Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
5
v_______________________________________________Fréttir
Prófkjör hjá sjálfstæðismönnum á Isafirði:
Hnífjöfn barátta en dauf
- nýir, ungir menn taka við stjóminni
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
Prófkjör Sjálfstæðisfiokksins á ísafirði fer fram um næstu helgi. Ovenju-
margir frambjóðendur eru í kjöri, eða alls sautján.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á
ísafirði fer fram helgina 29. og 30.
janúar og eru óvenjumargir fram-
bjóðendur í kjöri, eða alls 17. Tveir
af fimm aðal- og varabæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins gefa kost á sér
tií endurkjörs að þessu sinni, auk
þess sem einn bæjarfulltrúi af klofn-
ingslistanum úr Sjálfstæðisflokkn-
um frá því í kosningunum fyrir fjór-
um árum tekur þátt í prófkjörinu.
Bæjarfulltrúamir eru: Kristján
Kristjánsson og Pétur H.R. Sigurðs-
son auk þess sem í-listakonan Kol-
brún Halldórsdóttir gefur einnig kost
á sér.
Talið er að núverandi bæjarfulltrú-
ar hafi góða möguleika á endurkjöri
enda hafa þeir allir staðið sig vel i
bæjarstjórn. Búist er við að baráttan
um fyrsta sætið verði hnífjöfn þó að
Þorsteinn Jóhannesson yfirlæknir
nái að öllum líkindum flestum at-
kvæðum í það sæti. Aðrir sem koma
sterklega til greina í efstu sætin eru
Halldór Jónsson framkvæmdastjóri,
Kristján Kristjánsson bæjarfulltrúi
og Pétur H.R. Sigurðsson mjólkur-
bússtjóri í sömu röð og þeir eru tald-
ir upp hér auk Kolbrúnar Halldórs-
dóttur. Þá er líklegt að Ragnheiður
Hákonardóttir húsmóðir, Örn Torfa-
son verslunarmaður, Jóhann Ólafs-
son forstöðumaður og Signý
Rósantsdóttir húsmóðir hljóti einnig
nokkurt fylgi.
Aörir frambjóðendur eru: Elísabet
Einarsdóttir húsmóðir, Bjamdís
Friðriksdóttir málari, Einar Axels-
son yfirlæknir, Björgvin Björgvins-
son, formaður ungra sjálfstæðis-
manna á ísafirði, Sævar Gestsson,
formaður Sjómannafélagsins, Björn
Helgason, íþrótta- og æskulýðsfull-
trúi, Marzellíus Sveinbjömsson
smiður og Finnbogi Rútur Jóhannes-
son atvinnuráðgjafi.
Óánægjan kraumar
Segja má að Sjálfstæðisfiokkurinn
á ísafirði gangi sameinaður til próf-
kjörs og vorkosninga að þessu sinni
Fréttaljós
enda allar líkur á því að flokksmenn
haldi saman þó að óánægjan kraumi
enn undir niðri. Mikil endurnýjun
hefur verið meðal forystumanna
flokksins frá því fyrir fjórum ámm,
auk þess sem allt bendir til þess að
nýir og ferskir menn taki við í aukn-
um mæli. Þannig er Þorsteinn Jó-
hannesson yfirlæknir tiltölulega ný-
kominn í gamla bæinn sinn úr námi
erlendis og hefur því lítið sem ekkert
haft af gömlu sárindunum að segja,
auk þess sem Halldór Jónsson fram-
kvæmdastjóri þykir geta sameinað
Sjálfstæðisflokkinn og listana tvo
gegnum ættartengsl sín.
Prófkjörsbaráttan á ísafirði hefur
farið rólega af stað og lítil umræða
verið um bæjarmálin og stefnumál
frambjóðenda þó að aldrei hafi jafn-
margir frambjóðendur verið í kjöri.
Svo virðist sem engin sérstök stefnu-
mál séu sett á oddinn í prófkjörinu
enda hefur það í sjálfu sér ekki tíök-
ast fyrir vestan. Þó má segja að Hall-
dór Jónsson sé ótvíræður fulltrúi
atvinnulífsins. Þá er talið víst að
Þorsteinn Jóhannesson vilji beita sér
í heilbrigðismálunum.
Treysta á ættartengslin
Frambjóðendur halda ekki sameig-
inlegan kynningarfund eins og gerist
víða um land og útgáfu dreifibréfa
eða kynningarbæklinga er ekki til
að dreifa á vegum einstakra fram-
bjóðenda. Sjálfstæðisflokkurinn á
ísafirði fyrirhugar hins vegar að gefa
út blað þar sem frambjóðendur verða.
kynntir. Að öðru leyti treysta fram-
bjóðendur ættartengslum sínum og
uppruna og því að þeir séu nógu
þekktir fyrir störf sín í bænum.
Nokkurrar óánægju hefur gætt
meðal frambjóðenda með reglu full-
trúaráðs Sjálfstæðisfélagsins á
ísaflrði um að frambjóðendur þurfi
helming atkvæða í ákveðið sæti til
að hljóta bindandi kosningu en í
prófkjörinu geta kjósendur aðeins
merkt við fimm frambjóðendur.
Frambjóðendurnir benda á að allir
sækist þeir eftir bindandi kosningu
og með því að leyfa aðeins að merkja
við flmm frambjóðendur séu harla
litlar líkur á því að nokkur frambjóð-
andi nái takmarki sínu.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á
ísafirði fer fram á laugardag og
sunnudag og veröur kosið í Sjálf-
stæöishúsinu í bænum. Prófkjörið
ey opið öllum, flokksbundnum jafnt
sem óflokksbundnum, en óflokks-
bundnir kjósendur verða að undir-
rita stuðningsyfirlýsingu við flokk-
inn áður en þeir greiða atkvæði í
prófkjörinu.
NOTAÐIR BÍLAR
Úrval notaðra bíla
Hyundai Excel 1500, ’88, sjálfsk., Lada station 1500, '91, 5 g., hvít- Lada Samara 1500, ’92, 5 g., 4 Hyundai Pony 1300, ’92, 5 g, 3 d., Renault Clio RT 1400, ’91, 5 g., 5
5d., hvitur, ek. 76.000. V. 420.000. ur, ek. 40.000. V. 380.000. d., grænn, ek. 32.000. V. 550.000. rauður, ek. 30.000. V. 670.000. d., svartur, ek. 34.000. V. 730.000.
Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar.
Opið virka daga kl. 9-6,
laugardaga 10-14.
LADA
w~W
13
Volvo 240 GL 2300, ’87, 5 g., 4 d.,
rauður, ek. 91.000. V. 680.000.
VW Jetta 1600, ’88, 5 g., 4 d.,
grænn, ek. 92.000. V. 590.000.
Toyota Corolia, ’91, sjálfsk., 5 g.,
rauður, ek. 46.000. V. 860.000.
Toyota Corolla liftback 1300, ’89,
5 g., 5 d., rauður, ek. 77.000. V.
680.000.
Hyundai Pony GLSi 1500, '92, 5
g., 5 d., blár, ek. 48.000. V.
810.000.
Lada sport ’91, 5 g., rauður, el
19.000. V. 580.000.
Daihatsu Feroza EFI, ’90, 5 g,
grár, ek. 40.000. V. 1.090.000.
Mazda 626 GLX 2000, ’89, sjálfsk.,
4 d., rauður, ek. 61.000. V.
880.000.
MMC Galant 2000, '87, 5 g„ 4 d„
grár, ek. 70.000. V. 580.000.
Daihatsu Charade SG 1300, ’91,
5 g, 4 d„ rauður, ek. 50.000. V.
690.000.