Alþýðublaðið - 24.12.1960, Blaðsíða 33

Alþýðublaðið - 24.12.1960, Blaðsíða 33
I' ■ >WUiUWWWHWUHW%UWUWÍ>W»IWHHHHIW»HW%»iUWHW»1 (tliHHHUiiUWWUUWUiHWUHUWHWUUWUHWUi^WiWWV Eitthvað fyrir kvenfólkið en karlar mega kíkja! wvtwwwwmwwwwwtwwwwwvw >%WWWWMWWWWMWWWWtWtMW MMMMMMMð WM%%MMMMMMMMMMMMMM»MMWMMW EF DÆMA má eftir erlend- um blöðum, virðast hjúskap- armái kónglegra persóna eitt vinsælasta lestrarefnið um þessar mundir. Síðan Margrét Bretaprinsessa loksins komst heilu og höldnu í örugga höfn, hefur þó verig hljótt um hennar háu persónu, þangað til nú á dögunum, að henni tckst að ergja alla rétttrúaða Breta með því að gefa systur- börnum sínum ís á sunnudegi. Það er sjálfsagt vandlifað fyr- ir prinsessur ekki síður en ann að fólk. En nú er nafna hennar, prinsessa Dana, orðin gjaí- vaxta og danskir strax farnir að leiða getum að hver verði maðurinn drottningarinnar til vonandi. Að finna mannseíni handa blessaðri kóngsdóttur- inni er nú engan veginn eins auðvelt eins og margur skiidi Ihalda, því þótt nóg sé af nóbl- um prinsum, eru sumir þeh-ra of gamlir, en aðrir of tign’r, standa semsé til ríkiserfða í sínu eigin landi Þar til má nefna Harald son Ólafs hins norska og Konstantín Grikkja prins, en reyndar kváðu báðir þessir ágætu tignarmenn ást- fangnir nú þegar, annar af grískri en hinn af sænskri prinsessu. Þá- eru það þýzkættufu prinsarnir, en þeirra tala er legíó. Danir benda á, að þó ekki sé víst að þýzkum drottn- ingarmanni yrði tekið með ó- blandinni gleði af þjóðinni, þá hafi þó danskir konungar í aldaraðir sótt drottningar sín- ar í þýzku smáríkin og gefist vel. Er þess líka skemmst að minnast, að hin mjög ástsæla Alexandría var fædd þýzk prinsessa. Ótalið er þó það Evrópuland sem hefir upp á að bjóða hvorki meira né minna en fjóra konungborna prinsa, ó- gifta og mátulega gamla. El- ísabet Englandsdrottning á fjóra náfrændur sem allir eru víst taldir í hæsta máta boð- leg mannsefni handa hvaða drottningu sem vera skal. Það eru þeir hertoginn af Kent og yngri bróðir hans, og tveir synir hertogans af Gloucester. Edward af Kent, hvers naín virðist fyrst nefnt í þessu sambandi, hefur annars nokk- uð oft komið við fréttirnar í brezkum blöðum á undan- förnum árum. Hann mun vera glaður ungur maður og geíinn fyrir skemmtanir, enda hefur hann lent í ýmsum glannaleg- um bílslysum og öðru basli sem brezkum líkar ekki alls- kostar, enda mega þeir ekki vamm sinna kóngstigna vita. Meira kunnum við ekki frá þessum káta hertoga að segja, nema hvað hann er tuttugu og fjögurra ára, í íslenzkum aug- um meinleysislegur ungur maður með langt andlit og litla höku, en Englendingar eru sem áður segir drottin- hollir menn, og þeim finnst hann trúlega kynborin :mynd festu og fínnar ættar. En það er ósk okkar þessari brosmildu prinsessu til handa að sá útvaldi megi verða henn ar óskaprins, hvaðan \sern hann kemur. OG HORMONAR NÚ HAFA neytendasamtök nokkur í Englandi hafið rann- sókn á því, hvort hin svoköll- uðu hormónakrem hafi raun- verulega „fegrandi og yngj- andi“ áhrif á húðina eins og fagurlega segir í auglýsing- um og utan á rándýrum smyrslkrúsum. Hingað til hef- ur það nefnilega aldrei sann- ast svo ótvírætt sé, að krem Þctta er Helena Rubinstein, sem í auglýsingum sínum kallar Eig fegurðarfræðing ver- aldar. Ilún er vel og mikið gnyrt, því er ckki að neita. þetta hafi hótinu meiri áhrií en venjulegt nærandi andlits- krem. Hinsvegar gerðu tveir am- erískir læknar tilraunir á þessu sviði fyrir nokkrum ár- um. Þeir létu nokkrar konur á ýmsum aldri nota hormóna- smyrsl á helming andlitsins en venjulegt krem á hinn helminginn. Eftir þriggja mán aða tíma gátu hvorki lækn- arnir né þær sem tilraunin var gerð á, séð minnsta mun á árangrinum, sem eftir á að hyggja hefur verið lán fyrir aumingja manneskjurnar, annað hefði litið undarlega út. í ensku tilrauninni sem ný- lega var gerð, tók þátt fjöldi kvenna. Helming þeirra var fengið hormónakrem, og hin- um venjulegt, en sá var þó raunurinn að báðum hópum var sagt að um hormónalyf væri að ræða. Allar notuðu smyrslin daglega, en nú brá svo við að eftir þrjár vikur Framhald á bls. 38 EKKI er af efa, að allar vís- ar og forsjálar húsmæð.ur eru löngu búnar að baka jóla- baksturinn. Enn því er nú ver, að ekki erum við allar vísar og forsjálar; þær finnast jafn- vel sem með ánægju draga það til morguns sem hægt er fyrir okkur, sem svo er ástatt að gera í dag. Enn er þó tími til að gjöra yfirbót, og hér hef ég í.höndum tvær kokka- bækur. Önnur er ný og amer- ísk. hin talsvert komin til ára og dönsk; þar ætti því að kenna margra grasa. Hér eru þá fyrst amerískar DÖÐLUSTANGIR Sigtið saman einn bolla af hveiti, eina teskeið laf lyfti- dufti, og % teskeið af salti. Bætið við einum og hálfum bolla af brytjuðum döðhim og einum af kurluðum hnetum. Þeytið þrjú egg vel, bætið vel fullum bolla af púðursykri í smátt og smátt, og síðan öllu því fyrstnefnda ásamt einni teskeið af vanillu. Breitt jafnt lit í mót sem er 20x30 sm. að stærð, en sé það ekki til er auðvelt að búa til pappírsmóí, eins og þegar bökuð er rúllu- terta. Bakað í meðalheitum ofni í 20—25 mínútur. Skorið í stengur meðan heitt, og velt upp úr flórsykri. Úr þessu verða ca. 40 stengur. FRANSKAR BLÚNDUKÖKUR Blandið saman í potti Vi bolla af sýrópi, % bolla af smjörlíki, og 2/3 balla af púð- ursykri, betra er að hafa smjör til helminga á móti smjörlíkinu. Látið koma upp suðu á þessu og takið það síð- an strax af hitanum. Bætið smámsaman í cinum bolla laf Framhald á bls. 38 Jólabók Alþýðublaðsins 1960 — 33

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.