Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLl 1994 25 Fréttir Margir veiðimenn hafa veitt maríulaxinn sinn það sem af er sumrinu. Hér sjást þrír þeirra: Sveinn Pálsson með 13 punda fisk, Jóna Maria Jónsdóttir með 16 punda fisk og Kristján Sveinsson með 15 punda fisk. Lax- arnir voru veiddir i Miðfjarðará á dögunum. DV-mynd SJ Rólegheit ernkemia stangaveiði þessa dagana: Beðið eftir smálaxi við erfiðar aðstæður Einmunabliða, slæm taka og bið eftir göngum smálaxa einkennir stangaveiðina víöast um landið þessa dagana. Eftir kröftugar göng- ur af tveggja ára laxi lengist biðin með hverjum deginum eftir smá- laxagöngum. Hátt hitastig, lofthiti og vatnshiti hafa gert það að verk- um að undanfama daga hefur lax- inn tekið mjög iUa og áhugaleysi hans fyrir agni veiöimanna er alls- ráðandi. „Hér er veiði töluvert betri en á sama tíma í fyrra. Það eru komnir á land um 100 laxar. Þetta er vænn og fallegur fiskur og við erum að- eins farnir aö verða varir við smá- laxinn. Fiskurinn er ekki í töku- stuöi eins og er og ekki gott að segja hvað veldur," sagði Böðvar Sig- valdason við Miðfjarðará í samtali við DV í gær. Samkvæmt heimild- um DV er lítið um veiðimenn í Miðfjarðará þessa dagana en það stendur til bóta er líður að næstu helgi. í dag kostar veiðileyfi í Mið- fjarðará um 23 þúsund krónur og matur og gisting 6.500 krónur fyrir manninn. Lítiö af fiski sem stendur í Víðidalsá „Það em komnir 155 laxar á land og þetta hefur verið mjög trekt undanfarið. Þar kenna menn um mikilli blíðu og hita og mjög miklu roki undanfama daga. Það er eitt- hvað af fiski í ánni en'menn vilja meina að það sé ekki mikið. Einn og einn smálax hefur sést í ánni,“ sagði Gunnar Bollason, mat- reiðslumaður í veiðihúsinu við Víðidalsá, í samtali við DV í gær. Veiðileyfi í Víðidalsá kostar í dag 30-35 þúsund krónur og þá á eftir að greiöa fyrir fæði og gistingu. Stærsti laxinn úr Víðidalssá enn sem komið er vó 21 pund. Erfitt að gera veiði- mönnum til hæfis Tvö undangengin vor og sumur var veður kalt og veiðimenn höfðu flest á homum sér. Nú um stundir ríkir ijómablíöa og aö sögn veiði- manna alltof gott veður til þess að veiðiskapur beri tilætlaðan árang- ur. Það sannast þvi enn einn gang- inn að erfitt er að gera veiðimönn- um til hæfis og flestir eiga þeir það sameiginlegt að þrá lækkað hita- stig og úrkomu. Tíðindalítið hjá Stangaveiðifélaginu Jón Gunnar Borgþórsson, fram- kvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sagði í gær í samtali við DV að lítið væri að frétta af afrekum veiðimanna af vatna- svæðum félagsins. „Veðurfarið set- ur strik í reikninginn hjá veiði- mönnum þessa dagana. Þó hef ég frétt af góðri veiði í Norðurá sem er komin í um 500 laxa og af 22 punda laxi af aðalsvæðinu í Hítará. Þá hef ég frétt af því aö veiði sé að glæðast í Soginu," sagði Jón Gunn- ar Borgþórsson. -SK „ Égheld éggaagiheim“ Eftir einn -ei aki neinn ■” jlUJVEBOAB lí^g Tilkyimingar Tombóla Nýlega héldu þessar tvær stúlkur, sem heita Ingibjörg og Auður Arný, tombólu til styrktar Rauða krossi íslands. Alls söfhuðu þær 1.035 krónum. Tapað fundið Læða fannst á Brekkustíg Silfurpersalæða, hreinræktuð, fannst á Brekkustig sl. laugardag. Upplýsingar á Brekkustíg 10, Margrét, eða í vs. 36161. Hjól tekið og annað skilið eftir í Kópavogi Grátt og svart Mongoose fjallahjól var tekið frá Hlégerði 7 í Kópavogi og rautt Qallahjól skilið eftir aðfaranótt 19. júní sl. Upplýsingar í síma 43066. ________________________________Menning Háskólabíó: Veröld Waynes 2: ★★ Áfram með partfið! Wayne’s World er ein af skárri bandarískum gamanmyndum seinustu 2-3 ára (það segir meira um sorglegt ástand bandarískra gamanmynda núna en gæði hennar) og óvæntar vinsældir hennar á sínum tíma þýddu að ekki var komist hjá framhaldi. Wayne Campbell (Mike Myers) og Garth Algar (Dana Carvey) urðu þjóöhetjur á stundinni og híálpuöu til ásamt Billa og Tedda aö ryðja veg- inn fyrir nýja tegund af átrúnaðargoðum: unga, hvíta slæpingja úr milli- stétt sem búa í úthverfum og eru fórnarlömb poppmenningar (nýlegt af- brigði: Beavis & Butthead). Eftir fyrstu myndina náðu vinsældir Waynes og Garths hámarki og allir horfðu á þá vikulega í Saturday Night Live sjónvarpsþáttunum þang- að til aö menn voru búnir að fá of stóran skammt. Myers lét frægðina Kvikmyndir Gísli Einarsson stíga sér til höfuðs og hafði efni á að gerast óþolandi í umgengni og fram- leiöendurnir héldu að SNL-myndir yrðu sjálfkrafa að gulli þar til Conehe- ads með Dan Aykroyd skall (a.m.k. tvær aðrar SNL-tengdar myndir eru á teikniborðinu). Veröld Waynes tvö ber vott um stefnu- og hugmyndaleysi og það er veriö að troða of mikilh sögu í myndina. Wayne og Garth eru bestir þeg- ar þeir fá frið til að bulla saman eins og sést best í einu fyndnasta atriði myndarinnar þegar Wayne hvekkir Garth með því að þykjast vera kvik- myndaskrímsli. Söguþráður er nokkuð sem flækist bara fyrir þegar grín- istar ná upp svona eðlilegum og skemmtilegum persónum. Reyndar er ótrúlegt hvað Wayne og Garth þurfa að endurtaka margt sem þeir gerðu í fyrstu myndinni. Endurtekning er klassísk leið til að gera brandara en það virkar ekki hér því myndin sér ekki húmorinn í því aö láta Wayne og Garth sitja fasta í sömu sporum sem eilífðartáninga heldur vill ýta þeim áfram á hálli braut fullorðinna. Fálmkennd frumraun Garths í til- hugalífinu er að vísu sniðuglega framsett og fær hann að velja úr ekki ómerkari ljúfum en Kim Basinger og Oliviu D’Abo (óþekkjanleg sem kvenkyns-útgáfa af Garth). Minna er um sérameríska brandara í númer tvö en númer eitt, þ.e. brandara sem ekki er hægt aö skilja nema að hafa horft á mikið af banda- rísku auglýsingasjónvarpi (eins og Grey Poupon brandarann í númer eitt). Lymskar tilvísanir í aðrar bíómyndir eru á sínum stað og eru stund- um skemmtilega torræðar. T.d. hvað munu margir unghngar nú bera kennsl á stæhngu The Graduate sem er ein af augljósari tilvísununum? Þegar aht er tekið með í reikninginn stendur WW2 sig ekki illa sem framhaldsmynd, hún er aldrei leiðinleg og hægt að skeha vel upp -úr a.m.k. þrisvar! Wayne’s World 2 (band. 1993), 94 min. Handrit: Mike Myers, Bonnie & Terry Turner, byggt á persónum Myers. Leikstjórn: Stephen Surjik (Kids in the Hall, Road to Avonlea). Leikarar: Mlke Myers, Dana Carvey, Christopher Walken, Tia Carrere, Ralph Brown (Crying Game), James Hong, Kim Basinger, Chris Farley, Drew Barrymore, Olivia D’Abo, Aerosmith. Sviðsljós Fjölmenni var á afmælishátíð Kjöríss. DV-myndir Sigrún Hátíð 1 Hveragerði Það var mikil hátíð í Hveragerði 2. júh á 25 ára afmæh Kjöríss, eins stærsta fyrirtækisins þar. 30 manns vinna hjá því. Fiölmenni var á há- tíðahöldunum og meðal þeirra sem skemmtu voru Magnús Scheving, Rúnar Júhusson og Raddbandið^. Fólk fór í útsýnisflug yfir Hveragerði með þyrlu og nýttu sér það margir. Farið var um bæinn í gamalh hesta- kerru með smáfólkið og á öðrum stað ók torfærutröh yfir bha. Gamla hestakerran var vinsæl hjá smáfólkinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.