Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 7 Fréttir Bjöm Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambandsins, um komandi kjarasamninga: Ekki þjóðarsáttarsamn- ingar án kauphækkana tel hæpið að um samflot verkalýðsfélaga verði að ræða „Miðað við það hljóð sem ég heyrði í mönnum á sambandsstjómarfimd- inum hjá okkur á dögunum hef ég ekki trú á því að um samflot verka- lýðsfélaga verði að ræða við gerð nýrra kjarasamninga um áramót. Menn benda á nauösyn þess fyrir hin ýmsu verkalýðsfélög að skoða sín sérmál. Þau hafa setið á hakanum í samningum síðustu ára. Ég get nefnt sem dæmi að kauptryggingarsamn- ingar í fiskvinnslunni eru í upp- námi. Það mál þarf að leysa og þann- ig er ástatt með ýmis fleiri mál,“ sagði Bjöm Grétar Sveinsson, for- maður Verkamannasambands ís- lands. Bjöm var spurður hvort hann teldi að ofan á yrði að gera enn eina þjóð- arsáttarsamninga eða hvort verka- lýðsfélögin myndu krefjast kaup- hækkana fyrir sitt fólk? „Ég hef enga trú á þvi að gerðir verði þjóðarsáttarsamningar án launahækkana. Það sjá allir að með samdrætti í vinnu og á vinnutíma hefur fólk ekki lengur laun til að framfleyta sér. Auövitað má segja að það sé hægt að auka kaupmátt með ýmsum leiðum. En það verður ský- laus krafa verkalýðsfélaga að kaup- máttur verði aukinn í næstu kjara- samningum. Maður finnur fyrir vax- andi þunga hjá verkafólki með það. í raun þarf enginn að vera hissa á því, ekki síst í ljósi þess launaskriðs sem orðið hefur hjá ákveðnum hóp- um í þjóðfélaginu. Að minum dómi er það launaskrið óumdeilt og breyta þar engu um einhverjir orðaleikir ráðamanna um hvað gerst hefur,“ sagði Bjöm Grétar. Hann sagði að á sambandsstjórnar- fundi VMSÍ á dögunum hefði verið ákveðið að kalia saman formanna- fund í október. Þar yrðu línur endan- lega lagðar hjá verkamannasam- bandsfélögunum fyrir kjarasamn- ingagerðina um áramót. Svartur frá Unalæk: Er einn stórbrotn- asti hestur sem ég hef kynnst - segir tamningamaöurinn og knapinn „Þetta er einn sá viijugasti og stór- brotnasti hestur sem ég hef kynnst," segir Þórður Þorgeirsson, tamninga- maður og knapi um Svart frá Una- læk, sem varð næstefstur í flokki sex vetra stóðhesta á landsmóti hesta- manna. Athygli vakti að Svartur hélt alitaf ró sinni þrátt fyrir að hann væri sýndur þrisvar á dag þrjá daga í röð. „Hann fylgdi bæði móður sinni, Fiðlu frá Snartarstöðum í Borgarfirði, til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi og föður sínum, Kjarval frá Sauðár- króki, til heiðursverðlauna fyrir af- kvæmi. Hesturinn sló aldrei af og varð jafnvel betri þegar á leiö. Það er mjög óvenjulegt af svo ungum fola,“ segir Þórður. Svartur er alinn upp í stóðhesta- stöðinni í Gunnarsholti þar sem Þórður kynntist honum. Eigandi Svarts, Oddur Bjömsson, segir hest- inn eiginlega vera sköpunarverk Þórðar. „Ég byijaði að temja hann fjögurra vetra. Þegar ég flutti mig um set til Kirkjubæjar fylgdi Svartur mér að ráðum Odds,“ greinir Þórður frá. Svartur frá Unalæk fékk 8,54 í aöal- einkunn og 10 fyrir skeið á landsmót- inu. Efstur í flokki sex vetra stóð- hesta var Gustur frá Hóh með 8,57 í aöaleinkunn. Stóðhesturinn Orri frá Þúfu stóð efstur í B-flokki gæðinga á landsmótinu á Hellu. Knapi er Gunnar Arnarson. Einnig var Orri sýndur sem afkvæmi föðursínssemerOtrusfráSauðárkróki. DV-myndEJ Dalvar frá Hrappsstöðum stóð efstur í A-flokki gæðinga á landsmótinu á Hellu. Knapi var eigandinn, Daniel Jóns- son. Það eru mikil átök i skeiðinu og öðru hverju ná knapi og hestur á flug. DV-mynd E.J. Dalvar frá Hra&isstööum í Dölum: „Hestaleigirtruntan0 stóð efst í A-f lokki gæðinga - hestuiinn var keyptur fyrir fermingarpeninga Fyrir tveimur árum keypti Daníel Jónsson knapi hestaleigutruntu eins og það hefur verið orðað. Um helgina sigraði hestur Daníels, Dalvar frá Hrafnsstöðum í Dölum, í A-flokki gæðinga á landsmóti hestamanna. „Ég sá strax eitthvað við hestinn. Hann er með mikla skapgerð og það þurfti bara að sinna honum. Þegar ég fór að gera eitthvað fyrir hann fór hann líka aö gera hluti fyrir mig. Við erum miklir vinir. Hann er engin trunta lengur," segir Daníel sem kveðst hafa notið góðrar aðstoðar Jóns og Bergs á Ketilsstöðum á Völl- um við tamninguna fyrsta árið. Það var fyrir fermingarpeningana sína sem Daníel, sem er 18 ára, keypti Dalvar. Fjölskylda Daníels er á kafi í hestamennsku og sjálfur hefur hann átt samtals um tíu hesta. Daní- el hefur keppt síðan hann var fimm ára og nokkrum sinnum orðið ís- landsmeistari og Reykjavíkurmeist- ari en aldrei sigrað á landsmóti áður. Sama ár og Daníel eignaðist Dalvar varð hann annar í tölti á móti í Reið- höllinni. Á hvítasunnukappreiðun- um nú í vor var Dalvar í öðru sæti en Gýmir frá Vindheimum í fyrsta. Eftir forkeppnina á landsmótinu núna var staöan sú sama. „Þetta var skemmtilegt mót en leiðinlegur end- ir. Það var hræðilegt slys að Gýmir skyldi fótbrotna," segir Daníel. Undanfarin tvö ár hefur Daníel unnið við tamningu og í vetur starf- aði hann sjálfstætt í Reykjavík. „Ég býst við að þetta verði ævistarfið ef ég fæ nóg að gera. Það er gaman að vinna með skynsömum skepnum." Rússneska flugvélin: Nýi hreyf illinn skemmdur Ægir Már Kárasan, DV, Suðuxnesjum: Það ætlar að reynast erfitt aö koma rússnesku Boeing 727-100 flugvélinni í loftið en hún er búin að vera á Kefla- víkurflugvelli í rúma fjóra mánuði. Flugvirkar Flugleiða fundu skemmd'í nýja hreyflinum, sem búið var að setja í vélina, og er hann því ekki flughæfur eftir prófanir. Annar hreyfill var þegar pantaður og er á leið til landsins. Það verður því ein- hver bið á að flugvélin komist á loft. Flugvirkjar Flugleiða hafa unnið hörðum höndiun undanfama daga að viðgerð á rússnesku flugvélinni. 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.