Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 17 j síðar kom nafn KR upp úr brúsanum. DV-Brynjar Gauti juKR smanna og Framara hafði Leiftur þá betur í miklum markal- eik. 1. deildar lið FH fékk verðugan mótherja þegar liðið dróst gegn Grind- víkingum en leikurinn fer fram syðra. Stjaman þarf að halda norður og etur þar kappi við KA. ÍBV leikur í Sæviðar- sundi gegn 2. deildar liði Þróttar og Þór mætir Víkingum í Stjömugrófmni. Þetta em leikir sem ómögulegt er að spá um hvemig fari. rí81iðaúrslitin: lleika besta“ )ið gegn Hollandi Það var engin pressa á leikmönnum liðs- ins fyrir þennan leik. Þeir vom komnir í 16 liða úrslitin, lengra en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Við skoðun á bandaríska liðinu kemur í ljós að það er skipað mörgum leikmönnum sem leika í Evrópu og það styrkir hðið til muna. Við vorum svolitla stund að átta okkur á aðstæðum eftir að hafa misst mann út af, en allan tímann var samt leiki til sigurs," sagði Carlos Alberto Parreira, þjálfari Brasilíu, eftir leikinn. Bora Múutinovic, þjálfari bandaríska liðsins, var miður sín að lið hans hafði verið slegið út úr keppninni en sagði þó að þrátt fyrir allt ættu leikmenn liösins lof skilið fyrir frammistöðu sína í keppn- inni. Bandaríkjamenn væm á réttri leið meö þróun knattspyrnunnar og ef áfram yrði haldið rétt á spöðum ættu Banda- ríkjamenn aö eiga nokkuð góða mögu- leika í næstu keppni. fþróttir Þjálfaraskipti hjá Keflvikingum í knattspymurmi: Ross strauk og Péturtókvið Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjuiru Þjálfaraskipti urðu hjá 1. deildar liði Keflvíkinga í knattspymu í gær. Pétur Pétursson, fyrrverandi landsliðsmaður, tók við af Ian Ross sem fyrirvaralaust sagði starfi sínu lausu um helgina og fór af landi brott. Gengið var frá ráðningu Pét- urs í gærkvöldi og stjómaði hann fyrstu æfingu hjá liðinu í gær. Ross keypti farseðil heim áður en hann tilkynnti forráðamönnum Keflvíkinga ákvörðun sína um að hætta. Hann fór einn síns liðs út á flugvöll og keypti miða heim án þess að láta nokkurn mann vita. Þetta er mjög undarleg framkoma Ross í garð Keflvíkinga; að hugsa aðeins um sjálfan sig en ekki hvemig liðinu reiði af við þjálfara- skiptin. Talið var að hann hefði fengið gott tilboð ytra en þegar stjómarmenn ÍBK gengu á hann neitaði hann að svo heðfi verið. „Hann sagði upp starfinu sjálfur. Menn voru mjög hissa yfir þessari ákvörðun hans. Við reyndum að tala hann til en það hafði ekkert segja. Hann var búinn að taka þessa ákvörðun um að hætta og hann var harður á því. Hann sagði að hann hefði ekki náð þeim ár- angri með liöiö sem hann hefði vonast eftir og væri betra fyrir hann og liðið að hann hætti og nýr maður tæki við,“ sagði Jóhannes Ellertsson, formaður knattspymu- ráös Keflavíkur, við DV í gær- kvöldi. „Það er ekki eingöngu Ross að kenna hvemig staða liðsins er. Meiðsl lykilmanna hafa spilað þama inn í. Við erum búnir að ráða Pétur Pétursson en við töldum hann vera besta kostinn í stöðunni og vonandi hjálpar hann okkur á sigurbrautina. Pétur var inni í myndinni þegar við réðum Ross fyrir þetta keppnistímabil," sagði Jóhannes. Keflvikingar era í 4. sæti Trópí- deildarinnar og fyrsti leikur liðsins undir stjórn Péturs verður á fimmtudagskvöld þegar Keflvík- ingar heimsækja íslands- og bikar- meistara Skagamanna. Sigurrós Einarsdóttir með syni sínum Ólafi Jóhanni og sonarsyni sfnum Heiðari Má. Strákarnir urðu báðir meistarar með liðum sínum. DV-mynd Ómar Garðarsson ÍR og HK gerðu markalaust jafntefli i bouislag 2. deildar karla í Mjóddinni í gær. HK sótti meira í fyrri hálfleik án þess að skapa sér afgerandi ; færi en framan íif síðari hálfleik vora Breiöhyltingar mun að- gangsharðaii. Besta færi ÍR-inga fékk Bragi Bjömsson þegar hann skallaði yfir mark HK af mark- teig. Síðustu 10 mínútur leiksins sótti HK nær látlaust og fékk tvö dauðafæri. Fyrst Hallsteinn Traustason og síðan Sigurður Öro Jónsson en skot þeirra geig- uðu bæöi og HK-menn hafa því aðeins skorað eitt max-k í 7 leikj- um. Staðan í 2. deildínni þegar 7 umferðum er lokið er þannig: Leiftur..... 7 6 0 1 19-7 18 Grindavik... 7 5 11 17-5 16 Þróttur R... 7 4 2 1 12-5 14 Fylkir...... 7 4 12 15-11 13 Víkingur.... 7 2 3 1 6-9 9 Seifoss..... 7 2 2 3 6-12 8 KA....... 7 2 0 5 9-10 6 ÞrótturN.... 7 1 2 4 7-13 5 ÍR.......... 7 1 2 4 5-15 5 HK.......... 7 115 1-10 4 Móðirin og amman fagnaði tveimur sigrum Þoisteinn Gunnaisson, DV, Eyjum: Sigurrós Einarsdóttir frá Hafnar- firði fagnaði tvöfóldum sigri á ellefta Shell-mód Týs sem lauk í fyrrakvöld. Sonur hennar, Óli Jóhann, varð Shell-mótsmeistari með A-liöi FH og sonarsontir hennar, Heiðar Már, varð Shell-mótsmeistari með C-liði FH. „Bæði liðin kepptu alltaf á sama tíma á mótinu þannig að ég varð allt- af að hlaupa á milli vallanna til að reyna að fylgjast með, hjá A-liðinu sem mamma en hjá B-liðinu sem amma. Ég var alveg búin að vera eftir hvern leik. Ég á þijá stráka sem allir hafa verið á kafi í fótbolta, þann- ig að mín ljölskylda gerir hara í því að ala upp fótboltastráka fyrir FH,“ sagði Sigurrós. FH-ingar vora með fjölmennasta hópinn í Eyjum á Shell-mótinu eða um 100 manns. Sigurrós sagði einnig að það færöist sífellt í vöxt að foreldr- ar fæm með börnum sínum á Shell- mót: ,;Þetta er búið að vera alveg stór- kostlegt ævintýri að fylgjast með_ mótinu. Ég hefði aldrei getað trúað' þessu. Það er í raun og vem ekki til orð yfir þá tilfinningu að horfa á son sinn og sonarson leika knattspymu við svona aðstæður þar sem leikgleð- in skín úr hveiju andliti. Þá hefur veðrið leikið við okkur og árangur FH er aldeilis frábær sem er þjálfar- antim fyrst og fremst að þakka,‘L sagði Sigurrós.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.