Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1994, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1994
39
Meiming
Djass
Ársæll Másson
Gamalkunnir
húsgangar
- Tríó Sigurðar Flosasonar 1 Djúpinu
Síðastliöið sunnudagskvöld voru djasstónleikar í
Djúpinu. Tríó Sigurðar Flosasonar flutti þar ýmis gull-
korn úr Bókinni. Með althorni Sigurðar að þessu sinni
hljómuðu gítar Eðvarðs Lárussonar og kontrabassi
Þórðar Högnasonar. Þessi hljóðfæraskipan er ekki það
algengasta í djassi en þetta er þó ekki í fyrsta skipti
sem hún heyrist hérlendis (Stefán S. Stefánsson, Ómar
Einarsson og Gunnar Hrafnsson). Trommuleysið gerir
talsvert öðruvísi og kannski meiri kröfur til hrynhljóð-
færanna og fjarvera píanósins breytir stöðu gítarsins
innan hljómsveitarinnar - hann ber meiri ábyrgð á
hljómaganginum en verður um leið frjálsari (reyndar
lét Jim Hall einhvern tíma hafa eftir sér að í tveggjá
manna hljómsveit hans og Rons Carters fyndist honum
hann þurfa að spila meira innan hljómanna en ella,
en ég er ekki viss um að hann hafi endilega gert það).
Það er skemmst frá því að segja að þeir félagar spil-
uðu frábærlega vel. Sigurður blés á stundum þann
loftmesta altsaxófón sem ég man eftir að hafa heyrt
og gaman var að heyra vel í kontrabassa Þórðar í sóló-
unum án þess að sjá hann hér um bil rífa strengina •
úr bassanum. Eðvarð er skemmtilegur gítarleikari og
stíll hans nýtur sín mjög vel í svona spilamennsku,
nútímalegur og léttblúsaður og minnir tiðindamann
að nokkru á úlfinn sænska, Vakeníus.
Dagskrá kvöldsins var eins og áður segir gamalkunn-
ir húsgangar. Það kom mér kannski einna helst á
óvart að suðuramerískur hrynur heyrðist ekki allt
kvöldið þótt ég saknaði hans ekki beint. Af einstökum
lögum vil ég nefna Alone Together sem var reyndar
annað lagið á dagskránni og þaö eina sem mér fannst
ekki „swinga" fyrst í stað en bæði Sigurður og Eðvarð
áttu stórgóð sóló í því. í Lover Man fannst mér svo
hljómsveitin rísa hæst, þar fóru þeir félagar allir á
kostum, ekki hvað síst Þórður sem gat nú beitt óspart
styrkbreytingum án þess að detta út.
Áheyrendur voru allt of fáir þetta kvöld og er þar
sjálfsagt um að kenna slælegum auglýsingum. Ég held
raunar að margir djassgeggjarar hafi ekki síður gaman
af því að heyra okkar bestu menn spila sígild djasslög
en nýtt efni því þá eru bæði áheyrendur og spilarar á
heimaslóðum. Ég þakka hljómsveitinni fyrir ánægju-
lega kvöldstund.
Sigurður Flosason. Lék með Þórði Högnasyni og
Eðvarð Lárussyni. "
Ljóðasöngur
í óperanni
Tónleikar voru í íslensku óperunni í gærkvöldi. Þar
söng HrafnMldur Guðmundsdóttir, mezzósópran, og
Guðríður Sigurðardóttir lék á píanó. í einu laganna
lék Ármann Helgason með á klarínett. Á efmsskránm
voru sönglög og aríur eftir Robert Schumann, Enrique
Granados, Erik Satie, Reynaldo Hahn, Charles Gounod
og Wolfgang Amadeus Mozart. Auk þess voru nokkur
íslensk þjóðlög í útsetningum Ferdinands Rauters og
Sveinbjöms Sveinbjörnssonar.
íslensku þjóðlögin voru fyrst. Það var gaman að
heyra Mnar klassísku útsetMngar Rauters og Svein-
bjöms sem voru fastur liður í tónlistaruppeldi þjóðar-
innar fyrir nokkrum áratugum. Nú hefur Madonna
og co tekið við Mutverki þeirra og eru það ill skipti
og öllum til mikils tjóns. Frauenliebe und Leben eftir
Schumann er einfóld og skýr tónlist en hefur satt að
segja ekki neina sérstaka lögun eða Ut sem ástæða er
til að dvelja við. Svo virðist sem langlífi þessara laga
stafi af einhverju öðm en listrænu ágæti þeirra. Píanó-
eftirspilið í lokin er þó laglega gert. Lögin eftir Grana-
dos em í Mnum kunna spánska þjóðlagastíl, prýöilega
fram sett og í fallegum búMngi. Þá var gaman að heyra
lag eftir Satie. Þar vantar ekM persónuleg sérkenM.
Vals Hahns jaöraði við að vera fullvenjulegur og jafn-
vel væminn. Undir lokin var tekist á við kunnar ópera-
aríur eftir Gounod og Mozart, þar á meðal Parto, parto
úr La clemenza di Tito, sem reyMr mjög á hæfrn söngv-
arans.
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Þetta var fjölbreytt efMsskrá sem reyndi á ýmsar
hliðar söngvarans. Hafnhildur komst vel frá því öllu.
Hún söng hrernt og skýrt og rödd hennar Mjómaði
mjög fallega yfir allt tónsviðið. Túlkunm var smekkleg
en ekki sérlega átakamikil. Píanóleikur Guðríðar var
Mjómfagur og skýr. Sma má segja um framlag Ár-
manns Helgasonar í Part, parto sem lýsti mikill tón-
elsku.
Útboð
PÓSTUR OG SÍMI
Póstur og sími óskar eftir tilboðum í jarðsíma-
strengi. Um er að ræða 5 til 500 lína plasteinangraða
koparstrengi. Heildarlengd strengjanna er 350 km.
Útboösgögn verða afhent á skrifstofu Fjarskipta-
sviðs, Landssímahúsinu við Austurvöll. Tilboðum skal
skila á sama stað fyrir fimmtudaginn 24. febrúar 1994
kl. 11.00.
fFÉLAGSMÁLASTÖFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
DROPLAUGARSTAÐIR - SNORRABRAUT 58 - SÍMI 25811
PROPLAUGARSTAÐIR
heimili aldraðra, Snorrabraut 58
Hjúkrunarfræðinga vantar á næturvaktir á hjúkrunar-
deild Droplaugarstaða.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 25811 kl.
13-16 alla daga.
PRÓFKJÖR SJÁLFSDEÐISMANNA
5.-
sæi
Upplýsingaskrifstofa
Björgólfs Guðmundssonar
Vatnagörðum 28
88 30 44 • 88 30 45
Opið 13-22. Allir velkomnir!