Dagur - 24.12.1945, Page 8
Brezkur myndlistarmaöur á Islandi
Ferðaþættir eftir THOMAS HENNELL
í nokkurn tíma sigidi herflutninga-
skipið meðfram kollóttum, stöllóttum
fjöllum, sem risu eins og veggur frá
sjávarmálinu og minntu á Sínaifjöll,
eins og menn kannast við þau á biblíu-
myndurn. Litlu síðar vorum við látnir
þyrpast i flutningapramma, og hann
sígur síðan rólega inn í höfnina,
smeygir sér í milli turnanna tveggja,
sem standa á hafnargarðsendanum
sinn hvorum megin. Þar inni fyrir er
óasis, blár og silfurtær, blárri en him-
inninn uppi yfir, með dreifðum, há-
fleygum ullarskýjum. Þegar litið er
til baka yfir flóann, blasir Esjan við;
htin er mesta- fjallið í strandfjallgarð-
inum og stendur þar, sem hann sveig-
ir til suðurs. Hver klettur og sprunga
blasir greinilega við auganu, þótt fjar-
lægðin sé sjö mílur. En framundan
endurvarpa steinsteypu- og bárujárns-
byggingar höfuðstaðarins mótordrun-
um jeppanna og herflutningabílanna,
og dynurinn fyllir bjart, rykmettað
sumarloftið.
Maður kynnist íslenzku embættis-
mönnunum og kaupmönnunum eins
og maður væri kominn í skozkt sveita-
þorp. íslendingurinn ber virðingu
fyrir persónuleika einstaklingsins, og
hann er seinn að sýna vinahót og sein-
þreyttur til vandræða.
Einstaklingur hafði á eigin spýtur
gróðursett torgið framan við Hótel
Borg með litskrúðugum blómum. En
liótelið sjálft reyndist ekki heppileg
vistarvera fyrir mig, því að vikulaunin
mín hrukku þar aðeins í þrjá daga.
Ég knúði því á dvr Hótel íslands; það
er skálabygging úr timbri og báru-
járni, og fórst gjörsamlega i eldi í fe-
brúar 1944. Það gerði enga tilraun til
Thomas HcnnelJ er brezkur niyncllistar-
maður, sem dvaldi hér í nokkra mánuði á
vegum brezka liersins. A s.l. sumri birti
brezka Iandfræðitímaritið ferðaþætti Iians
frá Islandi, ásamt sýnishornum af myndum
þeim, er hann gerði meðan hann dvaldi hér.
Kaflar úr grein þessari fara hér á eftir og
nokkur sýnishorn eru tekin af mynctum hans.
Grein Hennells er yfirleitt mjög vinsamleg í
garð lands og þjóðar, þótt smávægilegra mis-
sagna gæti sökuin ókunnugleika. Hann hefir
liaft mjög glöggt auga fyrir náttúrufegurð
Iandsins og hinum sérkennilegu litbrigðum
lofts og lands og ritar um þau af djúpri til-
finningu og aðdáun.
þess áð-sýnast betra en það var, en þyí
var vel stjórnað. Þar var að finna bezta
bráðabirgðahúsnæðið sem völ var á,
því að eftirspurnin eftir húsnæði var
miklu meiri en framboðið.
Verzlanir í Reykjavík eru dýrseldar,
en þær eru góðar. Þar má finna lúxus-
varnig, sem hvorki er fáanlegur í Lon-
don né New York á stríðstíma. Sjó-
menn kaupa slíkan varning og senda
heim. Verzlunarmennirnir eru svo
elskulegir í viðmóti, að það vegur á
móti því, að manni finnist til um hið
háa verð. Bókabúðir eru margar og
mjög góðar; þar má finna beztu höf-
unda enskumælandi þjóða, og skandi-
naviskir og íslenzkir höfundar eru
mjög lesnir og vel metnir. Við aðal-
götuna — og í rauninni er aðeins ein
aðalgata, er liggur frá vestri til austurs
í gegnum bæinn — spreyta þeir sig á
gluggaútstillingum að amerískum sið,
en í sjötta eða áttunda hverjum glugga
má þekkja einhvern lduta sama farms-
ins, venjulega frá Bandaríkjunum.
Handverksmenn og smærri kaupa-
liéðnar liafast við í skúrbyggingum í
íslenzkar typur.
Teikning eftir Thomas Hennell.
gatnasundum. Þar hittir maður silfur-
smiði, útskurðarmeistara, söðlasmiði
og skóara. Sums staðar eru búðir, sem
selja grávöru, minkaskinn og silfur-
reli, sauðskinn og hrosshúðir, og mað-
ur rekst á geymsluhús með saltfiski. I
skældum skúrræfli við lakara hafnar-
hverfið voru tveir forneskjulegir,
gamlir menn að tilreiða kindahausa
við glóð í kolasmiðju. Varningur
þeirra mun hafa verið betri en
hann leit út fyrii að vera.
Drengir, 10 ára og eldri, virtust
geta fengið nóga atvinnu við höfn-
ina og annars staðar. Maður rakst
á þá alls staðar, stundum með
skóflu og haka, sem þeir réðu tæp-
ast við. Það var mikið að gera, því
að skurðir voru grafnir um götur
og torg til þess að leiða lieita vatn-
ið, sem á að hita hvert hús í bæn-
um. Þessir drengir fá liátt kaup,
er þeim ekki kennt að spara. For-
eldrarnir telja bezt að láta þá sjálf-
ráða, og ef til vill er eitthvað til í
jreirri uppeldisfræði.
Hcrflutningaskipið sigldi meðfram kollóttum, stöllóttum fjöllum, sem risu eins og veggur frá sjávar-
málinu og minntu á Sinai-fjöll — —
Séð yfir Hvalfjörð. Málverk eftir Thomas Hennell.
6 JÖLABLAÐ DAGS