldurinn kom
upp á neðstu hæð hússins, sem
er þrílyft. Þar urðu miklar
skemmdir af völdum eldsins en á
efri hæðum urðu skemmdir
vegna reyks. Húsið var mann-
laust.
Það var klukkan 4 síðdegis að
tilkynnt var um eld í Skútanum.
Mikill eldur var á neðstu hæðinni
og hiti og reykur á öðrum hæðum
þegar slökkvilið kom á staðinn.
Greiðlega gekk hins vegar að
slökkva eldinn. Þó er ljóst að allir
innviðir og húsgögn á neðstu hæö
er sem næst ónýtt og sama má
segja um tæki í eldhúsi. Á efri
hæðum urðu skemmdir af völd-
um reyks.
Veitingastaðurinn Skútinn
skemmdist í eldsvoða rétt fyrir
jóhn 1992. Hann var opnaður eftir
endurbyggingu í júní síðastliðið
sumar og brann nú í annað sinn
eins og fyrr greinir.
Talið er víst að eldurinn í Skútanum hafi kviknað út frá feitipotti sem gleymdist á eldavélarhellu skamma stund.
DV-mynd Ómar Garðarsson
Leitað var á þessum báti lögreglunnar og tveimur öðrum, auk þyrlu.
DV-mynd S
- flugeldivarskotiðaflandi
Mikil leit fór fram út af Örfirisey
og á simdunum fyrir utan Reykjavík
í gærkvöld. Flugtuminn í Reykjavík
tilkynnti að sést hefði neyðarblys á
lofti klukkan 19.50 í gærkvöld og fór
þyrla Landhelgisgæslunnar, varð-
skip, tveir bátar frá Slysavamafélag-
inu og einn bátur frá lögreglu til leit-
ar. Auk þess leitaði fjöldi manna úr
landi.
Leitin var blásin af á níunda tíman-
um en þá var tahð ljóst að einhver
heföi skotiö flugeldi af landi. Klukk-
an 21.30 tilkynnti svo maður, sem
hafði séð viðbúnaðinn, að hann hefði
séð flugeldi skotið frá landi í Örfiris-
ey rétt fyrir klukkan 20.
Umtalsverður kostnaður fylgir leit
sem þessari og er mönnum bent á
aö hafa þaö í huga áður en þeir skjóta
flugeldum sem þessum á loft.
-pp
Bráðabirgðalögin til 1. umræðu á Alþingi:
Kalla hefði átt
þingið saman
sögðu þingmenn stjómar og stjómarandstöðu
Það virtist samdóma áht þeirra
þingmanna sem til máls tóku við 1.
umræðu um bráðabirgðalögin, sem
ríkisstjómin setti á sjómannaverk-
fahið á dögunum, aö kalla hefði átt
saman þing en ekki setja bráða-
birgðalög.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráöherra mælti fyrir frumvarpi til
staðfestingar á bráðabirgöalögunum.
Hann sagði að þegar bráðabirgðalög-
in vom sett hefðu öh sund í sjó-
mannadeilunni verið lokuð. Því hafi
ekki verið um annað að ræöa en setja
lögin. Hann rakti dehuna og aðdrag-
anda lagasetningarinnar. Loks sagði
ráðherra að beðið væri eftir formlegu
svari hagsmunaaðila við tihögum
þríhöfðanefndarinnar tíl lausnar
þeim deUumálum sem hæst bar í sjó-
mannaverkfahinu.
Það vakti athygh að stjómarþing-
mennimir Einar K. Guðfinnsson og
Petrína Baldursdóttir töldu að kaUa
hefði átt þingiö saman.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson benti
á að það tæki aðeins fáeinar klukku-
stundir að kaha þingið saman. Því
væri engin afsökun til fyrir því að
gera það ekki í stað þess að setja
bráðabirgðalög.
Jóhann Ársælsson benti á að þegar
þingfundi var frestað fyrir jól stóð til
samkvæmt starfsáætlun Alþingis að
það kæmi aftur saman 17. janúar.
En þá hafi aht í einu verið ákveðið
að kalla þing ekki saman fyrr en 24.
janúar og fresta þingfundi með þeim
hætti að hægt væri að setja bráða-
birgðalög á sjómannaverkfalhð sem
þá hafði verið boðað L janúar.
„Var það kannski aUtaf ætlunin að
leysa sjómannadeUuna með bráða-
birgðalögum?" spurði Jóhann.
-S.dór
Kaupþing með námskeið 1 London:
Fulltrúar 20 lífeyrissjóða læra allt um fjárfestingar
í dag hefst þriggja daga námskeið
í London á vegum verðbréfafyrir-
tækisins Kaupþings í samvinnu við
þarlent fyrirtæki. Námseftúð er fjár-
festingar í verðbréfum erlendis og
meðal þátttakenda em fuhtrúar um
20 lífeyrissjóða á íslandi.
„Þetta námskeið er haldið í tilefni
breyttra laga um fjárfestingar .inn-
lendra fiárfesta erlendis sem tóku
gUdi um áramótin. Fyrir lifeyrissjóði
og aðra fjárfesta kann þetta að verða
mikU breyting. Nú hafa þeir meiri
möguleika á að fjárfesta en áður. Hér
geta menn kynnt sér af eigin raun
hvemig þetta fer fram. Fjárfesting
erlendis getur verið flókin í fram-
kvæmd,“ sagði Guðmundur Hauks-
son, framkvæmdastjóri Kaupþings, í
samtah við DV frá London í gær.
Guðmundur sagði að góð þátttaka
lífeyrissjóða á námskeiðinu sýndi að
forsvarsmenn þeirra sýndu erlend-
um fjárfestingum greinUegan áhuga.
„Menn em vel með á nótunum og
átta sig á því að það er ábyrgðar-
hluti að reka sjóðvörslu, hvort sem
það er lífeyrissjóður eða verðbréfa-
sjóður. Fylgjast þarf vel með þeim
möguleikum sem bjóðast á hveijum
tíma og læra að vinna úr þeim. Út á
það gengur þetta,“ sagöi Guðmund-
ur.
-bjb
Stuttarfréttir dv
Ríkið og stofnanir þess töpuðu
um 15 mUljöröum í gjaldþrotum
árin 1990 til 1992. Afskrifaðar
kröfur rUússjóðs nárau um 6,5
núUjörðum. Bankar og flárfest-
ingalánasjóðir afskrhuðu um 9
miUjarða, þar af Landsbankinn
um 2,6 milflarða og Byggðastofn-
un um 1,5 milljarða.
Borgarráð hefur ákveöið að
styrkja knattspymufélagið Val
um 42 mUljónir á næstu 4 árum.
Peningamir fara í frágang á fé-
lagsheimUi og iþróttahúsi.
í Rang-
árapótek tefst um mánuð vegna
vanhæfni nefndarmanna sem
eiga aö fjaha um hæfni umsækj-
enda. RUV greindi frá þessu.
ÞorsteinntilNoregs
Þorsteinn Pálsson fer tU Noregs
í byrjun febrúar. Þar ræöir hann
við Gro Harlem Brundland for-
sætisráðherra og Jan Henry Ols-
en sjávarútvegsráðherra.
Tilfærslur eru framundan í ut-
anríkisráöuneytinu. Róbcrt
Trausti Árnason verður ráöu-
neytisstjóri og Þorsteinn lngólfs-
son fastafulltrúi hjá NATO.
Sendiherraskipti leiða til að
Sverrir Gunnlaugsson fer til Par-
ísar, Gunnar Gunnarsson fer til
Moskyu ög Öláfúr EgUsson fertil
Kaupmannahafnar. Benedikt Ás-
geirsson veröur skrifstofustjóri
VamannáladeUdar og Ingvi S.
Ingvason ílyst heim.
Akranesið skemmdist
Flutningaskipið Akranes
skemmdist talsvert viö bryggju í
Harðangursfirði þegar ofsaveður
gekk yfir Vestur-Noreg á sunnu-
daginn. Samkvæmt RÖV sakaði
skipverja ekki.
Deilur stjómarhða um pasta,
smjörlíki og súkkulaðUiex komu
í veg fyrir aðhægt væri að leggja
fram fraravarp tmt breytingar á
búvörulögum á Alþingi í gær.
Markmið rUússtjórnarhmar er
að takmarka innflutning á land-
búnaðarvörum. ’r
Dómsmálai'áðuneytið undirbýr
útgáfu nýrra vegabréfa. Sam-
kvæmt Mbi. verða nýju vegabréf-
in öU gefin út í Reykjavik og
munu innUialda rafrænar upp-
lýsingar um eigandann.
Minnalagtíjðlin
Greiðslukortaeigendum verður
gert að greiða 5,4 miUjarða skuld
um mánaðamótin. Að meöaltah
þarf hver og einn korthafi að
borga um 60 þúsund krónur. Skv.
Stöð tvö er , jólareikningurinn11 í
ár lægri en undanfarin ár.
Vextirániðurleið
Ávöxtunarkrafa húsbréfa
lækkar nú hratt og er búist við
að vextir á markaði fari niður
fyrir 5% á næstunni. Sjónvarpið
greindi frá þessu.
Bráðabkgðalög bönnuð?
Kvennalistinn vill afnema
heimild ríkisstjórna til aö setja
bráðabirgðalög. Frumvarp þessa
efnis hefur verið lagt fram á Al-
Hættvlðgolfvöll
Bæjarstjórn Kópavogs hefur
hætt við gerð 9 holna golfvallar í
Fossvogsdal. Þess í staö verður
svæðið skipulagt sem abnennt
útivistarsvæði. -1rna