Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ1994
Neytendur
Rannsókn gerð á þjófheldni bifreiða:
Ein bifreið af 16
stóðstprófið
hægt að brjótast inn í sumar bifreiðamar á innan við tíu sekúndum
Tímisem tekurað
brjótast inn í bíl
Undir 10 sek.
Audi 100 2,0 E '94
Mazda 626 1,8, 16v. '94
Mitsubishi Galant GLSi '93
Renault 19 RT '94
Toyota Corolla 1,6 '94
10-29 sek.
Citroén Xantia 1.8i '94
Ford Escort CLX '94
Saab 9000 CS '94
Volvo 460 GL '94
Volvo 940 SE '94
VW Golf GL '94
30 sek.-2 mín.
Ford Mondeo '94
Opel Astra l,6i '94
Opel Omega '94-B
Saab 900S '94
Volvo 850 GLT '94
Tími sem tekur
að stela bfl
Undir 1,5 mín.
Audi 100 2,0 E '94
Ford Escort CLX '94
Ford Mondeo '94
Mazda 626 1,8, 16v. '94
Mitsubishi Galant GLSi '93
Saab 9000 CS '94
Toyota Corolla 1,6 '94
VW Golf GL '94
1,5-5 mín.
Renault 19 RT '94
Saab 900S '94
Opel Astra l,6i '94
Citroén Xantia 1.8i '94
Volvo 460 GL '94
Volvo 940 SE '94
Volvo 850 GLT '94
Meira enn 5 mín.
Opel Omega '94-B
DV
Könnunin sýnir að innan við tíu sekúndur tekur að brjótast inn í sumar bifreiðar.
„Þetta er alþekkt vandamál en ég
held þó aö framleiðendur bifreiða séu
að taka sig á í þessum efnum. Við
þekkjum minna af bílstuldum hér á
Islandi þar sem menn eru hreinlega
að ræna þeim til þess að breyta og
selja. Hér er þetta meira nytjastuldir
úr bílunum. Könnun af þessu tagi
hreyfir við framleiðendum og ég er
sannfærður um að á næstu árum
verðum við farin að sjá lykla í formi
krítarkorta með upplýsingum um
notendur hverrar bifreiðar," sagði
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, aðspurður út í rannsókn sem
gerð hefur verið um þjófheldni nýrra
bifreiða.
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýna að aðeins ein gerð bifreiða
stóðst próf af þessu tagi en engin stóð
undir væntingum um innbrotsvarn-
ir. Hægt var að brjótast inn í bifreið-
amar á innan við tveimur mínútum.
Fimm stóðust slíkt áhlaup ekki einu
sinni í tíu sekúndur.
Miðað við staðla sem settir hafa
verið af tryggingarfélögum í Sviþjóð,
í samvinnu við bresku staðlastofn-
unina, BSI, á ekki að vera hægt að
bijótast inn í bíl á skemmri tíma en
tveimur mínútum og fimm mínútur
á að þurfa til þess að stela honum.
Aðeins Opel Omega stóðst síðar-
nefnda prófið en engin það fyrr-
nefnda. Dæmi eru um að hægt hafi
verið að brjótast inn og aka á brott
á einni og hálfri mínútu. Af þeim 16
bílum sem prófaðir voru var hægt
að brjótast inn í 14 án sýnilegra
skemmda.
Tíu þúsund fyrir vörn
Umrædd könnun var gerð á vegum
netendastofnana, yfirvalda, trygg-
ingarfélaga og félaga bifreiðaeigenda
í Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Finn-
landi, Belgíu og Portúgal og náði til
16 bifreiöategunda af árgerð 1993 og
1994.
Með litlum tilkostnaði má auka
miög á vamir gegn þjófnuðum en
spara mætti neytendum verulegar
fjárhæðir á móti. Athugun sem
sænska neytendastofnunin gerði
1991 bendir til þess að neytendur séu
reiðubúnir að borga u.þ.b. tíu þús-
und krómun meira fyrir bifreið sé
hún búin góðri vöm gegn innbrots-
og bílaþjófum.
sem veitir henni 30 þúsund króna
matarúttekt i Bónusi.
DV-mynd ÞÖK
Vinningshafi DV:
„Almáttugur, ertuaðsegjasatt?
Ég er bara rík manneskja," sagði
Barbara Ósk Ólafsdóttir, skrif-
stofumaður í Húsgagnahöllinni í
Reykjavík, þegar DV tilkynnti
henni að hún hefði unnið sér inn
30 þúsund króna matarúttekt í
Bónusi.
„Þetta er alveg meiri háttar. Ég
var einmitt að segja í gær að ég
vissi ekki af hverju ég væri að
kaupa mér happdrættismiða, ég
ynni aldrei," sagði Barbara sem
er með fimm manna fjölskyldu.
Hún hefur veriö áskriiándi
blaðsins öðru hverju í tíu ár og
sagöist lesa DV spjaldanna á milli
þegar þannig lægi á henni. Sex
skuldlausir áskrifendur verða .
dregnir út í lok júni og hlýtur
hver þeirra 30 þúsunda króna
vömúttekt í 10-11. Allir áskrif-
endur DV, gamlir og nýir, eru
sjálfkrafa með í pottinum.
Sérfræðingarnir fjórir ásamt Baldvinl Jónssyni, starfsmanni Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins. F.v., Mel Cole-
man yngri, aðstoðarforstjóri Coleman Natural Meat Inc., Baldvin, Thomas B. Harding, forseti IFOAM, Carl Haest
markaðsráðgjafi og Mel Coleman, stofnandi og stjórnarformaöur Coleman Natural Meat Inc.
DV-mynd BG
Fjórir sérfræðingar heimsækja ísland:
ísland gæti
orðið leið-
andi í líf-
rænni ræktun
„íslendingar gætu auðveldlega
orðið leiðandi í heiminum hvað varð-
ar framleiðslu á lífrænt ræktuðu
nautakjöti, lambakjöti og fiskafurð-
um. Þeir gætu hæglega skapað sér
nafn á þessu sviði og hafið útflutning
á slíkum vörum til Bandaríkjanna,
Evrópu og víöar. Nú þegar líta
Bandaríkjamenn til íslands sem
„hreina landsins" og íslenskir bænd-
ur hafa að sama skapi gott forskot á
aöra framleiðendur hvað varöar legu
landsins, hreina loftið og htla sem
enga notkun eiturefna við fram-
leiðsluna," sagöi Mel Coleman yngri,
aðstoðarforstjóri Colemans Natural
Meat Inc., en hann er einn fjögurra
sérfræöinga á hinum alþjóðlega líf-
ræna matvælamarkaði sem nú eru
staddir hér á landi á vegum Upplýs-
ingaþjónustu landbúnaöarins. Til-
gangur heimsóknarinnar er að
kanna möguleika íslendinga á út-
flutningi landbúnaðarafurða á for-
sendum hollustu, hreinleika og
gæða.
Aðspurður sagöi hann smæð lands-
ins ekki skipta neinu máli í þessu
sambandi, þeir væru hér til að ráð-
leggja íslenskum bændum hvemig
koma mætti þessum vörum á mark-
að erlendis og einnig hvaöa reglum
þarf að fara eftir til þess að fram-
leiðslan teljist lífræn. Nú þegar liggja
fyrir drög að nýrri reglugerð hvað
varðar lífræna ræktun hér á landi
og telja sérfræðingamir aö hún taki
gildi á þessu ári.