Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1994, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1994
Frá Alþingi
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn
skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn skv. reglum um
hús Jóns Sigurðssonar er laus til afnota tímabilið
1. september 1994 til 31. ágúst 1995. Fræðimenn,
sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að verk-
efnum í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt af
íbúðinni, sem er í Skt. Paulsgade 70 (örskammt frá
Jónshúsi). Hún er þriggja herbergja (um 80 ferm.)
en auk þess hefur fræðimaðurinn vinnuherbergi í
Jónshúsi. íbúðinni fylgir allur nauðsynlegasti heimil-
isbúnaður og er hún látin í té endurgjaldslaust. Dval-
artími í íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir en til
greina kemur skemmri tími eða lengri eftir atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til skrifstofu
Alþingis eigi síðar en 1. maí n.k.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi með
dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og menntun og
fyrri störfum. Þá skal tekið fram hvenær og hve lengi
óskað er eftir íbúðinni, svo og fjölskyldustærð um-
sækjenda. Tekið skal fram að úthiutunarnefnd ætlast
til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn að fullu
við störf í Kaupmannahöfn.
Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Alþingis
í Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráði íslands í
Kaupmapnahöfn.
r
UTBOÐ
i
i
l
i
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í lóðaframkvæmdir við Austurbæjar-
skóla.
Helstu magntölur:
Jarðvegsskipti 1.500 m3
Malbikun 2.000 m2
Lagnir 200 Im
Beð 2.000 m2
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 26.
apríl 1994 kl. 14.00. bgd43/4
F.h. byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað
eftir tilboðum í gólflökkun í ýmsum fasteignum
Reykjavíkurborgar.
Helstu magntölur: Gólffletir 2.200 m2.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12.
apríl 1994 kl. 14.00. bgd44/4
l
I
I
I
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í
verkið „Borgarvegur, stofnlögn.“
Verkið felst í að leggja tvöfalda stofnlögn fyrir hita-
veitu á um 800 m löngum kafla meðfram fyrirhuguð-
um Borgarvegi í Borgarholti. Stofnlögnin er 0300
og 0350 mm stálpípur í plastkápu. Einnig skal steypa
tvo brunna á lögnina, sjóða pípulögn í þeim og full-
gera þá að öðru leyti.
Verkinu skal lokið að fullu 1. október 1994.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 19.
apríl 1994 kl. 14.00. hw45/4
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 • Sími 2 58 00
I
Merming
Gérard Depardieu i hlutverki Marins Marais.
Allir heimsins
morgnar á geislaplötu
„AUir heimsins morgnar" heitir falleg lítitskáldsaga
eftir franska rithöfundinn Pascal Quignard sem Mál
og menning gaf út fyrir tveimur árum. Skáldsagan er
eins konar dæmisaga um snilligáfuna og snýst um
meint samskipti tveggja tónlistarmanna í Frakklandi;
lágfiöluleikaranna og tónskáldanna Sainte Colombe
og Marin Marais, sem báöir voru uppi á 17. öld. í þess-
ari bók er Sainte Colombe ímynd hins falslausa og
gagnvandaða tónlistarsnilhngs, en Marais, lærisveinn
hans, er maður hins nýrri tíma, reiðubúinn að fara
milliveginn til frægðar og frama. Inn í þessa sögu
blandast síðan ástarmál; samskipti Sainte Colombes
viö látna (já!) konu sína og ást Marais á íðilfagurri
dóttur meistara síns.
Kvikmynd eftir þessari bók, leikstýrð af Alain Corne-
au, hefur slegið öll aðsóknarmet í Frakklandi og var
tekin til sýningar hér á landi um páskana, en í henni
leikur auðvitað Gérard Depardieu eitt aðalhlutverkið.
í myndinni er mikið um tónlist sem katalónski tónlist-
armaðurinn Jordi Savall var fenginn til að velja og
leika ásamt með hópi valinna samstarfsmanna. Tón-
listin hefur nú verið gefin út á geislaplötu sem hefur
notið ámóta vinsælda og kvikmyndin.
Upprunaleg kvikmyndatónlist
Hér er ekki um að ræða nýtísku kvikmyndatónlist-
arsamsuðu í 17. aldar stíl, heldur upprunalega tónlist
Marais sjálfs, sem var mikilvirkt tónskáld, svo og þær
fáu tónsmíðar sem til eru frá hendi Sainte Colombes,
en um hann er í rauninni afskaplega lítið vitað. Til
áhersluauka er bætt inn í kvikmyndina tónlist frá 18.
öld eftir þá Lully og Couperin. Þar sem ég hef ekki séð
kvikmyndina veit ég ekki nákvæmlega hvernig tónlist-
in virkar í því samhengi en á geislaplötu hljómar hún
glæsilega. SavaU leikur sjálfur á lágfiðlu fyrir hönd
þeirra Sainte Colombes og Marais.
Jordi Savall er sjálfsagt ekki þekkt nafn í okkar
þrönga tónlistarheimi en í evrópskum tónlistarkreðs-
um er hann nánast goðsagnavera. Hann er menntaður
lágfiðluleikari og hefur lagt fyrir sig rannsóknir og
útsetningar á endurreisnar- og barokktónlist, þar á
meðal tónlist Marins Marais, auk þess sem hann hefur
Tónlist
Aðalsteinn Ingólfsson
um langt árabil stjórnað Hésperion XX hópnum, sem
nýtur mikils álits meðal sérfræðinga fyrir túlkun á
evrópskri miðaldatónlist, spænskri, enskri og þýskri.
Á nýlegri safnplötu hópsins má finna sýnishorn af
leikni og fjölhæfni þessara tónlistarmanna.
Ég get óhikað mælt með öllu því sem Jordi Savall
hefur komið nálægt og hlakka til að sjá kvikmyndina.
Tous les matins du monde
Marin Marais, Sainte Colombe, Francois Couperin, Jean-
Babtiste Lully, Jordi Savall o.fl.
Auvidis K 4640
Umboð á íslandi: JAPIS
20 Ans Hésperion XX
Stjórnandi: Jordi Savall
Auvidis Astrée E 8522
Umboð á íslandi: JAPIS
Bridge
Bridgedeild Barðstrendinga
Staða efstu para eftir 11 umferðir í barómeterkeppni
félagsins er eftirfarandi:
1. Halldór B. Jónsson-Ólafur Jóhannesson 150
2. Friðjón Margeirsson-Valdimar Sveinsson 134
3. Gunnar R. Pétursson-Allan Sveinbjörnsson 114
4. Þórarinn Ámason-Gísli Víglundsson 112
5. Haraldur Sverrisson-Leifur K. Jóhannesson 109
6. Birgir Magnússon-Viðar Guðmundsson 88
Dagana 7. og 14. mars var spiluð firmakeppni deildar-
innar og röð efstu para varð eftirfarandi:
1. Skipavarahlutir; Ragnar Bjömsson- Leifur Jóhannesson
518
2. Smurstöðin Hafnarstræti; Þórarinn Ámason-Gísli Víg-
lundsson 487
3. Vestfjarðaleiö hf.; Valdimar Sveinsson-Friðjón Margeirs-
son 476
4. Búnaðarbankinn; Óskar Karlsson-Ólafur Bergþórsson 446
5. Einhamar hf.; Ámi Eyvindsson-Kristján Jóhannsson 443
Bridgefélag Suðurnesja
Sveit Gunnars Guðbjörnssonar sigraði í Kaskó-
keppninni sem spiluð var síðastliðinn laugardag en
þar spiluðu saman fjórar efstu sveitirnar í aðalsveita-
keppni félagsins sem nýlokið er. Sveit Gunnars spilaði
gegn sveit Garðars Garðarssonar í undanúrslitum og
sveit Karls G. Karlssonar spilaði gegn sveit Jóhannes-
ar Sigurðssonar sem unnið hafði sveitakeppnina með
nokkrum yfirburðum.
Sveitir Gunnars og Karls unnu sína leiki og spiluðu
til úrslita. Gunnar Guðbjörnsson og félagar hans unnu
þann leik næsta örugglega og sveit Garðars Garðars-
sonar vann sveit Jóhannesar í keppninni um þriðja
sætið. Sigurvegaramir fengu í verðlaun stór páskaegg
sem Kaskó gaf til keppninnar.
Mánudaginn 28. mars var spilaður eins kvölds 16
para tvímenningur en aðaltvímenningur félagsins
hefst 11. apríl og er stefnt að því aö spila fjögur kvöld.
Mjög góð þátttaka var í þessari keppni í fyrra en spil-
að er bæði með og án forgjafar. Spilað verður í Hótel
Kristínu og takmarkast þátttaka við 28-30 pör.
Bridgefélag Reykjavíkur
Nýlokið er þriggja kvölda tvímenningi félagsins þar
sem tvö bestu kvöldin töldu til verðlauna. Lokastaða
efstu para varð þannig:
1. Helgi Jónsson-Helgi Sigurðsson 931
2. Gunnar Gunnarsson-Stefán Jóhannsson 863
3. Kjartan Ingvarsson-Kjartan Ásmundsson 856
4. Oddur Hjaltason-Hjalti Elíasson 854
5. Ragnheiður Tómasdóttir-María Haraldsdóttir 852
6. Erlendur Jónsson-Þórður Bjömsson 849
7. Hallgrímur HaUgrímsson-Sigmundur Stefánsson 838
8. Guðmundur Baldursson-Guömundur Grétarsson 834
Næsta keppni félagsins verður barómetertvímenning-
ur sem er ein vinsælasta keppni ársins og hefst mið-
vikudaginn 6. apríl. Skráning er hafln í síma 619360.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Mánudagskvöldið 28. mars hófst hraðsveitakeppni
félagsins og mættu níu sveitir á mótið. Staðan eftir
fyrsta kvöldið er þannig:
1. Kjartan Jóhannsson 659
2. Ólafur Gíslason 644
3. Jón Andréson 596
4. Júlíana Gísladóttir 579
Bridgefélag Siglufjarðar
Mánudagskvöldið 28. mars.var fram haldið Skelj-
ungsmóti í tvímenningi. Staða efstu para að loknum
13 umferðum af 19 er þannig:
1. Anton og Bogi Sigurbjömssynir 117
2. Ólafur og Steinar Jónssynir 113
3. Sigfús Steingrímsson-Sigurður Hafliðason 62
4. Haraldur Árnason-Guðmundur Ámason 45
5. Ásgrímur og Jón Sigurbjörnssynir 43
6. Björn Þórðar^Jóhann Möller 28 - -ÍS