Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1994, Blaðsíða 26
34
LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1994
Sumarmyndasamkeppni DV og Kodak:
Fimm dagar eftir
Nú fer hver aö veröa síðastur að
senda inn skemmtilegar sumar-
myndir því skilafrestur á myndum
rennur út á fimmtudag, 25. ágúst.
Lesendur hafa verið iðnir við að
mynda í sumar því þegar hefur
fjöldinn allur af skemmtilegum
myndum borist í keppnina. Margar
þessara mynda hafa birst á síðum
helgarblaðsins undanfarnar helgar
og í dag bætum við enn betur um
og birtiun heila síðu af skemmtileg-
rnn sumarmyndum.
Það er til mikils að vinna í keppn-
inni því glæsileg verðlaun eru í
boði. Sú mynd sem verður valin í
fyrsta sæti býður eiganda sínum í
glæsilega sólarlandaferð til Flórída
með Flugleiðum en ferðin kostar
90 þúsund krónur. Önnur verðlaun
í keppninni eru Canon EOS 500
myndavél að verðmæti kr. 43 þús-
und krónur, þriðju verðlaun eru
Kodak Phono CD geislaspilari að
verðmæti kr. 37.600 og þau fjórðu
Canon AS-1 vatnsmyndavél að
verðmæti kr. 19.900 og loks eru það
fimmtu og sjöttu verðlaun sem eru
Canon Prima AF 7 myndavélar að
verðmæti kr. 8.490.
í dómnefnd keppninnar sitja
Gunnar V. Andrésson og Brynjar
Gauti Sveinsson, ljósmyndarar DV,
og Gunnar Finnbjömsson.
Úrshtin verða kynnt 17. septemb-
er en verðlaunin verða afhent
sunnudaginn 2. október í Kringl-
unni. Þá verða verðlaunamyndirn-
ar stækkaðar og hengdar upp í
Kringlunni en þar mun þá einnig
standa yfir ljósmyndasýningin
World Press Photo.
Nú er rétt að drífa sig í næstu
Kodak-verslun með sumarfilmurn-
ar og sjá hvort einhver skemmtileg
sumarmynd leynist ekki í bunkan-
um. Merkið myndirnar með utaná-
skrifhnm:
Skemmtilegasta sumarmyndin
DV, Pverholti 11,
105 Reykjavík.
„Dagur að kveldi" kallar höfundur þessa mynd sem tekin var á Akur-
eyri en fyrirsætan er íris Eva. Það var Berglind H. Helgadóttir, Múla-
síðu 20, 603 Akureyri, sem tók myndina.
„Staðið á vatninu". Það er Þórhallur Oskarsson, Baldursgötu 12, 230
Keflavik, sem tók þessa sniðugu mynd.
„I hátiðarskapi". Myndina tók
Eberhardt Marteinsson, Melbæ 29,
110 Reykjavík.
„Þessi mynd er tekin i Dyrhólaey um miðjan júni
’94. Pysjan hreyfði sig ekki þó henni væri strokið en
hún sneri baki í sjóinn. Stúlkan er Arna Frímannsdótt-
ir, 11 ára, og myndina kalla ég Vinir heilsast," segir
í texta með þessari mynd sem Anna Magnúsdóttir,
Hverafold 114, 112 Reykjavík, sendi í keppnina.
Hér er það grágæsin með ungana sína sem heillar
Ijósmyndarann. Það var Gísli Kristjánsson, Keldu-
landi 11, 108 Reykjavík, sem sendi myndina.
„Ast i heyskap" hjá þeim Halldóri Frey og Thelmu
Björk en það var Sveinbjörn Halldórsson, Reyni-
hvammi 43, 200 Kópavogi, sem tók myndina.
Aðstoð i Hrisey. Unnur Sæmunds-
dóttir, Urðarholti 5, 270 Mos-
fellsbæ, sendi þessa fallegu sum-
armynd í keppnina.
„Erum við ekki sætar,“ spyr Svanhildur Þorsteinsdótt-
ir, Bólstaðarhlíð 14, 105 Reykjavik, sem sendi okkur
þessa skemmtilega mynd.
„Sá síðasti settur á sinn stað “
kallast þessi mynd sem Helga
Barðadóttir úr Vestmannaeyjum
tók við Dverghamra á Síðu.
„Situr á strák sínum“. Myndin er
af feðgunum Magnúsi og Benedikt
Snædal í sumarfríi. Myndina tók
Jóna Ármannsdóttir, Stekkjartröð
13b. 700 Egilsstöðum.