Dagur - 24.12.1945, Blaðsíða 22

Dagur - 24.12.1945, Blaðsíða 22
seint um kvöld, réðumst til vistar á eitt af betri gistihúsum borgarinnar, Samby’s Hotei, og þóttust margir komnir þar í paradís! Þegar komið var svo út á göturnar daginn eftir með hvítu húfurnar, var heldur en ekki uppi athyglin. Og blöðin höfðu þá tal af söngstjóranum og gátu um komu flokksins, er vakti mikla athygli í borginni. En raunar höfðu Norðmenn í ýmsu óvenjulegu að snúast þetta ár, eins og kunnugt er. Þeir höfðu þá um sumarið slitið sig úr öllum tengslum við Svía, en áttu nú eftir að ákveða sitt stjórnarform og stjórnarfor- seta, og fór atkvæðagreiðslan fram um stjórnarformið og konunginn fyrripart nóvembermánaðar þetta haust. En við þetta allt. var hugur þeirra fast bundinn, sem vonlegt var. Tíminn var því eigi sem heppilegastur fyrir hinn erlenda söngflokk, enda varð hann m. a. af þessum ástæðum, að bíða nokkra daga í Bergen áður en heppilegur söngsalur fékkst. En strax var byrjað að æfa, og var einum helzta söngstjóra borgarinnar boðið að hlusta á flokkinn. Virtist hann mjög ánægður með sönginn, enda hefir hann máske ekki búizt við rniklu. En það sannaðist, er opinber samsöngur Heklu hófst og blöðin tóku að dæma um sönginn, að flokkurinn hafði sigrað. Dómur blaðanna var yfirleitt sá, að þessi litli hópur ætti mikinn raddstyrk og væri vel þjálfaður og sam- ræmi raddanna gott. Einn félaginn þuldi nýlega upp úr sér byrjunina á fyrsta söngdómnum, og sýnir það betur en flest, í livers konar jarðveg sá dómur féll. En sú byrjun er svona: Det var med spenningi og inkje utan otta at me venta paa fyrste konserten deira, men mann turva inkje meir en ltöyra de fyrste strofarne, so var den sorgen slökt. Mátti því með sanni segja, að flokknum væri ágætlega tekið. Og þegar eftir fyrsta samsönginn, sem endaði með ræðum og húrrahrópum, byrjuðu boð og veizluhöld. Varð nú hópurinn brátt liinn hressasti, enda hafði kvíðinn fyrir hinum fyrsta samsöng verið mikill, því allir fundu til þungr- ar ábyrgðar, ef illa færi. Nokkrum sinnum var sungið í Bergen, þá í Stafangri og Haugasundi, alltaf við góða aðsókn og ágætar undirtektir. Og í Stafangri var okkur lialdin dýrlegasta veizlan, þar sem allt stórmenni borgarinnar var samankomið. Þar munum við fyrst hafa kynnzt svokölluðu „standandi borðhaldi". í Haugasundi buðu ýmsir fyrirmenn bæjarins okkur að búa hjá sér kostnaðarlaust, og í veizlu sem þar var haldin til heiðurs Heklu var tilkynnt, að bæjarbúar myndu senda kórnum gjöf til Islands til minningar urn þessa fyrstu söng- för. Kom sú gjöf sumarið eftir, og var það hinn kunni Heklufáni með áletrun. Er fáninn nú í vörzlum Sambands norðlenzkra karlakóra, sem nefnir sig Heklu og afhentur því af Heklungum að M. E. söngstjóra látnum. En leysist það samijand upp, mun fáninn verða afhentur minjasafni, ef til verður hér norðanlands. Þótt kórinn fengi alls staðar ágætar viðtökur, rnunu þær þó hafa verið einna hjartanlegastar í Voss, en þangað fór hann frá Björgvin og söng þar einu sinni. Þar hélt Lars Eskdand, lýðháskólastjóri, ræðu, sem erfitt verður að gleyma. Og þegar ég tveim árum síðar konr til Voss í skóla, var Hekla enn í fersku minni, og varð ég oft að syngja sum lögin, sem einna mest höfðu hrifið fólkið, t. d. Systkinin og Kirkjuhvoll eftir Bj. Þorsteinsson. Og ýmis fleiri lög varð ég að kenna bæði á Voss og Storð, en'frá kennaraskólanum þar höfðu nokkrir farið til Bergen til að hlusta á kórinn. Síðar heyrði ég í Bergen haft eftir Lars Söros söngstjóra, að Hekla hefði sungið „Ólaf Tryggvason“ betur en norskir kórar almennt. En hvað sem um það er, fannst mér jafnan, 20 JÖLABLAÐ DAGS er ég söng þetta lag með Norðmönnum, að Hekla hefði liaft á því lagi ágæt tök, og skilningur íslenzka söngstjórans á því sízt lakari en þeirra. Eftir viðtökurnar á vesturströndinni liefði vafalaust verið óhætt fyrir flokkinn að ltalda til Oslóar, enda höfðu blöð þar búizt við því. En úr því varð nú ekki, enda var það í raun og veru aldrei tilætlunin. Jafnframt trufluðu einnig rnargs konar fyrirhuguð hátíðahöld í sambandi við væntan- lega komu konungsins til landsins allar slíkar áætlanir, og gerði allt áframhald í raun og veru ómögulegt. Þó var um það nokkuð deilt í flokknum. Og vildu sumir halda enn lengra en til Oslóar. En til þess vantaði einkurn allan undir- búning, því það var þá þegar komið í ljós, að ferðalög og uppihald tók á budduna, svo að sýnt var, að förin yrði ekki nein gróðaför. Hefði nú á tímurn vafalaust verið sótt um styrk til bæjar og ríkis til slíkrar farar, en það liefði verið þýðingarlaust þá. Sjálfir urðu meðlimir kórsins því að bera allan kostnað, og þess vegna var allt reynt að spara, m. a. það, að hafa sérstakan framkvæmdastjóra, sem var án efa mjög nauðsynlegt. — Það varð því ofan á að lialda heim frá Ber- gen. Með því varð nreð vissu vitað, að flokkurinn ók heim heilum vagni. Þessi litli hópur frá hinum norðlenzka höfuð- stað hafði brotið ísinn, sungið fyrstur íslenzkra kóra á er- lendum vettvangi, og haft sæmdir af. Þetta var og verður aðalatriðið. Þess vegna héldu flestir eða allir glaðir heim, þrátt fyrir allt. — Og Magnús Einarsson hafði unnið þrek- virki. Heim var svo haldið nreð gamla Agli, litlunr einrkugg, sem O. Wathne átti, og margir eldri menn munu kannast við. Sú för gekk seint og sögulega, því að skipið lrreppti aftaka- veður í hafi og laskaðist, enda var það 10 daga til Austfjarða, og þótti nrörgunr nóg um, Var þó sungið í Þórslröfn á Fær- eyjunr við mikla hrifningu bæjarbúa. Og líklega hafa sjald- an sárþjáðir farþegar fagnað landtöku nreir en Heklung- arnir í þetta sinn, því bæði hafði sjóveikin og sjóiiræðslan þjakað þá flesta. — En Austfirðingar tóku þeinr tveinr lrönd- unr og slógu Seyðfirðingar upp dansleik þeinr til lieiðurs. Og einn hálfgerðan stórhríðarmorgun rétt fyrir jólin, kastaði Egill ganrli akkerum á Akureyrarlröfn, og þótti ó- frýnilegur ásýndum vegna klaka og skemmda, er hann lrafði lrlotið í skammdegishríðunr og stórsjó. Enginn sími gat þá flutt fregn unr það, að Hekla væri með. Þess vegna komum við á óvart. En í grárri morgunskímunni fylkti Hekla liði á þiljum uppi og söng af nriklum krafti lrina alkunnu vísu Jóns Ólafssonar: Guð nrinn, þökk sé þér, Jrú að fylgdir mér aftur hingað heim, hér vil ég þreyja, o. s. frv. — Og er ónrar söngsins bárust upp í bæinn vissu menn, lrvers kyns var: Hekla var komin heim. — En á bátum varð að fara í land, og þótti nrönnunr það óvirðulegur endir á glæsilegri og skenrnrtilegri för. Og gott var að vera kominn lreinr. Eftir því sem bezt verður vitað, eru nú, eftir 40 ár, fallnir í valinn: einn úr 1. tenór, þrír úr 2. tenór, þrír úr 1. bassa, og söngstjórinn, alls 8 menn. Fjórtán munu vera á lífi. En lrvað skyldu margir lifa 50 ára afmælið? En hvort sem Jreir verða margir eða fáir, sem minnast þess afmælis, þá hefir Magnús Einarsson skráð nafn sitt og Heklu á spjöld sögunnar með hinni fyrstu söngför, sem varð honum og landinu til sóma.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.