Alþýðublaðið - 24.12.1960, Síða 25

Alþýðublaðið - 24.12.1960, Síða 25
HANN VAR MANNA MEST DÁÐUR í FYRRI HEIMSSTYRJÖLD INNI - EN NÚ HEFUR DÝRÐARHJÚPNUM VERIÐ SVIPT AF Ráðagerð marskálksins var hin einfaldasta. Hann ætlaði að halda með sinn 200 þús. manna her yfir eyðimörkina beina leið til Jerusalem og þaðan til Damaskus. 'Verkefni hinnar nýstofnuðu skrifstofu átti að vera það, að auðvelda herjum Allenley framgöngu með því að kynda undir upp- reisn Araba að baki víglínu Tyrkja, þ. e. á þeirra áhrifa- svæði. Brezka stjórnin hafði þegar komizt á snoðir um að Sharif Hussein, stjórnandi í Hejas (hið heilaga land Mú- hameðs,crúarm,ánn,•i,, er nær frá Mekku til Medina) væri ákafur í að losna undan oki Tyrkja. Ennfremur átti Hus- sein þrjá syni, Abdullah, Feisal og Said, er allir voru haldnir talsverðri valdafíkn og metorðagirni. Hinn 20. júní 1916 hófst hin mikla sókn Allenby til Jerusalem. Hinir hraustu tyrknesku hermenn vörðu hvert skref alla leið. Hinn 5. júní 1916 hófst Arabaupp- reisnin. Enda þótt Arabar hefðu gnægð brezkra vopna og skotfæra, þá stóðu þeir sig mjög illa gagnvart Tyrkjum. Þeir voru dauðhræddir við tyrkneska fótgönguliðið. Ollu framar voru þeir þó hræddir við hinn algenga tyrkneska hermann, hver sem hann var og hvar sem hann birtist. Arabarnir settust á vopn sín og skotfæri og þá kom áðurgetinn Storrs, ásamt Lawrence, til Hejaz til að hressa upp á bardagaskap Arabanna. Hann skýrði Hus- sein frá því, að Bretar teldu sig lausa allra mála, ef Ar- abar tækju ekki sinn þátt í stríðínu. Hussein k\«að Ar- aba vanta meiri vopn, Storrs kvað Araba þegar hafa feng- ið 60 þús. byssur og fjöld- ann allan af léttum fallbyss- um. Ef þetta væri ekki notað, þýddi lítið að senda meira. Hussein kvað þrjá sonu sína á vígstöðvunum: Abdullah hernum í frak, Feisal stjórn- aðý her í Sýrlandi 0g Said stjórnaði her í Palestinu. Er þeir félagar fóru frá Hussein skildu leiðir. Storrs fór til hers Abdullah, en Lawrence til hers Feisal. f heimsókn Lawrence til herbúða Feisal virðist eitthvað hafa komið fyrir, sem ekkert er vitað um. Svo mikið er víst, að í þess- ari ferð varð hann fús til að taka beinan þátt í hinni erf- iðu eyðimerkurstyrjöld Lík- legasta skýring er sú, að hann hafi séð möguleika á frægð — og gripið hann. Hvað sem um bað er, þá hafði hann engan áhuga á starfi sínu í hermálaráðuneytinu lengur. Er hann var gerður að sam- bandsliðsforingja við her FeLal. fór hann þanpað nm- svifalaust. Á næstu mánuð- um hlaut Lawrence nokkurn orðstír vegna framgöngu sinnar við árásirnar á Hejaz- járnbrautina. Sannleikurinn er sá, að fjölmargir aðrir brezkir og franskir liðsfor- ingjar tóku þátt í slíkum á- rásum, enda voru þær næsta auðVeldgr, þar sem Tyrkir höfðu lítinn mannafla aflögu til varnar henni. Allir viður- kenndu þessir foringjar hættuleysi þessara ferða, þó að Lawrence einum undan- teknum. Meðal brezku liðs- foringjanna uppskar Law- rence skjótt háð og fyrirlitn- ingu með hinni nýju hegðun sinni. f Kairo eins og í eyði- mörkinni var hann nú tekinn til við að bera hvítan Araba- búning með öllu tilheyrandi. Jf.lgajngurinn var auðyjáan- iega að daga að sér athygli og það tókst. í eyðimörkinni tóku þeir sig til eitt sinn, Lawrence og Feisal, en þeir stjórnuðu 10 búsund manna her, og á- kváðu að taka borgina Wejh úr höndum Tyrkja. Brezka yfirherstjórnin í Kairo lagði blessun sína yfir þetta fyrir- tæki og sendi tvo tundur- spilla á vettvang, þá Hard- inge og Fox og áttu þeir að aðstoða Arabana. Hinn 23. janúar, en þá hafði verið á- kveðið að aðgerðirnar hæf- ust, sigldu tundurspillarnir tveir inn í höfnina í Wejh. Enda þótt Araba-herinn væri hvergi sjáanlegur, tóku tundurspillarnir til við skot- hríð á borgina. Landgöngu- sveit 400 Araba undir stjórn brezks liðsforin^'a, gekk á land. Ekki voru þeir þó fyrr komnir þangað en 300 þeirra leituðu hælis í klettaskúta og harðneituðu að berjast, en 80 Arabar flúðu út á eyðimörk- ina. Er þetta fréttist til skip- anna voru 200 brezkir sjólið- ar sendir í land og tóku þeir nú til, ásamt hinum Aröbunum, að berjast við Tyrki. Orrustan fékk skyndi- lega endi er kúla frá Hard- inge fór í gegn um skotfæra- geymslu Tyrkjanna og sprengdi hana í loft upp. Gáf- ust Tyrkir þá upp. Þeir Law- rence og Feisal komu til Wejh tveim dögum síðar, 25. janú- ar. Skýring þeirra á töfinni var sú, að vegir hefðu verið ófærir vegna leðju. Er tund- urspillarnir komu til Kairo, komust foringjar þeirra að því, að sigurinn í Wejh hefði að undirlagi Lawrence verið auglýstur sem sigur Araba og Lawrence! Her Feisal, er dvaldi um kyrrt í Wejh, sameinaðist litlu síðar öðrum her, 4 þús. manna. Her þessi lagði síðan í herför til borgarinnar Ak- aba. Á leiðinni útrýmdu þeir nokkrum litlum útvarðs- stöðvum Tvrkja. oo- var það létt verk, en er til Akaba kom, gafst tyrkneska setulið- ið þar upp, 300 manns. Eftir töku Akaba hraðaði Law- rence sér til Kairo, þar sem hann lýsti því yfir, að Ar- abar hefðu unnið stærsta sig- ur stríðsins í Akaba, borgin hefði verið ný Gallipoli og hann, T. E. Lawrence, hefði skipulagt og stjórnað öllu saman. Eftir þetta tók hann að grobba af hverjum eyði- merkursigrinum eftir annan og skýrði Allenby markskálki frá því, að hann væri snill- ingurinn mikli bak við alla Arabaherjana þrjá. Þetta endaði svo með því, að brezka stjórnin sæmdi hann sínu æðsta heiðursmerki, Viktoríu krossinum. í stríðslok kom Lawrence íklæddur Arababúningnum til Englands og var tekið þar með kostum og kynjum sem hinni einu og sönnu þjóð- hetju. Meira að segja Win- ston Churchill lét blekkjast og bauð honum hverja tign- arstöðuna af annarri, þ.á.m. landsstjórastöður í írak og Egyptalandi. Hinni fyrri gegndi hann um nokkurra mánaða skeið, hina vildi hann ekki vegna ritunar ævisögu sinnar. Þykir hún afbragðsvel rituð bók og höfundar eins og Shaw, Maugham og Wells dáðu hann —- hirm síðast- nefndi kallaði hann „Cesar — Shakespeare tuttugustu ald- arinnar.“ Hann var á frægðar tindi er hann fékk taugaáfall, hann gerðist þá nýliði í flug- hernum og tók að þeysa um þjóðvegina á mótorhjóli á æðisgengnum hraða. í . einni slíkri ferð slasaðist hann til dauða. Þrjár ævisögur voru ritað- ar um hann meðan hann vár á lífi og áttu allar að vera óhlutdrægar, en í ljós hefur nú komið, að þær voru þvert á móti hinar hlutdrægustu. Með rannsóknum og viðtölum við herstjórnendur og gamla samstarfsmenn hans í Araba- löndum, hefur nú komið í ljós að hann átti mjög lítinn hlut af öllu því er hann eignaði sér. Feisal sá, er fyrr er nefndur, sagði jafnvel, að Lawrence hefði aldrei kunn- að annað fyrir sér í her- stjórnarlist, en að setja sprengiefni undir járnbraut- arteia! Þá hefur einnig komið í ljós, að hann eerði ekkert til að stöðva eða koma í veg fyrir ógnarleg hermdarverk hinna villtu jfWaba í styrjöld- inni, enda hntt harrn hefði átt hægt með það. Og loks hefur komið í ljós, að það var Storrs en ekki Lawrence er skipulagði Arabaupp- reisnina. Bók Aldington, er út kom 1955, hefur þannig svipt dýrðarhj úpnum af manninum er var tignaður sem ein mesta stríðshetjan 1914—T8. Auto-Lite Rafkerti í allar vélar. Bankastræti 6. Símar: Í5362 — 19215. -í. Jólabók Alþýðublaðsins 1960 — 25

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.