Dagur - 24.12.1945, Blaðsíða 20

Dagur - 24.12.1945, Blaðsíða 20
skiptuin sínum, að láta skip sín flytja kristniboða til Indlands og neitaði þeim því um far. Henderson fór þá þess í stað til Danmerkur og var um hríð prestur á Helsingjaeyri. Árið 1808 ferðaðist hann um Svíþjóð, Lappland og Finn- land, og stofnaði biblíufélög. Var hann orðinn vel að sér í dönsku, sænsku og þýzku. Hann var lærdóms- og málamaður svo mikill, að hann var kjörinn prófessor í guðfræði og Aust- urlandamálum við háskóla í London. Hér á landi dvaldi Henderson í tvö ár og ferðaðist víða, bæði til að úthluta biblíum og' kynna sér kristni lands- manna. Reyndist hann frábær ferða- garpur, og þótti öllum mikið til lians koma, í orðum og gjörðum. Honum féll vel við íslendinga en mest fannst honum til um Steingrím Jónsson, pró- fast í Odda, er síðar varð biskup, og síra Jón í Möðrufelli. Til er á Landsbókasafninu ferðabók í tveimur bindum, er Henderson reit og gaf út á Englandi 1818. Bókin nefnist „Iceland" og er talið, að hún sé „að öllu samanlögðu ein hinna beztu ferðabóka, er ritaðar hafa verið um ísland“. — Skömmu áður en liann fór út aftur, stofnaði liann í Reykjavík „íslenzka bibliufélagiðsem er enn starfandi. Loks var það ávöxtur af komu hans, að síra Jón stofnaði „íslenzka evange- liska smáritafélagið“, „til uppbygging- ar sönnum kristindómi". Síðara sumarið sem Ebeneser Hen- derson dvaldi hér á landi, ferðaðist hann um Norðurland og kom þá að Möðrufelli til síra Jóns og var hjá hon- um í nokkra daga. Það var álit Hen- dersons, að kristnin væri betri nyrðra en syðra, og engan mann mun honum hafa fallið betur við á landi hér er síra Jón, svo margt var þeim sameiginlegt. Hvílíkur aufúsugestur þessi útlendi trúbróðir hefir verið síra Jóni er auð- sætt meðal annars af því, að í ferðabók sinni segir Henderson, að „sárþyrstur maður geti ekki mera fagnað svala- drykk en síra Jón tíðindum þeim, er honum voru sögð um útbreiðslu ríkis Guðs“. Það voru mikil tíðindi, sem Hender- son færði honum. Biblíufélagið brezka liafði þegar starfað í 10 ár og gefið út Ritninguna á mörgum tungumálum. Kristileg smáritafélög voru víða starf- andi. Kristniboðsfélög höfðu verið stofnuð um og eftir aldamótin hvert á fætur öðru. Robert Morrison kristni- boði, er samdi fyrstu ensk-kínversku 18 JÖLABLAÐ DAGS orðabókina og sneri Ritningunni á kínversku, var starfandi í Kína, — og John Williams meðal mannætanna á Suðurhafseyjum, — William Carey, brautryðjandi kristinnar trúar og sið- menningar á Indlandi, hafði starfað þar í 20 ár. Svo mætti lengi telja. Á Norðurlöndum voru um þessar mund- ir sterkar trúarhreyfingar. Augljóst verður, hvernig tíðindi þessi liafa orkað á síra Jón, er hann segir á einum stað í smáritunum: „Það er óskiljanlegt ef sá, sem geymir nokk- urn sannan neista af guðsótta í brjósti sér, finnur ekki tendrast lijá sér heil- aga löngun við að gefa gaum að þessu, til að gjöra slíkt hið sama.“ Sjálfur kaus síra Jón sér það verk- efni að hrinda hér af stað smáritaút- gáfu og stofnaði strax eftir burtför Hendersons „íslenzka evangeliska smáritafélagið“. Hann segir sjálfur svo frá, að umburðarbréf hafi verið sent norðanlands „einkurn til presta, og menn hvattir til að leggja fram árleg- an styrk.... Var þessu svo vel tekið, að um 700 manns höfðu skrifað sig á skjalið.“ I „viðtektir þess íslenzka evange- liska smáritafélags" segir í fyrstu grein: „Tilgangur þess er einungis sá, að upplífga trúna á heimsins frelsara í lesendanna hjörtum, þá trú, sem á- vaxtasöm sé af góðurn verkum. Hvar fyrir öll þessa félags rit skulu stefna að þessu aðalaugnamiði." En smáritin höfðu jafnframt þann tilgang, að fræða almenning um marg- víslegt kristilegt sjálfboðastarf, er þá var í uppsiglingu víða um lönd, og hvetja kristna menn til virkrar þátt- töku í því, eins og séð verður af for- málsorðum fyrsta ritsins. En þar segir: „Guð, sem aldrei lætur af að efla heill manna, þó að þeir láti af að efla dýrð hans um hríð, hefir nú blásið nýjum anda í hin útkulnuðu trúar- brögð Jesti Krists, eins og þau eru í heilagri ritningu.... Hversu margir eru eigi þeir vinir Guðs, sem nú sam- eina krafta sína og stofna ýmis félög til að efla ríki Jesú Krists sem bezt í sálum mannanna. Það er ósegjanlega gleðilegt að lesa og lieyra þær merki- legu frásagnir, er um þetta fjalla.“ — Slíkar frásagnir fluttu smáritin síðar margar. Síra Jón er fyrsti maðurinn hér á landi, er fræddi almenning urn kristniboð og brann af áhuga fyrir þvi. Síðan liefir það höfuðmálefni kristninnar alla tíð átt fleiri eða færri stuðningsmenn hér á landi, og til þeirra hafa talizt sumir merkustu kennimenn þjóðarinnar. Hver trúar- leg álirif smáritanna liafi orðið, er ó- rannsakað mál, en þau hafa orðið mikil, jafn útbreidd og ritin voru og vinsæl. Smáritafélagið stofnaði síra Jón árið 1815, en á næsta ári komu út fjögur fyrstu ritin. Tólf smárit voru gefin út fyrstu þrjú árin, alls 9400 eintök. Sjálf- ur samdi hann eða þýddi flest þeirra. Þó eiga nokkrir menn aðrir efni í rit- unum, þegar frá líður, t. d. Jón Espó- lín sýslumaður, síra Björn Halldórsson í Garði, síra Þorsteinn Hjálmarsson í Hítardal o. fl. Almenningi gazt vel að smáritunum, og urðu ýmsir góðir menn til að styrkja útgáfuna, eins og t. d. ísleifur etazráð Einarsson, B. ÓI- sen, umboðsmaður, og Hallgrímur Jónsson, djákni, báðir á Þingeyrum, og síðast en ekki sízt Jón sýslumaður Espólín í Viðvík í Skagafirði. Alls urðu smáritin, sem síra Jón gaf út sjálfur, 67.*) Skömmu áður en hann dó, stofnaði hann 1000 ríkisdala sjóð, og skyldi vöxtunum varið til að halda áfram útgáfunni. Sjóðnum kom liann fyrir hjá þýzkum presti, Johan Fried- rich Matthiesen, er var forstöðumaður Bræðrasafnaðarins í Kaupmannahöfn, en þar höfðu öll smáritin verið prent- uð. Aðeins 13 smárit voru gefin út eftir clauða síra Jóns, en smáritasjóður hans mun þó ekki hafa glatazt að fullu fyrr en í peningahruninu í Þýzkalandi í lok fyrri heimsstyrjaldar. Auk smáritanna liggja eftir síra Jón allmargar ritgerðir og bækur, þótt ekki sé talið upp hér. Síra Jón í Möðrufelli var heittrúar- maður í fyllstu og beztu merkingu þess orðs. Þjóðin átti engan þarfari rnann, er kaldur gustur upplýsingarstefnunn- ar fór um andlegt líf hennar og „blés merginn úr beinunum og tilfinning- arnar úr hjörtunum", eins og Esaias Tégner orðar það í ræðu sinni á minn- ingarhátíð siðabótarinnar 1817. Hér var því þörf á heilagri glóð frum- kristninnar. Smárit og ræður síra Jóns voru þrungin þeirri glóð og blésu nýju lífi í bezta andlega arf, er þjóð vor átti. Hundrað ár eru liðin á næsta ári síðan síra Jón lærði lézt, en hundrað og þrjátíu ár síðan fyrstu smáritin hans komu út. Viðeigandi væri, að vér minntumst í því sambandi orða He- breabréfsins: „Verið minnugir leið- toga yðar, sem Guðs orð hafa til yðar talað; virðið fyrir yður, hvernig æfi þeirra lauk, og líkið síðan eftir trú þeirra." *) Hann var 54 ;íra gamall, er útgáfan hófst, svo að hér fylgdi liugur máli.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.