Dagur - 24.12.1945, Page 4
HAFNARSTRÆTI 88 — AKUREYRI
SELJLM: Alls konar bólstruð húsgögn, svo sem: Sófa
Stóla, Dívana og Ottómana.
ENNFREMUR: Dýnur og Púða í rúm, Dívanteppi, Ullar
gardínur o. fl.
Áherzla lögð á vandaða vinnu!
Sendum gegn póstkröfu!
Frá 1927 hefir
Samband íslenzkra samvinnufélaga
lagt kapp á að greiða íyrir framfaraviðleitni bænda á sviði jarðræktar sem á öðrum sviðum, með því cð útvega
og selja hentugar ræktunarvörur og gefa sem fyllstar leiðbeiningar um notkun þeirra.
Nýir tímar og ný viðhorf krefjast nýrra úrræða og átaka. Búnaðardeild S. í. S. er stofnuð 1. janúar 1944, til þess
að marka enn betur þátttöku samvinnufélaganna í breyttum búnaðarháttum til eflingar tækni
og nýsköpun í s/eitum landsins.
Búnaðardeildin veitir hvers konar upplýsingar um val oj notkun búvéla, eftir því sem kringumstæðurnar leyfa
á hverjum tíma.
Samband ísl. samvinnufélaga
Búnaðardeild
2 JÓLABLAÐ DAGS