Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
Útlönd
AustUmkisforseti fómar eiginkonu og viðhaldi fyrir embætti sitt:
Astarmálin tryggja
f ádæma vinsældir
- forsetinn setti „ár flölskyldunnar“ á vegum SÞ með ræðu í gærkvöldi
„Niðurstaðan varð að forsetinn
segir skilið við konu sína og slítur
sambandinu við ástkonuna," sagði
talsmaður Thomasar Klestils Aust-
urríkisforseta þegar hann tilkynnti
að lausn væri fundin á frægum ástar-
málum forsetans.
Klestil býr nú einn og ætlar aö
sinna embættisverkum og opinber-
um athöfnum einn í framtíðinni.
Hann kom fram í gærkvöldi við upp-
haf „árs fjölskyldunnar" á vegum
Sameinuðu þjóðanna. Það þótti
mörgum kaldhæðnislegt en fyrir-
gefst eins og annað því Klestil býr
við fádæma vinsældir meðal landa
sinna og hefur aldrei verið vinsælli
en einmitt nú.
í ræðu sinni sagði Klestil að hann
vissi hvílíka gleði flekklaust og heil-
brigt íjölskyldulíf veitti mönnum.
Engum stökk bros meðan hann tal-
aði en brúnin á sendimanni páfa-
garðs var þung. Klestil er kaþólskur
eins og flestir landar hans.
Ný skoðanakönnun sýnir að 79%
landsmanna myndu styðja hann í
forsetakjöri nú og 82% sögðu að hann
ætti ekki að segja af sér þrátt fyrir
augljóst hjúskaparbrot. Klestil vissi
Astkonan Margot og eiginkonan
Edith. Símamynd Reuter
þetta og vísaði alltaf á bug öllum
kröfum um afsögn.
Hjákonan Margot LöfEler hefur
beðið um að fá stöðu í útlöndum á
vegum utanríkisþjónustu landsins.
Hún var í utanríkisráðuneytinu áður
en hún réðst til að aðstoða forsetann.
Hún er 39 ára gömul.
Eiginkonan Edith er að sögn sátt
við þessi málalok. Hún greindi opin-
berlega frá ástarmálum manns síns
fyrr í mánuðinum um leið og hún
flutti að heiman.
Ritzau
Björkereins
_ m_rn jr ^_
„Björk lítur
út eins og tíu
ára gömul
geimvera,"
sagði i kynn-
ingu sænska
sjónvarpsins á
heimildar-
mynd íslenska
Sjónvarpsins um Björk Guð-
mundsdóttur og Sykurmolana.
Myndin var sýnd nú í vikunni á
rás 1.
Ekki ber að líta á kynninguna
sem óvirðingu við söngkonuna
því um hana var farið fögrum
orðum og sagt aö rödd hennar og
tónlist hlyti að ln-ífa hvern þann
sem heyröi.
Soltnirsvanir
stöðvabílaog
heimta mat
Glorsoltnir svanir í enska bæn-
um Berwick-on-Tweed hafa tekið
upp á þvi að stöðva bíla og ráðast
á vegfarendur til að heimta af
þeim mat, allt vegna þess að
reglugerö Evrópubandalagsins
hefur svipt þá lífsvíðurværi sínu.
í nærri 50 ár hafa tvö hundruð
svanir haft vetursetu í bænum
og lifað á maltúrgangi sem brugg-
hús bæjarins lét frá sér í ána
Tweed. En nú hefur mengunar-
reglugerð EB tekiö fyrir það.
„Þeir yfirgefa vatnið og berja
að dyrum hjá okkur með sterkum
goggum sínum,“ sagði kona
nokkur í bænum. fi
Fuglavinir vona aö hægt verði
að finna nýja fæðuuppsprettu
fyrir svanina fyrir varptímann.
Stjórnarformað*
urSvíþjóðar
Svíar scgja að
Jacob Wallcn-
berg, efnileg-
asti afkomandi
þessarar frægu
ættar, sé á
góðri leiö með
að verða
„stjómarfor-
maöur Sviþjóðar". Hann er nú
valdamestur sinna ættmenna og
þar með einn valdamesti maður
í Sviþjóð með ítök í flestum slærri
fyrirtækjuro og fjármálastofnun-
um Iandsins.
Norski sjóherinn missti í gær eitt af betri herskipum sínum þegar freigátan Ósló sökk eftir strand á skerinu Mar-
steini skammt frá Björgvin. Freigátan var dregin á flot en sökk skömmu síðar. Til stendur á lyfta henni af hafs-
botni enda ófært að hafa flak á grunnu vatni mitt í fjölfarinni siglingaleið. Simamynd Scanfoto
Skemmdarverkamenn Sea Shepherd ófundnir:
Lögreglan leitar að eiganda
Volvos á sænskum númerum
Sænska lögreglan tekur nú þátt í
rannsókninni á skemmdarverkum
hvalavinasamtakanna Sea Shepherd
á norska hvalveiðibátnum Senet að-
faranótt mánudagsins. Volvo bifreið
með sænskum skráningamúmerum
sást margoft á hafnarsvæðinu í
Fredrikstad síðdegis á mánudag og
vill lögreglan yfirheyra eiganda
hennar.
Lögregluþjónninn Folkvard Bleka,
sem stjórnar rannsókn málsins, segir
að það geti skipt sköpum að menn
sáu til bílsins-.
„íbúar á svæðinu segja aö það sé
mjög óvenjulegt að sjá bíla með
sænskum númemm viö Slevikkilen-
bryggju og þar sem þessi Volvo sást
nokkrum sinnum næstu klukku-
stundir eftir skemmdarverkið viljum
við náttúrlega yfirheyra eigandann,"
sagði Bleka. Hann vonast til að heyra
frá sænsku lögreglunni í dag.
Útsendarar Sea Shepherd reyndu
að sökkva Senet með því að skera í
sundur vatnsinntaksslöngur í vélar-
rúmi bátsins en slökkviliðinu í
Fredrikstad tókst að koma í veg fyrir
að hann sykki.
Paul Watson, leiðtogi Sea Shep-
herd, og sambýliskona hans, Lisa
Distefano, segja samtök sín þau einu
sem eitthvaö verður ágengt í barátt-
unni gegn hvalveiðum. Þau eru viss
um að Norðmenn muni tapa stríðinu.
„Menn óttast okkur, hvalveiði-
menn hata okkur. Grænfriðungar og
aðrir umhverfisvemdarhópar hafa
ekkert bein í nefinu," sagði Lisa Di-
stefano í samtali í Los Angeles.
Sigurd Gmndvig, skipverji á Senet,
segir að hann og Arvid Enghaugen
skipstjóri hafi oft fengið ábendingar
um það á undanförnum mánuðum
að sænskir félagar í Sea Shepherd
hygðu á aðgerðir. Skemmdir á bátn-
um uröu minni en tahð var í fyrstu.
NTB
Stuttar fréttir
AlfirámótiöHiim
Allar þtjár höfuðfylkingarnar í
Bosníu börðust i gær af hörku
víðs vegar um landið.
Thorvald
Stoltenberg,
sáttasemjari
Bosníudeil-
unni, ræðir eft-
ir helgina við
iramkvæmda-
sijóra SÞ um
hugsanlegar
aðgerðir til að stöðva átökin í
Bosniu. Utanrikisráðherra Breta
verður með í ráðum.
Kanadamennheim?
Kanadíska þingið ræðir heim-
kvaðningu gæsluliða frá Bosniu.
Forseti Bosniu hefur beðið for-
seta Indónesíu um gæsluliða.
Landamæri ákveðin
Leiðtogar Króata og Slóvena
hafa komið sér saman um endan-
leg landamæri ríkjanna.
FriðuríLesotho
Vopnahlé er nú í gildi eftir
harða bardaga í Lesotho.
Kéttlætifyririndiána
Forseti Mexikó heitir indiánum
meira réttlæti i framtíöinni.
Friður fyrst
Stjóm Alsír segir að friður sé
skilyrði fyrir lýðræði í landinu.
Fjármálaráðherra hættur
Fjodorov,
íjármálaráð-
herra Rúss-
lands, sagði af
sér í inorgun
eftir langvar-
andi deilur við
harölínumeim
i ríkisstjóm-
irtni og óánægju með stefnuna.
Halda i peningana
Bandarikjastjórn hótar að
hætta stuðningi við Rússa.
Skammar Kanana
Utanríkisráðherra Póllands
segir að Bandaríkjastjórn setji'
Rússum of ströng skilyrði.
Japanir og Bandaríkjamenn
eru enn ósáttir um viðskiptamál.
Norðmenn fluttu meira út í
fyrra en nokkru sinni áður.
Bankastjóriábeinið
Norskir þingmenn vilja reka
seölabankastjórann.
Einn grænlensku ílokkanna
krefst þess að grænlenska verði
töluð á öllum vinnustöðum.
Clinton
Bandaríkjafor-
seti hélt stefnu-
ræðu ársins í
gær og hvatti
Iandsmenn í
löngu máli til
að styðja sig í
að umskapa
bandarískt þjóðlíf, berjast gegn
glæpuin og bæta heilsugæslu.
Saksóknari í Whitewatermál-
inu er kominn til Arkansas.
Sjónvarpið í Jórdaníu sýndi i
gær Hussein konung á fundi með
gyðingum. Það er nýmæli.
Meiriaðstoð
Auka á aðstoö við fórnarlömb
jai'ðskjálftans í Los Angeles.
Reuter, NTB og Ritzau