Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 11 Sviðsljós í hiingiðu helgarinnar Þær Maggý og Tóta voru ánægöar með lífið og höfðu þaö svakalega nota- legt í teppinu sínu en þær voru á Woodstock á Höskuldarvöllum. Hann Sigurbjörn Helgason, meðUmur í FombUaklúbbi íslands, var í Árbæj- arsafninu á sunnudag og sýndi þar glæsikermna sína, Packard CUpper árg. 55, sem hann keypti þegar hann var 17 ára af frænda sínum, Þorbirni í Kjöt- búðinni Borg, sem hafði átt bUinn frá upphafi. Pétur Kristjánsson, Ólafur Eyjólfsson, Helga Kjartansdóttir ogGuðrún Guðmundsdóttir voru heiðruð á Fáskrúðsfirði í tUefni sjómannadagsins. Þau eru á myndinni ásamt séra Þorleifi Kristmundssyni, prófasti á Kolfrey- justað, sem prédikaði á hátíðarmessu í Fáskrúðsfjarðarkirkju. DV-mynd Ægir Kristinsson, Fáskrúðsfirði Alheimstrúbador á Flateyri Siggi Björns skemmtir i Vagninum. DV-mynd Guðmundur Sigurðsson Sigurður Bjömsson alheims- trúbador tróð upp í Vagninum á Flateyri um sjómannadagshelgina við góðar viðtökur og var íjör og stemning fram undir morgun. Siggi Bjöms hefur með fáum undantekn- ingum skemmt Flateyringum þessa helgi síðustu 20 árin, ýmist einn með gítarinn eða með hijóm- sveitum, og þykir koma Sigga ómissandi þáttur í sjómannadags- haldinu á Flateyri. Siggi sagðist vera búinn að spila fyrir fólk í fjölmörgum löndum í 5 heimsálfum á síðustu árum. Nú hggur leiðin til Danmerkur þar sem hann hefur bókað sig fram á sumar. ________________________Menning Draumur eins, vökulíf annars Ingvar Agnarsson hefur um árabil verið í forystusveit Félags Nýals- sinna. Hann er ritstjóri tímaritsins Lífgeislar sem félagið gefur út. í inngangsorðum bókarinnar segir hann: „Frá unglmgsánun, er ég las með athygh Nýalsrit Dr. Helga Pjeturss, hef ég haft þann skilning á draumum að þeir séu sambands- eðhs, og eingöngu á þann veg, þ.e. að draumreynsla sofandi manns, sé aldrei hans eigin reynsla, heldur ævinlega vökureynsla annars manns, sem samband hefur fengist við á meðan á draumi stóð, og geti þessi annar verið ýmist fjær eða nær. En þessi skilningur er m.a. sá, að þessi fjarlægi sambandsvin- ur sé oftast nær einhver íbúi jarð- stjömu í fjarlægðum geimsins." Ingvar hefur framkvæmt athug- anir á kenningum um eðh og ein- kenni drauma. Á bókarkápu segir: „Hann hefur skráð drauma sína, oftast undireins og hann vaknaði, og er þetta orðið að miklu safni. Vinnubrögð hans eru vönduð, málfar hans skýrt og efnið fjöl- breytt. Þegar draumur hefur verið skráður, vaknar spumingin um ghdi hans og hvaða skýringar komi til greina. Við hvern draum hefur Ingvar ritað skýringar sínar, og byggir hann þær á kenningum um fjarhrifaeðli drauma. Einnig em í safninu ahmörg dæmi um draum- sýnir, sem svara th útsýnis frá öðr- um hnöttum himingeimsins." Th þess að geta rannsakað drauma verða menn að rifja þá upp strax að draumi loknum og helst að rita þá niður. Sálfræðingar hafa sett fram þá kenningu, að draumar eigi sér fyrst og fremst orsök og upphaf í mann- inum sjálfum, í undirmeðvitund- inni. Dr. Helgi Pjeturss komst að Bókmenntir Guðm. G. Þórarinsson þeirri niðurstöðu að draumskynj- un sé svipaðs eðhs og vökuskynjun. Þekkt er dæmi hans um hestinn. Horfi maður á hest út um glugga, sér maður hestinn, mynd hans. Augað framkahar áhrifm, mynd- ina í heilanum. En setjist maður í stól og hugsi um hest, er hugtakið hestur í meðvitundinni, minningin um ht, stærð, vaxtarlag, en myndin er ekki th staðar. En sofni maður í stólnum og dreymi hest, breytist skynjunin, hann sér hestinn, hann getur jafnvel fundið lykt af honum. Að dreyma gang er eins og að vera á gangi. Ingvar er trúr kenningu Helga og kenning hans er einfaldlega sú að draumur sé atburður sem sé að gerast í lífi annars. Þannig er kenn- ingin um fjarhrif hugsanasam- band, telepatí eitt af undirstöðuatr- iðum Nýalanna. Sérhver draumur er þannig atburður sem er að ger- ast. Forsendur kenninga dr. Helga mætti ef th vih telja þijú meginatr- iði: 1) Fjarhrif sem berast með líf- geislum 2) Alhraði lífgeislaboðanna 3) Líf á öðrum stjömum Bók Ingvars Agnarssonar, Furðuheimar draumanna, er for- vitnheg fyrir þá sem áhuga hafa á kenningum Nýalanna um drauma. Hún er safn drauma ásamt skýr- ingum eins af forvigismönnum Nýalssinna á þeim. Bókina prýða margar myndir og teikningar. Furðuheimar draumanna. Höfundur: Ingvar Agnarsson Útgefandi: Skákprent 224 bls. 2m SVARTISVANURINN Laugðvegi 118 Nætursala um helgar Hamborgaratilboð Ostborgari lítill franskar Vt I kókdós kr. 350 w ÞVOTTAVÉL AV 637 TX Tekur 5 kg. 16 þvottakerfi Stiglaus hitastillir Tromla og belgur úr ryöfríu stáli. KR. 47.300,- KÆLISKÁPUR RF 270 B Kælir: 190 lítrar Frystir: 80 lítrar Hæö: 149 cm Breidd: 55 cm Dýpt: 60. cm Heimilistæki f fullri breidd Ty 1/ I verslunum BYKO og Byggt og búið bjóðast stór og smá heimilistæki á hagstæðu verði. kæliskApur DF 230 S Kælir: 185 lítrar Frystir: 45 lítrar Hæö: 139 cm Breidd: 55 cm Dýpt: 59 cm Skiptiborö 41000, 641919 mmm m w Hólf og gólf, afgreiösla 641919 CltHllliBiMHil'HllillHilHliMilUlH Almenn afgreiösla 54411, 52870 cmniWimirnrniH-BifrinH'iiiÞ Almenn afgreiösla 629400 UPPÞVOTTAVÉL LS 601 Tekur 12 manna stell 6 þvottakerfi Hraöþvottakerfi - 22 mín. KR. 59.700,- ARISTON éásnto Falleg, sterk og vönduð ftölsk heimilistæki cnsnsaa Grænt símanúmer BYKO Almenn afgreiösla 689400, 689403 Grænt númer 996410 I K R N G L U N N I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.