Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLl 1994 Spumingin Notar þú debetkort? Reynir örn Þrastarson: Nei, ég nota ekki debetkort. Jóhann Friðrik Ragnarsson: Já, það er frábært að nota það. Edda Benónísdóttir: Ekki ennþá. Herdís Sigurðardóttir: Nei, ég nota það ekki. Selma Pétursdóttir: Nei. Margrét Sævarsdóttir: Nei, en ég er með vaxtalínu. Lesendur Omurlegur barbar- ismi veiðimanna Magnús H. Skarphéðinsson skrifar: I „Veiöifréttum" DV þann 24. júní sl. mátti lesa um baráttu laxveiði- manns við stærsta lax sumarsins sem var eins og aðrir stangveiddir laxar svo ólánsamur að vera á leið- inni upp æskuslóðimar sínar í Þverá í Borgarfirði til að hrygna. Sú eðlis- ávísun kostaði þetta vesalings dýr lífið. En þar með var ekki nema hálf sagan sögö og tæplega það. Því „bar- áttan" (eins og hinn hjartgóði „veiði- blaðamaður" DV kýs að kaila þetta athæfi) tók hvorki meira né minna en sjö tíma! Vesalings fiskurinn var fastur í dauðastríði sínu í heila sjö tíma á önglinum. - Hvílíkur barbar- ismi! Eitt er það aö drepa dýr sér til lífs- bjargar. Og það er skiljanlegt þar sem fáu öðra verður við komið. En að vera að leika sér að svona kvala- ftúlri framkomu við mállaus og bjargarlaus hin dýrin í afþreyingar- skyni og hrósa sér af er smekkleysa af þeirri stærðargráðu sem á ekkert skylt við siðmenningu mannsins. Ætli þessi vesaiings veiðimaður vildi láta draga sig um æskustöðv- amar sínar í sjö tíma fastur í öngli af einhverri annarri dýrategund? Spyr sá sem ekki veit. - A.m.k. getur enginn slíkra veiðimanna verið sannkristinn. Því í hinni helgu bók segir að maður skuii ekki gera öðrum það sem maöur vfil ekki láta gera sjálfum sér. Verst af öllu er að nú á tímum síaukinnar velmegunnar og aukins frítíma almennings þá er alið á - * • • Allt sem maður gerir öðrum kemur manni síðar í koll, segir Magnús H. Skarphéðinsson og vísar til barbarisma laxveiðimanna. kvalatómstundum fyrir almenning á hin dýrin sem eru svo óheppin að gista þessa jörð með okkur hinum tækni- og vélvæddu Kvalalosta-sapi- ens (ekki Homo-sapiens, því það þýð- ir hinn hugsandi maður, - það á greinilega ekki við lengur. Þó að minnsti hluti þessa kvala- lostaveiðilýðs fáist til að hugsa þá einfoldu en merkilegu hugsun til enda svona einu sinni eða svo, en þá má finna alisterk karmatísk rök fyrir því að allt sem maður gerir öðrum komi manni sjálfum síðar í koli, góö verk eða slæm. Það væri a.m.k. ekki slæm byijun fyrir þennan ömurlega og tíifinningalausa veiðitortúriýð að hugsa svona einstöku sinnum. Ánægjuleg tíðindi af Vellinum Skarphéðinn Einarsson hringdi: í fjölmiðlum í síðustu viku var ver- ið að segja frá því að bandaríski flot- inn á Keflavíkurflugvelli hygöist bjóða út akstur á skólabömum og annan akstur með fólk til og frá Vell- inum. Þessu langar mig að fagna sér- staklega og lýsa ánægju minni með þessa þróun. Ég hef komið í banda- rískar herstöðvar í Bretlandi og Þýskalandi og þar er aðkeypt vinna hlutfailslega mun meiri en í herstöð- inni hér heima. í kjölfar þessa skrefs mætti stíga annað og það er að bjóöa út snjó- mokstur á vegum flugvallarins, sorp- hirðu og minni háttar viðgerðir sem herinn annast ennþá. Þetta eru mjög góöar fréttir og verður vonandi til þess að auka enn frekar á útboð af hálfu hersins. Okk- ur hér á Suðumesjum veitir svo sannarlega ekki af hverju því verki sem við getum fengið. Flotinn hefur að mínu mati verið alltof mikið að vasast í þessum mál- um sjálfur og íslenska ríkið hefur alls ekki verið nógu duglegt við að leita uppi verkefni hjá hernum. Það gleðilega í þessu öllu er að þótt verkefnin séu nú boðin út þá er ekki um það aö ræða að fólk sé aö missa vinnu. Hér er um að ræða breytta verkhætti, skólabömum fækkar ekki og umfang sorpmála og snjómokst- urs myndi ekki minnka neitt. Ég sé fyrir mér að Sérleyfisbílar Keflavíkur muni koma sterkt út úr þessu, sem og leigubílsljórar á svæð- inu. Þessir aðilar hafa átt í vök að verjast vegna mikils samdráttar und- anfarið. Hrokaf ullar yf irlýsingar Jóns Baldvins Andrés Guðnason skrifar: í viðtali DV viö Jón Baldvin Hannibalsson 29. júní sl. virðist hann undrast þaö að rússneska stjómin vilji hafa hönd í bagga með hvert rússneskur fiskur sé seldur. Það að ekki megi selja rússneskan fisk til íslendinga heldur Jón Baldvin að stafi af vinskap Rússa og Norð- manna. Gætí ástæðan ekki verið önnur? Kunn em orðtök tveggja kvenna úr fomsögum er hljóðuðu á þessa leið: „Muna skal ég þér nú kimihest- inn forðum.“ Þetta var dauðadómur Hallgerðar yfir Gunnari á Hlíðar- enda og þetta var dauðadómur Sig- ríöar drottningar Sveins Danakon- ungs yfir Ólafi konungi Tryggvasyni. Það læðist að mér sá grunur að Rússar ætli nú að ná sér niðri á utan- Hringid í síma 63 27 00 milli kl. 14 og 16 -eóa skrífið Nafn og siraanr. veröur aö fyigia bréfum ríkisráðherra vomm fyrir ótíma- bærar og hrokafullar yfirlýsingar hans í garð Sovétríkjanna á sínum tíma þegar þau vom að missa tökin á Eystrasaltslöndunum. Eitthvað minnir mig að boðin að austan tíi Jóns hafi þá verið eitthvað á þá leið að þetta ætti eftir að koma íslending- um í koll seinna. Oftast er betra og skynsamlegra fyrir smáþjóð að halda vel á sínum eigin málum í stað þess að vera að sletta sér fram í málefni annarra þjóða. Yfirlæti utanríkisráðherra gætí orðið okkur dýrt. Bréfritari segir yfirlæti utanríkisráðherra geta orðið okkur dýrt. Ingveldur hjá Sparisjóðí vélstjóra skrifar: í DV 28. júni var rætín klausa eftir námsmann þar sem verið var að gagnrýna störf Sparisjóðs vélstjóra. Rétt er að upplýsa að um mjög háa upphæð var að ræða sem leggja áttí inn á gjaldeyris- reikning og var því leitað eftír sérstöku gengi innan dagsins. Umræddur aðili fékk með því mun hagstæöara gengi en skráð gengi dagsins. Þegar umræddur aðili hafði gert grein fyrir því að hann væri aðiii að námsmanná- þjónustu sparisjóðsins var öll þóknun felld niöur. í ljósi þess að um engar deilur var aö ræöa við starfsmenn sparisjóðsins né kvartanir af hálfu viðskipta- manns er klausa þessi afskaplega sérkennileg. Hvareru samtökin? Áhugamaður um sjónvarp hringdi: Mig langar bara tíl þess að vita hvað hefur orðið af samtökunum Ruglaö rikissjónvarp, samtök sem stofnuð voru fyrir nokkru? Farið var af stað með miklum látum, undirskriftalistar látnir ganga um aUt land en síðan hefur ekkert heyrst frá þessu fólki. Mér fmnst fuU þörf á þvi að halda þessari umræöu á lofti og hvet félaga í samtökunum tii þess að láta í sér heyra. manna á því að rauðu SS pylsurn- ar eru afskaplega skrítnai-. Eins og stundum þegar maöur hitar sér pylsu þá kemur upp suöa í nokkrar sekúndur. Ég stóð rið pottinn og kippti honum af heU- urrni þegar ég heyrði að suöan kom upp. Þegar ég leit oían í pott- inn stuttu síðar höfðu allar pyls- umar rúllast upp. Rauða verjan hafði rifnaö og rúllast upp á inni- haldið. Þetta var vægast sagt ólystugt. Þetta hefur aldrei gerst með aðrar pylsur. Þúsundir út- lendinga Pétur hringdi: Það er ekki verra en vant er þegar hestamannamót standa yf- ir að fjölmiðlar rirðast ekki rita af því. Þeir era fljótir að hlaupa upp til handa og fóta ef koma ein- hverjar útlendingahræöur hing- aö tíl lands til þess að fylgjast með fótbolta eða öðru slíku. Nú eru þúsundir útlendinga hér á landi, hestaáhugamenn hvað-; anæva að úr heiminum en það virðist enginn rita af því. Er þetta ekki furðulegt? Tímiim á heiður skihð fyrir að birta ft-éttír á er- lendum tungumálum fyiir þetta fólk. Ég fagna því þegar meim þurfa ekki að fara á sveitina vegna þess að þeir hafa, ekki bara til lmífs. heldur h'ka tíl skeiðar. Bændur hafa notið mikilla friðinda, fast- eignagjöld og annað, og þri vekur það upp spumingar þegar bóndi norðan úr landi labbar sér með tugi milljóna króna upp í sjón- varpsstöð og kaupir sér hluta- bréf. Er ekki spurning um aö skoða skattskil þessara manna og skera niður styrkina við þá?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.