Dagur


Dagur - 29.05.1993, Qupperneq 13

Dagur - 29.05.1993, Qupperneq 13
Laugardagur 29. maí 1993 - DAGUR - 13 Hótel Reynihlíð: Jarðfræði- fyrirlestrar fyrir hótelgesti í sumar verður tekin upp sú ný- breytni í Hótel Reynihlíð að bjóða gestum hótelsins upp á fyrirlestra um jarðfræði Mý- vatnssveitar. Fyrirlesari verður Björg Pétursdóttir, jarðfræðing- ur. Pétur Snæbjömsson, hótelstjóri Hótels Reynihlíðar, segir að þessi nýbreytni sé hugsuð sem kvöldaf- þreying fyrir gesti hótelsins. „Vió ætlum að hafa þetta ákveðin kvöld og miðum við að bjóóa stórum hópum, sem veróa hjá okkur í sumar, upp á þetta,“ sagði Pétur. Feróamannastraumurinn í Mý- vatnssveit er að sögn Péturs aó hefjast. Ekkert sást til ferðamanna á meðan norðanáhlaupið á dögun- um gekk yfir, en þeir eru nú aftir komnir á stjá. Pétur segir erfitt að spá fyrir um aðsóknina í sumar, en mióað við bókanir megi ætla að hún verði svipuð og undanfarin ár. Hátíðarmessa í Glerárkirkju Á morgun, hvítasunnudag, veröur hátíðarmessa í Glerárkirkju kl. 14. Það óvenjulega við þessa messu er að allir fastir liðir hefðbundinnar messu verða sungnir með messu- tóni sr. Bjarna Þorsteinssonar. Sóknarpresturinn, sr. Gunnlaugur Garðarsson, og Kór Glerárkirkju undir stjórn Jóhanns Baldvinsson- ar, organista, munu syngja mess- una, en auk þess syngur Orn Viðar Birgisson einsöng. (Fréttatilkynning) Brugsdansk - ný kennslubók í dönsku fyrir framhaldsskóla Mál og menning hefur gefið út bókina Brugsdansk, eftir fram- haldsskólakennarana Auði Hauksdóttur og Elísabetu Valtýsdóttur. Hér er á ferðinni æfinga- og handbók í hagnýtri málnotkun sem ætluð er til dönskukennslu í framhaldsskólum. Höfundar hafa kappkostað að setja efnið fram á aðgengilegan hátt og fjölmargar teikningar auðvelda nemendum að skilja málfræðireglur og setja sig inn í margvíslegar aðstæður málnotkunar. Efninu er í hag- ræðingarskyni raðað eftir orð- flokkum en áherslan er jafnframt lögð á að orðin eru ekki einangr- að fyrirbæri, heldur fá merkingu í því samhengi sem þau eru notuð hverju sinni. Bókin er búin nýstárlegum og skemmtilegum æfingum af fjölbreytilegu tagi. Bókin er 102 bls. að stærð. Kristín Ingvarsdóttir teiknaði myndirnar. Bókin er unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. tak Olís og Landgræðslunnar hefur staðið í eitt ár og verulegur árangur hefur náðst. Viðskiptavinir Olís hafa fært landinu 16 milljónir að gjöf og Landgræðslunni hefur tekist að græða upp svæði sem hafa orðið uppblæstri að bráð. Höldum áfram að græða upp landið En betur má ef duga skal. Landgræðsluverkefninu er ekki lokið og því verður haldið áfram næstu þrjú árin með stuðningi viðskiptavina Olís. Með samstiíltu átaki getum við komið í veg fyrir landeyðingu. Skilum gróðursælu landi til barnanna okkar. GRÆÐUM LANDIÐ MEÐ A EINU ARIHAFA VIÐSKIPTAVINIR QLÍS FÆRT LANDGRÆÐSLUNNI16 MILUONIR TIL UPPGRÆÐSLU LANDSINS Olís og Laiulgnvfislan liafa nú(5 ,i•óúum Hin 50 úra f>amla landgnuðsliiflui>vél Púll Sveinsson hefurflogið nteð þúsundir tonna affrœjum ot> úhurði. Þessi f>amla vél hefur svo sannarlega orðið að liði við uppgnvðslu landsins. I hvert skipti sem þú kaupir hensín hjú Olfs hjálpar þú til við uppgnvðslu landsins. Akveðin upþhœð afhverjum seldum hensínlítra reíinur til Landgnvðslunnar. Uppgnvðsla húlendisins er nauðsynleg til að mófuglar, til dœmis rjiipan. sem byggja tilvist sína ú gróðri þess, lialdist ú heiniaslóðum. A einu úri hefur Olís, úsamt fólkinu í landinu. fœrt Landgnvðslunni 16 milljónir að gjöfsem hún hefur notað í barúttunni við eyðingaröflin. Höldum áfram uppgnvðslunni því verkinu er hvergi lokið. Þrjúr til fjórar milljónir hektara gróins lands liafa orðið jarðvegseyðingu að hrúð frú landnúmi. Við getum ( sameiningu stöðvað þessa ógnvœnlegu þróun með því að taka þútt í útaki Olís og LandgnvÖslunnae Takmarkið er að stöðva jarðvegs- og gróðureyðingufyrir úrið 2000. Sunnukóriim á ísafirði í söngför um Norðurland Sunnukórinn á ísafirði verður í tónleikaferð um Norðurland dagana 4.-6. júní næstkomandi. Kórinn mun syngja í Miðgarði Skagafirði föstudaginn 4. júní kl. 20.30 og í Samkomuhúsinu á Akureyri laugardaginn 5. júní kl. 16.00. í Miðgarði mun Rökkurkórinn í Skagafirði syngja með kómum og á Akureyri mun kór Glerár- kirkju syngja með kómum. Einsöngvarar með kómum eru þau Guðrún Jónsdóttir, sópran- söngkona, sem hefur getió sér gott orð fyrir leik sinn í óperettunni Leðurblakan sem sýnd er hjá Leikfélagi Akureyrar þessa dag- ana og Reynir Ingason tenór. Stjómandi kórsins er Beáta Joó. Undirleik annast Sigríður Ragn- arsdóttir er leikur á píanó og Ingi- björg Snorradóttir og Messíana Marsellíusdóttir er leika á harm- oniku. Söngskrá Sunnukórsins er fjöl- breytt og er þar að finna bæði ís- lensk og norræn lög. Sunnukórinn á ísafirði.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.