Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1994, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1994, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. Nýir frambjóðendur Um síðustu helgi efndi Sjálfstæðisflokkurinn til próf- kosninga í fimm sveitarfélögum; Reykjavík, Hafnafirði, Akranesi, ísafirði og Njarðvíkum. Vel á annan tug þús- unda kjósenda tók þátt. Sumsstaðar, svo sem í Hafnar- firði, Alu’anesi og Njarðvík, slagaði þátttakan upp í þann fjölda sem flokkurinn hefur náð í almennum kosningum. I Reykjavík tóku fleiri þátt í prófkjörinu en nokkru sinni áður. Allt verða þetta að teljast góðar fréttir fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Sá flokkur er að minnsta kosti ekki á flæði- skeri staddur sem getur dregið slíkan fjölda á kjörstað til að undirbúa hsta sína fyrir almennar sveitarstjómar- kosningar í vor. Að þessu leyti hafa prófkosningar gildi. Þær vekja umtal og áhuga kjósenda á uppstillingu og frambjóðend- um flokka og hæna fólk að. Enda þótt kjósendur séu fyrst og fremst flokksbundið fólk smitar umtalið, athyglin og spennan út frá sér og hefur þannig áhrif langt út fyrir flokksraðir og undirstrikar þá staðreynd að Sjálfstæðis- flokkurinn, í þessu tilviki, er fjöldaflokkur og vettvangur fyrir þá sem hyggja á frama í pólitík. Hins vegar verður því ekki neitað að prófkosningar, sérstaklega í Reykjavík, hafa breyst mikið frá því fyrst var farið að heyja þær. Slagurinn um sæti er gífurlegur og kostnaðurinn óheyrilegur. Frambjóðandi, sem vih koma sér á framfæri og neyðist til þess í darraðardansin- um, sleppur varla með minna en hálfa mihjón króna og jafnvel enn meir. Það er ekki á ahra færi, sem þýðir að íjárhagur og fjarhagslegur stuðningur bakhjarla skiptir sköpum fyrir þá sem þurfa að sækja fram. Það hlýtur að vera komið að því að strangari reglur verði settar um það fjármagn sem sett er í prófkjörsbar- áttu og sömuleiðis að flokkarnir sjálfir standi að ein- hverju leyti straum af kostnaðinum. Að öðrum kosti er hætt við að peningar verði ráðandi um lýðræðislega þátt- töku óbreyttra borgara og árangur þeirra. í Bandaríkjunum og víðar er mjög mikið eftirht með eyðslu á kosningafé og takmarkanir settar. í sjálfum kosningunum eru settar skorður um fjáröflun og kosn- ingasjóði, sem aht er gert í þeim thgangi að fjármagnið afskræmi ekki heiðarlega baráttu og lýðræðisleg úrsht. Þetta mætti taka hér th eftirbreytni, svo mjög sem auglýsingafarganið hefur farið úr böndunum í þessu prófkjöri. Athyglin hefur að sjálfsgöðu beinst að þeim sem verða undir í prófkjörsslagnum, þeim sem setja markið hátt og faha svo með braki og brestum. Merkhegast við niður- stöður prófkjöranna hjá Sjalfstæðisflokknum er þó hitt að nýir menn og konur eru að hasla sér vöh sem forystu- menn. Töluverð endumýjun er á hsta flokksins í Reykja- vík, ef ekki alveg umskipti, sem ber þess vott að kjósend- ur vhja breyta til. í Hafiiarfirði skýst Magnús Gunnarsson á toppinn, á Akranesi vinnur Gunnar Sigurðsson yfirburðasigur, á ísafirði er Þorsteinn Jóhannesson langefstur og Jónína A. Sanders fylgir fast á eftir efsta manni í Njarðvík. Hér er um að ræða vinsæla heimamenn, fólk sem htt eða ekki hefur skipt sér af póhtík en gefur kost á sér og fær glæshega kosningu fyrir thstilh þeirra sem best þekkja til. Með jafii góðri þátttöku og raun ber vitni ætti slíkt fólk að styrkja Sjálfstæðisflokkinn í sjálfum sveitar- stjómarkosningunum í vor og verða honum th framdrátt- ar. Ehert B. Schram Á ári fjölskyldunnar Þær litlu rannsóknir sem við eig- um á íslenskum flölskyldum benda til þess að allt of víða sé pottur brotinn. Skýrslur um stöðu barna og unglinga, vaxandi atvinnuleysi og félagslegir erfiðleikar sem því fylgja svo og upplýsingar um of- beldi og sifjaspell benda til þess að verulegt átak þurfi að gera í mál- efnum fjölskyldna hér á landi. Þá er ástæöa til að hafa sérstakar áhyggjur af því hvemig búið er að börnum og unglingum í samfélagi okkar. Það er einnig vert að gefa gaum að andlegri og líkamlegri hðan bæði kvenna og karla, enda hags- munum fjölskyldna iðulega fórnað á altari yfirvinnu og lífsgæðakapp- hlaups eða þrældóms og vanmáttar af ýmsu tagi. Þá tíðkast ekki á landi hér að spyrja hvaða áhrif stjórnvaldsað- gerðir hafi á líf og kjör íjölskyldn- anna. Það þarf að breyta hugsunar- hætti foreldra og stjórnvalda ef við ætlum að axla sameiginlega ábyrgð á velferð þeirra einstaklinga sem hér búa. Það mun koma niður á okkur öllum og verða okkur dýrt síöar meir ef við gerum það ekki. Fjölskylduþjónusta ríkisins Árið 1994 verður helgað málefn- um fjölskyldunnar um heim allan að frumkvæði Sameinuðu þjóð- anna. Hér á landi hefur nefnd verið að störfum sem hyggst beita sér fyrir fræðslu og umræöum af ýmsu tagi. Meiningin er að setja á laggir fjölskylduþjónustu ríkisins og væntanlega munu eiga sér stað rannsóknir á íslenskum fjölskyld- um. Allt er þetta gott og blessað en það ekki nóg að hyggja að hinum ytri aðbúnaði. Líðan fólks, hug- myndafræðin að baki fjölskyld- unnar og hlutverk hennar þarfnast skoðunar og endurmats í ljósi mik- illa þjóðfélagsbreytinga. KjaUarinn Kristín Ástgeirsdóttir þingkona Kvennalistans í Reykjavík Svörin skipta sköpum Framlög ríkisins til félags- og fjöl- skyldumála eru mun lægri hér á landi en annars staðar á Norður- löndum og fara minnkandi. í þeim niðurskurði sem átt hefur sér stað í ríkisíjármálum hefur heilbrigðis- og skólakerfið orðið hart úti, kennsla í grunnskólum- hefur minnkað, sérkennsla verið skorin niður, innheimta skólagjalda og ýmiss konar þjónustugjalda hafm og erfiðlega hefur gengið að fá pen- inga til ýmiss konar vamarað- gerða. Það er jafnt og þétt verið aö færa ábyrgðina á aöstoð og vellíðan einstaklinganna frá samfélaginu yfir á herðar fjölskyldunnar (les: kvenna). Allt er þetta spurning um forgangsröð, pólitískar áherslur og hugmyndafræði sem því miður beinast mjög gegn konum nú um stundir jafnt hér á íslandi sem á meginlandi Evrópu. Það er þvi ástæða til að hvetja alla og þó konur sérstaklega til að nota ár fjölskyldunnar vel þannig að sjónir beinist að því hvert stefnir. Þrátt fyrir allt er fjölskyld- an í öllum sínum flölbreytileika enn griðarstaður fyrir flesta þótt ýmislegt óæskilegt gerist þar innan veggja sem ráða þarf bót á. Við eig- um að nota tækifærið til að spyrja erfíðra spuminga og kerfjast svara. Hvers konar fyrirbæri er „hin íslenska fjölskylda“? Hvers vegna líður svona mörgum börnum illa? Hvernig líta íslendingar á böm og hvernig búum við að þeim í raun og veru? Hvað um gamla fólkið og stööu þess innan fjölskyldunnar? Hvernig skilgreinum við hlutverk fjölskyldunnar? Af hverju sitja konur enn uppi með ábyrgðina af velferð jafnt ungra sem aldinna? Af hverju allt þetta ofbeldi? Hvem- ig fjölskyldulífi viljum við lifa og hvernig bætum við stöðuna? Hver á sameiginlegur stuðningur okkar við fjölskyldurnar að vera og hvernig o.s.frv. o.s.frv. Spuming- amar era óteljandi en svörin, að- gerðir og stefnubreyting sem við verðum að knýja fram, kunna að skipta okkur sköpum í nútíð og framtíð. Kristín Ástgeirsdóttir „Þrátt fyrir allt er fjölskyldan 1 öllum sínum fjölbreytileika enn griðastaöur fyrir flesta þótt ýmislegt óæskilegt ger- ist þar innan veggja sem ráða þarf bót Á “ Skodanir annarra Hörundssárir ráðamenn „Hægt væri að rekja mörg tilvik í samskiptum íslenzkra fjölmiðla og þá ekki sízt Morgunblaðsins, við stjórnmálamenn og forystumenn í atvinnulífi og jafnvel menningarlífi, þar sem smámunir hafa orðið aö stórmáh vegna tortryggni og samsæriskenninga af ýmsu tagi. í langflestum tilvikum kemur forráða- mönnum fjölmiðla gersamlega á óvart hvað það er, sem kemur svo illa við hörundssára ráðamenn." Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 30. jan. Skipasmíðaiðnaðurinn „Skipasmíðaiðnaðurinn hefur gengið í gegnum miklar breytingar á undanfómum árum alveg eins og sú atvinnugrein sem stendur honum næst, sjávar- útvegurinn... Þaö er ljóst, að tækifæri skipasmíða- iðnaöarins munu ekki felast í nýsmíðaverkefnum á næstu árum. Líklegra er að þróunin verði í þá átt að greinin sinni í ríkara mæh viðhalds- og endurbóta- verkefnum hér innanlands, þá í nánara samstarfi við útgerðir sem í mörgum tilfehum reka sínar eigin vélsmiðjur." Úr Vísbendingu, vikuriti um viðskipta- og efnahagsmál, 27. jan. Hærri „leiga“ af eigin húsnæði? „Það er algengt að heyra fólk segja, aö það vilji frekar borga af lánum, sem tekin hafa verið vegna íbúðarkaupa, og greiða þannig sjálfum sér, heldur en að leigja og greiða háa húsaleigu, sem fer beint í vasa leigusala. Þetta er oft á misskilningi byggt. Fjár- magnskostnaður af lánum íbúðarkaupenda er oft svo mikih, að fólk greiöir raunverulega hærri „leigu“ fyrir íbúðarhúsnæði, sem það er skráð eigendur að, en það myndi greiða í húsaleigu fyrir samsvarandi húsnæði.“ Grétar J. Guðmundsson í fasteignabl. Mbl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.