Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1994, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1994, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 5. APRÍL 1994 33 Menning Haukur Halldórsson í Hallgrímskirkju: Trúogtákní tveim heimum Listiönaöur er á háu stigi víða í Asíu. í Kína hafa ýmsar óhefðbundnar aðferöir í listum verið iðkaðar í hundruð ára. Þar á meðal eru svonefndar emaleraðar gljámyndir. Þær hafa verið unnar þannig að teikning- in er mörkuð með málmþræöi eftir fyrirmynd lista- mannsins og fyllt upp í myndfleti með htarefni. Hér er um að ræða mikla og tímafreka nákvæmnisvinnu *á Ustiðnaðarstofu. Hver mynd er í raun frummynd, en greinilegur munur er þó á Utbrigðum og hand- bragði einstakra Ustiðnaðarmanna. Haukur Halldórs- son hélt til Kína fyrir tveimur árum ásamt Ragnari Baldurssyni. Tilgangur þeirrar ferðar var að kynnast kínverskum Ustiðnaði og freista þess að koma á sam- starfi við kínverska listiðnaðar- og Ustamenn. Nú er svo komið að Haukur hefur opnaö sýningu á 59 emaler- uðum gljámyndum í anddyri Hallgrímskirkju sem unnar voru eftir hans teikningum í Ustiðnaðarstofu nokkurri í útjaðri Pekingborgar. Óhefðbundnar gljámyndir Gljámyndir þessar eru þó ekki með öllu hefðbundn- ar heldur kalla Kínverjar aðferðina „leng jintailan", kalda emaleringu, og byggist hún m.a. upp á því að fljótandi polyester er heUt yfir myndimar og látið Myndlist Ólafur J. Engilbertsson storkna í stað þess að brenna myndirnar í ofni. Þann- ig er unnt að gera stærri myndir. Þessi aðferð mun aðeins vera nokkurra ára gömul og sýnir það svart á hvítu að hinar hefðbundnu Ustgreinar Kínveija eru langtífrá staðnaðar þrátt fyrir sterkar hefðir. Þar fyrir utan kveðst listamaðurinn hafa getað sannfært Ustiðn- aðarmennina kínversku um að nota dempaöri Uti í röð mynda sem unnin er út frá teppasUtrum er fundust í víkingaskipi í Aaseberg í Noregi. Ennfremur er í að- ferðunum nokkuð sótt til navajo-indíána að frum- kvæði Hauks. Kunnuglegt og víðfeðmt Navajóar unnu sín sandmálverk úr náttúruhtum sandi, en hér hefur litadufti verið blandað við sandinn sem síðan er dreift jafnt í hin áfmörkuðu svæði myndflatarins. Enn sem komið er hefur einungis ein Ustiðnaðarstofa tileinkað sér þessa aðferð og mun þetta í fyrsta sinn sem kínverskir Ustiðnaðarmenn gera slík- ar myndir eftir fyrirmyndum vestræns listamanns. Haukur kveðst þegar hcda hafið undirbúning að nýrri sýningu með fleiri myndefnum tii sýninga í öðrum löndum, en þessari sýningu hafa þegar borist boð frá sýningarsölum í nokkrum borgum, þ. á m. Kaup- mannahöfn, París og Santa Fe. Raunar virkar mynd- irnar kunnuglegar. Vinna Ustamannsins Hauks HaU- dórssonar er hér fyrst og fremst fólgin í að raða sam- an brotum úr trúarlegum menningararfi þjóða í tveim- ur heimsálfum og láta brotin renna saman í eina heUd í þriðju heimsálfunni. Svo víðfeðma list hafa örugglega Ein af myndum Hauks Halldórssonar á sýningunni. ekki margir íslendingar iðkað, en hæpið er að telja hana frumlega. Listiðnaður Myndunum má skipta í fjóra Uokka; tólf trúarmynd- ir sem byggðar eru á fyrirmyndum úr íslensku teikni- bókiimi í Arnasafni; sjö myndir um kristna landnám- ið á íslandi, m.a. byggðar á fyrirmyndum úr Book of Kelts í Þjóðminjasafninu í Dyflinni; tíu myndir byggð- ar á fyrirmyndum í amerískri indíánalist, þ. á m. sand- myndum navajó-indíána og Ust hopi-indíána og loks þijár víkingamyndir, byggðar á fyrrnefndum norskum teppasUtrum. í heUdina er hér um að ræða afar áhuga- verða Ustiðnaðarsýningu og hér virðist vera að opnast athyglisverð leið fyrir íslenskt handverk á heimsmark- að. Haukur mætti þó gaumgæfa betur þann sjóð sem tU er innanlands af drátthst áður en hann þurreys brunna indíánanna vestur frá. Fréttir VSÍ vill viðræður við ESB Framkvæmdastjórn Vinnuveit- endasambands íslands, VSÍ, vUl hið fyrsta taka upp viðræður við Evrópusambandið um hvort EES- samningurinn haldi gagnvart ís- landi og hvernig tryggja megi hags- muni íslendinga með öðrum hætti. í ályktun frá stjórninni segir að EES-samningurinn sé mikilvæg- asti mUUríkjasamningur íslend- inga en í ljósi aðUdarumsókna hinna EFTA-ríkjanna í Evrópu- sambandið verði samningurinn skammlífari en ætlað var. -bjb Endurnýjun á Árbæjarstíflu Borgarráð hefur ákveðið að verja 5,2 milijónum til að flýta endumýj- un á Arbæjarstíflu í ElUðaám til viðbótar við þá 12,1 mUljón sem veitt hafði verið tU endurbóta á stíflunni. Um er að ræða fuUkomna end- urnýjun á stiflunni og göngubrú hennar, meðai annars með nýjum brúarstólpum og handriðum. Litið verður á endurbæturnar sem átaksverkefni á þessu ári en end- urnýjunin hefði annars átt að koma tU framkvæmda eftir eitt tU tvö ár. -GHS ÞJÓÐLEIKHÚSID Sími 11200 Stóra sviðið kl. 20.00 GAURAGANGUR eftir Ólaf Hauk Simonarson Fid. 7/4, uppselt, föd. 8/4, uppselt, sud. 10/4, uppselt, sud. 17/4, uppselt, mvd. 20/4, uppselt, fid. 21/4, uppselt, sud. 24/4, uppselt, mvd. 27/4, uppselt, fld. 28/4, upp- selt, laud. 30/4, uppselt. Ósóttar pantanir seldar daglega. ALLIR SYNIR MÍNIR eftir Arthur Miller Laud. 9/4, næstsiðasta sýning, föd. 15/4, síöasta sýning. SKILABOÐASKJÓÐAN eftir Þorvald Þorsteinsson Ævintýri með söngvum Sud. 10. april kl. 14.00, nokkursæti laus, sud. 17/4 kl. 14.00, nokkur sæti laus, fid. 21/4 (sumard. tyrsti) kl. 14.00. Smíðaverkstæðið kl. 20.30. BLÓÐBRULLAUP eftir Federico Garcia Lorca Laud. 9. april, föd. 15. april, þri. 19. april. Ath. Siöustu sýningar. Sýningin er ekki viö hæfi barna. Ekki er unnt að hleypa gestum í salinn eftir að sýning er hafin. Miöasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá 13.00-18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti símapöntunum virka daga frákl.10. Græna linan 99 61 60. Tilkyimingar Skarthúsið flutt Skarthúsið er flutt í nýtt húsnæði að Laugavegi 12. Það var áður til húsa að Laugavegi 69. Þar eru seldir ýmsir fylgi- hlutir eins og skartgripir, slæður, hattar, sólgleraugu og fleira á sanngjörnu verði. Eigandi er Dóra Garðarsdóttir. „Kennslufræði fyrir leiöbeinendur" Nýlega kom út íslenskri þýðingu „Kennslufræði fyrir leiðbeinendur", sem gefm er út af Rauða krossi íslands og Landsbjörgu. Bókin er þýdd úr norsku og skiptist í þrjá hluta. Hún nýtist vel kennurum og leiðbeinendum í fræðslu- staríi félagasamtaka, svo og þeim sem að námskeiðum standa. Bókin fæst hjá Rauða krossi íslands og hjá Landsbj örgu. Námskeið Námskeið hjá Heimsljósi í apríl verður Dayashakti (Sandra Scher- er) gestakennari hjá Jógastöðinni Heims- ijósi. Hún er einn færasti kennari frá Kripalumiðstöðinni í Massachusetts. Námskeiðin eru heildræn og taka til lík- amlegra, tilfmningalegra og andlegra þátta. Á fimmtudagskvöldum verða sam- verustundir með Dayashakti í Jógastöð- inni Heimsljósi og er aðgangur ókeypis á þær. Leikhús LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR GLEÐIGJAFARNIR eftirNeil Simon með Árna Tryggva og Bessa Bjarna. Þýðing og staðfærsla Gisli Rúnar Jónsson. Mlð. 6. apríl, uppselt, fös. 8. april, uppselt, fim. 14. april, fáein sæti laus, sun. 17. april fáein sæti laus, miöd. 20. apríl, fáein sæti laus, fös. 22. apríl, örfá sæti laus, sun. 24. april. Stóra sviðið kl. 20. EVALUNA . Leikrit eftir Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson. Unniö upp úr bók Isa- bel Allende. Lög og textar eftir Egil Ólafsson. Fim. 7. april, lau., 9. apríl, uppselt, sun. 10. april miðd. 13 april, 40. sýn., fösd., 15 april, fáein sæti laus, lau. 16. april, uppselt, fimmd., 21. april. „ . , Geisladiskur með logun- um úr Evu Lunu til sölu i miðasölu. Ath.: 2 miðar og geisladiskur aðeins kr. 5.000. Leiklestur á grískum liarmleikjum: Þýðandi Helgi Hálfdanarson. Ífígenía í Álís eftir Evrípídes fóstud., 8. aprílkl. 19.30. Agamemnon eftir Æskilos laugard. 9. apríl kl. 16.00. Elektra eftir Sófókles sunnud. 10. apríl kl. 16.00. Miðaverðkr. 800. Miðasala er opin kl. 13.00-20.00 alla daga nema mánudaga. Tekið á móti miðapöntunum i síma 680680 kl. 10-12 alla virka daga. Bréfasími 680383. Greiðslukortaþjónusta. Munið gjafakortin okkar. Tilvalin tækifærisgjöf. Leikfélag Reykjavíkur - Borgarleikhús. Leikfélag Akureyrar ÓPKRIJ DRAUCÍURINN eftir Ken Hill i þýöingu Böðvars Guðmundssonar Lelkstjóri: Þórhlldur Þorleifsdóttir Lelkmynd og búningar: Slgurjón Jó- hannsson Tónllstarstjóri: Gerrit Schuil Lýsing: Ingvar Björnsson i Samkomuhúsinu kl. 20.30. Föstudag 8. april. Laugardag 9. april. FöstudaglS. apríl. Laugardag 16. april. ItrPtr eftir Jim Cartwright SÝNT í ÞORPINU, HÖFÐAHLÍÐ1 Sýningar hef jast kl. 20.30. Flmmtudag 7. apríl. Sunnudag 10. april. Ath.: Ekki er unnt að hleypa gestum i sallnn eftir að sýnlng er halin. Aðalmiðasalan i Samkomuhúsinu er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga fram aö sýningu. Sími 24073. Simsvari tekur við miðapöntunum ut- an afgreiðslutima. Ósóttar pantanir að BarPari seldar i mlðasölunni i Þorpinu frá kl. 19 sýn- ingardaga. Simi 21400. Greiðslukortaþjónusta. leikLi'starskóli Islands \7/ ' Nemenda leikhúsið SUMARGESTIR eftir Maxim Gorki i leikstjórn Kjartans Ragnarssonar. 7. sýn. þriðjud. 5. april kl. 17. Uppselt. 8. sýn. miðvikud. 6. april kl. 17. 9. sýn. flmmtud. 7. apríl kl. 20. 10. sýn. laugard. 9. april kl. 20. Ath. Allra síðustu sýningar. Mlðapantanir i síma 21971.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.