Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1994, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1994, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1994 Erlendbóksjá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Joanna Trollope: A Spanish Lover. 2. Roddy Doyle: Paddy Clarke He Ha Ha. 3. Patricia D. Cornwell: Cruel and Unusual. 4. Tom Clancy: Without Remorse. 5. Sebastian Faulks: Birdsong. 6. William Boyd: The Blue Aftemoon. 7. John Grisham: The Client. 8. Sue Townsend: Adrian Mole: The Wilder- ness Years. 9. Jilly Cooper: The Man Who Made Hus- bands Jealous. 10. Wilbur Smith: River God. Rit almenns eölis: 1. Jung Chang: Wild Swans. 2. W.H. Auden: Tell Me theTruth about Love. 3. J. McCarthy 8< J. Morrell: Some Other Rainbow. 4. Alan Clark: Diaries. 5. Bill Bryson: The Lost Continent. 6. Bill Bryson: Neither here nor there. 7. Robert Calasso: The Marriage of Cadmus and Harmony. 8. H. Rheingold: Superstereogram. 9. Bob Monkhouse: Crying with Laughter. 10. Brian Keenan: An Evil Cradling. (Byggt á The Sunday Times) Danmörk Skáldsögur: 1. Peter Hoeg: Freken Smillas fornemmelse for sne. 2. Dorothy L. Sayers: Peter Wimsey i Oxford. 3. Alice Walker: Andetemplet. 4. Troels Klevedal: Oome under vinden. 5. Dan Turéll: Vrangede billeder. 6. Peter Hoeg: Fortællinger om natten. 7. Bret Easton Ellis: American Psycho. (Byggt á Politiken Sondag) Slagur sápu- drottninga Margar metsölubækur falla undir það sem Bretar kalla „sex and shopp- ing“-skáldsögur. Þetta eru mikúr doðrantar um ástir og syndir ríkra kvenna, eins konar sápuóperur um auðkýfinga. Þar er fjallaö á djarfan hátt um kyniíf sögupersónanna og innkaup á dýrindis fatnaði tískuhús- anna er lýst af nákvæmni. Ein helsta drottning skáldsagna af þessu tagi er Shirley Conran. Hún hófst að vísu fyrst tíi frægðar sem höfundur fyrir alþýðlegt fræðirit sem fór sigurfor um hinn vestræna heim. Þetta var bókin „Super- woman“ sem er eins konar handbók fyrir húsmæður. Með fyrstu skáld- sögu sinni sló hún enn frekar í gegn og varð vellauðug. Það var sagan „Lace“ sem margir kannast við. Conran fylgdi „Lace“ eftir með annarri skáldsögu sem var einfald- lega nefnd „Lace 2“. Sú gerði líka mikla lukku á markaðstorginu. Annar en þó minna þekktur höf- undur skáldsagna af þessu tagi er Celia Brayfield. Hún hóf feril sinn í blaðamennsku. Fyrir nokkrum árum fór hún líka að skrifa skáldsög- ur um „ástir og innkaup". Fyrsta sagan nefndist „Pearls" en sú nýjasta heitir „White Ice“. Vinátta og hatur Um árabil voru þessar tvær skáld- konur miklir vinir. Brayfield aðstoð- aði einnig Conran á margvíslegan hátt við ritstörfin. En svo slettist heldur betur upp á vinskapinn og að undanfömu hafa þær einkum talast við gegnum lögfræðinga. Brayfield hefur ekki aöeins gert lít- ið úr Conran opinberlega heldur Shirley Conran. Umsjón Elías Snæland Jónsson einnig ítrekað eignað sér mikinn hluta skáldsögunnar „Lace 2“. Hún heldur því fram að margar hug- myndir í þeirri bók séu frá sér komn- ar, auk þess sem hún hafi í reynd skrifað söguna. Meðal efnisatriða sem Brayfield segist höfundur að er ástarsena þar sem lifandi gullfiskur kemur mjög við sögu. Þessu hefur Conran mótmælt harðlega og segir hugmyndina um gullfiskinn komna frá fyrrum eiginmanni sínum sem stofnaði Habitat-verslunarkeðjuna. Deilur skáldkvennanna komust í hámæli síðastliðið vor þegar Bray- field mætti sem fyrirlesari á bók- menntahátíð í Birmingham. í gögn- um sem dreift var til gesta sagði að Brayfield væri höfundur „Lace 2“. Lögfræðingar þeirra ræddu máhn og náðu fyrir skemmstu samkomu- lagi. Samkvæmt þvi féllst Brayfield Celia Brayfield. á að hætta að eigna sér „Lace 2“. En blekið var vart þornað af undir- skriftum þeirra þegar út kom nýtt tölublað af tímaritinu „Writing" með viðtali við Brayfield. Þar heldur hún áfram að gagnrýna Conran: „Mig haföi langað til að semja skáldsögur allt frá því ég var níu ára,“ segir hún í viðtalinu, “en ég hélt að ég væri ekki nógu góð til þess. En ég sannfærðist um hið gagnstæða þegar ég vann með Shirley Conran." Og í ritskrá sem fylgir viðtahnu segir að Brayfield hafi samið „Lace 2“ eftir hugmynd að kvikmynd eftir Conran og undir yfirumsjón hennar. Conran brást að sögn illa við þessu broti á fyrirliggjandi samkomulagi og mun hafa gefið lögfræðingum sín- um fyrirmæli um að grípa til viðeig- smdi ráðstafana. Deilum sápudrottn- inganna er því hvergi nærri lokið og virðast reyndar tilvalið efhi í nýja metsölubók. Spumingin er bara hvor þeirra verður fyrri til að semja þá sögu, því varla gera þær það í sam- einingu úr þessu. Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. John Grisham: The Client. 2. Tom Clancy: Without Remorse. 3. Michael Crichton: A Case of Need. 4. E. Annie Proulx. The Shipping News. 5. Wínston Groom: Forrest Gump. 6. Tony Hillerman: Sacred Clowns. 7. Judith Michael: Pot of Gold. 8. Scott Smith: A Simple Plan. 9. Joseph Wambaugh: Finnegan's Week. 10. Tom Clancy: Ctear and Present Danger. 11. John Saul: Guardian. 12. Scott Turow: Pleading Guilty. 13. Carol Higgins Clark: Snagged. 14. Eli2abeth Lowetl: Enchanted. 15. Martha Grimes: The Horse You Came in on. Rit almenns eðlis: 1. Thomas Moore: Care of the Soul. 2. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 3. Marc Cerasini: O.J. Símpson: American Hero, American Tragedy. 4. Peter D. Kramer: Listening to Prozac. 5. Bailey White: Mama Makes up Her Mind. 6. M. Hammer 8t J. Champy; Reengineering the Corporation. 7. Joan W. Anderson: Where Angels Watk. 8. Maya Angelou: I Know why the Caged Bird Sings. 9. Sophy Burnham: A Book of Angels. 10. Susanna Kaysen: Girl, Interrupted. 11. Lewis B. Puller Jr.: Fortunate Son. 12. Peter Mayle: A Year in Provence. 13. William Shatner & C. Kreski: Star Trek Memories. 14. Norman Mactean: Young Men 8t Fire. 15. Gail Sheehy: The Silent Passage. (Byggt á New York Titnes Book Review) Vísindi Kaffi veldur fósturláti Frjósemi mældá ~ þrír bollar af kaíYi geta reynst hættulegur skammtur Kanadiskir læknar halda því fram að óhófleg kaffidrykkja getið valdið fóst- I augum manna eru svanir al- hvítir nema þeir sem eru alsvart- ir. Breskir dýrafræöingar halda því þó fram að i augum annarra svana séu þeír ekki einlitir held- ur mjög skrautlegir og í öllum regnbogans litum. Þetta er skýrt með því að sjón svana og annarra fugla er önnur en manna. Rannsóknir hafa ieitt í fjós að fuglsauga nemur miklu meira af litrófinu en mannsauga. Fuglar sjá útfjólublátt ljós og við það birtast þeim miklu fleiri litir í náttúrunni en menn greina með sínum frumstæðu augum. Einlit dýr verða marglit og skrúð- lausar jurtir skrautlegar. Mestujarð- göng í heimi Vinna er hafin í Japan viö mestu og brelðustu jarðgöng sem um getur. Göngin eru þó ekki nema 9,4 kílómetrar að lengd en þau eru breiðari en önnur göng og eiga aö taka viö meiri umferö. Göngin verða boruð með sér- smíöaðri borvél og kosta ríflega 14 milljarða Bandaríkjadala. Hluti ganganna er undir Tokyo- flóa. Þau eiga að tengja saman borgirnar Kawasaki og Kisarazu og greiða þar með úr eilífum umferðarhnut við Tokyofióa. Umsjon Gísli Kristjánsson Kanadískir læknar fuliyrða að of- notkun kvenna á kaffi geti valdið fósturláti á öllum stigum þungunar. Lengi hefur leikið grunur á að rekja mætti fósturlát til mikillar kaffi- drykkju en nú segjast læknamir hafa fundið staöfestingu á fyrri grun. Ákveðið var aö taka af öll tvímæli i málinu með því að kanna kaffi- drykkju 1324 kvenna í Kanada. Úr þessum hópi haföi 331 kona misst fóstur en 993 fætt böm sín eðliiega. Kannað var hve mikið kaffi þessar konur drukku að jafnaði á dag. í ljós kom að beint samband er á milli kaffidrykkjunnar og fósturláta. Konumar úr hópi þeirra sem misst höföu fóstur drukku aö jafnaöi mun meira kaffi en hinar. Þá kom og í ljós aö ofneysla á kaffi fyrir þungun getur haft áhrif á þroska fóstursins og valdiö fósturláti. Hættan er þó lang- mest ef kaffis er neytt í óhófi á með- göngutímanum. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að hóflega drukkið kaffi hefur ekki áhrif á meðgönguna. Þannig virtist sem hættan á fósturláti ykist að mun eft- ir að neyslan fór fram úr 320 mfUígrömmum af hreinu koffini á dag. Að jafnaði em 100 millígrömm af koffini í kaffibolla. Því getur það reynst skaðlegt fóstr- inu ef þunguð kona drekkur meira en þrjá bolla af kaffi á dag. Hættan er mun minni við tedrykkju. Meðal- bolii af tei inniheldur um 30 miilígrömm af koffini. Því má drekka meira en tíu tebolla á dag áður en hætta skapast. Álíka skammtur af kóladrykkjum inniheldur 47 millísTÖmm af knffíni urlati á öllum tímum meðgöngu. Langvarandi drykkjaverst Kanadísku læknamir segja að nið- urstöður þeirra séu ekki algildar að því leyti að munur getur verið á því hvað einstakar konur þola af kaffi án þess að missa fóstur. Þá er talið að jöfn og mikil kaffidrykkja sé hættulegust. Óveruleg hætta fylgi því að drekka mikið kaffi einn dag pf lát vprönr á npvslnnni næstn rlara Enn hafa ekki borist mikil viðbrögð frá öðrum læknum við þessari niður- stöðu. Þó hefur verið bent á aö máhð þurfi að rannsakast mun betur áður en hægt sé að fullyrða að kaffi sé skaðlegt fóstrum. Oft hefur verið sýnt fram á að koffin er ekki sérlega hættulegt heilsu manna sé þess neytt í hófi. Því vilja margir gera minna úr hættunni af kaffidrykkju en kana- dísku læknamir. Allir em þó sam- mála um að mestu kaffisvelgir geti orðið fyrir heilsutjóni vegna lastar síns lyktinni Tækið er kaliað „Nef páfans“ og á að auövelda hjónaleysum að meta hvort líkur eru á getnaöi viö samfarir. Hugmyndin er að beita sömu tækni og nú þegar er notuð til að meta ferskleika mat- væla til að meta hvort og hvenær konur geta orðið þungaðar. Það á að sögn að finnast á lyktinni Framleiðandinn, AromaScan í Bretlandi, segir aö tækiö verði komið á markaö eftir eitt til eitt og hálft ár. Þar er því haldið fram að þessi aðferð geti komið í stað getnaðarvama og muni þvi falla páfanum I Róm vel í geð en hann hefur lengi barist gegn notkun getnaðarvama með litlum eða engum árangri. Óttinn er í hægra heilahveli Danskir sáiffæðingar hafa fundiö út með mælingum að ótt- inn á sér samastað í hægra lieila- hveli manna. Eftir ítarlegar rann- sóknir á hræðsluviðbrögðum bama hefur komið í ljós að hægra heilahvelið starfar án afláts meö- an skelflngin varir. Ótti manna er þar með fundinn en ekki þykir ástæða til aö gera nokkuð i málinu. Ótti er nefni- lega nauðsynlegur lífl og heilsu manna og dýra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.