Alþýðublaðið - 24.12.1960, Page 40

Alþýðublaðið - 24.12.1960, Page 40
Krakkar! Hér er jólasaga í myndum. Búið hana til sjálf! — Bjarni Jensson teiknaði. * •, , Þetta er saga fyrir stóra stráka og unglinga (og telpum og fullorðnum er svo sem velkomið að lesa hana líka). En sagan fyrir litlu krakkana er á bls. 36. OTTALEG NOTT EG sat og rabbaði við Ind- landsfarann. í hlýlegu stof- unni hans gat að líta marga failega hluti þaðan að austan. Meðal annars hékk á einum veggnum fagurt tigrisdýrs- skinn, og ég fór að spyrja hann, hvernig hann hefði kom izt yfir það. „Já, ef ég fer að segja þér frá því, þá myndi ég um leið segja þér frá hræðilegustu nótt, sem ég hef lifað. Það er lygileg frásögn. Fæstir munu trúa henni. Og þó er hún sönn.“ „Eg trúi henni,“ sagði ég og bjóst til að hlusta með at- hygli.“ Og svo hóf hann frásögn sína: „Það var eitt kvöld. Eg sat í sólbyrgi mínu fyrir utan bústað minn þarna austur í Indlandi. Þá kom til mín þjónninn minn, Pandit að nafni, og bað mig um leyfi til þess að mega sofa í næsta þorpi um nóttina, þar sem móðir hans lá veik. Eg gat ekki neitað þessari fallegu beiðni, því að Pandit var góður drengur, þó að ég hins vegar vissi, að þá þurfti ég að vera aleinn alla nótt- ina, í margra kílómetra fjar- lægð frá öðrum mönnum. Bústaður minn stóð mitt í akri nokkrum, sem þorpsbú- ar ræktuðu, og við jaðar ak- ursins var þéttur kjarrskógur, sem landsmönnum stóð stugg ur af. Áður en Pandit yfirgaf mig, bað hann mig fyrir alla lif- andi muni að láta ekki dyrn- ar standa opnar um nóttina, en það var ég vanur að gera vegna hins mikla hita, sem er þarna austur frá. Pandit skýrði mér frá því, að þetta sama kvöld hefði heyrzt hið geigvænlega hljóð skógar- guðsins, sem boðaði nærveru tígrisdýrsins. Eg sagði honum að hann skyldi ekki óttast um mig. Eg hefði riffilinn minn, og hann myndi bjóða tigrisdýrið vel- komið, ef það kæmi að heim- sækja mig. Þrátt fyrir þessa uppgerðar dirfsku, sá ég þann kost vænstan að loka dyrunum, áður en ég fór að sofa. Svefnherbergið mitt var lítið og voru á því tvennar dyr. Snéru aðrar út að sól- byrgi mínu, en hinar að borð stofunni. Rúmið stóð úti í horninu við sólbyrgisdyrnar, og snyrtiborðið mitt stóð við fótagaflinn á því, svo að með naumindum var hægt að smjúga meðfram rúminu. — Rúmið var þungt og ramm- gert, en svo lágt, að maður gat varla komizt fyrir undir því. Flugnanet var spennt yfir rúmið, til varnar bitvargin- um, eins og tíðkast þarna austur frá. Hinum megin við vegginn stóð klæðaskápurinn minn, en í honum geymdi ég meðal annars byssuna mína. Eg reyndi árangurslaust að sofna. Að lokum varð hit- inn svo ofsalegur, að ég neyddist til þess að fara fram úr og opna dyrnar og anda að mér fersku loftinu. Og það dugði. Eg steinsofnaði. Ég veit ekki Ihvað ég hef sofið lengi, en allt í einu vakn aði ég við eitthvert þrusk, og mér fannst ég ekki vera lengur einn í herberginu. Eg heyrði djúpan andar- drátt í nánd við rúmið mitt. Hvað var þetta? Eg þorði ekki að snúa mér við til þess að aðgæta, hvað þetta væri. Mér fannst ör- uggast að liggja grafkyrr. Eg vék höfðinu hægt við og fór að horfa í þá átt, sem hljóðið kom úr, og sá þá mér til mikillar skelfingar, að stórt tígrisdýr lá á milli rúmsins og skápsins. Tvö leiftrandi villidýrsaugu störðu á mig. Eg varð máttlaus af skelf- ingu. Mér kom riffillinn £ hug, — en það var ómögulegt að ná til hans. — Tigrisdýrið lá á milli mín og skápsins. Það var til einskis að kalla á hjálp. Enginn hefði heyrt til mín. Engin mannleg vera var nálæg. Allir voru óra- langt í burtu. Ég var því milli heims og helju. — En hvers vegna réðst skepnan ekki á mig þegar í stað? Hvers vegna lá dýrið bara svona og glápti á mig? Jú, ég skildi það. Það var flugnanetið. Tigrisdýrið sá hreyfingarlausa ásýnd mína fyrir innan netið og hélt sjálfsagt, að hér væri um gildru að ræða og ég væri tál beita fyrir sig. Eina leiðin fyrir mig til þess að losna úr þessari klípu var því að liggja grafkyrr og láta ekki á mér bæra. Og þarna lá ég hjálparlaus — ja, ég veit ekki hvað lengi. Það er ekki erfitt að liggja hreyfingarlaus undir venju- legum kringumstæðum, en nú var það voðalegt, og það var ekki laust við, að mér fynd- ist það hálf-skammarlegt. En skyndilega reis tigris- dýrið á fætur, rak trýnið í netið, svona til þess að rann- saka mig betur. Það kom nær og nær. — Eg hélt niðri í mér andanum og þorði hvorki að hreyfa legg né lið. En þá varð það — bomm — að netið féll yfir mig. — Hallo krakkar Ðarnagaman Alþýðublaðsins kallar! Hér er skrýtin mynd að glíma við. Tengið saman punktana ag sjáið hvað skeður! ☆ MUmHMHWtMMHWtMMWMMVMMUMIHVMWWMWWMMmmmHHWMMMMWMUV 40 — Jólabók Alþýðublaðsins 1960 1 f

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.