Dagur - 24.12.1945, Blaðsíða 37

Dagur - 24.12.1945, Blaðsíða 37
Skuggaskil, eftir séra Sigurð Stefánsson (Frarahald af bls. 5.) von mannkynsins i sifelldri þrotlausri leit þess aö harningju og fullkomnara lífi. — Og því er ávallt skuggaskil við kornu jólanna aldrei svo dimrnt umhverfis oss eða i eigin sál vorri, að þá sjái ekki bjarma fyrir nýjum degi. Þess vegna eru gleðileg jól, þrátt fyrir allt. Ekki vegna vorra verðleika. Hvað eina, sem vér gerum, er i molum og ófullkomið. Jafnvel jóla-kyndillinn, sem vér tendrum i einlœgustu trú hjartans og af mestri þörf til að lýsa öðrum, ber daufa birtu og hverfur út. í skammdegið. En ,,þegar ljósið dagsins dvín, oss dróttins birta kringum skín.“ Það Ijós daþrast ekki. Jólanna eilífa Ijós logar enn á þessari hátið. „Hér er skuggaskil.“ Sorgbitnum og kvíðandi hjörtum er flutlur sá gleðiboðskapur eins og þeim, sem lifinu fagna og hverjum komandi degi. Gagnvart öllu jmí, sem leynt og Ijóst þjakar rnann- lega sál, gagnvart hörmungum og eymd heimsins stendur hann, sem einn getur hjálpað. Treystum honum. Aköllum miskunn hans. Biðj- um hann að vaka yfir þeim, sem vér elskum. Bið?- um hann að varðveita og leiða hina ungu, sem eiga bernskunnar bliðu og inndœlu jól. Biðjum hann að koma i náð sinni til þeirra, sem sjúkir eru og sorgmæddir, þeirra, sem á þesum jólum þjást og liða. Biðjum hann að gefa svo öllum þrek og styrk til að lifa lífinu undir hans merkjum, i hans trú á lilgang þess, alvöru, helgi og fegurð. Gleðileg jól! „Niður stjörnum stráð engill fram hjá fer. Drottins nægð og náð boðin aljrjóð er.“ / Jesú nafni. Amen. Nú getum við sagl eins og Lárus: Sé bókin auglýst, fæst hún hjá okkur! Bókabúð Akureyrar lí-------- Tvö kvæði eftir Kristján Einarsson frá Djúpalæk Einn þú á ströndinni stendur Einn þú á ströndinni stendur. Stoltur þinn svipur er. Fleyið þitt litla flýtur frammi við boðasker. Einn þú á slröndinni stendur. Stundin er liðin hjá er þú hnífil þess hafðir í hendi og ýttir frá. Einn þú á ströndinni stendur. Sturlaður maður sérð, hvar fleyið þitt litla líður lagt upp i hinztu ferð. Málsháttur Leggja skaltu á hafið þó hnyklist ægir blár og hriðarbakkinn færist nær og dökkni. Ekki máttu hræðast. þó hrynji um þig sjár. Það er enginn verri þó hann vökni. Aldrei skaltu birgja það sem inni fyrir býr né æðrast þó svo sterkur maður klökkni. Grát.tu bara vinur, þegar gæfan frá þér snýr. Það er enginn verri jiá hann vökni. Krossviður og ýmiskonar þilborð L til innréttinga og alls konar trésmíða höfum við fengið frá Svíþjóð. Stórkost- leg verðlækkun. Pantanir afgreiddar hvert á land sem er. Kaupfélag Eyfirðinga Byggingavörudeild. JÖLABLAÐ DAGS 35

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.