Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Page 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ1994
Fólk í fréttum
Jafet S. Ólafsson
Jafet Sigurður Ólafsson, útibús-
stjóri íslandsbanka við Lækjargötu,
til heimiiis að Langagerði 26,
Reykjavík, hefur verið ráðinn út-
varps- og sjónvarpsstjóri Stöðvar 2
ogBylgjunnar.
Starfsferili
Jafet fæddist í Reykjavík 29.4.1951
og ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
pröfi frá VÍ1973 og viðskiptafræði-
próflfráHÍ 1977.
Hann starfaði hjá Æskulýðsráði
Reykjavíkur 1974-77, hjá Loðnu-
nefnd hluta úr ári 1976 og 1977, varð
fulltrúi hjá iðnaðarráðuneytinu
1977 og deildarstjóri þar 1979, for-
stöðumaður fatadeildar verslunar-
deildar SÍS frá 1984, starfaði fyrir
Þróunarfélag íslands frá 1986 og
hefur verið útibússtjóri Iðnaðar-
bankans og síðar íslandsbanka frá
1988.
Jafet sat í stjórn Félags viðskipta-
fræðinema 1974-75, var skipaöur
endurskoðandi Iðnlánasjóðs 1979,
hefur setið í stjórn Steinullarverk-
smiðjunnar hf., í stjóm Þörunga-
vinnslunnar hf. 1982-84, var vara-
formaður Vals um skeið, í stjóm
badmintondeildar Vals, formaður
landshðsnefndar í badminton
1979-83, varamaður í stjóm BHM,
aðalmaður í framkvæmdastjóm
BHM og í orlofsnefnd BHM auk þess
sem hann hefur setið ífjölda opin-
berranefnda.
Fjölskylda
Jafet kvæntist 15.6.1975 Hildi Her-
móðsdóttur, f. 25.7.1950, kennara,
BA frá HÍ og ritstjóra hjá Máli og
menningu. Hún er dóttir Hermóðs
Guðmundssonar, b. í Ámesi í Að-
aldal, og Jóhönnu Álfheiðar Stein-
grímsdóttur, húsfreyju þar.
Böm Jafets og Hildar era Jóhanna
Sigurborg, f. 12.3.1975, nemi; Ari
Hermóður, f. 16.4.1982, og Sigríður
Þóra,f. 20.1.1991.
Bróðir Jafets er Magnús Olafsson,
f. 1944, forstjóri Emmess-ísgerðar-
innar, kvæntur Eddu Ámadóttur
hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvö
börn.
Foreldrar Jafets vora Ólafur
Magnús Magnússon, f. 22.9.1920, d.
18.6.1991, húsgagnasmíðameistari
og bankastarfsmaður í Reykjavík,
og Sigríður Jafetsdóttir, f. 5.11.1916,
d. 27.12.1980, húsmóðir.
Ætt
Ólafur Magnús var bróðir Jóns,
föður Bjama listmálara. Ólafur var
sonur Magnúsar, b. í Ási í Stykkis-
hólmi, Jónssonar, hreppstjóra í
Stykkishólmi, bróður Kristínar,
móður Magnúsar Jónssonar, spari-
sjóðsstjóra í Borgamesi, föður
Hjartar lögskráningarstjóra, föður
Jóhanns stórmeistara, en systir
Hjartar er Sesselja, móðir Magnús-
ar Hreggviðssonar hjá Frjálsu fram-
taki. Jón var sonur Magnúsar, b. á
Amarbæli á Fellsströnd, Magnús-
sonar, og Guðrúnar Jónsdóttur frá
Ásgarði, systur Sigurðar, langafa
Bjöms Hermannssonar tollstjóra.
Móðir Ólafs var Valgerður, dóttir
Kristjáns, b. í Grannasundsnesi í
Stykkishólmi, og Sigurborgar, syst-
ur Valgerðar, móður Lára sem Þór-
bergur skrifaði bréfln en bróðir
Lára var Ragnar konsúll, afi Gunn-
ars Ragnars hjá Shppnum á Akur-
eyri og langafi Kjartans Magnús-
sonar, formanns HeimdaUar. Val-
gerður var einnig móðir Péturs, for-
stjóra Síldareinkasölu ríkisins, og
Jóns, föður Höskuldar, aðalbókara
Landsbankans. Bróðir Sigurborgar
var Valentínus, langafi Erlu, móður
Þórunnar Valdimarsdóttur sagn-
fræðings. Sigurborgvar dóttir
Narfa, hreppstjóra á Kóngsbakka
Þorleifssonar og Valgerðar Einars-
dóttur.
Sigríður var dóttir Jafets, skip-
stjóra í Reykjavík, bróður Nikkól-
Jafet Sigurður Ólafsson.
ínu Hildar, móður Guðna, rektors
MR, föður Ólafs þýðanda, en bróðir
Jafets var Sigurður í Þorsteinsbúð,
faðir Sigurðar, fyrrv. íþróttafrétta-
manns. Jafet var sonur Sigurðar,
útvegsb. í Seh, Einarssonar, b. í
Bollagörðum, bróður Guðmundar í
Nesi, af Bollagarðaætt. Móðir Jafets
var Sigríður Jafetsdóttir, b. í Pálsbæ
á Seltjamamesi, bróður Ingibjarg-
ar, konu Jóns forseta. Jafet var son-
ur Einars, kaupmanns í Reykjavík,
Jónssonar, bróður Sigurðar, prests
á Rafnseyri, föður Jóns forseta.
Móðir Sigríðar var Guðrún Krist-
insdóttir.
Afmæli
Guðjón A. Kristjánsson
Guðjón Amar Kristjánsson, skip-
stjóri og forseti Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands, Engjavegi
28, ísafirði, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Guðjón fæddist á ísafirði og ólst
þar upp. Hann stundaði gagnfræða-
skólanám á ísafirði, lauk hinu
minna fiskimannaprófi á ísafirði
1965 og fiskimannaprófi hinu meira
við Sjómannaskólann í Reykjavík
1966.
Guðjón stundaði ungur fisk-
vinnslustörf og vann hjá Rafveitu
ísafjarðar en hefur að mestu stund-
að sjómennsku frá fimmtán ára
aldri á bátum og toguram frá
ísafirði og Hnífsdal. Hann hefur
stundað ahar veiðar, verið háseti,
vélstjóri, matsveinn og stýrimaður
en skipstjóri eftir 1968.
Guðjón varð formaður Skipstjóra-
og stýrimannafélagsins Bylgjunnar
1975, var kosinn í stjórn Farmanna-
og fiskimannasambandsins 1979 og
varð forseti þess 1983. Hann hefur
setið í stjóm Fiskveiðasjóðs, í Verð-
lagsráði sjávarútvegsins, í stjóm
Fiskifélags íslands, í ráðgjafamefnd
Hafrannsóknastofnunar, í ráðgjaf-
amefnd um stjóm fiskveiða og í
Fiskmatsráði, í stjórn Rannsóknar-
stofnana fiskiönaðarins, nefnd um
atvinnuréttindi skipstjómarmanna,
verið varafiskimálastjóri og form-
aður ritnefndar sjómannahlaðsins
Víkings. Hann er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum
frá 1991 og situr í sjávarútvegsnefnd
Sjálfstæðisflokksins.
Fjölskylda
Guðjón á tvær dætur frá þvi fyrir
hjónaband. Þær era Guðrún Ásta,
f. 1963, húsmóðir í Hafnarfirði, og
Ingibjörg Guðrún, f. 1966, nemi í
Frakklandi.
Fyrri kona Guðjóns var Björg
Hauksdóttir og eignuðust þau þrjá
syni.
Synir þeirra era Kristján Andri,
f. 1967, sjómaður í Reykjavík; Kol-
beinn Már, f. 1971, starfsmaður hjá
Plastos í Reykjavík; Amar Bergur,
f. 1979, grannskólanemi.
Kona Guðjóns er Mariana Bar-
bara Kristjánsson frá Póhandi.
Börn hennar og fósturböm Guð-
jóns era Margarieta, f. 1979, og Ju-
rek, f. 1981.
Guðjón á átta systkini. Þau era:
Jóna Valgerður, f. 1935, alþingis-
maður á Isafirði, gift Guðmundi H.
Ingólfssyni og eiga þau fimm böm:
Þrúður, f. 1938, skólastjóri í Búðar-
dal, gift Sturlu Þórðarsyni og eiga
þau fjögur böm; Fjóla Guðrún, f.
1939, skrifstofumaður í Reykjavik,
gift Valdimar Nielsen og eiga þau
fjögur böm: Laufey Erla, f. 1940,
húsmóðir í Reykjavík, var gift Sím-
oni Melsted, sem lést 1983, en þau
eignuðust fimm böm. Sambýhs-
maður Laufeyjar Erlu er Pálmi Stef-
ánsson: Freyja, f. 1942, verslunar-
stjóri í Danmörku, gift Keld Nör-
gaard og eiga þau þrjá syni: Matt-
hildur Herborg, f. 1946, skrifstofu-
maður í Reykjavík, gift Guðmundi
Kr. Kristjánssyni og eiga þau íjögur
böm: Jakob Kristján, f. 1952, lífefna-
fræðingur í Reykjavík, kvæntur
Þorgerði Hahdórsdóttur og eiga þau
tvær dætur; Anna Karen, f. 1957,
húsmóðir á ísafirði, gift Einari
Hreinssyni og eiga þau fimm böm.
Foreldar Guðjóns: Kristján Sig-
mundur Guðjónsson, f. 17.11.1911,
d. 22.12.1989, trésmíðameistari, og
kona hans, Jóhanna Jakohsdóttir,
f. 16.10.1913, húsmóðir.
Ætt
Krisfján var sonur Guðjóns, b. í
Skjaldarbjamarvík við Geirólfs-
gnúp, Kristjánssonar, lausamanns í
Litlu-Ávík, Loftssonar, b. í Litlu--
Ávík, Bjamasonar, b. í Munaðar-
nesi, Bjamasonar. Móðir Bjarna var
Hallfr íður Jónsdóttir. Móðir Lofts
var Jóhanna Guðmundsdóttir. Móð-
ir Kristjáns var Þórunn Einarsdótt-
ir, b. á Bæ, Guðmundssonar, prests
Guðjón Arnar Kristjánsson.
í Árnesi, Bjamasonar, b. í Fjósakoti
í Flatey, Brandssonar. Móðir Guð-
jóns í Skjaldarbjamarvík var Ólína
Sigurðardóttir frá Eyri.
Móðir Kristjáns var Anna Jónas-
dóttir, b. á Þóroddsstöðum í Hrúta-
firði, Eiríkssonar.
Foreldrar Jóhönnu vora Jakob,
b. í Reykjarfirði, Kristjánsson, og
Matthildur Benediktsdóttir.
Guðjón tekur á móti gestum á veit-
ingastaðnum Ásláki í Mosfellshæ í
dagkl. 18.00-21.00.
Sviðsljós
DV-mynd Páll Pétursson
Starfsfólk Búnaðarbankans í Vík.
Þjóðlegir bankamenn
Starfsfólk Búnaðarbankans í Vík
skartaði þjóðbúningum í vinnumii
16. júní í tilefni af 50 ára afmæh lýð-
veldisins. Konurnar vora klæddar í
upphlut eða peysuföt en það eina sem
vantaði var hinn nýi þjóðbúningur
karla. Bankinn var skreyttur blöðr-
um og fánum og viðskiptavinum og
gestum var boðið upp á kaffi og klein-
ur. Þessi uppákoma var hluti af
skipulagðri dagskrá dagana 11.-19.
júní í Mýrdalshreppi þar sem fyrir-
tæki og stofnanir buðu upp á ýmiss
konar afþreyingu og skemmtun.
20.00ídag.
Ragnar Jóhann Lárusson,
Borgarholtsbraut 45, Kópavogi.
OddgeirPétursson,
Kirkjuvegi 11,Keflavík. 60 3T3
Jón Jósteinsson,
Jón Þórir Jónsson, Réttarholtsvegi 33, Reykj V/WV» avik.
70ára
KristínPálsdóttir,
Brekkugötu 5, Ó:
Kristjana
Þórðardóttir
fráVÍÖey,
Vegghömrum
8, Reykjavík.
Kristjanatekur
ámótigestumí
HúsiFélágs-
starfs aldraðra,
Hraunbæ 105, Rí
Ægir H. Ferdinandsson,
Undralandi 6, Reykjavík.
Ingiber Marinó Ólafsson,
Hátúni31,Keflavík.
Hörður I. Magnússon,
Hverfisgötu 102 A.Reykjavík. ;:
Sigrún Stefánsdóttir,
Tjarnarlundi 6D, Akureyri.
Aðalheiður Sigurðardóttir,
Miðstræti8 A, ReyKjavík.
Guðrún J. Hansen,
Móasíðu 2 B, Akureyri.
Margrét Benediktsdóttir,
Laugartúnil6, Svalbarðsstrandar-
hreppi.
Baldur Magnússon,
Bjarkargrund 10, Akranesi.
Rögnvaldur Ólafsson,
Hhðargötu 22, Fáskrúðsfirði,
Guðjón Gunnarsson,
Helhsbraut 18, Reykhólahreppi.
40 ára
BjörgvinBjami Skarðhéðinsson,
Framnesvegi 16, Keflavík.
Ásthildur V. Jónsdóttir,
Súlunesi 13, Garðabæ.
Ólafur Atli Jónsson,
Brekkubæ2, Reykjavík.
Guðrún Einarsdóttir,
Sigtúni 43, Reykjavík.
Sigríður H. Hjörleifsdóttir,
Bólstaðarhlíð 56, Reykjavík.
MargrétL Hafsteinsdóttir,
Krummahólum 2, Reykjavík,
Jón Reynir Sigurjónsson,
Hraunbergi, Mývatnssveit.
Helga Halldórsdóttir,
Skíðabraut5,Dalvík.
Jónatan Úlfarsson,
Kaldárbakka, Kolbeinsstaða-