Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
Spumingin
Hvað finnst þér
um hækkun
á bifreiðagjöldum?
Karl Eiríksson: Ég er náttúrlega ekk-
ert hrifinn af því.
Sigrún Pétursdóttir: Mér líst ekki á
þaö.
Ólöf G. Valdimarsdóttir: Þetta er al-
veg í anda ríkisstjórnarinnar.
Maggý Hrönn Hermannsdóttir: Mér
finnst þaö náttúrlega fráleitt.
Berglind Hallmarsdóttir: Alveg glat-
að.
Sveinn Guðnason: Mér finnst það
rosalegt mál. Það er búið að hækka
nóg á okkur.
Lesendur___________
Hvalfjarðarbrú
- ekki göng
Ingólfur skrifar:
Eg er einn þeirra sem þurfa starfs
síns vegna að aka fyrir Hvalfjörö
einu sinni í viku, stundum oftar. Ég
fagna því þeim degi að ég geti sleppt
þessum leiðindakróki sem akstur
fyrir Hvalfjörðinn er sannarlega.
Undirgöng sem talað er um að grafa
eru jú prýðileg hugmynd sem slík
og myndu vera mikil samgöngubót.
Ég er þó ekki viss um að göngin henti
ölium. Ég á við að ekki verði allir
yfir sig hrifnir að aka þama niður
undir botn Hvalfjarðar.
Ég tel því að áöur en nokkuö er
fastmælum bundið um göngin ætti
að skoða brúarsmíð jafnhliöa og
leggja hvora tveggja hugmyndina á
borðið til skoðunar. Ekki er ég í vafa
Haraldur Sigurðsson skrifar:
Ekki er nokkur vafi á því að sú
umræða, sem skapast hefur um mál-
efni lífeyrissjóðanna og vaxið upp í
alyarlegar deilur m.a. um tilvistar-
rétt þeirra, snýst um þær takmark-
anir sem sjóðirnir sjálfir setja félags-
mönnum sínum. Tvennt er eflaust
þaö sem fólki svíður sárast: Annars
vegar alltof há aldursmörk sem til-
taka hvenær sjóðfélagi nær fullum
greiðslum (en það er nú 70 ár) og
hins vegar það að við lát sjóöfélaga
er maki ýmist réttindalaus eða þá að
hann fær hluta af þeirri greiðslu sem
Hjálmtýr skrifar:
í Þjóðarsálarþætti á Rás 2, svo og
í þætti Hailgríms Thorsteinssonar á
Bylgjunni, t.d. á þriðjudag í síðustu
viku, komu enn fram staðhæfingar -
eða getsakir öllu heldur - um að ein-
hverjir ótilgreindir íslenskir aðilar
sitji í makindum á erlendri grund og
hafi lifibrauð af því að selja fiskveiði-
kvóta sem þeim hafi verð úthlutað.
Þetta hefur komið upp í umræð-
unni hér á landi af og til undanfarið,
og víðar en á ofangreindum útvarps-
stöðvum. En þrátt fyrir þessar að-
dróttanir er eins og fjölmiðlar hér
láti þetta lönd og leið. Að minnsta
kosti hef ég ekki séö neina úttekt
gerða á því hvort þetta er sannleikur
eða uppspuni. Ef það er hins vegar
rétt að íslenskir rétthafar fiskveiði-
kvóta geta lifað af því í fjarlægum
löndum að selja af útiilutuðum kvóta
Hringiö í síma
milli kl. 14 og 16 - eða skrifið
Naf'n og símanr. verður aó fylKja brí-fum
um að brú yrði mun ódýrari en jarð-
göng og um leið viðhaldsminni. Ég
er líka viss um að auðveldara er að
fjármagna brúarsmíði yfir Hvalfjörð
en jarðgöng undir fjörðinn. Brýr hafa
átt meira fylgi að fagna en jarðgöng
víðast hvar þar sem á annað borð
hefur þurft að velja mfili þessara
tveggja þátta.
Það verður að fara fram raunveru-
leg athugun á.því hvort fólk hér á
landi er hlynntara jarðgangafram-
kvæmd eða brúarsmíði. Þetta má
einfaldlega gera með skoðanakönn-
un líkt og þegar spurt er um afstöðu
fólks tfi stjómmálaflokka eða um
vinsælasta pólitíkus. Það má mikið
marktaka á svona könnun sem gefur
vísbendingu um vinsældir fram-
hinn látni sjóöfélagi hefur fengið og
síðan, að látnum maka sjóðfélagans,
fá börnin ekkert. Greiðslur sjóðfélag-
ans eru gerðar upptækar.
Nú er vitað aö margir vilja hætta
að vinna miklu fyrr en 70 ára. Jafn-
vel hefur 60 ára aldur verið nefndur
þótt það sé ekki almennt. Aldurs-
mörkin 65 (eða 67 ára eins og áður
var) eru miklu nær lagi. Um þetta
þrýstu stjómir lífeyrissjóða á að sett
yrðu lög og aldursmarkið var hækk-
að upp í 70 ár. Það þýðir ekkert að
segja fólki að það „megi“ sækja um
að byrja aö taka lífeyrisgreiðslur 65
og látið senda sér ágóðann þá er hér
um meira en Utia brotalöm að ræða
í hinu margnefnda kvótakerfi.
Þaö má öllum vera ljóst að viö get-
um ekki öllu lengur sætt okkur við
núverandi fyrirkomulag á kvóta-
kerfinu. Ef Alþingi getur ekki staöið
að réttiátri skiptingu á sjávarafla
þeim sem hér er við land, hlýtur að
verða að leita tfi erlendra dómstóla
með málið. Það er ekkert ólíklegra
kvæmdarinnar. Ef vinsældir eru
meiri með öðru hvom verkefninu
aukast líka röksemdir fyrir fram-
kvæmd þess og um leið fæst meöbyr
með íjármögnuninni. Auðveldara er
að fá lánastofnanir, og þá ekki síst
erlendis, til að fjármagna verkefni
sem em á vinsældalista almennings
en hirium sem fólk hefur vantrú á.
Hvemig sem afit fer varðandi sam-
göngubætur um Hvalfjörðinn verður
það ekki aftur tekið ef framkvæmdin
á ekki þeim vinsældum að fagna sem
á þarf að halda til að verkið skfii
arðsemi, eða verði a.m.k. ekki baggi
á skattborgurunum tfi eilífðarnóns.
Því er best að kanna alla hluti fyrir-
fram og hafna ekki fyrirfram brúar-
gerð nema aö vel könnuðu máh.
ára eða síðar því það fær þá ekki
fullan lífeyri eins og það á þó rétt á.
Þarna hafa lífeyrissjóðirnir beinlínis
hlunnfarið sjóðfélagana.
Það er því ekki nema eðlfiegt að
fólk krefjist breytinga á þessu sjóða-
kerfi. Nú er Uka komið að því að
Alþingi verður að taka á málum og
umbylta lífeyrissjóðum landsmanna.
Annað hvort er að gefa lífeyris-
greiðslur algjörlega fijálsar og aðfid
að sjóðunum eða þá að færa aldurs-
mörkin fram eins og margir vfija.
Það eitt myndi lægja öldurnar í yfir-
standandi orðaskaki.
aö leita tfi alþjóöadómstóls vegna
kvótamálsins en hvers annars máls
sem okkur finnst vera réttlátt að
skorið verði úr um. Mannréttinda-
dómstólUnn hefur t.d. skorið úr um
og dæmt í mannréttindabroti á ein-
staklingum hér heima og það er líka
hægt að leysa kvótadeiluna á erlend-
um vettvangi ef íslenskir ráðamenn
treysta sér ekki tfi að fá skynsamlega
lagasetningu frá hinu háa Alþingi.
Alþingiervan-
hæf stofnun
Kristján Guðmundsson skrifar:
Að sjálfsögðu er dómur Hæsta-
réttar í svokölluöu skinkumáU
áfeilisdómur yfir stör fum Alþing-
is. En hvernig sem á það mál er
litið væri enn fáránlegra að Al-
þingi færi nú, eftir úrskurð
Hæstaréttar, að breyta lögunum
enn á ný til þess eins að útiloka
innfiutning á búvörum. - Ekki
eykur á virðingu fyrir Alþingi
þaö sem haft er eftir þingflokks-
formanni Sjálfstæðisflokksins í
blaðaviðtaU - að löggjafinn geti
auðvitað breytt lögunum eins og
honum sýnist!
Svínapestí
Þýskalandi!
Hjálmar skrifar:
í dagblöðum hefur mátt lesa
auglýsingu með ofangreindri fyr-
irsögn. Hún er frá „EFTA PubU-
cation Unit í Bclgiu“. Auglýsingin
er alltof löng til aö ég ætiist tfi
að hún birtist með þessum línum.
- Það er hins vegar mitt mat að
auglýsingu þessari sé ætíað að
vekja hræðslu okkar hér á landi
gagnvart öllu erlendu kjöti qg
búvörum sem að utan koma. Ég
þekki ekki annað en gæöa búvör-
ur frá Evrópulöndum yfirleitt.
En svona er reynt að klekkja á
almenningi hér sem ekki veit sitt
rjúkandi ráð lengur varðandi
innflutning á búvörum.
Hlhverseraug-
lýst?
Ólafur Ólafsson skrifar:
Nú hafa tvær stöður seðla-
bankastjóra verið auglýstar eftir
að hugmyndin um einn banka-
stjóra var kveðin niöur af þhig-
mönnum. AUt er máUö tfi van-
sæmdar fyrir þessa menn. Og tfi
að bíta höfuðiö af skömminni á
svo forsætisráðherra að hafa
„boðið" formanni Framsóknar-
flokksins bankastjórastööuna í
lok síðasta ár. Tfi hvers er þá
verið að auglýsa fleiri en eina
stöðu? Hvað ætla þeir svo að
segja, forsætisráðherra og banka-
ráðsmenn Seðlabankans, þegar
ósómínn allur gengur eftir?
BurtmeðSjón-
varpsáskrift
Heigi hringdi:
Ég er innflega sammála Krist-
ínu sem mótmælti skylduáskrift
að Sjónvarpinu í lesendabréfi í
DV. Að vera skyldaður til að
greiða fyrir afnot af sjónvarps-
tæki án þess að vilja viðkomandi
dagskrá er út í hött á þessum tím-
um. Það virðist sem ailflestir
landsmenn séu andvígir skylduá-
skrift fyrir sjónvarp. Það væri
afar fróðlegt ef t.d. DV kannaöi
hvaða menn þaö voru sem skrif-
uöu undir þau lög að festa hér
skylduáskrift að Rikissjónvarp-
inu. - Ég skora á fólk að halda
roótmælunum til streitu.
Háökuljós
stórhættuleg
K.S. skrifar:
Ég var að aka um borgina fyrir
nokkrum kvöldum og þá kom á
móti mér bíll á ofeahraða með
háu ljósm. Þótt ég blikkaði mín-
um bífijósum sinnti hinn Öku-
maöurinn því engu. Ég var hálf-
blindaður og í sama mund gekk
svartklædd kona yfir götuna.
Þarna munaði mjóu aö ég æki á
hana. Ég tel notkun háu ljósanna
í innanbæjarakstri hættulega og
ætti því að banna þau meö öfiu.
Ég skora á Umferðarráð að hefja
baráttu fyrir því aö ökumenn
noti ekki háu Ijósin, a.m.k. ekki
hér í Reykjavík. Jeppaljósin eru
einnig of hétt stfiit.
„Brýr hafa átt meira fylgi að fagna en jarðgöng víðast hvar...“ - Brú yfir Dýrafjörð.
Andúðin gegn lífeyrissjóðunum
Hverjir sitja að kvótasölu erlendis?
Þarf að útkljá kvótamálið fyrir erlendum dómstólum?