Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Qupperneq 8
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 Stuttarfréttir Utlönd Mmsx Uih DOfg Suður-Jeraenar segjast enn ráða borginni Mukalla sem norð- anmenn sögðust haí'a tekið í gær. SkjáHtidrepurtvo Tveir fórust í snörpum jarð- skjálfta á Kyrrahafsströnd Suð- ur-Mexíkó í gær. Aristide á ntóti ínnrás Jean-Bertr- and Aristide, útlægur forseti Haítí, ítrekaði í gær andstöðu sína við innrás Bandarikjanna í landiö til að koma honum aftur á forsetastólinn. Flóttamenn drukkna Rúmlega eitt hundrað flótta- menn frá Haítí drukknuðu þegar bát þeirra hvolfdi. Skæruliðar réðust á ísraelskar herbúöir í suðurhluta Líbanons og tsraelskar þotur svöruöu í sömu mynt. Indíánar i Nikaragva hafa slepþt eínum af fjórum amerísk- um sjómönnum sem þeir rændu um helgina. Nýfnðaráætiun Vestrænir og rússneskir erind- rekar ætia að Ieggja nýja friðar- áætiun fyrir deiluaðiia í Bosníu. Heimsstyrjöld í nánd Andrej Koz- yrev, utanrík- |í isráðhcrra Rússlands, sagði að klofn- ingur milli Rússa og vest- urveldanna ftögurra sem reyna að miðla málum i Bosníu gæti leitt til þriðju heimsstyijald- arinnar. Kroppandýpkar Efnahagskreppan í Venesúela fer versnandL Vatnsskortur verður áfram i Havana, höfúðborg Kúbu, í þess- ari viku. Spáir endalokum ófridar . Lögreglustjórinn á Norður- írlandi spáði í gær að skæruiiða- starfsemi þar yrði hætt innan þriggja ára. SkógareidaráSpáni Átta manns létu lifið í skógar- eldum sem geisuðu um austur- hluta Spánar í gær. Hundruð manna urðu að flýja heiroiii sín. Enpin viðurkenning Bill Clinton sagði að Bandaríkin mundu ekki viöurkenna neinar tilraun- irRússaífram- tiðinni til þess að seilast til áhrifa í fyrrum kommúnistaríkj- um Austur-Evrópu. Vendipunktur Saksóknarar og verjendur í máli ruðningskappans O.J. Simp- sons telja að nú sé komið að vendipunkti í morðmálínu. Abiolafyrirrétt Herstjórnin í Nigeríu lætur lík- lega stjómmálamannínn Abiola, sem sigraöi i nýafstöðnum kosn- ingum er voru ógiltar, koma fyrir rétt á morgun. Keutcr Yasser Arafat kom til Jeríkó í morgun: Við berjumst áfram fyrir sjálfstæðu ríki Yasser Arafat ávarpaði Palestínu- menn á Vesturbakkanum í fyrsta sinn í áraraðir í morgun og hét því að berjast fyrir sjálfstæðu ríki Palest- ínumanna með Jerúsalem sem höf- uðborg. „Baráttan verður að halda áfram og viö veröum að leggja á okkur aukna vinnu þar til við setjum á stofn sjálfstætt ríki með Jerúsalem sem höfuðborg," sagöi Arafat í ræðu sinni, samkvæmt þýðingu á banda- rísku sjónvarpsstöðinni CNN. „Með guðs vilja munum við öll biöj- ast fyrir í Jerúsalem," sagði hann við nokkur þúsund manns sem tóku á móti honum við komuna til heima- stjórnarsvæðisins í Jeríkó í morgun. Arafat kom þangað með þyrlu frá Gazasvæðinu. ísraelsk þyrla sveimaði yfir höfð- um manna þegar Arafat skiptist á kveðjum við þá sem eiga að fara með stjórn á heimastjómarsvæðunum á Gaza og í Jeríkó. Stjórnendurnir sveija embættiseiða sína síðar í dag. Manníjöldinn sem tók á móti Ara- fat braut sér leið gegnum girðingu og klifraði upp á mndavélapalla til þess að sjá betur leiðtogann sem fæstir höfðu nokkurn tíma augum Utið. Lúðrasveit marséraði framhjá ræðupallinum í fylgd ungra pilta sem héldu á myndum af Arafat og Abu Yasser Arafat, leiðtogi PLO. Símamynd Reuter Jihad, hernaðarleiðtoga PLO sem var myrtur í Túnis árið 1988. Flestir telja að ísraelsmenn hafi staðið fyrir morðinu. ísraelskir landnemar komu í veg fyrir að þúsundir Palestínumanna kæmust til Jeríkó en landnemarnir eru andvígir friðarsamningi ísraels og PLO sem leiddi til stofnunar heimastj órnarsvæðanna. „Það að maður sér hermennina og landnemana á veginum sýnir vand- ann í hnotskurn," sagði Hanan As- hrawi, fyrrum talsmaður samninga- nefndar Palestínumann, þar sem hún beið eftir þyrlu Arafats í morgun. Reuter nr«OLfimrS NEWIIFE Fíammetía Rmo Saksóknarar sleppa föngum fyrir mútufé Saksóknarar í Póllandi láta múta sér til að sleppa fóngum lausum. Vikubiaðið The Warsaw Voice grein- ir frá því að í bænum Pruszkow hafi mafíuföringinn á staðnum verið lát- inn laus eftir að systir hans greiddi saksóknaranum dágóða upphæð. í bænum Garwolin hefur sjálfur sak- sóknarinn nú verið ákærður. Hann er sakaður um að hafa tekið við pen- ingagreiðslu frá fjölskyldu fanga gegn því að láta hann lausan. I Gdansk hefur bílamafían haft tvo lögreglumenn í fullri vinnu hjá sér. Lögreglumennirnir flettu upp eig- endum bíla sem tryggingarnar voru aö renna út hjá og greindu mafíunni frá þeim. Mafían stal síðan bílunum og bauð eigendunum bílana aftur gegn fundarlaunum. Handrukkarar í Gdynia hótuðu að slíta handlegg af litilli dóttur manns sem skuldaði fé. Skuldarinn kærði til lögreglunnar og var kæran tekin upp á segulband. Stuttu seinna fékk viðkomandi snælduna senda með skilaboðunum: „Þú grefur þína eigin gröf. Mundu að þú átt böm...“ Uppreisnarmenn í Rúanda taka höfuðborgina: Ætla að halda stór- sókn sinni áf ram * » V* m\ iusr tOLR mz $7 milue>n-a-year spfrmöbfl by Calby R«rn Það er engin önnur en (yrirsætan Sindy Crawford sem prýöir forsíðu ágúst- heftis timaritsins Vanity Fair. Viðtal er við Sindy í tímaritinu þar sem hún greinir frá sambandi sinu og kvikmyndaleikarans fræga, Richards Gere. Sögusagnir hafa verið á kreiki um að samband þeirra sé að fara út um þúfur en hingað til hafa þau vísað öllu sliku á bug. Símamynd Reuter Hætta er tahn á að til átaka komi milli uppreisnarmanna í Rúanda og franskra hersveita eftir að frönsk yfirvöld fyrirskipuðu hermönnum sínum að veija land það sem þeir hafa á vaidi sínu og uppreisnarmenn í Ættjarðarfylkingu Rúanda, RPF, hétu því að halda stórsókn sinni áfram. Þeir náöu höfuðborginni Kig- ali á sitt vald í gær. Franskir embættismenn sögðu aft- ur á móti að þeir teldu að uppreisnar- menn mundu virða „griðasvæði" þeirra sem í raun virkar sem stuð- púði til verftdar ríkisstjóm hútú- manna í vesturhluta Rúanda. Jacques Lanxade aðmíráli, formað- ur franska herráðsins, sagði að Frakkar heíðu ekki átt annars úr- kosti en að lýsa yfir sérstöku „griða- svæði“ til að geta stundað hjálparað- gerðir sínar. Frakkar gerðu það í gær án þess að bíða eftir samþykki Ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna, nokkuð sem þeir höfðu áður sagt að væri nauðsynlegt. Theogene Rudasingwa, aðalritari RPF, sagði að uppreisnarmenn sem eru að mestu af tútsí-ættbálkinum mundu halda áfram að leggja undir sig eins mikið land og gerlegt væri til að bjarga mannslífum. Um hálf milljón manna hefur verið myrt í vargöldinni í Rúanda á undanfórn- um vikum, aðallega tútsí-menn. Reuter Leitin að forseta framkvæmdastjómar ESB: Gonzalez og Amato líklegastir Fehpe Gonzalez, forsætisráðherra Spánar, og Giuliano Amato, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, þykja líkleg- astir kandídatar í embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins um þessar mundir að því er stjómarerindrekar segja. Hálfgerð kreppa hefur ríkt innan ESB frá því Bretar komu í veg fyrir það meö neitunarvaldi sínu að Jean- Luc Dehaene, forsætisráðherra Belg- íu, yrði kjörinn eftirmaður Jacques Delors á leiðtogafundinum á grísku eyjunni Korfú í síðasta mánuði. Fjölmörgum nöfnum hefur verið haldið á lofti frá því fundinum lauk en svo virðist sem þeim hafi fækkað verulega eftir fundahöld háttsettra embættismanna að undanfómu. Stjórnarerindrekar sögðu aö marg- ar þjóðir væm hlynntari Gonzalezi sem málamiðlun. Hann hefur hins vegar gefið það skýrt til kynna að hann vilji ekki fara frá Madríd á meðan stjórn hans á í vök að veijast vegna spillingarmála og annarra erf- iðleika. Ef ekki tekst að telja Gonzalez hug- hvarf þykir Amato vera líklegastur til að hreppa hnossið. „Mörg lönd telja að starfandi for- sætisráðherra eigi að fá starfið og menn gera sér enn vonir um að Gonzalezi snúist hugur," sagði einn Hart er lagt að Felipe Gonzalez að verða forseti ESB. Simamynd Reuter sendimaður innan ESB. „Ef ekki er Amato sá sem margir vilja í staðinn." Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, hefur verið á ferð um höfuðborgir aðfidarlanda ESB að undanförnu til þess að reyna að koma á samkomuiagi manna í milli fyrir aukaleiðtogafundinn í Brussel 15. júlí. Þjóðveijar fara með fomstu í ESB nú. Gonzalez og Amato em báðir sós- íahstar en Bretar seija sig ekki upp á móti þeim þar sem þeir stóðu báðir að erfiðum efnahagslegum umbót- um. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.