Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
Utlönd
tftir aö göngin koma í gagniö
veröur hægt aö aka milli
Lundúna og Parísar á skemmri
tíma en áöur.
Ermarsundsgöngin eru grafin rétt
undir hafsbotninum og um þau eru
lögö aðskilin járbrautarspor í báöar
áttir. Áætlaö er að tyrstu ferðirnar
veröi farnar á flutningalestum í
mars en annars veröa göngin ekki
opnuö almennri umferö fýrr en í
sumar. Vinna viö göngin hefur
staöiö í sex ár. Tvívegis hefur oröiö
aö fresta verkinu og kostnaöur
hefur fariö úr böndum. Nú er
reiknaö meö að göngin kosti fast
aö þúsund milljaröa íslenskra
króna
Kalksteinn
Göngin eru grafin í gegnum lin kalksteins-
lög sem auövelt er aö bora með þar til
geröri vél. Veggir ganganna haldast
óhaggaðir þartil steypt er inn í þau
I
Reynt aftur
og aftur
Misheppnaöar tilraunir voru
geröartil aö grafa göng undir
Ermarsund árin 1880,1922 og
1974. Munnar voru grafnir áriö
1974. Þeir voru notaðir viö
gangageröina nú
Grafið undir hafsbotni
Ellefu borvélar eru notaöar viö aö bora samtals 150 kilömetra af
göngum. Hver borvél vegur um þúsund tonn. Um 300 metrar voru
boraöir á hverri viku og 230 milljóir rúmmetra af mulningi fluttar úr
göngunum. Efniö var flutt á land í Frakklandi og Englandi og hólarnir
mótaðir til að falla aö umhverfinu. Svona voru göngin grafin:
Göngjn tengja löndin
England
Gangamunni við^
Folkestone
Heildarlengd ganga: 50 km
Frakkland
Gangamunni við
Coquelles
Griparmar
halda
bornum á
réttum staö
Göngin eru
fóðruð meö
steypu um leiö
og þau eru
Lagt upp í langfei
Við munnana
Ekiö er inn í munnann af þjóðveginum. Hægt er að kaupa miöa
fyrirfram eöa viö komu. Tollleit fer fram viö komu. I munnanum eru
setustofur, verslanir, viögeröaþjónusta og þanki
Áætlaður feröatími
Mulningurinn
er fluttur út
jafnóðum á
færibandi
15 mm
Aðkoma
Ekiö er inn í
lestarvagnana.
Brottför tvisvar til
þrisvar á klukkustuni
Þegar í ár verður
Ijósleiðari lagöur
um göngin. Þetta
.veröur fýrsti Ijós-
leiöarinn sem tengir
símakerfi Englands og
Frakkiands
Samanlagöur tími á feröalagi: 66 mínútur
Fariö úr lest
Ekið úr lestinni inn á
þjóvegina. I Frakklandi er
hægri umferð en
vinstri umferöí Englandi
Heimild: Eurotunnel, USA TODAY. Rannsókn unnin af Joyesha Bhattacharya
Unniö af Slephen Conley, USA TODAY
Evrópugöngin undir Ermarsund eru mesta samgöngumannvirki á jörðinni:
Rekstur hafinn á verð-
stríði við f lug og ferjur
- göngin eru boruð rétt undir hafsbotninum með ellefu þúsund tonna borvélum
„Auövitaö lýkur þessu stríöi á því
að farþegum fjölgar að miklum mun.
Verðið lækkar og fleiri sjá sér fært
að ferðast," segir talsmaður fyrir-
tækisins sem á og rekur Evrópu-
göngin undir Ermarsundið.
Nú þegar er ljóst að reksturinn
hefst á hörðu verðstríði við fyrirtæki
sem annast feijuflutninga yfir Erm-
arsundið, og við flugfélög sem bjóöa
ferðir milli Parísar og Lundúna. Meö
verðstríðinu fylgir auglýsingastríð
þar sem allir aðilar halda fram kost-
um sinnar þjónustu.
Göngin miklu verða opnuð fyrir
umferð í mars. í fyrstu verður þjón-
usta þó takmörkuð við þungaflutn-
inga en þegar líður á vorið opnast
möguleikarnir einn af öðrum. Um
það bil sem Elísabet Englandsdrottn-
ing og Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti vígja göngin formlega í
júní getur almenningur farið þar um
með bíla sína eöa bara setið í lest.
„Einangrun meginlandsins er loks-
ins rofm,“ segja enskir aödáendur
ganganna.
Af öryggisástæöum er útilokað að
aka bílum um göngin. Þess í stað
verða eigendur bíla að aka um borð
í lestarvagna og sitja í þeim þær 35
mínútur sem það tekur að fara undir
haflð.
Fljótlega eftir að farið var að hanna
göngin varö mönnum ljóst að í þeim
gætu orðiö hörmuleg _slys þar sem
þúsundir manna færust ef umferðin
tepptist af einhverjum ástæðum.
Engin leið væri aö ná tU slasaðs fólks
í miðjum göngunum og eiturloft frá
brennandi bílum gæti orðið þúsund-
um ferðalanga að aldurtila.
Andstæðingar ganganna segja að
nú fyrst sé komið að vandamálunum
við gerð þeirra. Til þessa hafi aðeins
þurft að leysa úr tæknilegum vanda
og flármagna borunina en nú sé kom-
ið að stríði þar sem þúsundir starfs-
manna við feijuflutninga og flug geti
misst vinnuna.
Þessir menn gagnrýna aö jafnvirði
um þúsund milljarða íslenskra
króna skuli variö í þann hégóma að
fara með bíla undir Ermarsundið
þegar mun ódýrari kostir bjóðist með
ferjunum. Gangamennirnir segja að
ferðafólk verði bara að velja og trú-
lega verði nóg af farþegum bæði fyr-
ir feijumar og flugið þótt göngin
bætist við.
Ferjumenn segja að þeir geti boðið
sínum farþegum upp á mun betri
þjónustu en gangafyrirtækið. í
göngunum veröi fólk lokað inni í stað
þess að njóta þægilegrar sjóferðar
með ferjunum. Gangamenn bjóða á
móti upp á sérstakt útvarp og sjón-
varp meðan farið er undir sundið.
Útsýniö verður þó heldur fábrotiö.
Á endanum verða það þó fargjöldin
sem ráða úrslitum og tíminn sem þaö
tekur að komast yfir sundið. Feij-
urnar verða ódýrastar en seinni í
förum en lestamar í göngunum.
Flugið verður dýrara en fljótlegra.
Stoppaði Big Ben í gríni
ísraelski miðiflinn Uri Geller
hélt því fram í gær að hann hefði
orðið þess valdandi að Big Ben,
frægasta klukka Englands, stopp-
aði í þtjár klukkustundir á sunnu-
dag.
Hann sagöist hafa veriö heima í
ísrael að horfa á atriöi úr mynd
sem Ken Russel er að gera um
hann, m.a. atriði þar sem hann var
að stoppa klukku, þegar blaðamað-
ur nokkur stakk upp á því að hann
stoppaði gangverkið í Big Ben.
„Þetta var eiginlega hálfgerður
brandari. En ég sagði við sjálfan
mig: „stoppaðu" á meðan ég hugs-
aði stíft um klukkuna. Ég stein-
gleymdi þessu síðan og fór heim á
hótel að sofa,“ sagði Geller.
Morguninn eftir, þegar hann var
að gera líkamsæfingar sínar,
heyrði hann á CNN að Big Ben
hefði stoppað á dularfullan hátt.
„Ég var þmmu lostinn," sagði mið-
illinn.
Viðgerðarmaður í breska þinginu
þar sem Big Ben er tfl húsa sagði
að verk klukkunnar hefði stoppað
vegna of hertrar legu. Klukkan
stoppar fremur sjaldan og hefur
ekki gert þaö nema tvisvar tfl
þrisvar undanfarin þrjú ár.
Reuter
Nasistaveið-
arinn Simon
Wiesenthal seg-
ir aö Listi
Schindlers eftir
Steven Spiel-
berg sé besta
kvikmyndin
sem gerö hafi
verið um helfór gyðinga í síðari
heimsstyijöldinni.
„Ég fékk gæsahuð um allan lík-
amann,“ sagði Wiesenthal sem sá
myndina nýlega.
I viðtali við vikuritið Kurier
Freizeit sagöist hann vona að ungt
fólk mundi flykkjast á myndina
sem segir frá því hvernig kvenna-
hósinn og koníakssvelgurinn Osk-
ar Schindler bjargaöi 1200 gyðing-
um frá bráðum hana.
„Kvikmy ndin er sérstaklegamik-
ilvæg nú um stundir þegar nýnas-
ismi er í miklum uppgangi í Evr-
ópu,“ sagði hann.
Reuter