Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 3 Fréttir Ósamkomulag 1 útgerðarmálum á Raufarhöfn: Ný stef na tekin upp og framkvæmdasljórinn hættir Aðalkosningamálið í sveitarstíóm- arkosningunum á Raufarhöfn í vor var hvort framfylgja á þeirri stefnu fyrrverandi meirihluta hreppsnefnd- arinnar að kaupa frystitogara í stað togarans Rauðanúps eða gera Rauða- núp út áfram og kaupa 100-200 tonna bát eins og þáverandi minnihiuti vildi. Niðurstaða kosninganna varð sú að fyrrverandi meirihluti féll og það sjónarmið varð því ofan á að ráðast ekki í togarakaupin. Þorsteinn Óh Sigurösson, fram- kvæmdastjóri Jökuls hf. og Fiskiöj- unnar, hefur í kjölfar þessarar niður- stöðu sagt upp störfum við fyrirtæk- in. „Það má segja að þaö séu margar ástæður sem þar Uggja að baki en ekki síst það að ekki skuli eiga að fara eftir ráðleggingum sérfræðings sem hefur tekið þessi mál út og mælt með kaupum á togaranum. Ég get bara ekki samvisku minnar vegna starfað að málum sem ég hef ekki trú á, það er svo einfalt," sagði Þorsteinn ÓU í samtaU við DV. Um það er rætt á Raufarhöfn að þetta mál kunni að verða til þess að Guðmundur Guðmundsson sveitar- stjóri hætti einnig en nýi meirihlut- inn hefur lýst áhuga sínum á að hann starfi áfram. „Ég get ekki svarað því á þessu stigi hvað verður. Það er búið að skipa nefnd sem á að ræða við mig um mín mál en hún hefur ekki tekið tíl starfa ennþá,“ sagði Guðmundur. Raufarhafnarhreppur er eigandi að 90% hlutafjár í útgerðarfyrirtækinu Jökli sem aftur á um 60% í Fiskiðj- unni en þar á hreppurinn um 40%. Þaö er því ljóst að ágreiningsmál um rekstur þessara fyrirtækja tengjast póUtík beint og viðmælendur DV lágu ekkert á þeirri skoðun sinni. „Nýi meirihlutinn ætlar greinilega að hunsa áUt sérfræðings sem hefur tekið þessi mál út og mælt með tog- arakaupum og ætU þetta sé ekki upp- hafið að endalokunum," sagði einn viðmælandinn sem ekki vfidi tjá sig undir nafni. Steinaldar- tvíburar Tvíburabræðurnir Marinó og Hlynur Sigurðssynir í Saga-bíói. DV-mynd ÞÖK Tvíburabræðurnir Marinó og Hlynur Sigurðssynir voru viðstaddir forsýningu á Steinaidarmönnunum í Saga-bíói í fyrrakvöld en þeir bræður skiptast á að leika Bamm Bamm, kjörson Bettyar og Barneys, í kvik- mynd sem gerð er eftir teiknimynd- unum um steinaldarmennina Fred og Bamey og fjölskyldur þeirra. Kvikmyndin var frumsýnd í Banda- ríkjunum í vor en sýningarnar hér á landi hefiast ekki fyrr en 22. júlí. Marinó og Hlynur verða þá fiarri góðu gamni því að þeir fara bráðlega aftur til Bandaríkjanna þar sem þeir búa ásamt foreldrum sínum og tveimur systrum. saixiyNTXv BILL OG IS 1 pnny mm Hyundai btlarnir eru áberandi í umferðinni á sunnudögum enda njóta þeir sívaxandi vinsælda hjá íslenskum fjölskyldum. Á þessu ári fjölskyldunnar eiga Bifreiðar & landbúnaðarvélar 40 ára afmæli. Afþví tilefni bjóðum við nýjum mmM&mmaammmBmammmmmmmmammmmBm Hyundai eigendum upp á ts í sumar setn örlitla sumargjöf. Öllum keyptum Hyundai bílum í júní og júlí munfylgja ísskírteini, sem gildir alla sunnudaga í 8 vikur - fyrir alla farþega hvers bíls. Og ísinn er ekki af verri endanum því Veitingahúsið Perlan leggur til heimalagaðan rjómaís, sem af mörgum sérfræðingum er talinn sá besti í bænum. ^CuiUPE Verð frá 1.290.000 kr. HYunDni ...til framtíðar r asxiS'' 40, ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SlMI: 3 12 36

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.