Alþýðublaðið - 24.12.1960, Blaðsíða 30

Alþýðublaðið - 24.12.1960, Blaðsíða 30
EF ÞÚ ert staddur í Quito í Ecuador eða öðrum borg- um í norðurhluta Andes- fjalla, í Ecuador, Colombiu eða norðanverðu Peru, get- ur verið, að dularfullur veg- farandi snúi sér skyndilega að þér, þegar farið er að skvggja einhvern daginn og þú ert á gangi, þar sem manna ferðir eru ekki miklar. Hinn dularfulli vegfarandi spyr þig ef til vill, hvort þú viljir ekki kaupa tsantsa, og auð- vitað er þetta að hans sögn raunverulegt tsantsa fyrir tækifærisverð. Þér finnst upp hæðin, sem hann nefnir raun ar geigvænleg upphæð, spurn ing, hvort þú hefur nokkur efni á að kaupa svo dýran minjagrip frá Suður-Ame- ríku. En meinið er, að skálk- urinn hefur veitt því athygli af framkomu þinni og útliti eða sú sért ferðamaður, langt að kominn, og slíkir menn eru taldir vel til þess fallnir að rýja þá inn að skyrtunni. 30 — Jólabók Alþýðublaðsins En láttu hann ekki snúa á þig. Hann er vafalaust ekki með raunverulegt tsantsa, auk þess sem verðið er vafa- laust miklu hærra en gengur og gerist. Hann mundi sjálf- ur vera hálfhræddur við raun verulegt tsantsa, a. m. k. ef einhver vottur er af indíána- blóði í æðum hans, mundi varla þora að snerta það vegna þess mikla og dular- fulla kraftar, sem við það er tengdur. ☆ Hvað er tsantsa? Tsantsa er haus af manni, skorinn af, beinin mulin inn an úr holdi og skinni, síðan mjeðhöndlaður eftir sérstök- um kúnstarinnar reglum, unz hann er saman hlaupinn, ekki nema svo sem hnefas.tór, en andlitið greinilegt og kol- 1960 svart hárstríðið undarlega langt og undarlega þétt. Þokkalegt að tarna. En það tsantsa, sem hinn undarlegi gestur mundi hafa á boðstólum er vafalaust svik ið. Það er líklega apahaus, og hvernig í ósköpunum getur nokkrum manni dottið í hug. að það búi nokkur verulegur kraftur í apahaus. Það er vafalaust tilbúið á svipaðan hátt og raunverulegt tsantsa, en ætlað til að gabba menn, hafa út úr þeim fé, einkum ferðamönnum, sem vilja gjarnan einstaka minjagrip frá Suður-Ameríku, svo þeir sýnist meiri menn þegar heim kemur ,hafi meira til að grobba af. Á öllu má græða. Jivaróar í Suður-Ameríku eru frægir fyrir hausaveiðar og tsantsa-tilbúning. Þeir eru samt varla eins illræmdir hausaveiðarar og Dajakkar á Borneó. En hestaveiðar hafa Verið ^tundaðar mjög víða, að vísu nokkuð með ólík um hætti, en fyrirbærið er ekki óþekkt í Evrópu á þess- ari öld. ☆ Hvers vegna stunda menn hausaveiðar? Hvers konar - íþrótt eða siður eru hausa- veiðar. Ýmsir hafa reynt að skýra fyrirbærið, en naumast orðið á eitt sáttir. Það er augljóst, að þessi siður er víðast bundinn við steinaldarmenn- ingu og átrúnað þann, sem algengur er meðal þjóða á því stigi. Tilgangurinn með veið- inni er ekki alls staðar hinn sami, Víðast er þetta í sam- bandi við fjölkynngi og dulda krafta, en sums staðar er það að því er virðist hrein ástríða. Hvergi kemur það skýrar í ljós en hjá Jivaóum, að til gangurinn með hausýeiðimu er að ná til sín andlegum krafti, sem hinn ‘fallni bjó yfir. Algengast er líka að telja eitthvað slíkt tilefni veið- anna. Sá fallni er þá líka ó- vinur og hann er ekki sigrað- ur, nema lfskrafturinn, sem einkum er talinn búa í haus- hans sé lagður undir sigur- vegarann líka. Jivaóar eru miklir dýrkend ur vilja og hreysti. Þeir eru ólíkir flestum öðrum Suður- Ameríku-indíánum í því, að þeir hafa stál-vilja. Og mann dóm sinn þurfa þeir áð auka með því að afla sér tsantsa, fella óvin og gera haus hans að tsantsa með viðeigandi hætti og viðeigandi siðaat- höfnum, dansi og særingum. Hjá Dajökkum virðisfc þetta ekki vera eins mikið atriði. Hjá þeim eru hausa- veiðar jafnvel enn þá grimm úðlegri. Þar skiptir minnstu, hvort haus er tekinn af af- gamalli kerlingu eða hraust- um ungum stríðsmanni. Hausasöfnun er þar meira það að sýnast menn með mönnum, eins og að hafa synt 200 metrana og þess háttar. Þar þótti góð latína að taka sig upp eitthvert kvöldið og heijnsækja nágrannana í þeim tilgangi einum að taka af þeim hausinn. Mun grimmd samfara geysilegri elju við hausaveiðar hvergi hafa ver- ið meiri en á Borneó. Einnig eru heimildir fyrir hausaveiðum meðal frum- stæðra þjóða í Assam og Nagahæðunum á Indlandi frá ýmsum eyjum í Kyrrahafi, Filippseyji'im, Formósu, frá Afríku, þar sem hausaveiðar eru meirá téngd við mann- blót, og frá Norður-Ameríku. ik i í sögnum um Indíána í Norður-Ameríku er meira talað um höfuðleðrasöfnun. Var þá höfuðleðrið flegið af höfuðkúpunni. Loks er ekki langt síðan við líði var sá siður í Svart- fjallalandi í Júgóslavíu, að taka part af haus óvinar, er stríð brauzt út. 'Voru dæmi um þetta jafnvel á öndverðri þessari öld. Var þá tekið af nefið og efrivörin með yfir- skegginu. Það að eiga haus af óvini sínum var alls staðar tákrn úm sigur og manndóm, rétfc eins og veiðiglaðir nútíma- menn hengja upp hausa af hornprúðum höfrum og hjört um í veiðiskálum sínum. Enginn nútímamaður er að líkindum kunnugri þessum sið, a. m.k. meðal Jivaróa en Lewis Cotlow. Hann er Banda ríkjamaður, mikill ferðagarp ur og hefur lagt þrisvar leið sína inn í skógarsvæðin þar sem hinir frægu og hraustu Jivaróar búa. Hann gisti jivaríur þeirra, eins og hús þeirra eru nefnd, og kynnti sér líf og háttu fólksins. Til

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.